Heimskringla - 15.09.1937, Qupperneq 8
8. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 15. SEPT. 1937
FJÆR OG NÆR
Vatnabygðir
Föstud. 17. sept. kl. 7.30: Söng-
æfing.
Sunnud. 19. sept. kl. 11 f. h.:
Sunnudagaskóli.
Kl. 1 e. h.: Messa í Kandahar.
Kl. 4 e. h.: Messa í Grandy.
Kl. 7 e. h.: Ensk messa í Wyn-
yard.
* * *
Séra Guðmundur Árnason
messar næsa sunnudag, hann
nítjánda þessa mánaðar á Oak
Point, kl. 2 e. h.
* * *
Séra Eyjólfur J. Melan, River-
ton, Man., messar í Sambands-
kirkjunni í Árborg 19. sept. n. k.
kl. 2 e. h. — í samkomuhúsinu í
Mikley sunnud. 26. sept. kl. 2%
e. h.
* * *
Messur í Winnipeg
fara fram á hverjum sunnu-
degi í Sambandskirkjunni, á
ensku kl. 11 f. h. og á íslenzku
kl. 7 e. h. Séra Philip M. Pét-
ursson messar við báðar guðs-
þjónusturnar. Eru ungir sem
gamlir vinsamlega beðnir að
minnast þessa og fjölmenna, við
báðar guðsþjónustur.
* * *
Kvenfélag Sambandssafnaðar
efnir til Silver Tea og matarsölu
næstkomandi laugardag 18. sept.
í T. Eaton Co. Assembly Hall á
sjöunda gólfi frá kl. 2.30 itl 5.30
e. h. Þær sem taka á móti gest-
um verða Mrs. Ó. Pétursson,
Mrs. Gísli Johnson og Mrs.
J. B. Skaptason.
Allir velkomnir.
ISLENZKAR BÆKUR
fSLENDINGAR! Hér er tæki-
færi, sem aldrei áður hefir
bekst á íslenzkum bóka mark-
aði. Margar ágætar bækur,
svo sem
Sögubækur,
Ljóðmæli,
Leikrit,
Fræðibækur,
Guðfræðirit,
Barnabækur,
Söngvar og nótur,
verða seldar með 75-80% af-
slætti meðan upplögin endast.
Sérstakt tækifæri fyrir ís-
lenzka bókavini að ná í góðar
og ódýrar bækur. Ný bóka-
skrá send hverjum, sem óskar
THORGEIRSON C0.
674 SARGENT AVENUE
WINNIPEG, MANITOBA
Tombóla
undir umsjón stjórnarnefnd-
ar Sambandssafnaðarins í Win-
nipeg verður haldin í samkomu-
sal kirkjunnar mánudagskvöldið
27. þ. m. Hinir ágætustu drætt-
ir verða til boðs eins og altaf. —
Eru menn beðnir að minnast
tombólunnar og veita auglýsing-
unum eftirtekt sem birtast í
næstu viku í Heimskringlu.
* * *
Signý Sigurjónsdóttir Guð-
mundsson, kona Nikulásar bónda
Guðmundssonar í Wynyard varð
bráðkvödd að heimili sínu 4. sept.
síðastl. Hún var jarðsungin af
séra Jakob Jónssyni. Signý heit-
in var fædd 26. sept. 1860, og
ólst upp í Þingeyjarsýslu. Hún
kom vestur um haf 1893. — Þau
hjónin áttu lengi heima í Bran-
don, en fluttust þaðan til Wyn-
yard. Þau hafa alið upp fóstur-
son, Inga að nafni, er nú elur önn
fyrir fósturföður sínum í ellinni.
* * *
G. T. Stúkan Skuld heldur sína
árlegu Tombólu 4. okt. n. k. Ná-
kvæmar auglýst síðar.
* * *
Dr. Richard Beck frá Grand
Forks, N. D., kom til bæjarins
s. 1. fimtudag. Hann dvaldi hér
fram yfir helgina, sat fund
stjórnarnefndar Þjóðræknisfé-
lagsins, flutti ræðu á Heklufundi
s. 1. fimtudagskvöld, var kosinn
í nefnd af Heklu til að hugsa fyr-
'r hátíðarhaldi í tilefni af 50 ára
starfsemi íslenzkra Goodtempl-
ara vestra en þeim áfanga hafa
íslenkzir templarar náð 27 des.
