Heimskringla - 09.03.1938, Síða 1
THE PAR-T-DRINK
Good Anytimc
In the 2-Glass Bottle ^ ®
AVENUE
Dyers & Cleaners
Fatahreinsun vor er þess
verð að reyna hana.
Hvergi betri.
SÍMI 33 422
658 St. Matthews
LII. ÁRGANGUR
WINNEPEG, MIÐVEKUDAGINN, 9. MARZ 1938
NÚMER 23.
HELZTU FRÉTTIR
Ishbel MacDonald, dóttir Ram-
say MacDonalds fyrrum forsæt-
isráðherra verkamannastjórnar-
innar á Englandi, giftist 28. febr.
atvinnulausum málara og vegg-
fóðrara.
* * * *
Trans-Canada Airlines byrjuðu
1. marz að fljúga stöðugt að deg-
inum milli Winnipeg og Van-
couver. Einu viðkomustaðirnir
á leiðinni eru Regina og Leth-
bridge. Vegalengdin er 1168
mílur. Er hún farin vestur á
8 klst. 15. mín., en austur á 7
klst. 45 mín. Frá Winnipeg er
farið klukkan 9.15 að morgni en
komið til Winnipeg klukkan 5.30.
Til að byrja með verður ekkert
flutt nema póstur.
* * *
Laugardagurinn 26. febrúar,
er sagður heitasti febrúar-dag-
urinn, sem frá er greint í veður-
skýrslum Winnipeg-borgar. Hit-
inn varð +47 um tíma úr deg-
inum.
* * *
Neville Henderson, sendiherra
Breta í Þýzkalandi átti tal við
þá Hitler og von Ribbentrop fyr-
ir helgina um samninga milli
Bretlands og Þýzkalands eitt-
hvað svipaða þeim sem Bretar
hafa í smíðum við ftalíu.
* * *
“The Octavians” heitir félag í
Englandi, sem myndað hefir ver-
ið til þess að verjá nafn Hertog-
ans af Windsor og hértogafrú-
arinnar; félagið hefir það fyrir
stafni að mótmæla öllum óhróðri
sem skrifaður er um hjónin. í
félaginu kváðu vera hundruðir
manna. Á ári hverju ætlar það
að halda veizlu til minningar um
hinn vinsæla fyrverandi konung.
* * *
Það mun margan hafa mint á
Jean Valjean, í einu af verkum
Victor Hugo, er þeir lásu nýlega
um það, að drengur í Seattle,
Charles Atkins að nafni, hefi
verið dæmdur til 20 ára fanga-
vistar í ríkisfangelsinu fyrir að
taka af öldruðum manni 29c og
byssu.
* * *
Mann- og eignatjón varð mikið
af völdum rigninga í Suður-
Californíuríki',s. 1. viku. 'Eftir
fjögra daga mikla rigningu
hljóp vöxtur í ár og vötn er
flæddu margar jarðir í kaf. —
Herma síðustu fréttir, að um
200 manns muni hafa farist og
heimilislausir skifta þúsunum er
flýja urðu af jörðum sínum. —
Eignatjónið nemur tugum mil-
jóna. í Los Angeles urðu þúsund-
ir heimilislausir og margar bryr
biluðu; sex manns druknuðu. Á
Long Beach fórust 10 manns er
brú yfir Los Angeles ána bilaði.
f Bell eyðilögðust um hundruðir
húsa og um 5,000 manns varð
húsvilt; fimm menn fórust. f
Santa Paula urðu 1,000 manns
heimilislausir og 250 hús skemd.
f Monrovia og Arcadia um 300
heimilislausir. f Venice um 800
heimilislausir og mikið eigna-
tjón. f Riverside druknuðu um
17 manns í bílum vegna vatna-
vaxtar í Santa-Ana-ánni, o. s.
frv.> o. s. frv.
* * *
A sambandsþinginu gerði T.
