Heimskringla - 02.03.1938, Blaðsíða 1
THE PAR-T-DRINK
Good Anytime
In the 2-Glass Bottle ^ ®
AVENUE
Dyers & Gleaners
Fatahreinsun vor er þess
verð að reyna hana.
Hvergi betri.
SÍMI 33 422
658 St. Matthews
LII. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MJBVEKUDAGINN, 2. MARZ 1938
NÚMER 22.
Um ársþing
Þjóðræknisfélagsins -
Nítjánda ársþing Þjóðræknis-
félagsins, er stóð yfir þrjá daga
s. 1. viku, var í alla staði hið
skemtilegasta. Það mun og vera
hið lang fjölmennasta þing fé-
lagsins. Á hverjum starfsfundi
mátti heita húsfyllir frá morgni
til kvölds og samkomurnar að
kvöldinu voru svo fjölsóttar, að
sagt er að nokkrir hafi orðið frá
að hverfa öll kvöldin vegna rúm-
leysis. Þetta mun einkum hafa
átt sér stað á samkomu Fróns
Utanbæjargestir voru ef til vill
með flesta móti, en bæjarbúar
sóttu þingið einnig betur en
áður. Þar sem samkomurnar
fóru fram í stærstu samkomu-
húsum íslendinga, Goodtempl-
ara-húsinu og Sambandskirkju
og hrögg samt ekki til, virðist að
því komið, að hugsa verði fram-
vegis fyrir stærra samkomu-
húsi, ef vonbrigði eiga ekki af
því að leiða og gestir jafnframt
að njóta þeirra þæginda, sem á-
kjósandlegt er. Það er enginn
vafi á því, að Þjóðræknisþingið
er orðinn sá öxull, er félagslíf fs-
lendinga snýst um. Menn bíða
þess orðið með eftirvæntingu á
hverju ári.
Ritari ársþingsins, B. E. John-
son, gerir eflaust bráðlega grein
fyrir störfum þingsins. Verður
Því ekki hér nema á einstöku
atriði minst, er fréttnæmust
mega teljast.
Stjórnarnefndar kosning fór
þannig, að nálega allir embætt-
ismennirnir voru endurkosnir.
Var það mjög viðeigandi, að
þakka nefndinni starf hennar á
undanförnu einu eða tveimur ár-
um með því að endurkjósa hana.
Ljóðræknisstarfið hefir gengið
ákjósanlega og má hin mikla að-
sókn á undanförnum þingum
og almennur áhugi í þjóð-
ræknismálum heita beinn á-
arangur af starfi nefndarinnar.
Nöfn stjórnarnefndarmanna eru
þessi: Dr. Rögnvaldur Péturs-
son forseti; Dr. Richard Beck,
v.-forseti, Gísli Jónsson, prent-
smiðjustjóri, ritari; Bergþór
Emil Johnson vara-ritari; Árni
fasteignasali Eggertson féhirð-
lr; Ásm. P. Jóhannsson, fast-
eignasali, vara-féhirðir; Guð-
mann Levy fjármálaritari; séra
®gill Fáfnis, Glenboro, vara-
fjármálaritari (er Fáfnis eini nýi
^aðúrinn í stjórnarnefndinni).
^igurður Melsted, skjalavörður.
Við setningu þingsins flutti
forseti ársskýrslu sína. Skal til
honnar vísað á ristjórnarsíðu
t’ossa blaðs. Eitt af þeim mál-
sem mnist er á í skýrslunni,
ug hressandi frétt þótti á þing-
ÍJu, var sýningarmálið í New
erk. Hafði stjóm íslands leit-
. tiJ forseta Þjóðræknisfélags-
lns .um að fara til New York og
Velja fyrir hönd íslands stað á
fyningunnj sem þar vergur hai(j.
m 1939> því stjórnin gerði ráð
yrm að taka þátt í þessari
eimssýningu. Fóru þeir dr.
ognvaldUr Pétursson og Guðm.
omari Grímsson frá Rugby, N.
ak., suður til þessa í haust, sem
aður hefir verið frá skýrt. Var
stjórnarnefndinni falið að hafa
samvinnu svo sem unt væri við
fsland í þessu máli.
