Heimskringla - 24.11.1937, Side 4
4. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 24. NÓV. 1937
...........
]Ticimslnúniila |
(StofnvO 1SS8)
Kemur út á hver)um miSvikudegt.
Elgendur:
THE VIKING PRESS LTD.
SS3 oo S5S Sargent Avenue. Winnipeg
Talsímis SS 537
VerS blaðsins er $3.00 árgangurlnn borglst
fyrirfram. Allar borganlr sendist:
THE VIKING PRESS LTD.
311 viðskifta bréí blaðinu aðlútandi sendlst:
K -"ager THE VIKINO PRESS LTD.
SS3 Sargent Ave., Winnipeg
Ritstjóri STEFAN EINARSSON
Utanáskrijt til ritstjórans:
EDITOR HEIMSKRINGLA
S53 Sargent Ave., Winnipeg
"Heimskringla” is publlsbed
and printed by
THE VIKING PRESS LTD.
SS3-SSS Sargent Avenue, Winnipeg Man.
Telephone: 86 537
^iuuumuiuiiHiiiiiiiiUiiiiiiiiiiiiiiiimiiHiiiJiiiiiiiiikiuiiiniiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiniimiiiiiiiiuiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiuiia
WINNIPEG, 24. NÓV. 1937
FULLVELDISDAGUR ISLANDS
Áður en næsta tölublað ‘Hkr.’ kemur út,
verður fullveldisdagur íslands runninn
upp; hann er fyrsta dag desember mánað-
ar.
Dags þessa hefir ekki til þessa verið
minst hér neitt sérstaklega, þó það sé, sem
að líkum lætur, gert heima. Annar ágúst
heldur hér velli enn, og reyndar heima
einnig, sem þjóðminningardagur og gerir
að líkindum þar til 1943. En það ár á
ísland að velja um hvort að það heldur
áfram að vera í konungssambandi við Dan-
mörku eins og það nú er og hefir verið
síðan 1. des. 1918, eða það færist í fang
að stjórna sjálfu sér öllum öðrum þjóðum
óháð og sem hvert annað fullvalda ríki.
Þó þeir séu til sem álíta, að farsælast
verði að halda sambandinu áfram er lítill
vafi á því að þjóðin mun þá snúa sér að
því að takast vandann á hendur, að stjóma
sér sjálf.
Sambandið nú er aðeins konungssam-
band; og því fylgir auðvitað að leggja
nokkuð, eða hlutfallslgea sem Danmerkur-
ríki, á borð konungs. Mun það fé nema
fimtíu þúsund krónum á ári. Sendiherra
hefir ísland aðeins í Kaupmannahöfn. —
Aðrar sendiherrastofur þess eru eins og
áður sameinaðar sendiherrastofum Dana.
Þegar tekið var að semja um sambandið
milli ríkjanna 1918, var það tvent, sem
hvor aðili eða ísland og Danmörk, virtust
ákveðin í, og það var, að því er íslendinga
áhrærði að slá ekki af fullveldiskröfunni;
Danir héldu aftur eðlilega í öll réttindi
annara þegna ríkisíns. Þetta náði meðal
annars til réttar bæði Færeyinga og Dana
til fiskveiða við ísland, til jafns við fs-
lendinga. Urðu íslendingar að verða við
þessari kröfu Dana og veita þessi rétt-
indi til 25 ára. En í stað alls þessa, fengu
fslendingar í fyrsta sinni viðurkenningu
máls síns um fullkomið sjálfstæði. Þó að
úrslit málsins megi heita að bíða til 1943,
hlaut ísland fána og viðurkenningu fyrir
að vera fullvalda ríki strax 1918, þrátt fyr-
ir konungssambandið.
f sambandsmálum íslands og Danmerk-
ur má því í raun og veru heita, að síðasta
áfanganum hafi verið náð. Og að þjóðin
kunni með frelsi eða sjálfstæði sitt að
fara, er ekki að efa; framfarirnar síðustu
tvo áratugina eru órækur vottur þess.
