Heimskringla - 29.09.1937, Qupperneq 7
WINNIPEG, 29. SEPT. 1937
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA
ALLIR ÍSLENZKIR LISTA-
MENN ERU Nú SAMEIN-
AÐIR í BANDALAGI
ÍSLENZKRA LISTA-
MANNA
Rvík. 23. ág.
í Bandalagi íslenzkra lista-
manna eru 100 félagar og nær
það til allra eða langflestra
starfandi listamanna.
íslenzkir listamenn hafa löng-
um átt við þrong kjör að búa og
listin hefir löngum orðið að þoka
fyri baráttunni fyrir daglegu
brauði.
Þetta hefir og leitt til þess að j
listamennirnir hafa ekki verið j
framtakssamir og forystu þeirra I
í þjóðfélaginu í menningsmál-
unum ekki gætt eins vel og á-
stæða hefði verið til og æskilegt
hefði verið fyrir þjóðina.
Sem betur fer, virðist vera
orðin nokkur breyting á þessu.
Kjör listamannanna batna, og þó
er langt frá því, að þjóðin hafi
nægilegan skilning á starfi,
þeirra, og það er eftirtektar-
vert, að um leið og kjör lista-
mannanna fara batnandi rísa(
þeir upp, mynda með sér samtök,
hefja starfsemi fyrir framfara-
málum og koma fram meira en
áður í menningarbaráttu þjóðar- (
innar.
Um þessa starfsemi lista-
mannanna hefir verið alt of
hljótt, enda er hún ekki gömul. j
Þjóðin á að hlusta með athygli
á alt, sem listamennirnir hafaj
að segja um menningu hennar
og framtíð og kunna að velja og
hafna tillögum þeirra.
Ekkert er eins auðvirðilegt og ,
skilningslaust smajaður fyrir
listamönnum og listum; það er
litlu betra en tómlæti fyrir list-
um.
Listamenn eru ekki óskeikulir
dómarar á öllum sviðum, þó að í
þeir standi almenningi langt
framar á ýmsum sviðum. Lista-
mennirnir skilja þetta betur en
aðrir, að minsta kosti flestir.
Þeir marka sér svið til að starfa
á, og nú virðast þeir vilja láta
til sín taka á þeim sviðum, sem
þeir vilja vinna á. Hinsvegar
eru til listamenn, sem tala um
alla hluti eins og sá, sem valdið
hefir.
Þjóðin á auðvitað að hlusta á:
þessa menn, en gæta þess, að
þeir geta verið til trafala og
skemda.
Bandalag íslenzkra listamanna
var stofnað fyrir nokkrum árum,
en raunverulega hefir það ekki
fengið fast form fyr en á síðast
liðnu ári og jafnvel ekki fyr en
á þessu ári.
Á þessum árum hefir Banda-
lagið verið að skapa sér fasta og
viðamikla stefnuskrá. Að henni
hefir ekki verið hrapað á nokk-
urn hátt, og hefir hún skapast
fyrir hæga þróun meðal lista-
mannanna og þjóðarinnar og
verður því athyglisverðari fyrir
alla þjóðina.
Það er ekki einungis með list
sinni, sem listamennirnir hafa
boðskap að flytja þjóð sinni; j
þeir hafa það einnig í menning-
armálunum og það sýnir hin
nýja stefnuskrá.
Á fundi, sem Bandalagið hélt.
hér í bænum í fyrra haust, var
stefnuskráih formlega staðfest, j
en til að kynna hana sem bezt
öllum starfandi listamönnum,
var hún send til allra meðlima
Bandaíagsins í bréfi og þeir
beðnir að segja álit sitt um hana
og senda stjórn Bandalagsins.—
Hefir stjórn þess nú fyrir
nokkru borist það mörg svör, að
hún væntir ekki fleiri, og fyrir
nokkru hefir hún gefið stefnu- j
skrána út í bæklingsformi ásamt,
lögum Bandalagsins og sent út.