Ein af hinum góðu fréttum í
PJóðræknismálinu, er að tvær
Pjóðræknisdeildir hafa verið
myndaðar á árinu. Er önnur
teirra deild ungra fslendinga í
Wi-nnipeg (The Young Iceland-
ers Society). Hin var stofnuð á
Mountain í Norður-Dakotaríki
með um 40 meðlimum. Voru
fulltrúar frá henni á ársþinginu.
Auk þessa hafa stjórnarnefnd
félagsins borist víða að bréf úr
bygðum, er æskja aðstoðar henn-
ar við að mynda deildir. f út-
breiðslumálinu virðast því horf-
urnar hinar beztu.
Nefnd var kosin á þinginu til '
þess að íhuga möguleikana á'
því, að safna efni trl alhliða
söguritunar (ekki einungis land-
námssögu) af íslendingum hér
vestra. Eru í þeirri nefnd Dr.
Rögnv. Pétursson, séra Guðm.
Árnason, Jón J. Bíldfell, dr Rich-
ard Beck og séra Sig. ólafsson.
Tillaga var samþykt um að
biðja stjórnarnefndina, að fara
fram á það við Sambandsstjórn
Canada, að hún tæki við og léti
sjá um hirðingu á grafreit
Stephans G. Stephanssonar
framvegis. — Ennfremur var
nefndinni falið að semja við bæj-
arstjórnina á Gimli um betri
hirðingu á blettinum, sem land-
nemaminnisvarðinn er reistur á
en gert hefir verið.
Á síðasta fundi ársþingsins
var frá því skýrt, að Hans Há-
göfgi, Tweedsmuir lávarði, land-
stjóra Canada, hefði verið boðið
að vera konunglegur heiðurs-
verndari (honorary royal pat-
ron) Þjóðræknisfélagsins í þakk-
lætisskyni fyrir heimsókn hans
til Gimli. Hefir Hans Hágöfgi
tilkynt, að hann væri fús til
þessa.
Forsætisráðherra íslands, Her-
mann Jónasson, sendi ársþinginu
og íslendingum vestan hafs árn-
aðaróskir í nafni' íslenzku þjóð-
arinnar. Kvað hann nokkurn á-
huga vaknaðan heima fyrir þörf
á raunverulegu sambandi við ís-
lenzka þjóðarbrotið vestra.
Á þessu þingi var dr. Sig. Júl.
Jóhannesson gerður að heiðurs-
félaga í Þjóðræknrsfélaginu.
Símskeyti frá íslandi til Þjóðræknisþingsins
Reykjavík 21. feb. 1938
Tii forseta Þjóðræknisfélagsins,
45 Home St., Winnipeg, Man.
Við setning ársþings Þjóðræknisfélags fslendinga í Vest-
urheimi sendi eg þingheimi og samlöndum vestan hafs hug-
heilar kveðjur frá fslandi, með þökkum fyrir heillaríkt starf
og ósk um gæfu ög gengi á ókomnum árum.
Hermann Jónasson, forsætisráðherra
félög ? Það væri dýrðlegt ef
svo væri, og eldra fólkið mætti
treysta því og sofna í eilífri ró.
En því miður er þessu ekki að
fagna. Það getur satt verið, að
um 30 skólar kenni íslenzku í
Bandaríkjunum. Að undantekn-
um fimm skólum eða svo, sem
hafa íslenzka kennara, mun á-
rangurinn fremur lítill af ís-
lenzku kenslunni'. Þeim er þetta
ritar er ekki ókunnugt um það,
að sumir háskóla kennarar við
þessa norrænu stóla, geta hvorki
skilið eða gert sig skiljanlega í
mæltu máli nokkrum íslendingi'!
En það sem Col. Hannesson
sagði um fornbókmentirnar ís-
lenzku, og yfirleitt margt annað
í ræðu hans auk þessa, sem at-
hugsemd hefir hér verið gerð við,
munu honum flestir hafa verið
sammála um.