Lengi hafði ísland barist fyrir frelsi
sínu. Það beið þó þjóðhetjunnar Jóns
Sigurðssonar, að leggja varanlegan grund-
völl að þeirri baráttu með því að geta, án
þess að hrakið yrði, sýnt fram á að íslend-
ingar hefðu bæði sögulegan og þjóðernis-
legan rétt að standa á í frelsisbaráttu
sinni. Sögulegi grundvöllurinn var mik-
ilsverður, en sá þjóðemislegi má heita það
eigi síður og er í raun réttri undrunarverð-
ur. Þegar þess er gætt, að ísland var ekki
skoðað annað eða meira en dönsk hjáleiga
eða hérað um margar aldir og margir em-
bættismenn þjóðarinnar og flestir við-
skiftaforkólfarnir voru danskir, er furðan
meiri, að þeir skyldu fá haldið við þjóðemi
sínu og tungu allan þann tíma og eiga svo
eftir að fá uppreisn þeirra mála og verða
frjáls þjóð í frjálsu landi á ný.
Á fullveldisdaginn 1, desember á ís-
lenzka þjóðin og allir sem af íslenzku bergi
eru brotnir margs merkilegs að minnast;
ef til vill, er saga þeirra hin merkilegasta,
er af nokkurri smáþjóð fer, fyr eða síðar,
einmitt fyrir þetta viðhald þjóðemisins.
Sú nýlunda gerist nú hér vestra, að
þjóðræknisfélag ungra fslendinga í þessum
bæ, sem stofnað hefir verið fyrir nokkru,
er nú að undirbúa samkomu á Marlborough
Hotel 1. desember næstkomandi. Er það
fyrsta samkoman sem félagið efnir til og
gat það naumast merkilegri kafla úr sögu
íslands valið sér að minnast með þessari
þjóðræknissamkomu sinni, en þennan, um
fullveldisdaginn. Ræður sem þarna verða
fluttar, en sem ekki munu verða margar,
verða eflaust á ensku flestar, því ýmsu
stórmenni þessa fylkis, svo sem einhverj-
um af ráðgjöfum stjórnarinnar og öðrum
forkólfum, hefir verið boðið. Máltíð og
dans verður og þarna. Á það eflaust að
vera til þess að vekja alla þá athygli á því
sem íslenzkri þjóð heyrir til sem hægt er,
að hafa þessa ensku herra þarna með. Og
megi unga þjóðræknisfélaginu hepnast á-
form sitt með þessari samkomu og hvert
þjóðlegt starf, sem það tekur sér fyrir
hendur.
Kolaforði heimsins, þ. e. a. s. ónumin kol.
er sagður vera 7,685,000,000,000 tonn. —
Mikið af því eru linkol. í Bandaríkjunum
er forði steinkola (anthracite) talinn
16,000,000,000 tonn; í Kína 427,000,000,-
000 tonn. Á þessa auðslind Kína er sjald-
an minst. En það gerir ekki mikið til.
Japanir vita um hana.
ÞING 1NÆSTA MÁNUÐI
Blaðið Winnipeg Free Press hefir það
eftir stjórninni í Manitoba, að fylkisþing
verði kallað saman í byrjun desember mán-
aðar. Eflaust á þetta að vera bráðabirgða-
þing, en hver eru málin, sem um verður
fjallað á því og sem svona bráð liggur á að
taka til íhugunar, að ekki mega bíða fram
yfir hátíðir, eða þar til þing hefst í janúar
eða febrúar eins og vanalega?
Aðal málið fyrir þessu bráðabirgðaþingi,
kvað vera í því fólgið er nú skal greina:
Eins og kunnugt er, á Winnipeg-borg
ofurlítinn varasjóð. Þessi varasjóður er
það sem öðru fremur hefir verndað láns-
traust bæjarins og forðað honum frá gjald-
þroti. Fylkið átti einnig varasjóð, en
hann hvarf brátt sem aðrir sjóðir fylkis-
stjórnar undanfarin ár. Það er víst eini
opinberi varasjóðurinn sem til er, þessi
varasjóður Winnipegborgar. Þrátt fyrir
kostnað bæjarins af atvinnuleysinu, hefir
aldrei á þennan varasjóð verið ráðist. Svo
framsýnt bæjarráð hefir hér ávalt verið.
