Heimskringla - 05.01.1938, Side 5
WINNIPEG, 5. JANÚAR 1938
HEIMSKRINGLA
5. SÍÐA
HELZTU FRÉTTIR
Chiang leggur niður
forsætisráðherra-stöðuna
Það er eftir blöðum í Kína
haft, að Chiang Kai-Shek hafi
lagt niður forsætisráðherra starf
til þess að geta gefið sig ein-
göngu við hermálunum.
Kína hefir hann skift í sjö
héruð og reynt að skipuleggja
hervörn þeirra. Chung Pai-Hsi
heitir hershöfðinginn, sem næst-
ur honum er að völdum í hern-
um.
Her Kínverja er nú sagður
900,000 menn. Hann er 90 her-
deildir, um 10,000 menn í hverri.
Þessi her er nú allur á vígstöðv-
um víðsvegar um land. En auk
þess eru nú um 800,000 menn á
æfingum, sem búist er við, að á
vígvöll verði sendir innan
þriggja mánaða.
Friðartilboði sem Chiang var
nýlega boðið fyrir hönd Japana
af þýzka sendiherranum í Kína,
neitaði Chiang. Það mun því
vera full meining hans, að Kína
reyni enn um’skeið að bera hönd
fyrir höfuð sér.
Aðmíráll Japana hótar
Bretum stríði
Eftir frétt að dæma, sem birt
var í blöðum í Tokio s. 1. mánu-
dag, hóta Japanir Bretum stríði,
ef þeir ekki hætti að selja Kín-
verjum vopn.
Nobumasa Suitsugu, aðmíráll,
álítur stríð við Breta óumflýan-
legt hvort sem er. Vopnasala
þeirra til Kínverja sé höfuð-
orsök þess, að Kínverjar gefist
ekki upp. En að fá Breta til að
hætta vopnasölunni, sé ekki
hægt, nema með stríði.
“Og því fyr, því betra,” segir
aðmírállinn.
Breta, segir aðmírállinn ekki
skilja, að það sé með öllu von-
laust fyrir þá, að styðja Kín-
verja. Hlutverk Japans sé að
brjóta hlekki hvítu þjóðanna af
gulu þjóðunum. Hvort að það
takisít, eða hvort að það kosti al-
heimsstríð, sé ekki um að tala;
hlutverk sitt verði japanska
þjóðin að vinna.
“Eg á ílt með að trúa því,”
segir aðmírállinn, ”að Banda-
ríkin, sem engan halla bíða af
neinu, sem Japan gerir í Kína,
verði ekki hlutlaus, þó hvítu
þjóðirnar skilji ekki kall tímans
og knýi Japan út í stríð við sig,
eins og Bretar gera með fram-
ferði sínu í Kína. En herstyrk-
ur japönsku þjóðarinnar er
meiri en Kínverjar eða hvítu
þjóðirnar gerðu sér hugmynd
um. Það er hann, sem á var
bygt þegar af stað var farið og
sú von að hann reynist verki
sínu vaxinn í hvað sem slæst, er
sterkari nú en nokkru sinni fyr.”
Aftökurnar í Rússlandi
Aftökumar í Rússlandi halda
enn áfram. Eru það nú einkum
sendiherrar í öðrum löndum, sem
verið er að steypa fyrir ætternis-
stapa. Sendiherra Rússa í Aþenu
á Grikklandi var nýlega kallaður
heim, en hann flýði til Parísar og
er nú að skrifa í heimsblöðin um
ofsóknirnar í Rússlandi. Ný-
verið voru einnig sendiherrarnir
í Noregi og Svíþjóð kvaddir heim
til Rússlands. Og um Litvinoff
er nú eitthvað á huldu, sem um
mörg ár hefir reynst einn vin-
sælasti fulltrúi Rússa meðal ann-
ara þjóða. Um ritara hans þrjá,
er það að segja, að Sokolinkov
er í tugthúsi, Karakhan var líí-
latinn og Krestensky hvarf.
En Litvinoff og ritarar hans
eru ekki stærstu mennirnir, sem
slíkum örlögum hafa verið ofur-
seldir, segir rússneski sendiherr-
ann frá Aþenu, Alexander Bar-
mine. Bukharin, ritstjóri stjórn-
arblaðsins “Izvestia”, var einn
af áhrifamestu mönnum Rúss-
lands, að Lenin og Trotsky ein-
um undanskildum. En hann var
tekinn með þeim Radek og Ry-
kov. Hann neitaði áburðinum
harðlega og virtist hafa áheyr-
endur og dómarana með sér orð-
ið við réttarhaldið, er Stalin
hrópaði að setja þá alla í stein-
inn. Og þar voru þeir skotnir.