á þessu ári. Þann dag var með
öðrum orðum Stúkan Hekla
stofnuð fyrir 50 árum, en með
bví hefst sá þáttur í félagsstarfs-
cæmi Vestur-fslendinga er miki's
verður hefir verið og merkur
mun talinn í sögu þeirra.
* * *
Mr. Jón Laxdal kom s. I. viku 1
til bæjarins vestan frá Saskat-
chewan. Hann var að fara suð-
Árni Sigurðsson frá Wynyard,
Sask., kom til bæjarins s. I.
fimtudag; hann dvelur hér um
hríð.
* * *
Elías Jóhannsson frá Gimli,
Man., liggur veikur á General
Hospital í Winnipeg; innvortis-
veiki þjáir hann. Hann er sagð-
ur betri en þegar hann kom á
sjúkrahúsið fyrir 3 vikum.
* * *
Mr. Rútur Thordarson frá
Flin Elon var á ferð hér í bænum
fyrir nokkrum dögum að heirp-
sækja móður sína og systkini.
Hann vinnur við smíðar þar
norðurfrá.
* * *
Jakob Frímann frá Hnausum,
Man., kom til bæjarins s. 1.
sunnudagskvöld. Hann er á leið
suður til Dakota að sjá dóttur
sína, Mrs. B. M. Melsted í Edin-
borg. Gerði ráð fyrir að dvelja
syðra um mánaðar tíma.
Áður en Mr. Frímann lagði af
stað í ferðina, var honum hald-
ið kveðjusamsæti af saumaklúbb
ungra stúlkna á Hnausum og af-
hent gjöf nokkur, (sem kallað
var ferðaskildingur). Fór sam-
sætið fram á heimiJiiMr. og Mrs.
Gísla Sigmundssonar. Var um
20 manns viðstatt. Forseti
klúbbsins, Miss Inga Magnússon
fór með tveimur stallsystrum
sínum heim í hús Frímans og
sótti hann. Þegar inn á heimili
Sigmundsons-hjónanna var kom-
ið, bauð Miss Sigrún Sigmunds-
son heiðursgestinn velkominn.—
Miss Guðrún Finnsson afhenti
honum þá gjöfina, sem áður um
getur. Og svo talaði Miss Fjóla
Sigmundsson nokkur vel valin
orð til heiðursgestsins. Á milli
ræðanna var söngur og spilaði
Miss Aida Martin undir á píanó.
Fyrir þessa velvild og hugul-
semi til sín og gjöfina, þakkaði
heiðursgesturinn með ræðu. —
Biður hann Heimskringlu aftur
að færa saumaklúbbnum beztu
VIÐVÖRUN
TIL ALLRA SEM í HUGA HAFA AÐ FLYTJA TIL
WINNIPEG f VINNULEIT EÐA TIL AÐ
KOMAST Á FRAMFÆRSLUSTYRK
1. Bærinn hefir ótal marga atvinnulausa íbúa, sem
hvaða atvinnu geta tekið sem býðst.
2. Enginn framfærslustyrkur verður veittur fjöl-
skyldum eða einstökum mönnum, sem í bænum
eru, en eru ekki reglulegir bæjarbúar.
3. Enginn framfærslustyrkur verður veittur þeim,
hvort sem giftir eru eða ógiftir, sem til bæjarins
flytja eftir að tilkynning þessi hefir verið birt.
By order
CITY OF WINNIPEG UNEMPLOYMENT
RELIEF COMMITTEE
24 ág. 1937
. þakkir fyrir sig og vonar að
ur til Bandankjanna, fyrst til. honum verði velgerð öll til sín
Garðar, N. D„ þar sem hann býst ]aunuð af sem engu góð_
við að dvelja fram í október mán-1 Verki gleymir. Einnig Gísla Sig-
aðarlok, en heldur þá áfram til ^ mundssyni og konu hans, Valda
heimils síns í San Diego, Cal. | yída] og konu hang og Gesti
* * * j Vídal á Fitjum fyrir svo margt
Gunnlaugur ólafsson, er um og margt, sem þetta fólk hefir
skeið hefir verið í þessum bæ honum gott sýnt fyr og síðar.
undir læknishendi, dó s. 1. mánu-
dagskvöld á Almennaspítalanum.