En nú er Bracken ekki í rónni út af því, að
bærinn skuli eiga ofurlítinn .varasjóð. —
Heldur en að láta það viðgangast hugsar
hann sér að kalla saman þing og neita að
borga sinn vanalega skerf af atvinnuleys-
iskostnaðinum og koma honum á Winni-
peg-borg. Telur Bracken það með öllu f jar-
stæðu, að fylkið sé að taka lán fyrir at-
vinnuleysiskostnaðinum, er bærinn eigi
varasjóð!
Blaðið Free Press skrifar um þetta mál
og bendir Bracken á ósanngirnina í því að
steypa þessum atvinnuleysiskostnaði öllum
á bæinn. En Bracken mun lítinn gaum
gefa því, vegna þess, að hann getur ekki
haft augun né hugan af þessum varasjóð
borgarinnar!
Amy Mollison segir að flugferðir séu
ein af þeim dauðleiðinlegustu og einmana-
legustu stundum, sem nokkur geti lifað.
EITT FASISTARÍKIÐ ENN
Getulio Vargas, forseti Brazilíu, lýsti
því yfir 10. nóvember, að ný stjómarskrá
væri komin í gildi og eftir henni yrði rík-
inu stjórnað, sem einstaklingsstofnun, þar
sem einn væri stjórnandinn, en þing og
löggjafar gætu tekið sér hvíld. Vargas
segir þetta bráðabirgðabjargráð, en það er
í sjálfu sér ekkert annað en það sem Hitler
og Mussolini hafa gert; Það boð var og
látið út ganga, að greiðslum á öllum stjóm-
arskuldum yrði frestað.
Brazilía er því orðin eitt af fasistaríkj-
um heimsins,
Vargas neitar því þó að eiga nokkuð
saman að sælda við Mussolini eða Evrópu-
fasicsma. Segir hann t. d. að hann hafi
neitað að gerast þátttakandi með ítalíu,
Þýzkalandi og Japan í samtökunum móti
kommúnisma. En aðfarirnar eru svo ó-
tvíræðilega líkar því sem gerst hefir í ein-
ræðislöndunum, að það er ekki hægt að
rengja sig um að þama sé fasismi á ferð-
inni. Mussolini spáði og fyrir nokkrun\
mánuðum, að næsta fasistaríkið yrði
Brazilía. Þó hann héldi því einu sinni
fram, að fasismi væri ekki útflutnings-
vara, er það nú deginum ljósara, að Mus-
solini horfir ekki í neitt til þess að útbreiða
hann. Hann kemur illu af stað hvar sem
hann getur, og eys út fé til landráðamanna,
þar sem nokkur líkindi erú til að gróður-
setja fasisma.
í Brazilíu eru um 15 miljón ftalar, en
þar eru 44 miljónir íbúa alls. Þjóðverjar
ráða þar og talsverðu. Þó þeir búi tiltölu-
lega fáir í landinu, eru þeir yfirmenn í
verksmiðjum og formenn við mörg störf.
Þar eru prestar sem óskorðuð völd hafa í
þjóðfélaginu. Pólitískt frelsi eða atkvæð-
isréttur er hálf útlend hugmynd í Brazilíu,
sem í flestum lýðríkjum Suður-Ameríku.
Byltingar eru aftur landlægar. Og þar
sem stóreignamennirnir í þessum ríkjum
eru margir eða meirihlutinn útlendingar,
er auðvelt að æsa lýðinn heima fyrir upp á
móti þeim. En á því þrífst fasismi að ó-
eirðareldurinn dvíni ekki þjóða á milli. Og
að steypa stjórnum með ofbeldi og fremja
pólitísk morð, var daglegt brauð í Suður-
Ameríku löngu áður en fasismi var til.
Jarðvegurinn var því þarna eins vel undir
einræði búinn og hægt er að hugsa sér.
Auk þessa hafa tímar verið hinir herfi-
legustu í Brazilíu síðan 1929. Kaffinu
hefir víða verið bolað út af mörkuðum,
ekki sízt í löndum samherja stríðsins síð-
asta, er yfir vöruna komust þá annar stað-
ar, svo að brenna hefir mikið orðið af kaff-
inu í Brazilíu ár eftir ár. Lýðríki sem bet-
ur hefir verið ástatt fyrir en Brazilíu, hafa
orðið fasisma að bráð á þessum síðustu og
verstu tímum.
