Heimskringla - 15.09.1937, Síða 5
WINNIPEG, 15. SEPT. 1937
HEIMSKRINGLA
5. SÍÐA
félagsins og er nú forseti þess að
nýju. Svo að segja hvert mál, er
félagið hefir haft með höndum,
hefir að langmestu leyti hvílt á
honum. Hann var langsamlega
atorkusamasti hvatamaður þess,
að mörg hundruð Vestur-fslend-
ingar skipulögðu för til íslands
1930 ,og þótt svo tækist til, að
hópurinn klofnaði og aðilar gætu
ekki átt samleið, þá má fullyrða
að engin för hefði verið skipu-
lögð ef dr. Rögnvalds hefði eigi
notið við. Þá var það og verk
þessa manns, fyrst og fremst,
sem því olli, að Canada-stjórn
stofnaði námssjóð þann, að upp-
hæð yfir 100,000 krónur, sem
þegar hefir borið mjög glæsileg-
an árangur. Sæmd sú, sem fólst
í gjöf Bandaríkjaþingsins í til-
efni af Alþingishátíðinni, hefði
einnig farist fyrir, ef kapp dr.
Rögnvalds hefði ekki hleypt því
fjöri í framkvæmdir allar í sam-
bandi við heimfararmálið að
segja má, að ekkert reyndist ó-
kleift.
Tiltölulega fáum mun um það
kunnugt, hversu miklu fé dr.
Rögnvaldur hefir valdið að hing-
að yrði flutt heim. Fyrir hans
atbeina hefir fé, er nemur nokkr-
um tugum þúsunda, verið ráð-
stafað til Háskóla fslands með
erfðabréfum, og hefir hann
ÞAÐ ER EKKI EIN
EINASTA LEIÐIN-
LEG STUND EF
SIGLT ER MEÐ
QsMaJtUut
Qiáfrc
SiaaiM&tápA
Hvort sem þér hyggið á að
ferðast allstur yfir Atlantz-
haf eða vestur yfir Kyrra-
haf, þá skrásetjið yður hjá
Canadian Pacific skipiuium
fínu, “Empress”, “Duchess”
eða “Mont”. Þessi linuskip
veita öll möguleg þægindi á
ferðum yfir hafið. Kurteis-
leg umgengni, ljúffengar
máltíðir, við dekk að spá-
séra um, hvilustofur, leik-
ir á þilfari, dans, samkomur
og margar fleiri skemtanir
—aldrei daufleg stund.
BEINT SAMBAND
VIÐ ÍSLAND
Agæt leið frá Canada til ís-
lands, um Skotland, fæst
með Canadian Pacific gufu-
skipunum, með tíðum og
þægilegum siglingum i
hverri viku.
Leitið frekari upplýsinga hjá
agenti vorum eða W. C. Casey,
Steamship General Passenger
Agent, C. P. R. Building, Win-
nipeg. Sími 92 456-7.
stundum orðið að fara alla leið
til fylkisþinga til þess að bjarga
fénu úr höndum yfirvalda, er
eitthvað hefir skort á um forms-
hlið erfðaskránna. Um umstang
það og erfiði, er þetta hefir haft
í för með sér, geta þeir einir gert
sér nokkra grein fyrir, er nokk-
uð hafa með því fylgst. Þá má
og á það minna, að Heimfarar-
nefndin — undir forystu dr.
Rögnvalds — gaf Háskóla ís-
lands allan tekjuafgang sinn, um
15,000 kr. að mig minnir, og gaf
landinu auk þess allskonar hús-
búnað, er nam miklu fé.
Óvíst er, hvort íslendingar
þektu enn nema mjög lítið af
ljóðum Stephans G. Stephans-
sonar, ef dr. Rögnvalds hefði
ekki notið við. Hann hefir per-
sónulega lagt stórfé til útgáf-
unnar og búið svo að segja alt
undir prentun í samráði við
skáldið, meðan það sjálft var j
enn á lífi, og nú er hann einmitt
að ganga frá handriti síðustu
kvæðabókarinnar, og auk þess
að annast útgáfu bréfa Stephans.