En Stalin hefir aldrei þorað að
kannast við, að hafa látið drepa
Bukharin.
En þessu heldur enn áfram í
Rússlandi. Um 21. des. hvarf V.
S. Ivanoff, eftirlitsm. viðartekju
í Rússlandi alt í einu af skrif-
stofunni vegna þess að þessi iðn-
rekstur var eitthvað minni eða
lélegri, en ráð hafði verið gert
fyrir í áætluninni. Þessu fylgdi
að 14 manns voru dæmdir til
dauða næsta dag.
f flutningadeild stjórnarinnar
voru 27. des. sex háttstandandi
menn fordæmdir fyrir eyðilegg-
ingar af ásettu ráði á flutnings-
tækjum. Það þykir víst, að þeir
verið drepnir innan fárra daga.
Frá Spáni
Frá Spáni barst sú frétt í gær,
að Franco uppreistarforingí
hefði nú svo öflugan her á Spáni,
að slíks hefðu ekki verið nein
dæmi áður.
ítölum hefir verið hrúgað til
Spánar frá Afríku.
Lið Francos er nú um 800,000
manns; áður hefir það ekki farið
fram'úr 100,000.
Það sem nú vákir fyrir með
nýárinu, kvað vera að sópa
stjórnarliðinu burtu af Spáni.
Vínsalan gekk vel um jólin
Vínsölubúðir fylkisstjórnar-
innar í Manitoba, þær sem eru í
Winnipeg, seldu að jafnaði í
ellefu síðustu daga ársins 1937,
áfengi fyrir $33,000 á dag.
Verð á hveiti hækkar
í byrjun þessarar viku hækk-
aði hveiti um 5 c í verði. Er
maí- hveiti nú $1.24%. Með
hveitiforðanum nálega til þurð-
ar genginn í Rússlandi, Canada
og Argentínu, segir Broomhall
birgðirnar ‘hættulega litlar’. Og
meira þarf ekki með en tvö orð
frá Broomhall til þess að verð
hækki eða lækki.
Gloria Vanderbilt
Stúlkan sem ber þetta nafn er
14 ára gömul. Var nafns henn-
ar oft getið í blöðum fyrir nokkr-
um árum, er móðir hennar, Mrs.
Gloria Morgan Vanderbilt og
frænka hennar, Mrs. Harry
Payne Whitney voru að rífast
um hvor ætti um uppeldi Gloríu
litlu að sjá. En hvað sem því
líður, var nú framfærslu reikn-
ingur stúlkunnar birtur s. 1.
mánudag yfir árið 1937. Reikn-
ingurinn nam $52,052.98. Til
þess að vinna fyrir því, þyrfti
Gloría að hafa yfir $1,000 viku-
kaup. En svo stendur nú á, að
hún er erfingi að $4,000,000 og
þarf ekki að vinna fyrir þessu.
Saskatchewan-deildin af Unit-
ed Farmers of Canada, lýsti því
yfir 22. des., eftir ítarlega rann-
sókn, að 30 til 40 af hundraði
nauta og hesta í þurka-héruðun-
um í Saskatchewan-fylki, verði
dautt úr hor áður en vorar, ef
skamturinn sé ekki aukinn sem
bráðast, er hverri skepnu er ætl-
aður.
* * *
í stríði sem Bretar áttu við
Araba í hæðunum í Galileu í
Norður-Palestínu í þrjá daga og
sem lauk 26. des., féllu 40 manns
áf Aröbum. Svona voru jólin í
“landinu helga”.
* * *
I
S. 1. mánudag útvörpuðu Bret-
ar í fyrsta sinni ræðum á ara-
bisku til þess að skýra fyrir
Aröbum hvað sé að gerast í Pale-
stínu. Gera Bretar þetta vegna
þess, að ítalir hafa frá Bari-út-
varpsstöð sinni haldið uppi æs-
ingum meðal Araba gegn Bret-
um.
Sir George Perley nafnkunn-
ur stjórnmálamaður dó s. 1.
mánudag í Ottawa. Hann var
sambandsþingmaður fyrir Ar-
geill-kjördæmi. Hann hafði ver-
ið í stjórnarráði Bordens, Meigh-
ens og síðast. R. B. Bennetts. í
fjarveru Mr. Beonetts, var hann
settur forsætisráðherra.
* * *
Bandaríkin tóku 25. des. við-
stöðulaust góða og gilda af-
sökun Japana fyrir að sökkva
herskipi þeirra Panay.