Fasisminn er því farinn að færa sig nær
Bandaríkjunum en áður. Hann er ekki
lengur eitthvað sem er “þrjú þúsund mílur
burtu og sem þessvegna getur ekki komið
Bandaríkjunum við.” Evrópustríðið forð-
um, var 3000 mílur burtu eða svo til að
byrja með en að það færðist ekki nær, var
aðeins því að þakka að Bandaríkin komust
að því í tæka tíð, að þýzkir agentar voru
að ljúka við hugmyndina um að færa
stríðið nær þeim eða á landamæri Banda-
ríkjanna og Mexikó; varð því minna úr en
til stóð fyrir Þjóðverjum þar. En stríð
eru ekki eins fjarri Vesturheiirli og Banda-
ríkjamenn oft halda, jafnvel þó í Evrópu
séu eða Asíu, ekki sízt með þeim ítökum,
sem bæði ítalía, Þýzkaland og Japan eiga í
Suður-Ameríku.
Það getur skeð að það hafi verið vinsæl
stefna hjá Bretum og Bandaríkjamönnum,
að láta sig engu skifta aðfarir einræðis-
herranna í Evrópu og Japan s. 1. 5 eða 8 ár.
En það er nú vafasamt að viturlegt geti
kallast. Fasisminn er á hraðri uppsiglingu
um allan heim. Og Bretar, séu þeir ekki
nú þegar fasistar, og Bandaríkin, geta átt
eftir að horfast í augu við þetta skrímslh
að maður ekki tali um smærri lýðræðisrík-
in í heiminum.
Það er skoðun sumra stjömufræðinga,
að tunglið sé smám saman að færast nær
jörðu. Þegar komið er svo nærri, að það
leysist upp, mun myndast úr því hringur
um jörðina eins og Saturnus, er ljóma
mun og lýsa loft fagurlega á kvöldum.
LAUGARNAR 1 BANFF
Það eru nú um 50 ár síðan heitu laug-
arnar í Banff í Alberta-fylki urðu víð-
kunnar fyrir hin heilsubætandi efni, sem
í vatninu í þeim er. Þær voru fundnar
1883 og það leiddi til þess, að 10 fermílna
svæði umhverfis þær var inngirt. Var það
byrjunin til þess að þjóðgarðar vorú hér
gerðir, en þeir eru nú 20 alls og eru að
stærð til saman um 12.500 fermílur.
Og ennþá heimsækja þúsundir manna
frá öllum löndum heims, þessar merku
uppsprettur. Á síðastliðnu ári notuðu
90,000 gestir sér tækifærið að baða sig í
laugunum. Og á tímabilinu frá 1. apríl
til 31. október á þessu ári nam tala gest-
anna 80,732.
Vatnið í laugunum er blandað brenni-
steinsefni og fleiri efnum og það er það,
sem gerir það svo heilsubætandi. Laugarn-
ar eru aðallega fimm og nefnast, The Up-
per Springs, The Kidney Springs, The
Middle Springs, og The Cave og Basin
Springs. Baðhús og baðstaðir hafa ekki
verið gerðir við tvær uppspretturnar enn-
þá, en þrjár af þeim eru úr garði gerðnr
fyrir baðgesti, sem bezt má verða. Upp-
spretturnar flóa sí og æ og hitinn í þeim er
frá 85 til 115 stig á Fahrenheit. Aðrenslið
neðan úr jörðu er í þessum fimm lindum
talið nema 40,000 gallónum á klukkustund
eða sem næst ein miljón gallóna á dag.
Samsetningur vatnsins er talinn mjög
svipaður og í hinum frægu “Bath”-upp-
sprettum á Englandi.
Að Indíánar hafi þekt þessar lindir, er
ekki ólíklegt. Á meðal þeirra er til saga
um gamlan gigtveikan og kreptan karl-
fausk, sem baðað hafi sig í vörmu lífsins
vatni, og sem alla verki hafi úr beinum
hans tekið á svipstundu. Palliser á og að
hafa fundið heitar lindir í ferð sinni 1860
í Bow Valley. En það var þó ekki fyr en
C. P. R. félagið lagði jámbrautina vestur
yfir fjöllin árið 1883, að Banff-
laugarnar urðu verulega kunnar
og farið var að meta gildi þeirra.