Þetta merka skáld er ekki eini
rithöfundurinn, sem lítt mundi
þektur ef dr. Rögnvaldur hefði
hvergi nærri komið. Dr. Rögn-
valdur er tvímælalaust ráðsnjall-
asti maður, sem eg hefi þekt, og
leitar naumast nokkur maður
svo til hans með vandamál sín,
að ekki finni Rögnvaldur ein-
hverja úrlausn. Enda grípur
hann ekki ósjaldan til þess ráðs,
sem óalgengast er, og það er að
leggja byrðarnar á sitt eigið
trausta bak.
Dr. Rögnvaldur er óvenjulega
vel að sér í íslenzkum fræðum
og íslenkzt bókasafn hans mun
vera með þeim fullkomnari, sem
til eru í einstakra manna eign.
En jafnframt hinum fomu fræð-
um hverfur sjaldan úr hug hans
margskonar viðfangsefni, sem
fyrir honum vaka um menning-
arleg og efnaleg viðskifti fslands
við Vesturálfu heims. Hann er
þeirrar trúar, að slík viðskifti
gætu orðið til mikilla hagsbóta
fyrir fsland og kæmi mér eigi á
óvart, þótt hann verði næsta ára-
tug æfi sinnar til þess að hrinda
þessum hugmyndum sínum í
framkvæmd, ef hann fyndi þann
skilning og þá velvild hér á
landi til þessara mála, sem þau
eiga skilið. Dr. Rögnvaldur er
í fremstu röð þeirra sona íslands
sem langvistum hafa dvalið
fjarri ættlandi sínu, en með inni-
lega og heita ástríðu til þess að
verða því að gagni.
Ragnar E. Kvaran
—Mbl.
‘NORÐUR-REYKIR’
Frh. frá 1. bls.
til kominn að birta neitt af því
að svo stöddu.
Nokkur ástaljóð eru í bókinni,
öll falleg, en þó ber kvæðið “Þú
hefir sýnt mér sumar” af þeim
öllum. Eg hygg að það sé varla
of sagt, að það sé fegursta kvæði
af sínu tæi, sem ort hefir verið
á íslenzku hér vestan hafs. Eg
set hér fyrsta erindið:
Þú hefir sýnt mér sumar,
sól og bjartar leiðir.
Hjá þér urðu og eru
allir dagar heiðir.
Himins birtu bláa
barstu í augum þínum.
Ljós, sem æ mun lýsa
leiðum yfir mínum.
FJÆR OG NÆR
fyrir, að hún ætlaði að gefa rík-
inu allar eigur sínar. Um kvöld-
Mrs. Halldóra ólafsson frá| |ð streymdu að svo margir gest
Sinclair, Man., er stödd j ir, að oll umferð stöðvaðist og alt
bænum. Hún kom til að sjá um j endaðl með slagsmalum, svo að
jarðarför eigimnanns síns Gunn-
laugs ólafssonar, er dó s. 1.
mánudag á sjúkrahúsi í bænum. jj
lögreglan varð að koma til skjal-
anna. En Lundúnabúar skemtu
sér vel yfir þessu aprílgabbi og
töluðu ekki um annað í margar
vikur á eftir.—Alþbl.
Miss Björg Thorkelsson kenn-
ari frá Stoney Hill dvelur um
þessar mundir hjá systur sinni
Mrs. O. Bíldfell hér í bænum.
* * i>
Ingvar bóndi Gíslason frá
Reykjavík, Man., er staddur í
bænum.
* * *
Nýlega fluttu Jón Oddstad og
kona hans frá Gilbert Plains til
I bæjarins. Mr. Oddstad kennir í
I Victoria-Albert barna-skólanum.
* * *
Sum kvæðin mega kallast
táknræn eða symbólisk, t. d.! . „T. . ,
í<r. -j- u' • „ “n V u-i • ,, M.A., 218 Sherburn St., Wmm-
Beitarhusm , ‘ Gamli bikarinn ] ’ , . , ’ ■ ,
peg, kom heim s. 1. laugardag
austur frá Toronto; hefir hún
Ungfrú Svanhvít Jóhannesson 1
ÍSLENZKA BAKARtTÐ
702 SARGENT AVE., Winnipeg
Einasta íslenzka bakarfið i
borginnd
Islenzk bakning af allrl tegund.