L. Church íhaldsþingmaður frá
Toronto-Broadview, tillögu s. 1.
miðvikudag um að sambands-
stjórnin tæki að sér aflan kostn-
að við framfærslu atvinnulausra.
Verkamálaráðherra Norman
Rogers andæfði tillögunni um
hæl. Kvað hann kostnaðinn
mundi nema 100 miljón dollurum
á ári' og til þess þyrfti stjórnin
annaðhvort að hækka söluskatt-
inn eða tekjuskattinn, sem báðir
væru nú þegar full háir. Nú
kvað hann sambandsstjórnina
greiða um 30 miljón dollara af
atvinnuleysiskostnaðinum. — Á
eftir honum töluðu margir
stjórnarsinnar og allir á móti til-
lögunni. Var málinu á þann hátt
eytt á þinginu.
Mr. Woodsworth þingmaður
frá Winnipeg studdi tillögu Mr.
Church. Húðaði hann sambands-
stjórninni út fyrir að' skella
skolleyrum við hverju umbóta-
máli, sem hreyft væri á þinginu.
Kostnaðinn kvað Mr. Woodd-
worth stjórnma geta haft upp í
hækkuðum tekjuskatti eða erfða-
skatti á upphæðum sem allsend-
is væri leikið sér með, en lífsvið-
urværi kæmu alls ekkert við.
* * *
Á sunnudagsmorguninn, 6.
marz, sökti sjólið stjórnarinnar
á Spáni skipi fyrir uppreistar-
mönnum austur af Spáni (75 míl-
ur frá Cape Palos). Á skipinu
voru 765 manns; bjargaði brezkt
skip um 400 af þeim. Nafn
skipsins er sagt að verið hafi
“Balearic”, eitt af mestu her-
skipum Francos.
* * *
Á fylkisþinginu í Manitoba
lýsti Hon. S. S. Garson fjármála-
ráðherra Brackenstjórnarinnar
því yfir, að skattur á bönkum
yrði hækkaður um 40 af hundr-
aði. Nú er skatturinn á bönkum
$5,000 á aðal-böknum í fylkinu,
ef þeir hafa yfirráðsmanns
skrifstofu (superintendents of-
fice), en $3,000, ef þeim fylgir
ekki slík skrifstofa. Á útibúum
er skatturinn $750 og niður í
$400. f sköttum frá bönkum
innheimti stjórnin á s. 1. ári
$128,000. Með skatthækkuninni
gerir hún ráð fyrir að hann nemi
$175,000.
W. R. Sexsmith frá Portage La
Prairie og Geo P. Renouf frá
Swan River, spurðu hvort þetta
yrði ekki til þess að bankar
fækkuðu útibúum sínum í fylk-
inu. Mr. Renouf kvað aðeins
einn banka í Swan Rrver daln-
um, sem væri of lítið. Mr. Sex-
smith kvað víða óþægindi að því
út um fylkið, hve bankaútibú
væru fá.
* * *
Dómsúrskurður hæstaréttar í
Canada um löggjöf social crédit
stjórnarinnar í Alberta, var birt-
ur s. 1. föstudag.
Auk þess sem að þrjú frum-
vörp Alberta-stjórnarinnar eru
talin ósamkvæm landslögunum,
gaf hæstiréttur ennfremur þann
úrskurð að sambandsstjórnin
hefði vald til þess, að neyta stað-
festingar löggjöf, sem fylkin
gerðu. Einnig áleit hæstiréttur
að fylkisstjórar hefðu vald til að
krefjast frests á samþykt laga
meðan hann leitaði álits stjórnar-
ráðs — (Governors-General-in-
ouncil) landsins um hana.
Bankalöggjöf Albarta-fylkis
hin nýja var í því fólgin, að auka
skatta á bönkum svo að næmi 2
miljón dollurum a ari; skattarn-
ir voru á hreinu stofnfe (paid-
up capital) varasjóðsfé og ó-
skiftum rekstursgróða (undivid-
ed profit) banka í Alberta-fylki.
