Heimskringla - 24.11.1937, Side 7
WINNIPEG, 24. NÓV. 1937
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA
ÆFIMINNING
Með Þorláki Björnssyni er
einn elsti og ástsælasti landnem-
inn í Norður Dakota, til grafar
genginn.
Við nemum staðar við nýorpin
leiði hinna djörfu og dáðríku
manna, er juku heiður og ham-
ingju vora og lítum, í anda, yfir
hina löngu og erfiðu braut er
þeir hafa troðið að settu marki.
Flest er þar gleymsku hulið en
fáein atriði ættu að vera okkur
minnisstæð, svo við mættum
eitthvað læra af reynslu þeirra
er mikið unnu og margt reyndu
til að skapa sér og sínum fram-
tíðar farsæld.
Þorlákur sál. var fæddur að
Höskuldstöðum, í Blönduhlíð í
Skagafjarðarsýslu 15. maí árið
1852, og þessvegna 85 ára við
andlát sitt. Foreldrar hans voru
þau hjónin Björn Magnússon og
Elísabet Jónsdóttir búendur að
Höskuldsstöðum. Fjögur al-
systkin komust til f ullorðins ára:
Símon Dalaskáld, Ingunn er gift-
ist Þoj-grími sál. Árnasyni. (Hún
var móðir þess er línurnar skrif-
ar). Kristrún, gift Jóhanni Sig-
fússyni í Selkirk, Man., og Sig-
ríður heima á íslandi. Hún er enn
á lífi en Símon, Ingunn og Krist-
rún eru látin. Hálfsystir Þor-
láks, Lína Hólm á heima í Sel-
kirk, Man.
Þorlákur ólst upp með foreldr-
um sínum til fullorðins ára en
árið 1878 giftist hann Hólmfríði
Sigurðardóttir, ættaðri úr Hörg-
árdal í Eyjafjarðarsýslu. Þeini
hjónum varð þriggja barna auð-
ið: Sigurður og Björn búa á föð-
urieyfðinni en systir þeirra Þóra
andaðist árið 1903.
Hólmfríður var hin mesta
dugnaðar og myndar kona og
bónda sínum samhent í búskapn-
um. Hún lézt árið 1916.
Þau reistu fyrst bú í Skaga-
I firðinum en fluttu til Ameríku
* fimm árum síðar (árið 1883).
Það var ekki af ræktarleysi til
ættlandsins að íslendingar fiuttu
1 úr landi á harðinda árunum frá
1880 til 1890.
Við lesum, með tilfinningar-
lausu kæruleysi, að þessi eður
önnur fjölskyldan hafi flutst
vestur um haf, í þá tíð. Hver
setur sig í þeirra spor, er sér
ættlandið hverfa í síðsta sinni.
Gildir einu hvað aðrir hugsa, fs-
land var þeim alt. f fjörðum og
dölum Fróns hefðu feðurnir háð
sitt æfistríð og æskan um afrek
þeirra heyrt og lesið. Á björtum
sumarnóttum og dimmum vetr-
ardögum hafði svo þessa æsku
dreymt þá drauma að komast
eins langt eða jafnvel lengra á
Framsóknar brautinni; að verða
gildari bóndi, betri sjómaður,
vinsælli nágranni og ættlandinu
ennþá þarfari þegn. Hver ein-
asta framtíðar hugsjón var við
íslenzka staðhætti miðuð. Um
hrjóstur og gróðurreiti þessa
lands höfðu æfisporin legið og
við það hver einasta minning
tengd. Þegar leik-völlur æsk-
unnar og heimili ættingja og
vina hvarf þeim sjónum, áttu
þeir hvergi, hvergi heima.