Pantanir utan af landi afgreiddar
fljótt og vel.
Sími 37 652
og “f Surtshelli”. — “Það svipar
hér inni til sálar í manni” og
“Enginn vita æfi má fyr en öll
er farin hjá”.
Af tækifærisljóðum í bókinni
munu eftirmælin eftir Jón skáld
Runólfsson vera bezt. Annars
eru tækifæriskvæðin fá, höfund-
urinn hefir ekki vanið sig á að
yrkja þau. Hvergi er eins hætt
við að skáldum mistakist og við
samningu tækifærisljóða, þó þau
séu mörg góð hjá sumum.
í stöku kvæðum bregður fyrir
hinni alkunnu gletni höfundar-
ins, eins og í kvæðinu “Við
skál”:—
Því áður er varir æsku slitnar
flík,
og ellin kemur, líkt og pólitík,
með skrum og raup, og skorpna
brá og kinn,
'og skalla og hærur, — allan
djöfulinn.—
Og um kjaftakindurnar er
lannig komist að orði í kvæðinu
Sjálfboðaliðið”:—
Hver lygasaga er þeim æskulind
og endurnýjun þeirra sálar-
krafta,
í henni sjá þær sína eigin mynd
og sálarfæðu þeirra, er verða að
kjafta.
Það er djúp samúðarkend í
kvæðunum og innileg tilfinning
með þeim, sem líða, bæði mönn-
um og skeppnum, og lýsir skáld-
ið því fagurlega í þessum orð-
um:—
Hver fugl, sem er sneiddur
fjöðrum,
hann færir mér harm, sem eg
með honum ber.
Því alt sem er sársauki öðrum
á eitthvert bergmál í hjarta mér.
stundað framhaldsnám í Tor-
onto-háskóla 11 undanfarna
máunði í mannfélagsfræði. Hún
hefir þegar fengið stöðu hér í
bæ.
* * *
K0RNHLÖÐUR:
Allur viður í réttum lengdum, raftar hefl-
aðir og sniðnir saman sem flýtir verki. Upp-
dráttur fylgir hverri pöntun sem sýnir
hvernig bygt er. Skrifið eða símið eftir verði
á þessum stærðum:
12’ x 14’ — 8’ 1,000 búsjel
12’ x 16’ — 8’ 1,200 búsjel
Verðið er með allri jámvöru og nöglum.
The Empire Sash & Door Co. Ltd.
. Henry Ave. and Argyle St.
WINNIPEG, Man.
Sími 95 551
G. T. Stúkan Skuld heldur al-
mennan skemtifund þriðjudag-
inn þann 21. þ. m. og byrjar kl.
8.30 e. h.
Aðal ræðumenn verða þeir Mr.
G. Dann fyrverandi stórtemplar
og Mr. Géorge Taylor, ungur
ræðusnillingur. Einnig verður
söngur og hljóðfærasláttur og
dans á eftir.
Fundurinn fer fram á ensku.
Allir velkomnir.
Hagnefndin
* * *
Séra Kristinn K. Ólafsson flyt-
ur erindi í kirkjunni að Lundar
mánudaginn 20. sept. kl. 8 að
kvöldinu, en að Oak Point þriðju-
daginn 21 sept. kl. 8 e. h. Efnið
á báðum stöðum verður “Sam-
kepni og samvinna.”
* * *
Páll Reykdal fiskikaupmaður í
Winnipeg lagði af stað í gær-
morgun suður til New York í
viðskiftaerindum. Hann bjóst
við að verða í burtu viku tíma.
HITT OG ÞETTA
Stopford A. Brooke segir í i
bókmentasögu sinni, Primer of!
English Literature: “Everyone
who can write a good book or a ■
good song may say to himself:
‘I belong to a noble company,
which has been teaching and de-
lighting the world for more than
a thousand years’ ”, Eitthvað
líkt því mættu íslenzk skáld
segja. Þau heyra til “göfugri
sveit”, sem hefir verið sómi þjóð.
arinnar á liðnum öldum og er
enn, þótt þar séu ekki allir jafn
snjallir. En hlálegt er það tóm-
læti, sem ekki íæst til að leitast
við að skilja og meta það sem að
þessir forverðir vorrar andlegu
menningar leggja fram til að
gera þjóðargarðinn frægan. Ef
menn halda að vort íslenzka
þjóðarbrot hér vestra öðlist
meiri hróður fyrir eitthvað ann-
að en andlega iðju, t. d. fyrir
það að rækta hveiti eða draga
fisk úr vötnum, jafn gagnleg
störf og það eru, þá er það mis-
skilningur. Okkar verður lengst
minst vegna þess að við höfum
átt skáld, ótrúlega marga, sem
eiga heima í hinni “göfugu
sveit”, sem skapar bókmentir
þjóðanna. G. Á.
