Heimskringla - 29.09.1937, Page 3
WINNIPEG, 29. SEPT. 1937
HEIMSKRINGLA
3. SÍÐA
LOFÐUNGARNIR FIMM
--------brot-
Smyrill.
Framh.
Þannig hafði það viljað til að
systkinin komust undir yfirráð
lofðunganna fimm. Og aðeins
fyrir áhrif systkinanna og hæfi-
leika þeirra blómgaðist ríki lofð-
unganna svo vel og svo fljótt, að
þeir urðu á örskömmum tíma
svo voldugir að þeir urðu eins
konar guðir í augum lýðsins, sem
þeir þó hötuðu, og fyrirlitu. Og
þá hlutu þeir nafnið lofðungarn-
ir fimm. En þegar lýðurinn varð
þess áskynja að systkinin voru
ekki lengur í hans þjónustu.
varð lýðnum það fyrst ljóst,
hvað hann hafði mist. En þá
var það um seinan, því systkinin
voru komin undir annara yfirráð
og höfðu gefið hinum nýju hús-
bænum sínum órjúfanleg vistar-
heit. Alt þetta flaug í gegnum
huga óðins á meðna hann virti
fyrir sér útsýnið frá hamrinum
fram við sjóinn. En svo var
þetta aðeins lítið eitt af öllu því,
sem hann hafið um systkinin að
segja.
En svo var það lengi, sem
þessi fögru góðu systkini höfðu
verið óánægð í þjónustu lofð-
unagnna fimm, þessara nýju
húsbænda sinna. Og þau fundu
oft sárt til þess að lýðurinn
skyldi þau ekki og kunni ekki að
meta þau. En fyrir hann vildu
þau beita áhrifum sínum til góðs.
f stað þess að þar sem þau voru
nú, yrðu þau að breyta og starfa
móti sínu góða eðli. Þrátt fyrir
það vöndust þau vistinni er frá
leið þó þau aldrei gætu gleymt
hinum fyrri húsbændum sínum.
Og þegar systkinin voru á ferð-
um sínum meðal lýðsins, að reka
erindi yfirboðara sinna, höfðu
þau reynt í laumi að koma anga
af hinu góða eðli sínu inn í
hjörtu lýðsins. Og þeim lukkað-
ist það að nokkru leiti, en þó
ekki eins vel og þau hefðu viljað,
því lýðurinn hafði verið svo and-
vana og blindur fyrir hinni góðu
viðleitni systkinanna. Lýður-
inn hafði tekið á móti þeim eins
og þau komu honum fyrir sjónir
í erindagerðum lofðunganna
fimm. En sökum þessara yfir-
sjóna sinna, varð lýðurinn að
drekka sitt beizka öl og gerast
þræll lofðunganna, sem aldrei
hefðu þurft að vera til í þessu
veldi.
XI.
Og enn er það sagt að systkin-
in séu sorgmædd þegar þau
ganga út á meðal lýðsins. Það
er sagt þau séu ávalt sorgmædd
þegar þau leggja út á meðal vina
sinna með tálsnöru lofðunganna
fimm. En það er sannað að þau
vita ekki af því að í sorginni eru
þau þúsund sinnum fegurri og
þar af leiðandi áhrifameiri í aug-
um þeirra, sem þau eru að ginna
í net valdhafanna.---------
• XII.
En lofðungarnir fimm voru
slægvitrir og létu ekki að sér
hæða. Og sökum þess að þeir
voru sjálfir ein prakkara og
svika keðja, þá álitu þeir aðra
eins. Þessvegna var það, að
þrátt fyrir alla góða viðleitni og
dygð systkinanna, tortrygðu
málmkóngarnir þau. Og til þess
að koma nveg fyrir svlk og und-
irferli frá systkinanna hálfu,
létu þeir þau útbýta merkjum
til allra þeirra, sem gengu þeim
á vald. En þessi merki voru
löng eyru, sem höfðu þá náttúru
að stækka án þess að hlutaðeig-
andi yrði þess var. Og eftir því,
hvað eyrunum fór vel fram með-
al lýðsins, drógu þeir vald sitt og
áhrif systkinanna. Og Óðinn til
mikillar undrunar og gremju, sá
hann að það var aðeins tíundi
hver maður, kona og barn á
smábátunum, sem ekki hafði
þessi leiðinlegu og löngu eyru.