Dr. Lárus Sigurðsson er ný-
KENSLUBÆKUR
Skólar eru nú rétt að
byrja. Eg efi á boðstólum
skólabækur fyrir alla bekki.
Einnig hefi eg til sölu
stórt úrval af bókasafns-
bókum, sem seljast við ó-
heyrilega lágu verði. Þetta
ætti fólk til sveita að nota
sér.
Ágætt Player Piano, fyr-
ir aðeins $40.00 gegn pen-
ingum út í hönd, fæst einn-
ig á staðnum.
The BETTER ’OLE
548 ELLICE AVE
Ingibjörg Shefley, eigandi
Hann átti áður heima í bænum kominn heim eftir mánaðardvöl
Reston, Man., vann þar fyrir^í Bandaríkjunum þar sem hann
C. P. R. félagið. Gunnlaugur var að kynna sér lækninga-að-
heitinn var 77 ára, ættaður úr ferðir á sjúkrahúsum.
Skagafirði. Hann skilur eftir! * * *
konu, Halldóru Guðmundsdóttir
ólafsson og tvær dætur Mrs.
Germain í Saskatoon og Stella
Kristín ólafsson, B.A., ógift, ný-
lega útskrifuð af Saskatoon-há-
skóla og nú kennari í Prongua,
Sask. Jarðarförin fer fram í
dag kl. 2 e. h. frá útfararstofu
A. S. Bardal.
* * *
Mrs. Einar Haralds kom heim-
an frá íslandi á mánudaginn, ‘
Charles Hallson læknaskóla-
piltur kom sunnuan frá New
York á þriðjudaginn. Hann
dvaldi þar í þrjár vikur í sumar-
fríinu hjá systur sinni, sem þar
er hjúkrunarkona.
* * *
Þau hjónin Friðfinnur og
Hólmfríður ísfeld að Langruth,
Man., urðu fyrir þeirri sorg að
missa, 7. sept, 4 ára gamlan son
sinn, Einar Roy ísfeld. Hann
manns Jóhannssonar. Þær fóru
til íslands snemma á þessu
sumri.
S
FUNDARB0Ð
Nefnd fslendingadagsins, boðar til almenns fundar, árs-
fundar, MÁNUDAGINN þann 27. þessa mánaðar
I Góðtemplara húsinu við Sargent Ave.
STÖRF FUNDARINS ERU:
Lagðir fram reikningar og skýrslur yfir starfsárið.
Að kjósa sjö menn í nefndina til tveggja ára í stað
þeirra, sem endað hafa sitt starfstímabil í nefndinni.
Þar á meðal er ritari og forseti nefndarinnar.
Kjósa yfirskoðunmenn reikninga.
Ákveða hvar f&lendingdagurinn skuli haldast næsta
ár.
Ný mál.
ááá
Gleymið því ekki íslendingar, að hér er um málefni
að ræða, sem “traust við ísland oss tengjá—”
íslendingadagurinn snertir alla, af íslenzku bergi
brotna. Þessvegna er vonast til að fólk sýni áhuga sinn
og löngun að viðhalda deginum, með því að sækja vel
fundinn og taka einlægan og ákveðinn þátt í umræðum,
og sýni einbeittan vilja sinn um úrskurð málanna á þeim
grundvelli, sem heillavænlegastur þykir fyrir heill þjóð-
minninfnr-dags vors í framtíðinni.
Davíð Björnsson
1.
2.
3.
4.
5.
með henni kom Miss Magnússon í veiktist réttum mánuði áður en
tengdasystir Gunnlaugs kaup-'^ann lézt. Læknis var vitjað í
Langruth. Nokkru seinna var
drengurinn fluttur til Winnipeg.
Alt hugsanlegt var gert til að
bjarga honum, en árangurslaust.
