Heimskringla - 02.03.1938, Síða 7
WINNIPEG, 2. MARZ 1938
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA
SYNGUR HVER MEÐ
SÍNU NEFI
Eg hugsa um alla sem yrkja
til ágætis sjálfum sér,
íslendingana eystra,
og Ameríkumenn hér;
þeir eru úr ólíku efni,
með ólíkann hjartaslátt;
en snild þeirra guðirnir geyma
þótt gerist á ólíkan hátt:
íslenzkar orðrúnir vara
eins lengi og stál og grjót;
í þeim hefir frumhygð og fegurð
fundið sér varanlegt mót.
Ameríkumenn yrkja, —
en annan veg hörpuna slá;
þá dreymir oft erfiða drauma,
en dugur og vit ráða þá:
þeir yrkja úr stórgrýti og stáli
og stuðla við afgrunn og ský;
þeir eru ekki myrkir í máli
en mælskastir stórvirkjum í.
Eg hugleiði hengibrýr Frisco’s
og hugsa um Boulder Dam, —
öll stáls og grjóts kraftakvæðin
kveðin hjá UNCLE SAM.
Svo hugsa eg um Egil og Hjálm-
ar
og Hallgrímsson Jónas,
stórsnjalla Einar og Stefán
Steingrím og Matthias.
Þeir bygðu ei brýr yfir höfin
né brutu þeir fjöllin til gulls,—
en þeir sköpuðu og opnuðu oss
undralönd
enn varla numin til fulls;
þeir kváðu með arnfleygum orð-
um
og íslenzkum hreim og blæ
og súg,—eins og hranndynur
heyrist
frá horfinna alda sæ.
E. G. Gillies
p. t. San Francisco.
FRÁ ÁRBORG
(19. febrúar 1938)
Kæri herra ritstjóri Hkr.:
Þar sem ekkert hefir verið rit-
að í íslenzku blöðin um búnaðar-
skóla námsskeiðin, sem haldin
hafa verið víðsvegar um fylkið,
þar sem maður vonar að þetta sé
aðeins byrjun á þessu starfi,
sem svo nauðsynlegt er til þess
að tryggja framtíð unglinganna
á landinu. Það þarf að gefa þeim
kjark og þekkingu til þess að
mæta örðugleikunum, sem land-
búnaðurinn hefir í för með sér.
Það þarf að gera landbúnaðinn
svo aðlaðandi að unga fólkið sjái
framtíð sinni borgið á landinu og
þurfi ekki að streyma til bæj-
anna þar sem engrar vinnu er
von, eins og hefir verið. Maður
getur varla láð unglingunum þó
að hugur þeirra snúist frá sveit-
inni, eins og hefir gengið þessi
síðustu ár. Maður vonar að
betri tímar séu í nánd.
Það hefir oft verið rætt um að
ekki sé kent nóg af því verklega
á alþýðuskólunum og að ment-
unin stefni fremur að því að und-
irbúa unglingana undir háskól-
ann, en að gefa þeim tækfæri til
þess að halda sér að því sem þeir
INNKÖLLUNARMENN HEIMSKRINGLU
I CANADA:
Amaranth...............................J. B. Halldórsson
Antler, Sask.........................,K. J. Abrahamson
Árnes.................................Sumarliði J. Kárdal
Árborg..................................G. 0. Einarsson
Baldur.................................Sigtr. Sigvaldason
Beckville................................Björn Þórðarson
Belmont.....................................G. J. Oleson
Bredenbury................................H. O. Loptsson
Brown................................Thorst. J. Gíslason
Churchbridge...........................H. A. Hinriksson
Cypress River............................ Páll Anderson
Dafoe....................................
Ebor Station, Man......................K. J. Abrahamson
Elfros...................................
Eriksdale.........................................ólafur Hallsson
Foam Lake................................. John Janusson
Gimli......................................K. Kjernested
Geysir.................................Tím. Böðvarsson
Glenboro....................................G. J. Oleson
Hayland................................Slg." B. Helgason
Hecla.................................Jóhann K. Johnson
Hnausa.................................. Gestur S. Vídal
Hove.................................. Andrés Skagfeld
Húsavík...................................John Kernested
Innisfail.............................Hannes J. Húnfjörð
Kandahar..................................
Keewatin.................................Sigm. Björnsson
Kristnes............................................Rósm. Ámason
Langruth..............................................B. Eyjólfsson
Leslie.................................Th. Guðmundsson
Lundar.........................Sig. Jónsson, D. J. Líndal
Markerville...........................Hannes J. Húnfjörð
Mozart...................................
Oak Point................................Andrés Skagfeld
Oakview..............................