Og það sá óðinn einnig, að þó
eyru þessi hefðu mjög mismun-
andi þroska-skilyrði meðal lýðs-
ins, þá voru þau orðin svo geysi-
lega löng og áberandi á sumum
að til vanskapnaðar horfði.
XIII.
En ómerkingarnir, sem lofð-
ungunum fimm lukkaðist ekki að
klófesta, sá óðinn að höfðu
drukkið í sig áhrif hinna góðu
kenda systkinanna og stóðu með-
al lýðsins eins og klettar úr haf-
inu, sem allir boðar brotnuðu á.
Og með aðstoð systkinanna
höfðu þroskast hjá þeim hinir
góðu hæfileikar, sem gerði þá að
leiðtogum lýðsins. Þeir börðust
fyrir heilögu málefni, viðreisn
hinna undirokuðu og þjáðu. Og
þeir voru þess megnugir að sjá
gegnum svikavefinn sem þessir
drotnarar mannúðarleysisins
voru að flækja lýðinn í. Og þeir
urðu vitarnir á útneskjum
grynninganna, er sendu frá sér
ljósbrot í allar áttir, til þess að
forða smábátunum frá strandi á
blindskerjunum. ,
En þessir ljósvitar komu samt
ekki nema stundum að góðu liði,
því skipshafnirnar á bátunum
voru oft svo kærulausar og
blindar fyrir hættunni af skerj-
unum að vitarnir komu þá ekki
að tilætluðum notum. Og þess-
vegna urðu ströndin mörg og
mannskaðarnir miklir.--------
XIV.
En það voru þessir starfsliðar
systkinanna, sem óðinn kallaði
Hafsteina, sem málmkóngarnir
óttuðust og voru hræddir við,
þrátt fyrir sitt geysilega vald og
mikla auð. — Þeir óttuð-
ust hið andlega afl þeirra,
afl sannleikans, afl réttlætisins
og afl mannúðarinnar og liin sí-
vaxandi áhrif þeirra á lýðinn.
Og þó illræði, drotnunargirni og
vald lofðunganna fimm væri
mikið, megnuðu þeir ekki að
ryðja Hafsteinunum úr vegi sín-
um. Og þeir megnuðu ekki held-
ur að slökkva ljósin á vitunum
við grynningarnar.
XV.
En lofungarnir fimm voru
ekki af baki dotnnir. Þeir höfðu
ótal ráð og ótal aðferðir til að
ná sér niðri á andstæðingum sín-
um. Þeir gátu rætt allar sínar
fyrirætlanir og leyndarmál í
gegnum leyni þráðinn* og gátu
því komið sér saman um allskon-
ar vélráð og klækjabrögð og full-
kannað þau í kyrþey og síðan
steypt þeim yfir óvini sína, ó-
vænt eins og eldingu, og þannig
tafið fyrir og jafnvel eyðilagt
hina góðu viðleitni þeirra, sem
fyrir lýðinn börðust. Og þegar
þeir höfðu komið ár sinni þannig
fyrir borð, kiptu þeir í þræla-
taugina og hótuðu lýðnum kvala-
fullum pintingum og dauða ef
hann ekki hlýddi þeim umryða-
laust og í blindni. Ef það dugði
ekki, þá sendu þeir út kvalara
sína með pintingar-áhöldin og
gáfu þeim ótakmarkað vald til
að kúga, pína og kvelja hinn
undirokaða og örbirgðarþjáða
lýð.
En á meðan þessu ógeðslega
ráðabruggi fór fram meðal vald-
hafanna, og hinum svívirðilegu
fyrirskipunum þeirra á hendur
lýðsins var framfylgt, risu upp
fleiri Hafsteinar meðal hinna
þjáðu og vitarnir með ströndun-
um fjölguðu. Og með hverjum
nvjum vita jókst ljósmagriið og
geislarnir frá vitunum urðu
smám saman svo sterkir að
málmkóngarnir, sem aðeins
höfðu vanist birtunni frá sínum
eigin málmi, fengu ofbirtu og
sviða í augun er olli þeim óró-
leik og óþægiridum svo miklum
að þeim varð í bili ráðafátt.