Þykir rétt að skýra hér nokk-
uð frá þessari merku stefnuskrá,
sem á að vera upphafið að víð-
tækari starfsemi listamannanna
en þeir hafa áður haft.
Auk ýmissa sérmála lista-
manna um réttindi þeirra o. s.
frv. segir svo um almenn mál í
fyrsta kafla stefnuskrárinnar:
Stofnun listamannaheimilis
Að stofna með tekjuöflun á
ýmsan hátt Listasjóð fslands til
styrktar öllum listum.
Að stofna í sveit' á íslandi
listamannaheimili, eitt eða fleiri>
þar sem íslenzkir listamenn hafi,
líkt og sagnahöfundar í klaustr-
um til forna, athvarf og fullan
vinnufrið, að minsta kosti um
stundarsakir til skiftis.
Að af þeim fimm mönnum,
sem eiga sæti í Mentamálaráði
fslands skuli þrír vera listamenn,
þ. e. eitt skáld, einn myndlistar-
maður og einn tónlistarmaður,
eða að bandalagið eigi að minsta
kosti fulltrúa, einn eða fleiri í
Mentamálaráði.
Að samvinna sé milli allra list-
rænna stofnana á íslandi, Þjóð-
leikhúss, Ríkisútvarpsins, Tón-
listarskólans, Háskólans o. s. frv.
Að halda uppi samböndum við
erlend listafélög og listastofnan-
ir og annast viðskifti við þau.
Að haldnar verði við og við
alþjóða-listasamkomur á sumrin
í Reykjavík.
Að um listir riti opinberalega
aðeins dómbærir menn undir
fullu nafni.
Listahús í Reykjavík.
Um myndlist segir meðal ann-
ars:
Að opinberar byggingar fyrir
ríki-, bæjar- eða sveitarfélög
skuli boðnar út til samkepni um
beztu uppdrætti og að listamenn
og sérfræðingar eigi sæti í dóm-
nefnd.
Að listamönnum verði veitt at-
vinna við skipulagningu og-
skreytingu opinberra bygginga
að utan og innan.
Að Ríkisprentsmiðjan Guten-
berg haldi uppi vinnustofu fyrir
listamenn, þar sem þeim veitist
kostur á að vinna bæði fyrir
sjálfa sig og prentsmiðjuna að
listrænni bókagerð, myndagerð
og myndaprentun.
Að stofnað verði til árlegrar
samkepni um beztu uppdrætti
af frímerkjum, bankaseðlum og
peningamótum til agóða fyrir
Listasjóð íslands, en að lista-
menn eigi sæti í dómnefnd.
Að halda árlega listsýningu í
Reykjavík.
Að taka þátt í listsýningum
erlendis og að halda þar íslenzk-
ar listsýningar.
Að koma upp húsi í Reykjavík
fyrir listsýningar og með vinnu-
stofum listamanna og samkvæm-
issölum.
Um tónlist
Um tónlist segir:
Að öll tónmentastarfsemi í
skólum, stofnunum og félögum
landsins verði skipulögð undir
einhverri sameiginlegri yfir-
stjórn til betri samvinnu og af-
kasta.
Að í þjóðleikhúsinu verði tón-
list iðkuð jafnmikið og leiklist.
Að tónlistarmenn, en ekki út-
varpsráð, hafi framkvæmdavald
tónleika við Ríkisútvarpið, og
hafi til þess ákveðna upphæð, án
íhlutunar leikmanna.
Að samvinna sé milil Þjóðleik-
hússins, Ríkisútvarpsins og ann-
ara stofnana um opinbera list-
ræna hljómleika.
Að Meningarsjóður styðji tón-
list jafnt sem aðrar listir.
Að ekki verði fluttir inn ólist-
rænir erlendir hljómleikarar,
heldur viðurkendir menn, ein-
göngu eftir listrænum kröfum,
til hljómleikahalds og kenslu.