Otto................................................Björn Hördal
Piney.....................................S. S. Anderson
Red Deer..............................Hannes J. Húnfjörð
Reykjavík............................................Árni Pálsson
Riverton..............................Björn Hjörleifsson
Selkirk.......................... Magnús Hjörleifsson
Sinclair, Man.........................K. J. Abrahamson
Steep Rock...................A..............Fred Snædal
Stony Hill..........................................Björn Hördal
Tantallon.................................Guðm. Ólafsson
Thornhill.............................Thorst. J. Gíslason
Víðir....................................-Áug. Einarsson
Vancouver.............................Mrs. Anna Harvey
Winnipegosis..............................Ingí Anderson
Winnipeg Beach..................:........John Kernested
Wynyard...................................
f BANDARTKJUNUM:
Akra....................................Jón K. Einarsson
Bantry...................................E. J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash...................Mrs. John W. Johnson
Blaine, Wash.....................Séra Halldór E. Johnson
Cavaliér................................Jón K. Einarsson
Chicago: Geo. F. Long, 2428 Hamlin Ave., Logan Square Sta.
Edinburg.....................................Jacob Hall
Garðar..................................S. M. Breiðfjörð
Grafton.................................Mrs. E. Eastman
Hallson.................................Jón K. Einarsson
Hensel...................................J- K. Einarsson
Ivanhoe..............................Miss C. V. Dalmann
Los Angeles, Calif....Thorg. Ásmundsson, 4415 Esmeralda St.
Milton....................................F. G. Vatnsdal
Minneota............................Miss C. V. Dalmann
Mountain................................Th. Thorfinnsson
National City, Calif.......John S. Laxdal, 736 É 24th St.
Point Roberts...........................Ingvar Goodman
Seattle, Wash..........J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W.
Svold...................................Jón K. Einarsson
Upham...................................E. J. BreiðfjörO
The Viking Press Limited
Winnipeg. Manitoba
[eru helzt gefnir fyrir. Þegar
I maður hugsar sér að aðeins einn
af hverju hundraði unglinga úti
á landinu, sem fara í gegnum
miðskóla, halda áfram menta-
brautina, finst manni þetta rang-
1 látt.
Þar sem landbúnaður er meg-
iðnaður Manitoba, er það nauð-
synlegt að unglingar í landinu
séu hvattir til að halda áfram
starfi foreldra sinna og hafa
þessir skólar verið stofnaðir með
það markmið fyrir augum. Nýi
mentamálaráðherrann, —* Hon.
Ivan Schultz — er séstaklega
spentur fyrir því að það verklega
sé innleitt í alþýðuskólana. Ferð-
aðist hann um Bandaríkin í fyrra
til þess að kynna sér starf þeirra
á þessu sviði. Það var veittur
peningastyrkur frá Sambands-
stjórninni á móti' sömu upphæð
frá fylkinu, sem átti að vera sem
styrkur (relief measure) fyrir
bænda-unglingana og var afráðið
að bezta hjálpin, sem hægt væri
að gefa með þessari uppphæð
væri að stofna búnaðarskóla út
um landið. Tveggja ára náms-
skeiðin, sem voru kend á búnað-
arskólanum, bæði fyrir stúlkur
og menn, hafa verið afnumin
vegna þess að ekki fengust nógir
nemendur utan af landi til þess
að það borgaði sig. Hefir þetta
ef til vill verið orsökin til þess að
skólarnir voru færðir fólkinu á
þennan veg. Þegar unglingarnir
gátu ekki' komið til skólans varð
skólinn að koma til þeirra.
Fröken Halldóra Bjarnadóttir
hefir, með sínum góðu fyrirlestr-
um, sýnt okkur hvaða aherzlu
ísland hefir lagt á húsmæðra-
störf dætra sinna “að snúa ull í
fat og mjólk í mat,” er þeirra
mottó, og sýndu hlutirnir sem
hún kom með hve yndislega þeim
hefði tekist að vinna úr ullinni.
Okkur hér í Árborg veittist sá
heiður að fá að hafa húsmæðra-
skóla hér hjá okkur í sex vikur
í haust og höfðum við 38 nem-
endur, og voru þeir úr öllum átt-
um: Lundar, Hayland, Inwood,
Fisher Branch, Gimli, Winnipeg
Beach, Riverton, Geysir, Víðir og
Árborg, flestir íslenzkir. Var
okkur leyft að hafa 25 nemend-
ur, en þegar svona margar vildu
koma, var okkur leyft að hafa
tvo kennara, svo engum þyrfti
að vísa frá. Var okkur þetta
sérstakt ánægjuefni þar sem Ár-
borg var eina íslenzka plássið
sem fékk skóla þetta ár.
Nefndin sem fyrir þessu stóð
var: sú sem þetta ritar, forseti;
Mrs. H. F. Danielson, ritari; Mr.
B. J. Lifman, Mr. B. I. Sigvalda-
son, Mr. B. M. Pálson, Mrs. W. S.