Ekki má svo ljúka við þessar
fréttir af ársþinginu, að ekki sé
minst á samkomurnar, sem
haldnar voru á hverju kvöldi, þá
þrjá daga, sem þingið stóð yfir
(frá 23—25 febr.). Um fyrstu
samkomuna sá æskulýðsfélagið
nýstofnaða í Winnipeg (The
Young Icelanders Society) sem
áður er getið. Stjórnaði sam-
komunni forseti félagsins, Mr.
E. B. Olson, er fundarstjórn
lætur vel, enda “fegurst talaður”
allra yngri manna á þingum,
sem vér höfum hlýtt á. Þegar
hann hafði' gert ljósa grein fyrir
stofnun hins unga Þjóðræknis-
félags, bauð hann þeim hverjum
af öðrum er skemtu, að taka til
verka. En þeir voru meðal ann-
ara Col. Marino Hannesson með
þjóðræknis hugvekju all-mikla.
Fagnaði hann stofnun þjóðrækn-
isdeildar yngri manna; kvað
hann sér það nokkra sönnun
þess, að eldri íslendingar væru
nú orðnir betur sjáandi en þeir
hefðu verið um að þjóðræknis-
starfið yrði á öðru máli' en ís-
lenzku, að vera hér borið fram
til sigurs í framtíðinni, eins og
myndun þessa félags sem nú
væri fagnað vitnaði vonandi um.
Á kennarastól við háskóla
Manitoba kvað hann og hina
Onnur ræða sem flutt var
þetta áminsta kvöld, var um
þjóðræknismál frá mannfélags-
legu sjónarmiði. Er það hrein-
asta nýung, að heyra um þetta
mál rætt frá þessari hlið, enda
vakti ræðan mikla athygli. Hana
flutti ungfrú Elin Anderson, ís-
lenzk stúlka, er nýverið hlaut
viðurkenningu fyrir bók er hún
hafði skrifað um mannfélags-
fræði. Væri gagn og gaman að
sjá eitthvað eftir þennan höfund
á íslenzku um þessi efni.
Þriðju ræðuna hélt dr. Richard
Beck vara-forseti Þjóðræknisfé-
ekki lengi heyrst til á samkom-
um, söng á Frónsmótinu. Hans
voldugu og fögru rödd var öllum
kunnugt um. Hitt var það sem
mun gerði nú á söng hans, að
hann beitir röddinni betur og
fimlegar en fyr. Að söng hans
var hressing. Þá las Ragnar
Stefánsson upp Jcvæði a|f al-
kunnri snild og skáldin þrjú dr.
Richard Beck, Einar P. Jónsson
ritstjóri Lögljergs og Lúðvík
Kristjánsson, lásu sitt kvæðið
hver er þeir höfðu ort fyrir mót-
ið. Eru þau öll birt í þessu
blaði og skal ekki um þau orð-
lengt. Aðeins verður að geta
þess, að hinn síðast taldi var
kallaður aftur fraím og Ikom
mönnum þá eigi síður í gott skap
en fyr. Það er nú einu sinni
fengin reynsla fyrir því að Lúð-
vík bregst ekki að skemta, en af
því verður hann fyrir þessu ó-
næði sem önnur skáld og ræðu-
menn hafa ekkert af að segja, að
vera klappaður aftur fram. —
Frónsmótið var mjög skemtilegt
eins og sjá má af þessu, sem upp
er talið og er þó við það að bæta
bæði mat og dansi', sem hvort-
tveggja er talin gjaldgeng vara
á samkomum.