* * *
Frank B. Kellogg, dómari í Al-
þjóðaréttinum, — sendiherra
Bandaríkjanna á Bretlandi, sena-
tor og ríkisritari, dó 21. des. í St.
Paul, Minn. Hann var 81 árs að
aldri.
MRS. GUÐRúN MARRON
* DÁIN
Mrs. Guðrún Marron, föður-
systir Gunnars B. Björnssonar,
82 ára að aldri, dó s. 1. fimtudag
(30. des.) og var jarðsungin s. 1.
mánudag og jörðuð í grafreit
fjölskyldunnar í Marshall. Séra
H. B. Thorgrímsen frá Grand
Forks, einn af elztu íslenzkum
lúterskum prestum vestra, sem
yfir vetrarmánuðina dvelur
hjá dóttur sinni í St. Paul, hafði
útfararræðuna bæði í Minneap-
olis s. 1. mánudag og við greftr-
unina í Marshall grafreitnum.
Mrs. Marron hét áður en hún
giftist Guðrún Björnsdóttir; for-
eldrar hennar voru Björn Hall-
grímsson og Margrét Eyjólfs-
dóttir. Hún yar fædd 13. des.
1855 á Hallbjarnarstöðum í
Skriðdal í Norður-Múlasýslu og
var því fullra 82 ára, er hún
lézt. Hún var frænka Jóns
Ólafssonar ritstjóra (þau voru
þremenningar) og var hin síð-
asta af systkinum hennar en
þeirra á meðal voru Jón og Sig-
urður Björnssynir, landnáms-
menn í Nýja-íslandi. Guðrún
kom til Ameríku 1878, ásamt
systur sinni önnu, er giftist
Thoroddi S. Eastman. Mrs.
Eastman dó í Californíu fyrir
rúmum þrem árum.
Árið 1882 giftist Guðrún
Björnsd., Owen Marron í Mar-
shall. Hafði hún dvalið í/ Mar-
shall frá því er hún kom að
heiman. Mr. Marron var ekkju-
maður, hafði fyrir nokkrum
börnum að sjá, var einn af land-
námsmönnum í Marshall-hérað-
inu og var hermaður úr borgara-
stríðinu. Fjórar dætur, tvær
stjúpdætur, tuttugu og eitt
barnabarn og eitt barnabarna-
barn, lifir Guðrúnu. Maður
hennar dó 1910.
Dæturnar sem eru á lífi, eru
Mrs. Bertha Marron King, í Min-
neapolis, er um mörg ár var
pianokennari í MacPhail School
of Music; Maud (Mrs. Daniel
King Jr.) í Omaha, Nebraska;
Lucy (Mrs. J. S. Browne) Mil-
waukee, Wisconsin; Ethel (Mrs.
C. M. Spears) San Matao, Cali-
fornia. Stjúpdæturnar eru Ann
(Mrs. Harry Jefferson) í St.
Paul; Elizabeth (Mrs. W. H.
Mackay) Pipestone.
Marron fjölskyldan flutti frá
Lyon County til Minneapolis
1898; og þar dó Mr. Marron fyrir
27 árum, en lík hans var flutt til
Marshall og grafið í fjölskyldu-
grafreitnum, þar sem nokkur af
börnum hans hvíla og þar sem
Mrs. Marron var lögð til hinstu
hvflu s. 1. mánudag. Hún hafði
átt heimili í Minneapolis síðan
fyrir aldamót, að undanskildum
nokkrum árum, er hún dvaldi hjá
skyldmennum í Californíu. Það
var að heimili dóttur hennar,
Bertha, 1212 Yale Place, Minne-
apolis, sem hún dó, s. 1. fimtudag,
30. des, árla dags, eftir veikindi,
sem byrjuðu með slagi s. 1. sum-
ar.
Mrs. Marron var kona mikil-
hæf, ákveðin í skoðununa, en þó
umburðarlynd við aðra. Sam-
fara skoðanalegu sjálfstæði, var
glaðværð og ljúfmensku ávalt að
mæta; var hana því unun heim
að sækja. Við erfiðleika frum-
býlings áranna glímdi hún djarf-
lega, ól upp stóran hóp yndisleg-
ustu barna, og lifði það í ellinni,
að verða aðnjótandi ástar og um-
hyggju þeirra, er hún hafði fórn-
að sér af móðurlegri ást fyrir.