Hann lezt a barnaspitalanum úr
mænusjúkdómi (spinal menin-
gritis). Hann var jarðsunginn af
séra Rúnolfi Marteinssyni,
fimtudaginn. 9 þ. m. Aðal at-
höfnin fór fram í lútersku kirkj-
unni íslenzku að Langruth. —
Kirkjan var full af fólki. Meðal
syrgjenda, auk foreldranna, voru
fsfelds hjónin, afi og amma
drengsins ásamt öllum tólf
börnum sínum, sömuleiðis móð-
urafi, Mr. G. Guðmundson frá
Árborg. Mikið af fögrum blóm-
um túlkaði hluttekning vina. __
Söngflokkur safnaðarins söng,
en Miss Guðný Olson var organ-
isti. Síðasta kveðjan var í graf-
reit safnaðarins.
“Drengurinn litli sem dó” vek-
ur angurblíðar tilfinningar, en
vér vitum samt að hann
beztu föðurfóstri”.
er
Gjafir til Sumarheimilis
íslenzkra barna
Kvenfélag Sambandssafnaðar,
Riverton ............$25.00
Kvenfél. “Liljan”
Hnausa............... 10.00
Dr. J. T. Thorson,
Winnipeg ............. 5.00
Mrs. Ingib. Bjarnason,
Wynyard .............. 1.00
Sveinn Thorvaldson,
M.B.E., Riverton ....100.00
Hjörtur Guðmundsson,
Árnes .............. 2.00
Jóhann Johnson, Bjargi,
Mikley ............... 1.00
Riverton Transfer,
(Work value) ......... 1.00
Kvenfél. Sambandss., Ár-
borg, ...4 pör þurkur
Mrs. G. Laxdal, Leslie .... 5.00
Mrs. J. Ásgeirsson,
Winnipeg.............. 6.00
Mrs. John Anderson,
Winnipeg.............. 3.00
Mrs. Baldvinsson,
Winnipeg............. 3.00
Mrs. J. Sigmundsson,
Winnipeg.............. 1.50
Mrs. Sam Sigurdsson,
Winnipeg ............. 1.00
Mrs. F. Hanson, Winnipeg 2.00
G. Eiríksson, Winnipeg .... 6.00
Parmes Magnússon,
Winnipeg.............. 2.00
Mrs. Hinriksson, Winnipeg .50
Mrs. Bower, Winnipeg .... 1.00
Mrs. Benson, Winnipeg .... 1.00
Mrs. J. Bjarnason,
Winnipeg.............. 1.00
S. B. Stefánsson,
(ferðakostnaður) ..... 3.00
Rev. P. M. Pétursson,
(ferðakostnaður) ..... 3.00
Fyrir þessar gjafir kvittast
með þakklæti.
Mrs. H. v. Renesse,
Féhirðir nefndarinnar
* * *
Til bæjarins eru nýflutt Mr.
og Mrs. Jóhann Magnússon frá
Árborg, Man., Er heimili þeirra
að 386 Beverley St. Áður en þau
fóru alfarin frá Árborg, var
þeim haldið mjög veglegt
kveðju samsæti á heimili læknis-
hjónanna, Dr. og Mrs. S. E.
Björnssonar. Tók fjöldi manns
þátt í samsætinu. Ræður fluttu
Dr. S. E. Björnsson, Mrs. S. E.
Björnsson, séra Sig. ólafsson,
Mrs. Sig. Ólafsson og nokkrir
fleiri. Auk margra hlýrra orða
til þessara góðu hjóna, voru
þeim afhentir munir að gjöf til
minningar um samveruna og
samstarfið í bygðarmálum. —
Biðja Magnússons-hjónin Heims-
kringlu að tjá vinunum sitt inni-
legasta þakklæti fyrir bæði gjaf-
irnar og góðvild sér sýnda með
þessu samsæti og endrar nær.
* * *
f síðustu “Hkr”. misprentaðist
að íbúatala Evrópu væri 55 milj.
í stað 550 miljónir.
* * *
Hjörtur bóndi Bergsteinsson,
Alameda, Sask., var á ferð í
bænum s. I. fimtudag.