Ríkisrekstur á
kvikmyndahúsum
Og um bókmentir og leiklist:
Að hver hreppur landsins hafi
sitt bókasafn, en að bækurnar
séu keyptar, og að fyrir hvert
útlán greiðist dálítil upphæð til
höfundarins eða í sérstakan bók-
mentasjóð.
Að bandalagið hafi einn eða
fleiri fulltrúa í útgáfustjórn
Bókadeildar Menningarsjóðs.
Að Bókadeild Menningarsjóðs
hlutist til um útgáfu íslenzkra
bókmenta á erlendum málum til
sölu erlendis.
Að þjóðleikhúsið verði starf-
rækt nú þegar sem bezt í þágu
allra lista.
Að ríkisrekstur verði á kvik-
myndahúsum á íslandi og ágóð-
inn notaður til listastarfsemi í
Þjóðleikhúsinu. (Þetta stefnu-
atriði er til orðið án sambands
við stjórnmálaflokka, enda eru
listastofnanir og skemtanafyrir-
tæki ríkis rekin í flestum menn-
ingarlöndum).
Að framkvæmdavald orðlistar
og leiklistar við Ríkisútvarpið sé
ekki í höndum útvarpsráðs, held-
ur verði falið aðeins lærðum list-
mönnum, sem hafi til þessarar
starfsdeildar ákveðna upphæð,
án íhlutunar annara aðila.
Þetta er allmerkileg stefnu-
skrá og mikil nýjung, því að und-
anfarið hafa listamennirnir ver-
ið mjög tómlátir með öll slík mál.
Verður mikil bót ráðin á ýmsum
vandamálum, ef hægt væri að
hrinda í framkvæmd helztu at-
riðunum í þessari stefnuskrá,
og um það ættu menn að geta
sameinast, því á þessu sviði hef-
ir margt verið í vanrækslu og því
lítill listasmekkur meðal þjóðar-
innar.—Alþbl.
NÝR dalai lama
FUNDINN í TÍBET
íbúarnir í Tíbet hafa aftur
eignast Dalai Lama. Fréttin um
það var símuð stórblöðum heims-
ins seint í mánuðinum, sem leið
frá fréttariturum þeirra í Aust-
urálfu.
Hvað er Tíbet og hver er Dalai
Lama ?
Tíbet er hluti af hinu foma
Kínaveldi. Það er hæsta land
heimsins í miðri Asíu, norðan
Himalayafjalla. Það er álíka
stórt og Þýzkaland, Frakkland,
Spánn og Portugal til samans.
En það er einna minst þekt af
öllum bygðum löndum. Ýmsan
fróðleik er þó um það að finna í
ferðabókum hins fræga sænska
vísindamanns Sven Hedin. Höf-
uðborgin heitir Lessa og hefir
10 þús. íbúa, og alt er landið
mjög strjálbýlt. Þjóðin er að
þekkingu mörgum öldum á eftir
tímanum og veit lítið hvað fram
fer í heiminum. Tvö blöð koma
út í landinu, annað þeirra mán-
aðarblað, en hitt vikublað, sem
er prentað austur í Nanking í
Kína, en síðan flutt á úlföldum
inn á hásléttur Mið Asíu. Það
kvað ekki vera alveg vandalaust
að annast ritstjórn þessara blaða
og eiga að segja þannig frá mest
umtöluðu nútímaviðburðum að
Tíbetbúar hafi not af.
En Dalai Lama, hver er hann ?
Sá Dalai Lama, sem nú er um
að ræða, er ofurlítill Tíbetdreng-
ur, rúmlega 31/) árs gamall. —
Hann á að hafa fæðst 17. des.
1933, og afmælinu sínu á hann
það að þakka, að hann nú ber hið
heilaga nafn Dalai Lama, og á að
verða hæst ráðandi landsins.