Amsterdam er oft kölluð Ven-
ice Hollands, borgin er bygð á 90
eyjum, sem 300 brýr tengja
saman.
FRÉTTIRNAR FRÁ
SHANGHAI
f fréttum frá Kína s. 1. mánu-
dag, var þess getið að Japanir
væru nú að taka við stjóm í
borginni Shanghai, sem nú er á
þeirra valdi, og hótuðu útlend-
ingunum, Bretum, Bandaríkja-
mönnum og Frökkum, sem þar
stjórna stórum hverfum, að ef
þeir ekki knébeygi sig fyrir
valdi Japana, verði úr því skorið
með vopnum.
“Nú svínbeygjum vér þá Svín-
fellingana” stendur þar.
f kröfu Japana er innifalið, að
þeir taki við tollstofum Kína á
ströndinni, póst- og síma-málum
og dómstólunum.
Allur mótþrói, sem Japönum
verður sýndur, verður vægðar-
laust upprættur, hvort sem Kín-
ar eiga hlut í máli eða útlending-
ar í borginni Shanghai.
Allir bankar verða teknir yfir
af Japönum og strangt eftirlit
með því í alþjóðahverfinu, að
peningastofnanir láni ekki Kín-
verjum fé.
Útvarpsstöðvum öllum verður
lokað fyrir Kínverjum og öllum
þeim, er máli þeirra tala.
Bretar og Bandaríkjamenn
útlendingahverfinu, bentu á, að
innflutningar til Shanghai væru
samningi háðir við aðrar þjóðir
og þessvegna væri erfitt að selja
Japönum tollmál og innflutnings
eftirlit í hendur. En Japanir
svöruðu því bara með að taka 30
skip vörum hlaðin á höfninni,
reka skipshöfnina og taka skip-
in í sína umsjá og það sem þau
höfðu meðferðis.
Og um alþjóða óháðu hverfin í
Shanghai, áskilja Japanir sér
fullan rétt til að fara með her
sinn ef á þarf að halda án
þess að vera hindraðir í nokkru
frá því.
Allar þessar reglur, sem Bret-
um og Bandaríkjamönnum eru
jafnt gefnar til eftirbreytni sem
Kínverjum, fylgir ákvæðið, að
Japanir “geri alt til þess, sem
þeir álíti nauðsynlegt, að sjá um
að þeim verði hlýtt.”
Af Kínverjum féllu um 50,000
manns og um 200,000 meiddust í
bardaganum um þessa stærstu
borg austurlanda.
VOPNAHLÉSDAGURINN
OG HERNAÐUR
Ræða flutt af séra Philip M.
Pétursson í tilefni af vopnahlés-
dagsminningarhátíðinni við
guðsþjónustuna í Sam-
bandskirkjunni í Winni-
peg sunnud. 14. þ. m.
Textinn sem eg hefi valið í
kvöld er úr þrítugasta og sjö-
unda kapítuli Ezekíels bókar,
. fyrsta til þriðja vers:
“Hönd drottins kom yfir mig,
1 og hann flutti mig burt fyrir
j anda Drottins og lét mig nema
i staðar í dalnum miðjuip, en hann
j var fullur af beinum. Og hann
! leiddi mig umhverfis þau á alla
vegu; og sjá, það lá aragrúi af
’ eim þar í dalnum, og sjá, þau
"•o'-u mjög skinin. Og hann
‘•ao’^i við mig: Manns-son, hvort
r^unu bein þessi lifna við aftur?
F," svaraði: Herra Drottinn. Þú
i veizt það!” (Ezekíel 37:1-3).
Margar mismunandi hugsanir
hrærðust í huga mínum vopna-
hlésdaginn er eg hlustaði á ræð-
urnar sem þá voru fluttar og
einnig þegar eg settist við að
semja ræðu fyrir messuna hér í
kvöld, til minningar um þá, —
samkvæmt venjunni sem föst er
orðin, — er féllu í heimsstyrj-
öldinni sem endaði fyrir nítján
árum.