Þessi löggjöf var talin ógild.
Annað frumvarpið var um að
lánstofnanir yrðu að sækja um
reksturs-leyfi til fylkisstjórnar-
innar og að þær væru undir eftir-
liti nefndar eða ráðs frá fylkis-
stjórnnini. Það frumvarp var
talið ólögmætt.
Þriðja frumvarpið var um að
skylda fréttablöð til þess að
koma með sögumann að fréttum
sem birtar væru og leiðrétta ef
ósatt væri sagt um gerðir stjórn-
arinnar. Það frumvarp var af
hæstarétti einnig talið ósam-
kvæmt lögum um ritfrelsi.
Hvað sem um þessi frumvörp
má segja, er það augljóst af
hæstaréttar-rúskurðinum, að
fylkjastjórnum landsins er
skamtað vald sitt úr hnefa sam-
bandsstjórnarinnar talsvert
fram yfir það er margan kann
að hafa grunað. Frelsi þeirra
virðist vera meira í orði en á
borði.
* Hs *
Á þriðjudagskv. 1. þ. m. um
kl. 10 bar það við í Mac’s Theatre
á Ellice Ave., er þau Christie-
hjónin veita forstöðu að ræn-
ingi réðist inn í kompuna þar
sem aðgöngumiðar eru seldir,
otaði skammbyssu og heimtaði
peningana. Hr. Guðm. Christie
varð fyrir svörum en var alls
ekki í hug að verða við skipun-
um komumanns, heldur þreif
óþyrmilega í handlegg ræningj-
ans og kallaði á hjálp, ræningj-
anum varð hverft við og sleit
sig lausan og flýði sem fætur
toguðu — tómhentur — yfir
strætið og hvarf þar milli hús-
anna. — Hr. Christie lét það
álit sitt í ljósi við fréttaritara
“Tribune” (er gat um þennan
atburð) að þessir ræningjar
myndu fæstir vera mannskæðir
og bezt að taka hraustlega á
móti þeim. Guðmundur hefir
aldrei verið vanur að gefast upp
að óreyndu, og mun þetta ekki
í fyrsta sinn að hann hefir sýnt
af sér snarræði við ofbeldisseggi.
* * *
f blaðinu “Walsh County Re-.
cord”, 24. febrúar s. 1. er yfir-
mönnum í Cavalier County og
samvinnu þeirra við Guðmund
dómara Grímsson hrósað fyrir
skjótar aðgerðir í morðmáli
Andrew Chaykum. Andrew þessi
var vinnumaður hjá bónda er
Dona Chaput hét, 5 mílur frá
Langdon. Myrti vinnumaðurinn
húsbónda sinn og ætlaði að
brenna lík hans í heystakki til að
fela sök sína. En alt komst upp
og Andrew var tekinn fastur og
lífstíðar fangelsisdómur hafði
verið kveðinn upp yfir honum
f jörutíu klukkustundum eftir að
hann framdi morðið. Hinn seki
játaði glæp sinn. Segir blaðið að
slík árvekni yfirvalda sé öðrum
til fyrirmyndar og þjóðfélaginu
ti'l tryggingar.
* * *
Á sambandsþinginu hreyfði
sjómin því s. 1. fimtudag, að
hækka laun flokksforingjanrta í
efri málstfu þingsins, senatór-
anna. Laun foringjanna eru nú
$4,000 sem hverra annara efri-
málstofu þingmanna. Finst
stjórninni að kaupið ætti að vera
um $10,000. f neðri deild þings-
ins er það greitt foringja stjórri-
arandstæðinga og um $2,000 í
bíla eða ferðakostnað. Forsætis-
ráðherra hefir $15,000 á ári' auk
ferðakostnaðar og fleira. Og
þetta kalla menn ekki umhyggju-
semi.