Tíbet er kirkjuríki, og “guðs-
lög’’ eru lög landsins, þ.e. þau lög
sem sett hafa verið af prestum
hins heilaga Buddha. Æðsta
stjórn lands og þjóðar var lögð í
hendur 2ja “himinborinna”
höfðingja, sem annar nefndist
Panshan Lama og hinn Dalai
Lama. Upphaflega voru þeir
jafnir að völdum, en nú um
langt skeið hefir Dalai Lama,
sem býr utan borgarmúranna,
verið hinum æðri og að sumu
leyti einvaldur. En hin heilögu
embætti eru arfgeng með sér-
kennilegum hætti.
Þegar Lama deyr, er það trú
þjóðarinnar, að sál hans sé þegar
endurborin í líkama einhvers
sveinbams í Tíbet, sem fæðst
hefir á dánardegi Lama. Á
prestastéttinni hvílir þá sú
skylda, að finna þetta barn,
þannig að þjóðin fái aftur Lama
sinn. Á þann hátt ríkja hinir
sömu Lamar um alla eilífð yfir
Tíbet, endurbornir einu sinni á
hverjum mannsaldri.
En hvernig fer um völd Lam-
ans meðan hann er í bemsku?
Um það eru fasta reglur. Ef
Panshan Lama deyr, á Dalai
Lama að vera fóstri hins unga
Lama, og er Dalai Lama deyr, er
það Panshan Lama, sem verður
forráðamaður barnsins, sem á
sínum tíma fær völd Dalai Lama.
Af þessu leiðir, að hinn eldri
Lama á hverjum tíma hefir oft-
ast aðalvöldin, því að jafnvel
eftir að hinn ungi Lama er orð-
inn fullveðja, fer hann eftir ráð-
um fóstra síns og fyrri forráöa-
manns. Frá þessu eru þó undan-
tekningar.
Þegar Panshan Lama sá, sem
nú er í Tíbet, var orðinn full-
veðja, vildi hann fara sínu fram
og ekki hlýða í öllu hinum eldri
Lama. Baráttan endaði á þann
óvenjulega hátt, að hinn gamli
Dalai Lama, sem að lögum hafði
meira vald, gerði hinn óstýriláta
unga Panshan Lama útlægan úr
landinu. Panshan Lama hrökkl-
aðist þá til Mongólíu, og hefir
látið þar mikið til sín taka í
stjórnmálum.
En þann 17. des. 1933 dó hinn
aldni Dalai Lama. Samkvæmt
hinum fornu venjum átti þá
preStastéttin að leita uppi sál
hans endurfædda meðal þeirra
sveinbarna, sem fædd voru í Tí-
bet 17. des., og síðan átti hinn
útlægi Panshan Lama, í umboði
barnsins, að taka í sínar hendur
æðsta vald í landinu.
En prestunum í Tíbet gekk í
þetta sinn alveg óvenjulega illa
að finna hina endurfæddu sál.
Leitin tók þá hvorki meira né
minna en hálft fjórða ár. Og
allan þann tíma hefir hin trúaða
þjóð lifað í ofboðslegri skelfingu
út af þeirri tilhugsun að svo
kynni að reynast, að hinn goð-
borni andi hefði slept hendi sinni
af Tíbet.
En raunverulega stóð allan
þennan tíma barátta milli hins
útlæga Panshan Lama annars-
vegar og voldugra manna úr
prestastéttinni hins vegar —
barátta um völdin í landinu. Og
þar hafa jafnvel fleiri öfl að
verki verið. Þess er vænst, að
Panshan Lama muni vinna að
auknu samstarfi við Kína, og
þess vegna hafa líka Kínverjar
stutt hann á ýmsan hátt. En
talið hefir verið, að hinn gamli
Dalai Lama og áhangendur hans
í prestastétt, sem nú gekk svo
illa að finna hann endurborinn,
hafi verið undir brezkum áhrif-
um frá Indlandi.