Hið fyrsta sem mér kom til
hugar, eins og eðlilegt var, var
eins og textinn bendir ófullkom-
lega á, — hinn mikli fjöldi
mannabeina sem liggja nú í graf-
reitum á Frakklandi, til minning-
ar um veraldarbálið er steyptist
yfir heiminn fyrir tuttugu og
þremur árum síðan, og sem olli
því að meira en tíu miljónir
manna alls mistu líf sín til vemd-
ar friði og frelsi í heiminum. Að
minsta kosti trúðu þeir að þeir
væru að gera það.
Annað sem kom mér til hugar
var hin skrautbúna gröf í West-
minster dómkirkjunni á Eng-
landi, — þar sem bein brezks
hermanns eru grafin, — en sem
engin veit nein deili á, önnur en
að þau eru af brezkum her-
manni. En hvort að þau hafi
verið bein foringja eða liðsmanns
vita menn ekki. Hann liggur þar
eftir sína erfiðu daga í hinni
síðustu hvílu á meðal helztu
manna þjóðarinnar, og á leiði
hans eru rituð þessi orð: “Hér
undir þessum steini hvílir lík
brezks hermanns þektur hvorki
að nafni, stétt né stöðu. Hann
fórnaði sinni dýrustu gjöf, líf-
inu, Guði, konunginum, ættjörð-
inni, heimilinu, ríkinu, frelsinu
og mannréttindum.”
Það var til minningar um
þennan mann og ótal marga
aðra, sem alt brezka veldið hélt
s. 1. fimtudag helgan, — með
lúðraþyt og trumbuslætti, með
fánum og hergöngum, og með
því að sveifla sverðum og að
skjóta af byssum. Og hið sama
átti sér stað í næstum hverju
landi sem þátt tók í ófriðnum
mikla og misti í honum marga af
sínum ágætustu mönnum.
Hér eins og annarstaðar, héldu
menn upp á þenna dag, og með
sama hætti. Ræður voru fluttar
og einu sinni enn fengum véf að
heyra sömu orðin, sem heyrst
hafa svo oft áður um þá, sem
gáfu alt, til að vernda friði
heimsins, og til að tryggja heim-
inum lýðveldisstjórnarfyrir-
komulagið. Og á meðan að
menn voru að þessu hér og víða
annarstaðar í heiminum, voru
aðrir menn í tveimur löndum lít-
ið annað að hugsa um, en að vega
hverja aðra, á Spáni og í Kína.
Og þjóð vor var ekki alveg
hlutlaus í þessum ófriði. Á með-
an að hún var að vegsama hina
dauðu, sem féllu í ófriði, þá var
verið að ferma skip á vestur-
ströndinni með gamalt járn,
sem á að fara til Japans til her-
búnaðar, og einnig var verið að
flytja nikkel frá Ontario í sama
tilgangi. Síðan að Japanar sögðu
Kína stríð á hendur hefir þjóð
vor selt þeim margar miljónir
dollara virði af járni, nikkel eða
ný-silfur og öðrum vörum, sem
þeir geta notað til þess, að herja
land Kínverja, og að vega menn,
og konur og ungabörn.
Þetta má þjóð vor hafa á sam-
vizkunni á meðan að hún minnist
þeirra er féllu í þeim tilgangi að
vernda frið heimsins.
Þetta kom mér til hugar meðal
annars, og eg gat ekki annað en
spurt því þetta ætti sér stað, og
helzt þegar, eins og sagt hefir
verið, og eins og vér vitum, að
“aldrei hafa menn verið eins ein-
huga í því að vilja frið”. Ef svo
er, því er heimurinn þá á hraðri
ferð í þá átt, sem aðeins fáir vilja
að hann fari? Því geta menn
ekki stemt stigu fyrir öllu því,
er leiðir út í ófrið og ógæfuna,
sem af honum kemur.
Er það vegna valdafýknar
fárra manna er engin ræður við ?
Er það vegna áróðurs og haturs
gegn öðrum þjóðum? Er það
vegna hergagnaframleiðenda
sem verzla jafnt við óvini sem
vini og sem græða stórkostlega
hvemig sem ófriðurinn fer?
Vér vitum, að þessi öfl eru öll
að verki í heiminum, valdafýkn,
hatur, eigingirni og gróðrarfýkn
fárra manna, og að heimurinn
er allur annar en þeir, sem dóu
ætluðu að hann yrði, er þeir gáfu
íf sín til þess, að frelsi og