Þriðja samkoman fór fram í
Sambandskirkjunni síðasta þing-
kvöldið. Til skemtana var þar
fyrirlestur, er séra Sigurður Ól-
afsson frá Árborg flutti um verk
Einars Jónssonar myndhöggv-
lagsins. Kvað hann það góðs- ara- Birtist það erindi í næsta
vita, jafnvel tímamót í þjóð- blaði. Ennfremur las Árni Sig-
ræknismálum íslendinga, að urðsson upp kvæði eftir Davíð
þetta æskulýðsfélag hefði verið Stefánsson; var unun að fram-
stofnað. Árnaði hann félaginu sögn hans. Þá talaði fröken
heilla og bauð það velkomið til Halldóra Bjarnadóttir nokkur
samvinnu við Þjóðræknisfélagið. orð; ennfremur flutti dr. Rich-
Með áægtu fiðluspili skemti ard Beck stutta en snjalla ræðu.
Pálmi Pálmason og með einsöng Mr. Kárdal söng einnig nokkur
ungfrú Grace Polson. lög-
Þjóðræknisdeildin nýja á við-1 Að Þessu öllu loknu va/ >inf
urkennmgu skilið fyrir frammi- inu slitiði mun >að talið verða
stöðuna þétta kvöld. eitt hið markverðasta arsþing fe-
í stjórnarnefnd æskulýðsdeild- la*sins margra hluta vegna’ en
arinnar eru: E. B. Olson forseti;
dr. Lárus Sigurðsson v.-forseti;
Tryggvi Oleson ritari; ungfrú
Margrét Pétursson féhirðir; aðr-
ir nefndarmenn: Stefán Hanson,
ekki' sízt vegna hins vaknandi á-
huga íslendinga, sem þar kom
fram í þjóðræknismálinu.
Frakkar milli
Mrs. Lára Sigurðsson og T. Fmn- steins Og sleggjll
bogason. | í ræðu sem Yvon Delbos, utan-
Annað kvöldið var hin árlega ríkisráðherra Frakka hélt í
Frónssamkoma haldin. Forseti franska þinginu 1 gær, lýsti hann
Fróns, Ragnar H. Ragnar stjórn- því yfir, að Frakkland mundi
aði samkomunni, með fjöri og koma til sögunnar, hvenær sem
fræknleik sem honum er manna Czheko-Slóvakíu yrði yfirgangur
bezt lagið. Skemtiskráin var sýndur. Einnig stæðu samning-
bæði' löng og góð. Ræðu flutti arnir við Rússland sem stafur á
G. Björn Björnsson prófessor við bók. En þrátt fyrir þetta, kvað
háskóla Norður-Dakota-ríkis; — han'n geta að því komið, að
var það eina ræðan sem flutt Frakkar viðurkendu ítali sem
var; er hún birt á öðrum stað í stjórnendur Blálands. Var því
þessu blaði. Karlakórinn söng miður fagnað af áheyrenda pöll-
brýnustu þörf, þeir væru við mörg lög og höfðu áheyrendur um þingsins. En vilji Bretar að
mikla ánægju af söngnum. Þess svo sé, má Frakland ekki við að
fer að verða saknað á samkom- andmæla því.
um, ef karlakórinn kemur þar
ekki fram. Þetta virðist einkum Frá Spáni
hafa áunnist síðan R. H. R. tók , Lið Francos uppreistarfor-
við stjórn hans. Hann hefir ver- ingja, tók á ný borgina Teruel
ið óspar á að lofa íslendingum s j viku Er Franco nú að senda
að heyra til hans. Árangurinn er lið sugur til Almeria á suðaustur-
ítök kórsins í hugum almenn-1 strönd Spánar og aðrar fylking-
ings. Barnakór söng þarna ar austur á bóginn til Zaragoza
einnig undir stjórn R. H. R. og sem sækja á heim Barcelóna.
/akti' hann athygli áheyrenda. j,ag virgist sem stendur sé um
Hr. Óli Kárdal, sem verið hefir vörn, en ekki sókn, að ræða af
vestur á Strönd og hér hefir hálfu stjórnarinnar.