En það stóð sjaldan lengi. —
Lofðungarnir fimm, virtust hafa
ráð undir hverju rifi, eins og
sagt var um tóuna þegar hún
var örmagna af hungri að ná sér
í björg er oft var sýnd en ekki
fengin. Og lofðungarnir finna
út það ráð að láta búa sér til
augnagrímur, er verja augu
þeirra fyrir hinum sterku geisl-
um vita-ljósanna. En grímur
þessar voru þannig úr garði
gerðar, að þeir gátu séð alt bet-
ur í gegnum þær en án þeirra.
Og þegar þeir höfðu sett á sig
grímurnar og gátu litið í kring-
um sig án hindrunar vita-ljós-
anna, komust þeir að raun um að
þrælar þeirra voru einnig í hættu i
frá þessum vita-geislum. Og'
þeir urðu þess einnig áskynja að
lýðurinn var farinn að vinna
verk sín ver, voru orðnir kæru-
lausari og þrjóskuðust meir en
áður við yfirboðara sína, þrátt
fyrir allar hótanir og pintingar*
sem þeim var ríkulega látið í té.
En þræíana sáu þeir, að þeir
máttu ekki missa, sökum þess að
þeir voru aðrakstursvélar auð-
lindar þeirra, en auðlindirnar
aftur stoðirnar undir valda-sessi
þeirra. Þeim hugkvæmdist því
það snjallræði, að láta gera lýðn-
um, sem bar löngu eyrun, augna-
grímur líkar þeirra til vamar
villuljósi vitanna, eins og þeir
kölluðu það, því þeim var það
ljóst að Hafsteinarnir og vita-
ljósin voru smátt og smátt að
draga lýðinn úr höndum
þeirra. En grímur þær, sem
þeir létu búa til fyrir lýðinn,
voru þannig úr garði gerðar, að
hann sá alt illa, nema það, sem
stóð að einhverju leiti í sam-
bandi við málm og drottinholl-
ustu við lofðungana fimm, og eft
ir því, sem þrælarnir urðu auð-
mjúkari, og þess meira sem þeir
svínbeygðu sig fyrir þessum
drotnandi grimdarseggj um, þess
ver var farið með þá, og þess
grimmúðugri urðu pyndingarnar
og prísundin, sem þeir voru
hneptir í.
XVI.
Svo líða mörg ár, segir Óðinn.
Mörg ár heiftar og harmkvæla,
baráttu og blóðfórnar. Loks ljúk-
ast upp augu lýðsins. Það fer að
snörla í þrælunum. Höfuð þeirra
sem um aldir höfðu hangið nið-
ur á bringu af ótta og undirgefni
við valdhafanna, lyftust hægt og
hægt frá aldagömlum vana uppá
við. Þeir fóru að líta í kringum
sig með dirfsku og meiri ein-
beittni en þeir áttu vanda til.
Þeir vakna af dvalanum og fá
meðvitund um að það sé til betra(
frjálsara og fullkomnara líf en
það, sem þeir höfðu að þessu
gert sér að góðu. Vita-ljósin
voru farin að verka á þá, jafn-
vel þó augnagrímurnar vörnuðu
þeim frá að sjá og skilja alt í
réttri mynd. En það var þó spor
í áttina til einhvers æðra og
betra.
XVII.
Það lítur út fyrir að lofðung-
•nir fimm séu að komast í hann
"appan hugsaði óðinn, sem enn
;óð á hamrinum og las úr því
sm fyrir hann bar. Hann sér að
sir hafa komist að þeirri niður-
;öðu að góð ráð muni nú bráð-
m fara að verða þeim nokkuð
ý-r og að nú verði þeir að láta
críða til skarar með einhverjar
reytingar. Hann sér að þeir
ika ráð sín saman í gegnum
lyniþráðinn. Og eftir langar
? ítarlegar ráðstafanir og bolla-
ggingar heyrist árangurinn af
íðræðunum bergmála frá báðum
ídum leyni-holanna.