Framundan risu úfnar öldur;
en hvað mundi bíða þeirra á bak
við þetta skuggalega haf ? Hvað
mundi verða um þá og þeirra í
framandi landi meðal erlendra
þjóða? Hvaða skilyrði virtust
þessir vankunnandi öreigar hafa
til þess að sigrast á óþektum
erfiðleikum ? Getur þú sett þig
í þeirra spor? Getur þú skilið
söknuðinn og kvíðan er settist
að sál þeirra, er út í óvissuna
lögðu með engan höfuðstól nema
áræði sitt, vinnuvanar hendur og
ómegðina ?
Hvað kom þeim þá til að yfir-
gefa það alt, sem þeir höfðu þekt
og þráð og stofna sér og sínum
í þvílíkan vanda? Hvað, til dæm-
is kom svo mörgum mönnum til
að flýja Skagafjörðinn, eitt-
hvert fegursta og frjósamasta
hérað landsins? Þorlákur sál.
drap á þetta eitt sinn við mig og
gat þess að óttinn við fetæktina
hefði komið sér til að flytja vest-
ur um haf. f engu einu héraði
hefðu fleiri höfðingjar búið, til
forna. Þessir höfðingjar juku
landeignir sínar á kostnað nábúa
sinna svo kringum stórbýlin
myndaðist hvirfing af kotum,
gersneidd flestum gæðum. Hélst
svo þessi háttur fram á vora
daga. Þegar þrengdi verulega
All-Canadian victory for pupils of
DOMINION BUSINESS
COLLEGE at Toronto Exhibition
Pupils of the DOMINION BIJSINESS COLLEGE,
Winnipeg, were awarded FIRST PLACE in both
Novice and Open School Championship Divisions of
the Annual Typing Competition.
Miss GWYNETH BELYEA won first place
and silver cup for highest speed in open
school championship with net speed of 92
words a minute..
Mr. GUSTAVE STOVE won first place and
silver cup for highest speed in Novice Sec-
tion of typing contest. His net speed was
76 words a minute.
Miss HELEN BRIX, another D. B. C. pupil,
won second place for accuracy in the novice
division!
Miss DOROTHY MAXWELL, a D. B. C.
student, came fourth in the open school
championship section!
The Dominion sent four pupils to Toronto
and they won two firsts, a second and a
fourth place!
The contest officials announced at the Coliseum before an
audience of 9,000 people that the Dominion Business
College, Winnipeg, had the best showing of any com-
mercial school in the competition!
There were 107 contestants!
ENROL NOW
DOMINION
BUSINESSCOLLEGE
WINNIPEG
FOUR SCHOOLS: THE MALL—
ST. JAMES — ST. JOHN’S — ELMWOOD
FEDERAL
■f- _ _ _ /j
Framskipunar Komlyftustöðvar í Fort William—Port Arthur—
Vancouver. 423 Sveitakornlyftur í Vesturlandinu.
101 Kolasölustöð.
Þjónusta og verzlunartæki vor tryggja hagkvæm viðskifti
að efnahag einhvers bóndans,
hraktist hann vanalega inn í
eitthvert kotið og lifði jafnan
síðan í skjóli og á misjafnlega
útilátnu náðarbrauði stórbónd-
ans. Ekki einungis hann heldur
einnig alt skyldulið leiguliðans
leið fyrir þessar sakir og átti
sér sjaldan viðreisnar von.
Til að forða sér og sínum frá
slíkum forlögum, fluttu menn
svo til Vesturheims. Það voru
þeir djörfustu og framtakssöm-
ustu, sem réðust fyrst og fremst
til slíkrar ferðar. f þeirra hópi
var Þorlákur frændi þá og jafn-
an síðar.
Ekki láu auðæfi Vínlands hins
góða, opin fyrir öreiganum, er
hingað flutti og á endalausu
striti og ótal fórnfærslum voru
heimilinu bygð og frumskógnum
breytt í fagurt akurlendi. Þorl.
sál. átti sér fyrst heimili nálægt
Mountain í Norður Dakota. Var
land þar að mestu numið, er
hann kom að heiman og gat hann
aðeins náð í forkaupsrétt á
fjörutíu ekrum. Auðvitað var
það altof smá bújörð til að fram-
fleyta fjölskyldunni. Þó hafðist
hann þarna við í þrjú ár en
keypti síðar 160 ekrur af landi
nálægt Hensel. Reisti hann þar
bú og bjó þar jafnan síðan þótt
landeignin hafi bæði stækkað og
fríkkað síðan.