marga skóla í Evrópu og yfir 30
í Bandaríkjunum. Hér í Mani-
toba, þar sem íslendingar væru
fjölmennastir, væri ekkert er
sýndi að neitt hefði verið að-
hafst í að halda því við, er ís-
lenzkt væri. Þetta getur satt
verið. En ætli að vottur íslenzk-
unnar verði hér greinilegri- fyrir
kennarastól, en t. d. þær íslenzku
stofnanir, sem hér eru starfandi,
svo sem blöðin, kirkjurnar,
templarafélagið, laugardagsskóla
barna og ótal önnur al-íslenzk
Varð vitskertur af að
lesa þingtíðindin
Saga sú kemur frá Ottawa, að
yfirprentari þingtíðindanna hafi
nýlega meðtekið eftirfarandi
bréf:
Kæri herra: — Eiginmaðurinn
minn skrifaði sig fyrir þingtíð-
indunum og greiddi þriggja doll-
ara áskriftargjald fyrir árið. Frá
því að þingtíðindin byrjuðu að
koma á heimilið, las hann þau
spjalda á milli. Kom brátt að
því, að hann gerði líðilangan
daginn ekkert annað, en að lesa
ritlinga þessa. Gerið nú svo vel
að senda ekki meira af þing-
tíðindunum; eg hefi orðið að láta
flytja manninn minn á vitfirr-
inga-hæli'. Ef þess væri nokkur
kostur, að fá til baka eitthvað af
áskriftargjaldinu, eða sefn svar-
ar því sem eftir er af árgangi
þingtíðindanna, þætti mér mjög
vænt um það.
Megn óánægja út af
burtför Edens
Á Englandi virðist megn óá-
nægja ríkjandi út af burtför
Edens úr brezka ráðuneytinu.
Fundir kváðu vera haldnir víða
um land er fordæma stefnu
Chamberlain-stjórnarinnar í í-
tölsku málunum. Er haldið fram
á þeim fundum, að brezka
stjórnin sé að hlaupa undir
bagga með gjaldþrota alræðré-
seggjum Evrópu. SegjaRother-
meres-blöðin, að Chamberlain
geri vel, ef hann heldur völdum
út árið.
Um Eden er sagt, að hann
hugsi sér alls ekki að yfirgefa
íhaldsflokkinn. Og að hann verði
innan sex mánaða tekiim í ráðu-
neytið aftur, er trú íhaldsmanna j
þessa stundina.
Eigi að síður eru smærri ríkin
í Evrópu hrædd um að lýðræðis-
ríkin vestlægu séu að sleppa
verndarhendi sinni af þeim. Á
fundi nýlega í Ankara, þar sem
fulltrúar frá stjórnum Yugo-
slavíu, Rúmaníu, Grikklandi og
Tyrklandi mættu, var svo á það
litið sem samningar Breta við
ítali' miðuðu að þessu.
Framfarir á íslandi
Sgivald Rindung segir í grein
er hann hefir ritað í Kaup-
mannahafnarblaðið “Politiken”,
að þróun atvinnulífsins á íslandi
hafi orðið með svo miklum hraða
að helzt minni á Ameríku. Á
síðustu árum hafi stórt átak
verið gert í brúarsmíði og vega-
lagningum og . ferðamanna-
straumur tii landsins farið sí-
vaxandi. Hann skýrir frá því
hvernig að notkun hverahita
hefir færst í vöxt og greinir
mörg dæmi um framfarir á
merkilegum sviðum. Þá skýrir
hann frá helztu stjórnmálaflokk-
um í landinu o'g leiðtogum þeirra,
segir frá því, að ísland hafi nú
um sinn samsteypustjórn Fram-
sóknarflokksins og Alþýðu-
flokksins, sem frá almennu sjón-
armiði hafi unnið ágætt starf og
komið miklu til leiðar.—N.Dbl.
Mrs. Norton komin til baka
Mrs. Violet Norton, kona í
Winnipeg, er til Los Angeles fór
s. 1. apríl til að finna að máli
leikarann fræga, Clarke Gable,
er hún kendi dóttur sína, Gwen-
doline, er komin til baka og segir
för sína ekki slétta. Þegar suð-
ur kom skorti hana sannanir í
málinu og hlaut hún eins árs
fangelsisvist fyrir flanið. í á-
fríunarrétti var fangavistin
stytt í 7 mánuði. Voru þeir
liðnir um i^iiðja s. 1. viku.