Elsti blævængur, sem til er í
heiminum, mun vera í forn-
minjasafninu í Cairo. Hann er
talinn 4500 ára gamall. — Menn
þykjast vita með vissu, að fyrir
4000 árum hafi Kínverjar notað
blævængi, sem búnir voru til úr
fjöðrum (páfuglafjöðrum).
* * *
Frú Larsen (kemur inn til
mannsins síns með miklum asa) :
Ósköp og skelfing get eg verið
undarleg í dag. Eg bara þekki
ekki sjálfa mig, guð minn góð-
ur!
Larsen (með hægð): Það eru
svei mér bærileg tíðindi! — Bara
það haldist nú eitthvað heillin,
min.
-Vísir.
*
Árið 1889 var Lundúnaborg
sett á annan endann með vel-
hepnuðu aprílgabbi. Blaðamað-
urinn Theodor Hook< var reiður
við húsmóður sína, sem var harð-
stjóri hinn mesti. Vikuna fyrir
1. aprpíl sat Hook og skrifaði
boðsbréf til fjölda háttstandandi
persóna. Einnig sendi hann út
fjöldann allan af vörupöntunum.
Klukkan 12 á hádegi þann 1.
apríl komu margir vagnar heim
að veitingahúsi frú Tottenham.
Á vögnunum voru húsgögn, mat-
vörur, álnavara, bækur o. fl. o. fl.
Frú Tottenham reif í hárið á
sér í örvæntingu og mennirnir
skömmuðu hana fyrir, hve hægt
gengi að losa vagnana.
Um kvöldið komu svo gestirn-
ir: Borgarstjórinn í London, að-
albankastjóri Englandsbanka,
biskupinn af Canterbury o. fl.
— Og loks kom Neville gamli
Chamberlain og þakkaði henni;
i»**
m
'mt
I®
0RKUF0RÐINN
MÁ EKKI
DVÍNA
Eitt af skyldum City Hydro er að sjá fyrir
orkuforða í framtíðinni svo að engin þurð þurfi
að verða á rafmagnsneyzlu í Winnipeg, þegar
meira af henni verður krafist.
Hin stöðugt vaxandi neyzla rafmagns hefir
knúð City Hydro til að bæta þriðju túrbínunni
og aflgjafa við plöntuna í Slave Falls, sem gerir
örkumagnið alls 37,500 h.ö. Þessar örkueiningar
ERU EKKI GERÐAR MEÐ MÍNÚTNA FYRIR-
VARA. Það þarf margra mánaða undirbún-
ing til að fullkomna þær.
City Hydro hefir áformað að bæta fjórðu
einingunni við á næsta ári af því, að eins og
rafneyzlan eykst nú, geti svo farið annars, að
skortur yrði á henni að ári.
Þetta yrði óbætanlegt; þar sem City Hydro
verður að sjá fyrir þörfinni, og því, að verð orku
hækki ekki vegna skorts á henni, verður að halda
áfram að færa út stakkinn. Winnipeg-búum
hefir verið sparaður margur eyririnn síðan bær-
inn byrjaði orkusölu.
• •
Oruggur staður
að geyma
peninga
Peningar yðar eru tryggir á
banka. Sparipeningar sem geymdir
eru á Royal bankanum í Canada, eru
trygðir með eignum er nema
$800,000,000 og þér getið hvenær
sem þörf gerist á dregið þá út.
Sparisjóðs-inneign í Royal banka,
er vernd og aðstoð í sjúkdóms-tilfell-
um og atvinnuleysi.
Opnið reikning í sparibanka í dag.
ROYAL BANK
O F CANADA
Eignir yfir $800,000,000