Eyjólfson, Mr. H. F. Danielson;
móttökunefnd: Mrs. B. J. Lif-
man, Mrs. S. E. Björnson og Mrs.
H. F. Danielson.
Var þetta töluvert starf fyrir
þessa nefnd, þar sem tíminn var
svo stuttur. Á hún Lögbergi það
að þakka að stúlkur frá Mani-
tobavatni komu, þar sem blaðið
birti grein, sem auglýsti þetta
skólanám. Konur bæjarins opn-
uðu hús sín fyrir nemendum og
var farið með þær allar eins vel
og hægt var. Stjórnin borgaði
helming af fæðiskostnaði, til að
gera léttara fyrir foreldra að
geta notað þetta tækifæri. Þar
sem fátækt var, var hún reiðu-
búin að borga allan kostnað. -
Skólabækur þurfti ekki, en nem-
endur höfðu bækur til þess að
skrifa nótur sínar í og þurftu
að leggja til efni í þær flíkur
sem þær saumuðu.
Kennarar voru Mrs. Hill fyrir
sauma, o. s. frv., en Miss Long
við matreiðslu o. s. frv. Voru
þær vel valdar fyrir þetta starf.
Fyrirlestrar voru fluttir af M.
Arason, “Citizenship”; Mrs.
iDamsay, “Child Care”; Prof.
Hemer, “Poultry”; Prof. Broder-
ick, “Horticulture”; Dr. S. E.
Björnson, “Public Health”; Mrs.
B. M. Pálsson “Health Mea-
sures”; Andrea Johnson, “The
Value of Organization for Farm
Women”; Mrs. I. Thorvardson,
“Your Neighbor”; Mr. Hayes,
“Banking” og Mr. B. M. Pálsson,
“Citizenship”; G. D. Einarson,
“Co-operation”; Miss S. John-
son, “Literature.”
Mrs. H. F. Danielson kendi
þeim “Folk Song and Dramatics”
og á hún heiður skilið fyrir þá
hjálp og allan þann tíma, sem
hún eyddi með nemendunum;
sömuleiðis Miss Margaret Lif-
man, sem kendi þeim “Folk
Dancing” og Mr. Franz Solmund-
son, “Physical Training.” Sýndi
samkoman, sem haldin var við
lok skólans hve vel þessum kenn-
urum hafði tekist að æfa nem-
endur sína.
Eg reyni ekki að nefna alla þá,
sem hjálpuðu til þess að gera
þennan skóla þá fyrirmynd, sem
hann í rauninni varð. Leyfi eg
ENGEL LUND, merk dönsk söngkona efnir til samkomu
í Auditorium í Winnipeg mánudaginn 7. marz n. k. kl. 3
e. h. (að deginum). Söngkonan syngur þjóðsöngva frá
ýmsum löndum, þar á meðal nokkur íslenzk lög: “Fífil-
brekka gróin grund”, “Bí bí og blaka” og “Það er svo
margt”. — Inngangur er $1.00 Engel Lund hefir mikið
orð á sér sem söngkona. Sá er undir söng hennar spilar
heitir Ferdinand Rauter og er með söngkonunni á mynd-
inni hér að ofan.
i
t
i
|
- NAFNSPJÖLD -
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd Bldg.
Skrifstofusími: 23 674
Stundar sérstaklega lungnasjúk-
dóma.
Er að flnni & skrifstoíu kl. 10—1:
f. h. og 2—6 e. h.
Helmili: 46 Alloway Ave.
Talsimi: 3315»
G. S. THORVALDSON
B.A., LL.B.
LögfrœSingur
702 Confederation Llfe Bldg.
Talsiml 97 024
Jacob F. Bjamason
—TRANSFER—
Baggage and Furniture Moving
591 SHERBURN ST.
Phone 35 909
Annast allskonar flutninga fram
og aftur um bæinn.
w. J. LINDAL, K.C.
BJÖRN STEFÁNSSON
ISLENZKIR LÖGFRÆÐINQAR
á öðru gólfi
325 Main Street
Talsími: 97 621
Hafa einnig skriístofur að
Lundar og Glmll og eru þar
að hitta, fyrsta miðvlkudiaír i
hverjum mánuði.
mér aðeins að nota orð Miss
Esther Thompson, forstöðukonu
þessa starfs:
“Þið vitið ekki hvað mikla
hjálp þið hafið veitt okkur með
skólanum ykkar í Árborg. Þið
hafið dregið upp þá fyrirmynd,
sem við reynum að stíla eftir.”
18. des., sem var seinasti dag-
ur skólans var mannmargt í
samkomuhúsinu okkar í Árborg.
Eftir hádegið voru - all,ir vel-
komnir að koma og skoða verk
stúlknanna, bæði sauma og
bakstur, en að kveldinu var sam-
koma, og skemtu þar stúlkurnar
með söng, leik dans og líkams-
æfingum, en ræður héldu Mrs.