“Kúga, pína, drepa! Engin
rið!”
Þetta var þá ávöxtur hinna
lynilegu ráðstefnu gegnum
■yniþráðinn.
En það var einskonar tóma-
ljóð í þessari upphrópun þeirra.
að var eins og óviðfeldinn hroll-
r færi gegnum lofðungana
imm, eftir þessar ákvarðanir
;ynifundarins. Því, þrátt fyrir
lla grimdina og harðneskjuna,
oru þeir fyrst í stað í dálitlum
fa um hvort þeir ættu að fram-
ylgja sínum eigin ákvörðunum
agnvart lýðnum. Þeir voru
ræddir. Þeir óttuðust sínar
igin djöflavélar og brögð. En
þeim var ljóst að þeir máttu
ekki láta lýðinn verða þessa veik-
leika síns áskynja því hann gat
notað það, sem vopn gegn þeim.
Nei. Þeir urðu að brynja sig
með stálklæðum og ota með
demöntunum, skýla sér á bak við
gullhrúgurnar og ganga svo
fram í skjóli valdsins og láta'
uppvöðslu-seggina kenna á ofúr- ^
magni sínu. Þeir voru reiðir og
þyrstir í blóð, blóð, blóð! blóð
smælingjanna, skrælingjanna, ^
sem þeir svo kölluðu, því sjálf- j
sagt varð að kenna þeim um upp-
tökin og alt, sem aflaga fór og
gekk á móti málm-kóngunum.
Þessvegna mögnuðu þeir sig með
öllum þeim djöflakrafti er þeir
áttu ráð á og kiptu í þræla taug-
ina og hrópuðu:
“Þið heimsku slæpingjar! Við
seflum ac5 láta drepa ykkur! Tak-
ið eftir því þrjózkufullu þrælar!
Dauðinn er á hælum ykkar. Við
látum flugur vorar spúa á ykkur
eldi úr loftinu. Slöngur skrið-
skipa vorra skulu tæta ykkur í
ótal agnir og logandi loftstraum-
ar skulu fylla vit ykkar eitri og
sjóða sundur innyfli ykkar.”
Framh.
ANDLEGT LÍF f KRÓATfU
í blöðum og útvarpi hefir að
undanförnu all ítarlega ver-
ið getið um óeirðir þær, sem orð-
ið hafa í Júgóslavíu, út af hinum
kirkjulega sáttmála, sem ríkis-
stjórnin gerði við páfastólinn.
Sáttmáli þessi var gerður fyrir
nokkru, en dregið að leggja hann
fyrir þingið í Júgóslavíu til fulln-
aðarsamþyktar, af ótta við óeirð-
ir, en loks tók stjórnin rögg á
sig, lagði sáttmálann fyrir þing-
ið, og samþyktin hafði fram, en
síðan hefir verið óeirðasamt
mjög í landinu, og stundum kom-
ið til blóðugra bardaga. Eigi
þykir ástæða til að geta þessara
deilna hér frekara að sinni, en í
fróðleiks skyni verður drepið á
ýmislegt viðvíkjandi Júgóslavíu
og því sem þar er á döfirini, og
þó einkum menningarlífi í Króa-
tiu, sem að allra dómi er mesta
menningarland hins júgóslav-
neska ríkis.
Júgóslavía varð til upp úr
heimsstyrjöldinni miklu, eins og
kunnugt er, er suður slafnesku
löndin, sem áður lutu keisara-
dæminu Austurríki og Ungverja-
landi sameinuðust Serbíu, og er
Júgóslavía mesta ríki Balkan-
skagans, um 250,000 ferh.kílóm.,
en íbúatalan 12—13 miljónir.
Eru það Króatar, Slóvenar og
Serbar, sem eru fjölmennastir.
Króatía og Slavónía eru láglend
og frjósöm. Hefir verið öflug
sjálfstæðishreyfing þar í lönd-
um. Júgóslavar eru margir róm-
versk-kaþólskrar trúar, einkan-
lega í norðvesturhluta landsins,
en aðrir grískkaþólskir eða Mú-
hammestrúarmenn, í austan-
verðu landinu og suðurhlutanum.