Erfiði og strit landnemans er
óskráð hetjusaga. Eitt atvik
freistast eg til að tilfæra, sem
dæmi.
Auðvitað urðu frumbyggjarn-
ir að leita sér atvinnu utan
heimilis meðan landið lá enn í ó-
rækt og áhöfn engin til að yrkja
mörkina. Enga atvinnu var að
fá í nágrenninu svo bændur urðu
að yfirgefa heimili sín um fleiri
mánuði. Eitt vor — mig minnir
það væri annað árið sem Þorlák-
ur bjó við Mountain — heyrðu
menn að járnbrautar vinna
mundi fáanleg fyrir vestan Bis-
marck bæ í Norður Dakota. Svo
var lagt af stað gangandi með
lítið nesti og lélega skó, þótt
leiðin væri löng, yfir 200 mílur,
gegnum strjálar bygðir og veg-
laus öræfi. En þegar til kom
brást vinnan svo nú var ekki um
annað að gera en halda heim
aftur. Því miður get eg ekki
gert orðin nógu lifandi til að
túlka sálarástand þessara hungr-
uðu, sárfættu, dauðlúnu og von-
sviknu vegfarenda.
Nestið var þrotið, að einni
brauðhleif undanskildri og pen-
ingar engir til að bæta úr þeim
skorti. Einhvernvegin fénaðist
þeim félögum þó fáeinar kartöfl-
ur, sem þeir borðuðu hráar með
brauðinu. Skór þeirra voru
slitnir svo þeir máttu heita ber-
fættir. Sjálfir voru þeir næst-
um magnþrota af vosbúð og erf-
iði. Úti urðu þeir að liggja hvar
sem eitthvert afdrep fanst að
tveimur nóttum undanskildum,
þegar gestrisnir Norðmenn
veittu þeim húsaskjól. Það, sem
þeim sveið þó allra sárast var að
koma alslausir aftur heim í als-
leysið, tómhentir heim til konu
og barna, er þörfnuðust alls. —
Pabbi komin heim með ekki svo
mikið sem einn sykurmola til að
rétta að vonandi spyrjandi barni
né eitt kaffipund til að gleðja
hana mömmu. Verst af öllu var
samt óvissan um að geta nokkru
sinni bætt' úr þeim skorti með
eigin erfiði.
Getum við átt eina vökustund
með þessum brautryðjendum þar
sem þeir hvíldu á mörkinni. —
Yfir þeim grúfði hinn drungalegi
vornætur himin en þeir virtust
gleymdir bæði guði og mönnum.
f kringum þá lá hin endalausa
vesturslétta, frjósöm og laðandi
en landið bauð hann ekki vel-
kominn; íbúar þess skildu ekki
mál hans og skeyttu lítið um
þarfir fslendinga. Þó gáfust
þeir ekki upp heldur breyttu
undanhaldinu í sigurför.
í þetta skiftið var ekki lengi
dvalið heima, heldur lagt upp í
nýjan leiðangur. f þetta skifti
hélt Þorlákur sál. með tveimur
nágrönnum sínum, til Pembina
bæjar við landamærin. Þar
komust þeir í vinnu hjá cana-
disku félagi, sem var að leggja
járnbraut áleiðis til Yorkton í
Saskatchew'an-fylld. Lágt Ivar
kaupið og langur vinnu dagurinn
en menn fengust lítt um slíkt.
Oft mun þeim þó hafa orðið að
hugsa heim. Þeir vissu vel að
þar mundi harla þröngt í búi.
Með stökustu atorku, hyggind-
um og sparneytni komst Þorlák-
ur sál. brátt í betri bænda röð.