* * *
Mrs. William Laverty heitir
kona í Lansdale, Pa., Hún á
tveggja ára gamlan son, sem er
að missa sjón á báðum augum;
er það sagt afleiðing af misling-
um er drengurinn fékk fyrir
nærri ári síðan. Til þess að koma
í veg fyrir að sonur hennar missi
sjónina, kvað móðir hans hafa
boðist til að láta taka annað aug-
að úr sér og setja í drenginn. Er
sagt að hún sé á leiðinni til New
York til að fá þetta gert. Móðir-
in er 33 ára. Maður hennar er
verkamaður í ullarverksmiðju.
* » *
Frétt barst síðast liðinn mánu-
dag um að Mussolini hefði sent
5,000 hermenn frá Libýu til
Spánar, rétt eftir að friðarskraf
hans og Breta byrjaði. Eru her-
menn þessir nú í liði' Francos
norðvsetur af Madrid. Er ætlast
til að skjótur endi verði nú bund-
inn á Spánar-stríðið. Sagt er
einnig að Mussolini- hafi getið
þess, að hann ætlaði ítöslkum
hermönnum einum að vinna á
síðasta vígi stjórnarinnar á
Spáni.
* * *
“Todays Canadians” heitir
greinar flokkur sem er að birtast
í blaðinu Tribune daglega. Á
blaðið tal við ýmsa málsmetandi
menn og í gær er viðtal birt eftir
séra Philip M. Pétursson um ís-
lendinga, viðhorf hinna yngri og
eldri í þessu landi. Er á það
bent, að þó íslendingar hafi
komið hingað með tvær hendur
tómar, hafi þeim gengið furðu
vel að verða efnislega sjálfstæð-
ir. Ást íslendinga á frelsi, er þó
ef til vill það merkilegasta, sem
þeir hafa til “þjóðmyndunarinn-
gir” nýju að leggja í þessu landi,
að dómi séra Philips. Á Thomas
H. Johnson er um skeið var
dómsmálaráðherra þessa fylkis,
er bent í sambandi við þátttöku
þeirra í opinberum málum þessa
lands.
* * *
Þrjár prinsessur
í giftingar hug
í byrjun marz komu þrjár
prinsessur, allar systur, frá Al-
baníu til New York. Þær eru
systur Zog I. konungs og er sagt
að svo standi á ferðum þeirra,
að þeir séu að líta sér eftir ríkri
giftingu í Bandaríkj unum.
Systurnar Myseyen, 28 ára,
Ruhije, 27 ára, og Maxhide 26
ára, eru forkunnar fríðar og hafa
prinsar í Evrópu farið bónorðs-
ferðir til þeirra, en þeir eru nú
flestir fátækir og armir og fá
víðast hryggbrot. Zog konung-
ur bróðir þeirra var fram að ár-
inu 1927 höfðingi mannflokks
eins í Balkan fjöllunum, óróa-
seggur og lá í bardögum unz
hann lýsti sjálfan sig konung
Albí^níu ríkisins, isem oft er
nefnt “púðurtunnan á Balkan-
skaga”. Hann er 42 ara, ætlar
að giftast í maí á komandi vori
greifafrú, er Geraldine Apponyi
heitir, en móðir hennar var
Gladys Virginia Stewart frá New
York. Konungur kvað líta svo á,
sem það væri f jallaríkinu fátæka
happ, að eignast auðuga banda-
ríska mága.
ÍSLANDS-FRÉTTIR
Forsætisráðherra
slasast á skíðum
Hermann Jónasson forsætis-
ráðherra varð fyrir því óhappi' á
skíðum á sunnudaginn, að ökla-
beinið á vinstra fæti brotnaði og
jafnframt varð nokkur tognun í
kringum öklann.
Forsætisráðherrann var í
brekkunum suðaustur af Vífil-
staðavatni, þegar slys þetta vildi
til. Hugði hann meiðslið minna
í fyrstu og hélt því áfram á
skíðunum nokkra stund áður en
hann fór heim að Vífilstöðum.