Útförin hófst kl. 10 að morgni,
mánudaginn 3. jan. í Cataract
Temple lodge rooms í Minne-
apolis. Séra H. B. Thorgríms-
son, sem þar er mjög vel þektur,
flutti andríka og góða útfarar-
ræðu og mintist að verðugu hinn-
ar móðurlegu umhyggju hinnar
látnu. Miss Ethelwynne Kings-
bury í Minneapolis söng einsöng
við útförina. Líkmenn voru Ar-
thur E. Arntson frá Red Wing;
er kona hans frænka (neice)
hinnar látnu. Arlon Gíslason
frá St. Paul, en móðir hans var
frænka (neice) Mrs. Marron;
Valdimar, Bjöm og Jón Björns-
synir, synir G. B. Björnssonar,
en hin látna var föðursystir hans
sem áður er sagt. Próf. Hjörtur
Lárusson, frá Minneapolis, er á-
samt Mrs. King er kennari við
MacPhail School of Music.
Royal Bank of Canada
Reports Good Year
1 otal Assets $869,538,000 up $14,000,000 — Deposits Increased
$10,000,000 — Liquid Assets 65.53% of .Liabilitities
to the Public — Increased Profits Shown.
KROSSBERAR
ÞESSA ÁRS
Fálkaorðunefnd tilkynnir:
Þann 1. des. þóknaðist H. H.
Konunginum eftir tillögum
Fálkaorðunefndarinnar að sæma
eftirtalda íslendinga heiðurs-
merkjum orðunnar, sem hér seg-
ir:
Stórriddarar með stjörnu:
Próf. Magnús Helgason, fyrv.
skólastjóri, Reykjavík.
Stórriddarar með krosái
án stjörnu:
1. Benedikt Sveinsson, bóka-
vörður, fyrv. alþingisforseti,
Rvík. 2. Halldór Steinsson, fyrv.
héraðslæknir og alþingisforseti,
Rvík. 3. Knud Zimsen, fyrv.
borgarstj, Rvík. 4. Tómas Tóm-
asson, framkvæmdastjóri, Rvík.
Riddarakrossinum:
1. Benedikt Jónsson, bóka-
vörður frá Auðnum, Húsavík. 2.
Bjarni ólafsson, útgerðarmaður,
Akranesi. 3. Davíð Þorsteinsson,
hreppstj. Arnbjargarlæk, Borg-
arf.. 4. Erlingur Pálsson, yfir-
lögregluþjónn, Rvík. 5. Guð-
mundur Ámason, hreppstj., Múla
á Landi, kaupmaður og bæjar-
fulltrúi, Rvík. 7. Guðm. Einars-
son, præp, hon. prestur að Mos-
felli í Grímsnesi. 8. Helgi
Magnússon, kaupm. Rvk. 9.
Ingimar Eydal kennari, Akur-
eyri. 10. Jóhannes Reykdal,
verksmiðjueigandi, Hafnarf. 11.
Jónas Þór verksm.stj., Akureyri.
12. Magnús Jónsson, bóndi,
Klausturhólum. 13. Magnús
Þorláksson, sjálfseignarbóndi,
Blikastöðum. 14. Páll Jónsson,
hreppstj. Stóruvöllum í Bárðar-
dal. 15. Pétur Þórðarson hrepp-
stj., Hjörsey á Mýrum. 16. Próf.
Sigfús Einarsson, tónskáld Rvk.
17. Sigurður Björnsson bruna-
málastj., Rvk. 18. séra Vil-
hjálmur Briem, forstöðumaður
Söfnunarsjóðsins, Rvk.—Alþbl.
BIBLÍAN SEM NEÐAN-
MÁLSSAGA
The Annual Balance Sheet of
The Royal Bank of Canada made
public show a moderate growth
in deposits and total assets and a
strong liquid position. Total de-
posits amount to $756,089,696
and are higher than at any per-
iod in the bank’s history, with
the single exception of 1929.
Commercial Loan Increase
Current loans in Canada, in-
cluding loans to Municipalities
and Provincial Governments,
amount to $200,563,727, an in-
crease of approximately $12,-
765,000 as compared with the
previous year. Current Loans
outside of Canada amounting to
$101,147,198 are approximately
$4,000,000 lower than last year.
Coming as it does after a steady
decline in current loans over a
period of seven years, -the re-
versal in the trend of commercial
loans is encouraging. .As might
be expected in view of the pre-
sent stock market situation, Call
Loans both in Canada and
abroad have been substantially
reduced. Call Loans in Canada
amount to $19,392,906, a reduc-
tion of approximately $6,700,000.
Call Loans abroad amount to
$10,070,538, a reduction of $4,-
500,000.