Social Credit sinnar bjarga
Bracken-stjórninni
Á Manitoba-þinginu var at-
kvæði greitt um vantrausts-
yfirlýsingu. á Bracken-stjórnina
s. 1. föstudag. Tillöguna gerði J.
S. Farmer leiðtogi C. C. F. sinna
á þingi. í tillögunni var fundið
að því við stjórnina, að hún hefði
með öllu sniðgengið samvinnu-
málin (the co-operative move-
ment) Með tillögunni greiddu
30 atkvæði, en 21 á móti. Allir
social credit sinnar, 5 að tölu
greiddu stjórninni atkvæðr. —
Hefðu þeir (social credit-sinnar)
greitt atkvæði á móti stjórn-
inni, hefði hún fallið. óháðu-
þingmennirnir þrír, fylgdu einn-
ig stjórninni.
Er Þjóðabandalagið
ur sögunni?
“Þjóðabandalagið er dautt,”
hélt blaðið Daily Express, eign
Beaverbrooks lávarðar á Eng-
landi fram s. 1. viku. Blaðið
News Chronicle (liberal) segir
pð Chamberlain forsætisráðherra
hafi ekki einungis fómfært Eden
fyrir makk sitt við Mussolini,
heldur Þjóðabandalaginu einnig.
Þýzkt blað (Voialischer Beo-
bachter, málgagn stjórnarinnar)
heldur fram, að forsætisráðherra
Englands hafi auðsæilega upp-
rætt samtökin í Genf (Þjóða-
bandalagið) og á sama tíma felt
þungan dóm yfir sambandinu
milli Frakka og Rússa með
rekstri Edens.
Eiturgas í næsta stríði
Voroshiloff, hermálaráðgjafi
Rússa, lýsti' því yfir í ræðu s. 1.
viku á 20 ára afmæli rússneska
hersins, að það mætti eins vel
segja það nú og síðar, að hann
gerði ráð fyrir að í næsta stríði
notaði herinn “eitur gas”. Hann
kvað fasistaríkin hafa brotið lög-
in frá 1925 um bann við notkun
eiturgass, og hér eftir mundu
þau ekki halda neina samninga
um það, en fara eftir því einu er
þeim sýndist. Fyrir Rússlandi
kvað hann aldrei hafa vakað á-
rásarstríð; þó þjóðin hervædd-
ist nú svo að öðrum þjóðum
þætti nóg um, væri það aðeins til
varnar gert. Hótanir Hitlers og
fasista krefðust þess.
SR. JóN SVEINSSON
kaþólski, er dvalið hefir nú um
langt skeið í Tokyo í Japan varð
að hætta við ferð sína umhverfis
hnöttinn vegna ófriðarins þar
austur frá.
Hefir hann nú afráðið að
hverfa til Evrópu aftur og hefir
tekið sér far með japönsku línu-
skipi “Teru kimi maru” er fer
frá Kobe áleiðis til Lundúna 18.
marz. Viðkomustaðir verða: —
Shanghai, Keelung, Hong Kong,
Singapore, Penang, Colombo,
Aden, Suez, Port Said, Napoli,
Marseljuborg, Gibraltar, og það-
an til Lundúna. Þar er í ráði að
hann flytji nokkra fyrirlestra.
Svo fer hann flugleiðis til París
og flytur þar erindi'. Næsti á-
fangi er Svissland og hygst hann
að hvíla sig þar ögn eftir ferða-
volkið. Næst fer hann til Val-
kenburg á Hollandi og ætlar að
setjast þar að um óákveðin tíma.
Síðustu dagana í Japan dvelur
sr. Jón á heimili þeirra hjóna
sr. S. Oktavíusar Torlákssonar
og frúar hans, sem eru trúboðar
í Kobe, á vegum hins Ev. lút.
kirkjufél. ísl. í Vesturheimi.
Hafa þau hjón heimsótt sr.
Jón í Tokyo og sýnt honum frá-
bærlega velvild og gestrisni.
Friðrik Sveinsson