Er því eigi furða, þótt mál trú-
arlegs eðlis, verði deiluefni, í
þessu mikla ríki, sem bygt er af
ólíkum þjóðum, er ekki hefir
enn tekist að vera samhuga í
málum, sem mjög varða fram-
tíð ríkisheildarinnar.
Þjóðernishreyfingin hefir
einkum verið öflug í Króatíu og
gætir þess mjög í nútíma bók-
mentum Króata. Fullyrt er, að
aldrei hafi bókaútgáfa og bók-
mentalegur áhugi verið meiri í
Króatíu en nú. Hinir nýju höf-
undar, sem komið hafa fram á
sjónarsviðið þar í landi, eru af
öllum stéttum, og þeir hafa allir
einhvern boðskap að flytja þjóð
sinni. Um það eru þeir allir
sannfærðir og þeir skrifa í þeim
anda. Það er mjög athyglisvert
hversu mikillar þjóðrækni gætir
í verkum hinna króatisku höf-
unda. Þeir vilja stuðla að því
með verkum sínum, að þjóðin
hefjist upp til vegs og gengis,
þeir vilja vekja hana, koma því
til leiðar, að hún skilji köllun
sína, þeir vilja, að hin króatiska
bændaþjóð verði forystuþjóð í
menningarlegri baráttu í
austurhluta álfunnar. Margir
rithöfundanna eru úr bændastétt
og þeir hafa með ritstörfum sín-
um haft mikil áhrif, ekki aðeins
á bændur, heldur og á mentuðu
stéttirnar. — Þessir höfundar
skrifa um og lýsa lífi bænda-
stéttarinnar og kjörum hennar,
á þann veg, að ást þjóðarinnar
til jarðarinnar, sem hún erjar,
eflist og vaxi. Meðal þessara
manna eru höfundar, sem gefa
út blöð og tímarit, sögur og
ljóðabækur. Þeir lýsa einföldu
lífi bændanna, gleði þeirra og
sorgum, en í gegnum alt skín
þráin til þess að vinna að því að
Króatía verði sjálfstæð og eng-
um háð. Mentuðu stéttirnar eiga
þá höfundana, sem standa á elst-
um merg, og eru kunnastir. Þeir
eru ekki eins frjálslyndir og hin-
ir, en þeir eru þjóðræknir eigi
síður en yngri höfundarnir. —
Margir þessara höfunda skrifa í
Króatiska tímaritið, kunnasta
tímarit landsins. Margir höf-
undar í Króatíu leggja stund á
leikritagerð og einnig í leikrit-
unum kemur fram mikil um-
bótaþrá. Króatisku höfundarn-
ir nota einnig leiksviðið, til and-
legrar vakningarstarfsemi. Einn
af efnilegustu kvenrithöfundun-
um Króata, Mara Matohets, hef-
ir fyrir nokkru, samið leikrit
sem miðar að því að leiða í ljós
fyrjr Króötum, að framtíð þjóð-
arinnar sé undir því komin, að
sveitafólkið haldi trýgð við jarð-
ir sínar og yfirgefi ekki sveitirn-
Þér sem notiS—
TIMBUR
KAUPIÐ AF
THE
Empire Sash & Door
CO.t LTD.
Btrgðir: Henry Ave. Eaat
Sími 95 551—95 552
Skrtfstofa:
Henry og Argyte
VERÐ - CÆÐI - ÁNÆGJA
ar til þess að setjast að í bæjun-
um.
í Króatíu er mikill áhuga fyrir
varðveizlu alls, sem þjóðlegt er
og þjóðinni til góðs, að haldið sé
trygð við. Rithöfundar Króata
vara þjóðina við því, að stæla er-
lendar þjóðir, hún geti margt af
öðrum þjóðum lært, en henni
beri að vera sjálfri sér trú og
halda trygð við land sitt og þjóð-
lega menningu.—Vísir.