Strong Liquid Position
The liquid position is strong,
total readily realizeable assets
being $514,671,335. Of this
amount $168,638,928 is repre-
sented by cash on hand or on de-
posit with the Bank of Canada
and other banks, while $245,606,-
374 is represented by Dominion
and Provincial Government se-
curities. Public securities other
than Canadian amounting to
$25,927,482 show an increase of
$13,937,353. This increase is
understood to be represented in
United States and British Gov-
ernment securities. Total in-
vestments amount to $316,568,
917, an increase of $23,398,096
from the previous year and a
new high record in the history
of the bank. Total liquid assets
are 65.53% of liabilities to the
public, which of course, is a re-
flection of present conditions
rather than of deliberate policy.
No Doubt the bank would have
been glad to have replaced a con-
siderable proportion of its in-
vestments by commercial loans.
Profits Higher
Net profits for the year are
shown at $3,711,379 and compar-
ed with 1936 indicate an im-
provement of $207,138. Divi-
dends paid absorbed $2,800,000.
The usual appropriation of $200,-
000 was made for Bank Prem-
ises but the contribution to the
Pension Fund Society was in-
creased to $300,000 as compared
with the former appropriation
of $200,000. Balance of Profit
and Loss Account carried for-
ward totals $2,325,176 an in-
crease of $411,380.
The Annual General Meeting
of the Shareholders will be held
at the Head Office of the bank
at 11 a.m. on January 13, 1938.
biblíunni á þennan hátt. Eitt
sunnudagsblaðið er byrjað á
löngum greinarflokki, sem nefn-
ist: konurnar í biblíunni. Fyrsta
greinin er um Evu í aldingarðin-
um. Blaðið auglýsir að næsta
grein eigi að vera um “Ester,
foreldralausa stúlku af lágum
ættum, sem vann konungshylli
með fegurð sinni og kom drotn-
ingunni í ónáð”. Blaðið gerir
sér miklar vonir um aukna sölu,
vegna þessa greinaflokks.
Annað sunnudagsblað i hefir
gengið enn lengra. Það er byrj-
að að prenta Markúsar guðspjall,
sem neðanmálssögu og lofar að
halda áfram með hin guðspjöllim
ef þetta líki vel.
Biskupinn á Kantaraborg birti
nýlega langa hvatningu til þjóð
arinnar um að lesa meira biblí-
una. Það virðist eins og biskup-
inn hafi verið bænheyrður, en
kannske öðruvísi en hann ætlað-
ist til!—N. Dbl.
Gestur á Hæli orti eftirfarandi
vísu um sjálfan sig:
Forsjónin gaf mér feita konu,
forsjónin gaf mér vakran hest,
forsjónin gaf mér fríða sonu,
forsjónin lét mig heita Gest.
Forsjónin hverjum færir sitt.
Forsjónin lét mig búa á Titt.
—Alþbl.
* * *
íbúum Bandaríkjanna fjölgaði
á síðasta ári um 6/10% frá árinu
áður. íbúar U. S. A. eru nú
129,527,000 að tölu.
Englendingar hafa altaf haft
orð fyrir að vera vel kristin þjóð.
Aldrei hafa þeir þó verið betur
kristnir en nú, ef dæma.skal þá
eftir því, að biblían selst jafnvel
betur en nokkur önnur bók. Það
þykir meira að segja fínt af
þeim, sem fylgjast með nýjustu
bókum, en eru þó ekki sérlega
trúræknir, að lesa biblíuna um
þessar mundir. Ástæðan til
þess er sú, að eitt helzta bókaút-
gáfufirmað hefir gefið biblíuna
út í vandaðri útgáfu, sem bók-
mentarit. Langir kaflar hafa
verið settir með breyttu letri, til
að vekja athygli á því, sem þykir
sérstaklega listrænt. Þetta nýja
útlit biblíunnar hefir haft þau á-
hrif, að fjöldi manna er farinn
að lesa hana, sem annars hefði
ekki komið það til hugar að
snerta við henni.
Blöðin hafa ekki viljað vera
eftirbátar í því að hagnast á
Kaupið Heimskringlu
Lesið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
LJÓÐMÆLI
St. G. Stephanssonar
Á- þessum vetri koma út síð-
ustu kvæði hans er fylla bindi á
stærð við þau sem út eru komin.
Tækifærið er því nú, að eignast
4 og 5 bindið fyrir þá sem eiga
hin fyrstu þrjú og vera við því
búin að fylla kvæðasafnið, er
þetta síðasta kemur á markað-
inn.
Andvökur IV. og V. eru nú
seld með affalls verði á $4.25
bæði bindin.
Sendið pantanir til
Viking Press og
íslenzkra bóksala hér í bæ
V V,;
mtíi
HUDSON’S BAY
ífotrc/
This advertisment is not inserted by the Govemment Liquor Control Commlssion. The
Commission is not responsible for statements made as to quality of products advertised.