Margar voru torfærurnar og ótal
voru þeir erfiðleikar, er þau
hjón, sem aðrir, urðu að yfir-
stíga en fáir unnu glæsilegri
sigur en þau. Akurinn stækk-
aði ár frá ári og búið færðist í
aukana.
Voru búskapar hættir hans
nokkuð frábrugðnir því sem al-
mennast gerðist á fyrstu frum-
býlis árunum. Hann stólaði
aldrei algerlega á akuryrkju eins
og flestir nágrannar hans heldur
hafði, frá því fyrsta, talsverða
kvikfjárrækt. Reyndist það ráð
hyggilegt því þegar uppskeran
brást fleyttu skepnurnar búinu
- MAFNSPJÖLD -
Dr. M. B. Halldorson 401 Boyá. Bldg. Skrifstofusimi: 23 674 Stundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. Er að finni á skrifstofu kl. 10—1 f. h. og 2—6 e. h. Heimill: 46 Alloway Ave. Talsimi: 33 153 G. S. THORVALDSON B.A., LL.B. LögfrasSingur 702 Confederation Life Bldg. Talsimi 97 024
Jacob F. Bjamason —TRANSFER— Baggctge and Furniture Moving 591 SHERBURN ST. Phone 35 909 Annast allskonar flutninga fram og aftur um bœinn. . w. J. LINDAL, K.C. BJÖRN STEFANSSON tSLENZKlR LÖGFRÆÐINOAR á öðru gólfl 325 Main Street Talsimi: 97 621 Hafa elnnig skriíatofur að Lundar og Gimli og eru þar að hitta, fyrsta miovikuda* i hverjum mánuði.
MARGARET DALMAN TBACHER OF PIANO »54 BANNINO ST Phone: 26 420 M. HJALTASON, M.D. ALMENNAR LÆKNINOAM Sérgrein: Taugasjúkdómar Lætur úti meðöl í viðlögum ViBtalstímar kl. 2—4 • h. 7—8 að kveldinu Sími 80 857 665 Vlctor 8t.
fram. Þorlákur var ekki einungis at- orku og áhugamaður heldur jafnframt framsýnn og ráð- slyngur. Átti hann því láni að fagna, við æfikvöldið, að líta yfir langt og vel unnið starf og sjá það starf ávaxtast til hagsældar A. S. BARDAL selur likklstur og annasrt um útíar- ir. Allur útbúnaður sá bestl. Ennfremur selur hann ailskooar mlnnisvarða og legsteina. 843 SHERBROOKK 8T. Phone: »6 607 WINNIPEO
VÍGSLULJóÐ FLENSBORGARSKÓLANS
Hér er risin höll á bjargi,
heilsteypt listaverk,
há til lofts og víð til veggja,
vegleg, djörf og sterk.
Hún ber svipinn frónskra fjalla,
fögur, línuhrein,
máttugt afrek huga og handa
— hugsjón greipt í stein.
Minnumst hans, er hugsjón þessa
hóf með starfi og gjöf —
kvað sig stóran, eins og Egill
yfir sonargröf,
treysti meira á fjöldans frama,
en fárra auð og völd.
— Alþýðunnar ment og menning
mat hann sonargjöld.
Þessi höll skal vörn og vígi
vorhug fólksins ljá,
frjálsri hugsun, háum kröfum
heitri vaxtarþrá.
Hér skal eld í arni finna
æska þessa lands:
Trú á lífið, trú á manninn,
trú á þroska hans.
—Tíminn. örn Arnarson
fyrir afkomendur sína. Hann
hafði búið þeim vel í hendur en
synir hans kunnu líka að fara
með þá föðurleyfð svo fá bú,
meðal fslendinga í Vesturheimi,
munu standa með öllu meiri
blóma. Mikið sagt en mun þó
sannmæli.
Hann var félagslyndur að upp-
lagi og ágætur nágranni.