Amma 33 ára
Frú Wilfiam Forx í Newhaven,
Bandaríkjunum, er talin vera
yngsta amma vestra. — Hún
er 33 ára og dótturdóttir hennar
mánaðargömul.
* * *
f New York er nýlega búið að
byggja nýjan skýjakljúf, sem
ekki er nú í frásögur færandi.
Hitt er merkilegra, að húsið er
36 hæðir, og var bygt á 43 dög-
um.
suð
INNKÖLLUNARMENN HEIMSKRINGLU
I CANADA:
Amaranth............................. J. B. Halldórsson
Antler, Sask.........................k. J. Abrahamson
Árnes.............................Sumarliði J. Kárdal
Árborg................................G. O. Einarsson
Baldur.............................Sigtr. Sigvaldason
Beckville.............................Björn Þórðarson
Belmont..................................G. J. Oleson
Bredenbury.............................H. O. Loptsson
Brown.............................Thorst. J. Gíslason
Churchbridge........................Magnús Hinriksson
Cypress River....................................Páll Anderson
Gaf00..................................S. S. Anderson
Ebor Station, Man....................K. J. Abrahamson
Elfros................................ s. S. Anderson
Eriksdale........................................ólafur Hallsson
Foam Lake.............................. John Janusson
Gimli................................... K. Kjernested
Geysir.............................................Tím. Böðvarsson
Glenboro...................................g. J. Oleson
Hayland............................. Slg. B. Helgason
Hecla...............................Jóhann K. Johnson
Hnausa..................................Gestur S. Vídal
Hove.............................................Andrés Skagfeld
Húsavík............................... John Kernested
Innisfail..........................Hannes J. Húnfjörð
Kandahar................................ s. S. Anderson
Keewatin.............................. Sigm. Björnsson
Kristnes............................... Rósm. Ámason
Langruth.............................................b. Eyjólfsson
Leslie............................... Th. Guðmundsson
Lundar........................Sig. Jónsson, D. J. Líndal
Markerville........................Hannes J. Húnfjörð
Mozart.................................S. S. Anderson
Oak Point......................................Andrés Skagfeld
Oakview............................Sigurður Sigfússon
Otto.................................... Björn Hördal
Piney...................................S. S. Anderson
Red Deer...........................Hannes J. Húnfjörð
Reykjavík..........................................Árni Pálsson
Riverton..........................................Björn Hjörleifsson
Selkirk........................................Magnús Hjörleifsson
Sinclair, Man........................K. J. Abrahamson
Steep Rock........................................Fred Snædal
Stony Hill........................................Björn Hördal
Swan River....................................Halldór Egilsson
Tantallon.........................................Guðm. ólafsson
Thornhill...........................Thorst. J. Gíslason
Víðir...................................Aug. Einarsson
Vancouver..............................Mrs. Anna Harvey
Winnipegosis......................................Ingi Anderson
Winnipeg Beach.....................................John Kernested
Wynyard.....*...........................S. S. Anderson
I BANDARÍKJUNUM:
Akra..................................Jón K. Einarsson
Bantry............................... E. J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash..................Mrs. John W. Johnson
Blaine, Wash...................Séra Halldór E. Johnson
Cavalier........................./....Jón K. Einarsson
Chicago: Geo. F. Long, 2428 Hamlin Ave., Logan Square Sta.
Edinburg...................................Jacob Hall
Garðar................................S. M. Breiðfjörð
Grafton...............................Mrs. E. Eastman
Hallson...............................Jón K. Einarsson
Hensel.................................J. K. Einarsson
Ivanhoe............................Miss C. V. Dalmann
Los Angeles, Calif....Thorg. Ásmundsson, 4415 Esmeralda St.
Milton..................................F. G. Vatnsdal
Minneota............................Miss C. V. Dalmann
Mountain..............................Th. Thorfinnsson
National City, Calif.....John S. Laxdal, 736 E 24th St.
Point Roberts.........................Ingvar Goodman
Seattle, Wash.........J. J. Middal, 6*23—21st Ave. N. W.
Svold..................................Jón K. Einarsson
Upham................................ E. J. Breiðfjört
The Viking Press Limited
Winnipeg Manitoba