En í vor var ákveðið að kalla
Panshan Lama heim úr útlegð-
inni. Strax og hann var kominn
heim fanst auðvitað hið heilaga
barn. Það verður nú Dalai
Lama, hinn 14. með því guðlega
nafni.—N. Dbl.
- NAFNSPJÖLD -
Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldg. Skrifstofusiml: 23 674 Stundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. Er aS flnnl & skrifstofu kl. 10—12 f. h. og 2—6 e. h. Heimlll: 46 Alloway Ave. Talsími: 33 151 G. S. THORVALDSON B.A., LL.B. Lögfrceðinour 702 Confederatlon Llfe Bldg. Talsíml 97 024
Jacob F. Bjarnason —TRANSFER— Baggage and Furniture Moving 591 SHERBURN ST. Phone 35 909 Annast aHakonar flutnlnga fram og aftur um bœlnn. w. J. LINDAL, K.C. BJÖRN STEFÁNSSON ISLSNZKIR LÖGFRÆÐINQAR & öðru gólíi 325 Main Street Talsimi: 97 621 Hafa einnlg skrlístofur a8 l^ndar og Glmll og eru þar að hltta, fyTsta miðvlkudag 1 hverjum mánuði. “
MARGARET DALMAN TSACHSR OF PIANO 154 BANNINO ST. Phone: 26 42« M. HJALTASON, M.D. ALMENNAR LÆKNINGAM Sérgrein: Taugasfúkdómar Lœtur útl meðöl 1 vlðlögum Viatalstímar kl. 2—4 e. h 7—8 aS kveldinu Slml 80 857 g65 vietor Bt.
Japanir hafa á þessum slóðum,
en fullvíst er, að þeir hafa þar
tvö 6000 smálesta stöðvarskip,
og Bandaríkjamenn fullyrða, að
þeir hafi að minsta kosti fjögur
slík skip, auk fjölda annara. Þá
er kvartað yfir því, að japanskir
fiskmenn fari á land í Alaska,
skjóti þar hreindýr og taki vatn
í óleyfi. Bæði panadiska ríkis-
stjórnin og stjórnin í Washing-
ton hafa rætt þessi mál við jap-
önsku stjórnina, en það hefir
ekki borið árangur enn sem kom-
ið er, því að Japanir hafa rétt til.
samkvæmt alþjóðalögum, að
veiða utan landhelgi. En sú
spurning, sem mest er rædd í
þessu sambandi, er sú, hvort eigi
sé unt að grípa til einhverra ráð-
stafana, þegar mikilvæg atvinnu-
grein er þannig eyðilögð af er-
lendri þjóð. Hafa komið fram
kröfur um rýmkun landhelginn-
ar. Vegnat stöðvarskipanna er
að skapast nýtt viðhorf í þessum
málum. Og Canadamenn segja,
að það væri furðulegt, ef Japan-
ir eða hvaða þjóð önnur sem
væri, ætti að haldast það uppi að
eyðileggja atvinnuvegi breskra
þegna — ef til vill ekki aðeins
við Canada, heldur hvar sem
væri í Bretaveldi, án þess að
brezkir menn gæti haft þar nokk-
ur afskifti af. Samvinna í þess-
um málum er nú ráðgerð milli
Canadamanna og Bandaríkja-
manna, laxveiði þeirra til vernd-
ar, en sú atvinnugrein er Banda-
ríkjamönnum einum 40 milj.
dollara virði árlega.—Vísir.
lr. Allur útbúnaður s& bestl. _
Enníremur selur hann hMmbm
mlnnlsvarða og legstelna.
843 SHERBROOKB ST.
Phone: lt 607 WINNIPMO
Dr. S. J. Johannesion
*1» Sherbura Street
Talslml 80 871
VlðtalaUml kl. 8—6 a. h.