Hann var söfnuði bygðarinnar
mikil stoð en tók þess utan þátt
í allmörgum félagsskap, meðal
bænda, er miðuðu að meiri.sam-
vinnu. Hann var framfara mað-
ur í hvívetna og tók fljótlega
upp breytta og betri hætti í bún-
aði; skorti hann hvorki efni né
áræði til framkvæmda.
Þorlákur var höfðingi í lund
og rausn. Munu nú margir minn-
ast hans með þakklátri virðingu
fyrir hjálpsemd og örlæti. Ekki
voru öll góðverk hans auglýst á
gatnamótum, en stundum var
hann hvað stórtækastur þegar
engin vissi nema þiggjandinn.—
Vinum sínum brást hann aldrei
og orðum hans og loforðum
mátti örugt trúa.
Hann naut ágætrar heilsu fram
til hins síðasta. Hann notaði
sömu hyggindin í meðferð heils-
unnar, sem ella. Er aldurinn
færðist yfir hann, eftirlét hann
hinu yngra fólki búskapinn að
mestu. Hann vissi að heilsan er
höfuðstóll er mönnum ber að
varðveita svo þeir verði hvorki
sér né öðrum til vandræða.
Einmitt þessvegna entist hon-
um líka lengra líf til að eiga frek-
ari þátt í framförum heimilisins
og fjölskyldunnar, með holluin
ráðum og hjálpfúsum höndum.
Hann var hamingju maður að
mörgu leyti en bar samt ýms sár
fyrir ástvina missir og ýmiskon-
ar tilfelli. En hann bar harm
sinn í hljóði, sem íslendingum
sæmir.
Hann andaðist af hjartabilun,
eftir stutta legu, þann tuttug-
asta og fjórða sept. s. 1.
Hann var jarðsungin í grafreit
Vídalínssafnaðar þ. 26. sept. að
viðstöddu miklu fjölmenni. Séra
H. Sigmar jarðsöng með aðstoð
séra Stfingríms Thorlákssonar.
Hann eftirskilur tvo syni, sem
áður ei* getið og fimm barna-
börn; börn Sigurðar og konu
hans Þóreyjar Þorleifsdóttur,
ættaðri úr Skagafirði. Eru börn
þeirra einkar efnileg og voru afa
sínum til mikillar ánægju meðan
samvistanna naut.
Þeir verða ekki fáir, sem taka
undir með mér og segja: “Bless-
uð sé minning hans.”
H. E. Johnson
Dr. S. J. Johannesion
218 Sherburn Street
Talsíml so 877
VlOt&lstiml kl. 3—5 e. h.
Dr. D. C. M. HALLSON
Physlclan and Surgeon
264 Hargrave (opp. Etó.ton’8)
Phone 22 775
Rovatzos Floral Shop
206 Notre Dame Ave. Phone 64 654
FTeah Cut Flowers Daliy
Plants ln Season
We specialize in Weddlng St
Concert Bouqueta & Funeral
Designs
Icelandlc spoken
THL WATCH SHOP
Thorlakson Baldwin
Diamonds and Wedding
Rings
Agents for Bulova Watches
Marriage Licenses Issued
699 Sargent Ave.
Dr. A. V. JOHNSON
tSLENZKUR TANNLÆKNIR
212 Ourry Bldg., Wlnnlpeg
Gegnt pósthúslnu
Slml: U21t
Heimilit: 22 211
J. J. Swanson & Co. Ltd.
RSALTORS
Rental. Inturance and Financial
Agentt
8iml: 94 221
800 PARI8 BLDG.—Wlnnlpeg
Gunnar Erlendsson
PianoUennarl
Kenslustofa: 701 Victor St.
Sími 89 535
Orncx Phon*
87 298
Rks. Phoh*
72 408
Dr. L. A. Sigurdson
109 MSDIOAL ART8 BULLDING
Omci Hou»«:
12 - 1
4 r.M. - 8 r.M
m «t ÁrronrrMxin