í greininni “Stjórnarskrá
hinnar nýju úthlutunar” sem
birtist í 45 tölublaði Hkr. hafa
nokkur orð fallið úr setningu,
sem hér með leiðréttist:
f blaðinu byrjar þátturinn um
framkvæmdarvaldið þannig: .—
“Alt landstjórnarlegt vald, hvers
eðlis sem það kann að vera, skal
sitja í embætti um nokkur fjögra
ára tímabil.” Þetta á að vera
þannig: “Alt landstjórnarlegt
vald, hvers eðlis sem það kann að
vera, skal vera í höndum for-
seta Bandaríkjanna. Hann skal
sitja í embætti um nokkur f jögra
ára tímabil.”
* * *
Föstudaginn 10. þ. m. voru
þau óskar Johnson og Olga Þór-
hildur Eyford, bæði frá Vogar,
Man., gefin saman í hjónaband
af séra Rúnólfi Marteinssyni að
493 Lipton St. Eftir stutt gleði
mót með fáeinum lögðu brúð-
hjónin af stað bílleiðis til heim-
ilis síns að Vogar.
* * #
Messur í Argyle 19. sept.
Grund 2.30 e. h.: Þakkarguðs-
þjónusta.
Baldur 7 e. h.
Séra Haraldur Sigmar frá
Mountain flytur báðar messurn-
ar. Fjölmennið.
MESSUR og FUNDIR
( kirkju SambandssafnaOar
Messur: — á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
SajnaOarnefndin: Funalr 1. fðstu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundir fyrswi
mánudagskveld l hverjum
mánuðl.
KvenfélagiO: Fundlr annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngtefingar: Islenzki söng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskvöldi.
Enski söng-flokkurinn &
hverju föstudagskvöldi.
SunnudagaskóHnn: — A hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
THOR GOLD
Mining Syndicate
NAMIIRNAB ERU 20 MIUUR
AUSTUR AF KENORA, ONT.,
VIÐ ANDREW FLÓA —
LAKE OF THE WOODS
Félagið hefir umráð á 400
ekrum I námulandi við Andrew
Bay, Lake of the Woods i Ken-
ora-umdæmi.
Sýnishorn af handahófi i nám-
unnl hafa reynst frá 50c upp i
$40,000 úr tonninu og i Channel
Samples eru frá 60c upp i $60.00
i tonninu.
KAUPIÐ NÚ—
A $10 HVERT UNIT
(300—500 hlutir i Unit)
Thor Gold Mlning Syndicate
Head Office: 505 Union Trust
Bldg., Winnipeg Man.
Ráðsmenn:
Forseti: M. J. THORARINSON
370 Stradbrooke St., Winnipeg
Skrifari og féhirðir:
SKOLI BENJAMINSON
Whittier St., St. Charles, Man.
Við Kviðsliti?
Til linunar, bóta og styrktar
reynið nýju umbúðimar, teyju-
lausar. Stál og sprotalausar. —
skrifið: Smith Manfg. Company,
Dept. 160, Preston, Ont.
Kaupið Heimskringlu
Lesið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
Pianokensla
R. H. RAGNAR
Kenslustof a:
518 Dominion St.
Phone 36 312
Tilkynning
Stjórnendur og starfsmenn J. J. Swanson
& Co. Ltd., halda hátíðlegt tuttugu og fimm
ára afmæli félagsins laugardagin tuttugasta
og fimta september, frá klukkan tvö til
fimm e. h. Þessi minning um stofnun fé-
lagsins verður haldin, sem nokkurskonar
“At Home” skemtun á skrifstofu félagsins,
601 Paris Bldg. Allir félagar, viðskiftamenn,
leigjendur og vinir eru innilega boðnir og
velkomnir.
J0N BJARNASON ACADAMY
652 HOME ST.
TALSÍMI 31 208
Fjórir bekkir: 9—12
Fjórir íslenzkir kennarar
Tækifæri til að nema íslenzku.
Tuttugasta og fimta starfsár skólans, með skrásetning
nemenda fimtudaginn 16. sept. Gerið þetta ár
hátíðlegt með mikilli aðsókn
íslenzkra nemenda.
R. MARTEINSSON, skólastjóri
493 Lipton St. Talsími 33 293