Dr. D. C. M. HALLSON
Physlclan and Surgeon
264 Hargrave (opp. Eaton’s)
Phone 22 775
,J5?yatzos Floral shop
«06 Notre Dame Ave. Phone 04 064
Freah Cut Flowere Dally
Plants ln Season
We specialize In Weddlng &
Concert Bouquets & FuneraJ
Designs
Icelandlc apoken
thl watch shop
Thorlakson Baldwin
Diamonds and Wedding
Rings
Agents for Bulova Watche*
Marriage Licensea Issued
699 Sargent Ave.
FISKVEÍÐAR JAPANA
Japanir eru fiskimenn miklir.
Stunda þeir fiskveiðar eigi að-
eins á miðunum í kringum jap-
önsku eyjarnar, heldur fara þeir
í fiskileiðangra víða um höf, m.
a. á miðin undan vesturströnd
Canada og Alaska, Fiskveiðar
Japana á þessum slóðum, þótt
þeir stundi þær að sjálfsögðu
utan lendhelgi, eru að verða al-
varlegt deiluefni Japönum ann-
arsvegar og Canadamönnum og
þó einkum Bandaríkjamönnum
hinsvegar. Japanir eru í sínum
fulla rétti að stunda fiskveiðar
þarna utan landhelgi, en Banda-
ríkjamenn segja sem svo, að
þeir stundi veiðina þannig, að
þeir sé að eyðileggja alla lax-
veiði í ríkjunúm Oregon og
Washington tg Alaska, en þar
hafa verið gerðar víðtækar ráð-
stafanir til þess að skipuleggja
laxveiðina þannig, að hún gengi
ekki til þurðar. Japanir hafa
stöðvarskip á miðunum undan
Alaska og Vestur-Canada og
fjölda veiðiskipa og fá þarna ó-
hemju af laxi, en laxgengdin í ár
Bandaríkjanna og Canada við
Kyrrahaf minkar stöðugt. Nú
eru eigi til áreiðanlegar skýrslur
um hversu mörg og stór skip
f Þýzkalandi hefir heyrst talað
um eftirfarandi sögu, sem ekki
er vitað um, hvort er alskostar
sönn:
Göbbels útbreiðslumálaráðh.
var að baða sig um daginn, en
hætti sér of langt út og var að
því kominn að drukna, er þrír
drengir b.iörguðu honum.
Eftir björgunina gaf ráðherr-
ann þeim kost á að óska sér ein-
hvers. Einn þeirra óskaði sér að
fá konfektpoka, annar leikfanga-
flugvél, en sá þriðji' sagði: —
eg óska þess aðeins, að eg verði
jarðsettur á kostnað ríkisins.
— Það var skrítin ósk, sagði
Göbbels. — Ertu veikur?
— Nei, svaraði drengurinn, en
eg veit, að pabbi drepur mig,
þegar hann'heyrir, hverjum eg
hefi bjargað.—Mbl.
* * *
Seytján miljónir Gyðinga
i Gyðingar í öllum löndum
heims eru 17 miljónir talsins og
þar af eru 4,500,000 búsettir í
Bandaríkj unum.
Lesið Heimskrlnglu
Kaupið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
iCCOOGOOCCOOOOCOOOOGOSOOQO!
Dr. A. V. JOHNSON
lSLSNZKVR TANNLÆKNIR
313 Curry Bldg., Wlnnlpeg
Qegnt pÓ6thú*lnu
51ml: 9t 211 HeimiUt: II Jlf
J. J. Swanson & Co. Ltd.
RSALTORS
Rental, Imurance and Financial
Aoentt
Siml: 84 231
80« PARIS BLDQ.—Wlnnlpeg
Gunnar Erlendsson
Planokennarl
Kenslustofa: 701 Victor St.
Siml 89 535
Orric* Phoni Res. PHon
87 398 72 409
Dr. L. A. Sigurdson
109 MKDICAL ARTS BUILDINO
Orncr Houas:
13 - 1
4 rn - 8 r.K.
lwd bt APPozvncsirr