Walter Lindal, Hon. Ivan
Schultz, Mr. N. C. M. Kay, for-
maður Extension Service. Mr.
W. R. Wood, skrifari United Far-
mers of Manitoba; Mr. J. Waw-
rykow, þingmaður Gimli kjör-
dæmis; Mr. H. A. Campbell, for-
maður piltaskólans í Teulon.
f kvöld er seinasti dagur
drengjaskólans í Teulon og af 40
nemendum höfum við 12 ungl-
ingspilta frá Árborg og grend-
inni. Var það sjö vikna náms-
skeið þar.
Þar sem þessir skólar eru að-
eins tilraun (experiment) að
sinni, er nauðsynlegt að þeim sé
gaumur gefinn. Haldi maður að
þetta sé spor í rétta átt, ætti
maður að styðja þetta mál á
allan þann veg sem hægt er og
láta þá sem fyrir því standa,
Mentamáladeildina, The Exten-
sion Service Labor og Mrs. Lin-
dal, sem er forstöðukona sam-
bandsstyrktar nefndarinnar vita
álit sitt á því.
Vil eg svo, sem forseti nefnd-
arinnar, þakka öllum þeim, sem
á einn eða annan veg hjálpuðu
til þess að koma þessu í fram-
kvæmd.
Andrea Johnson
Nú drottinn úr Rússlandi er rek-
inn,
þar ráða nú vísindi og spekin.
Þar er trúað á mátt og megin,
og mannsvitið lýsir vegin.
(sbr. G. Á. í Hkr.)
S. Bjömson
HITT OG ÞETTA
M. HJALTASON, M.D.
ALMENNAR LÆKNINGAM
Sérgrein: Taugasjúkdómar
Lætur útl meðöl < vieiögum
VHtalstlmar kl. 2—4 ». k.
7—8 at> kveldinu
Síml 80 867 666 Vlctor Bt.
A. S. BARDAL
Bclur líkklstur og ann&srt nm útfar-
ir. Allux útbúnaður s& besti. —
Ennfremur selur hann »ruw_..
mlnnifivarða og legsteina.
843 SHERBROOKE 8T.
Phone: 66 607 WINNIPMO
Dr. S. J. Johannesnon
218 Sherburn Street
Talsiml 30 877
Viðtalstimi kl. 3—5 e. h.
MARGARET DALMAN
TEACHER OF PIANO
IS4 BANNINO ST.
Phone: 26 420
Rovatzos Floral Shop
*06 Notre Dame Ave. Phone 94 9M
F'reeh Cut Flowere Daily
Plants in Season
We specialize in Weddlng St
Concert Bouquets 8c Funeral
Deslgns
Icelandic spoken
THL WATCH SHOP
Thorlakson Baldwin
Dlamonds and Wedding
Rings
Agents for Bulova Watchei
Marriage Licenses Issued
699 Sargent Ave.
Dr. A. V. JOHNSON
tSLENZKUR TANNLÆKNIR
212 Ourry Bldg.. Wlnnlpeg
Oegnt pósthúsinu
simi: 96 216 Heimilit: 32 226
Enskur landkönnuður, dr.
Donald Thomsen, er nýlega kom
inn til London eftir að hafa verið
í rannsóknarferð í Ástralíu. —
Langt inni í landi rakst hann á
negraþjóðflokk, sem hvít drotn-
ing stjórnaði. Drotningin er 21
ára gömul.
Fyrir 14 árum strandaði á
norðurströnd Ástralíu flutninga-
skip eitt enskt. Kona skipstjór-
ans og 7 ára gömul dóttir þeirra
voru á skipinu. Mæðgurnar og
nokkrir skipverjar björguðust á
land, en skipstjórinn var meðal
þeirra sem druknuðu.
Mæðgurnar voru síðan teknar
höndum af negrum, sem fluttu
þær langt inn í landið. Móðirin
lét lífið í þessu mótlæti, en litla
telpan ólst upp hjá negrunum.
Henni líkaði dvölip hjá þeim svo
vel, að hún neitaðr algerlega að
fylgjast með dr. Thomsen heim
til Englands. Hin hvita drotning
man lítið eftir foreldrum sínum.
J. J. Swanson & Co. Ltd.
REALTORS
Rental, Inturance and Financial
Agenti
81ml: 94 221
809 PARIS BLDG.—Winnlpeg
Gunnar Erlendsson
Planokennarl
Kenslustofa: 701 Vlctor St.
Slmi 89 535
Orrici Phoki Reh phohi
87 298 , 73 40»
Dr. L. A. Sigurdson
10« MEDICAL ART8 BDTLDINO
OmcK Hours :
13 - 1
4 r.M. - « p.m.
un it irronrTMmrr