Vegna þessara meiðsla varð
forsætisráðherra að vera heima
í gær og er vafasamt, hvort hann
getur verið við þingsetninguna í
dag.—N. Dbl. 15. febr.
Rt. Hon. R. B. Bennett segir upp
forustu íhaldsflokksins
Frá fundi í haldsflokksmanna,
sem nú stendur yfir í Ottawa,
ibarst sú frétt s. 1. mánudag, að
Rt. Hon. R. B. Bennett hefði sagt
upp forustu flokksins.
Ástæða hans fyrir þessu mun
flestum kunn; hún er heilsubil-
un.
Að sambandsþinginu loknu,
sem nú stendur yfir, liggur því
fyrir íhaldsflokkinum að kalla
til flokksþings og kjósa sér leið-
toga í hans stað.
Á því flokksþingi verður og
eflaust ný stefnuskrá samin.
En þangað til að að þessu
kemur, verður Bennett foring-
inn. Hvort að hann hættir öllum
opinberum störfum út því, fer
að líkindum eftir heilsu hans. —
Sjálfur gerir hann ekkert mikið
úr vanheilsu sinni, en segir hana
aðeins þar komna, að hann verði
að fara varlega með sig.
Stjórnarferill Rt. Hon. R. B.
íBennetts er svo kunnur, að á
hann er hér ekki þörf að minn-
ast. Á það eitt skal bent, að
flest, ef ekki öll blöð landsins
minnast hans nú að loknu for-
ingja starfinu, sem hinna fáu og
allra fremstu stjórnmálamanna
ekki aðeins þessarar þjóðar,
heldur og innan Bretaveldis.
En beztu stjórnmálamenn eru
[ekki ávalt beztu flokksforingjar-
Það kemur fyrir að flokkurinn
getur ekki fylgt þeim eftir og
dregst aftur úr. Það er ef til vill
ástæðan fyrir því að Bennett átti
ekki því fylgi flokks síns að
fagna, sem búast hefði mátt við.
Og tap Bennetts í kosningunum
1935, var af hinu sama sprottið.
Árin frá 1930 til 1935 voru
tímanna vegna hin erfiðustu
stjórnarár 1 þessu landi sem öðr-
um. Hver holskeflan reis þá á
fætur annari. En hvernig hjá
þeim var stýrt og hvernig að
við hverju áfallinu af öðru var
þá séð af stjórn Bennetts, verður
einhverntíma viðurkent, þó það
væri ekki af kjósendum gert
1935. Af þeim stjórnmálamönn-
um, sem enn eru kunnir hér,
hefði ef til vill enginn gert betur
á þeim árum eða eins vel og Ben-
nett gerði.
Samveldissamningamir sem
gerðir voru í Ottawa 1932, munu
lengi taldir verða ein hin merki
legasta löggjöf, sem frá nokkr-
um nýlenduráðherra Bretaveldis
hefir komið
Það getur einnig orðið bið á
því, að í þágu bænda verði hér
önnur eins löggjöf samin og sú,
er laut að stofnun hveitisölu-
ráðsins.
Bennett var fæddur 3. júlí
1870 í Hopewell í N. B. Tuttugu
og þrem ‘ árum síðar var hann
byrjaður á lögfræðistarfi í Chat-
ham, N. B. í bæjarráð í North-
umberland var hann kosinn 1896.
En ári' síðar flutti hann til Cal-
gary og stundaði þar lögfræði-
störf. Þingmaður fyrir North
West Territories var hann 1898-
1905. Til fylkisþingsins í Al-
berta var hann kosinn 1909. En
svo í kosningunum 1911, var
hann kosinn á sambandsþingið.
Var hann sambandsþingmaður
fyrir Calgary þar til 1917. Hann
sótti þá ekki; var sagður á móti
samsteypustjórninni En 1921
sótti' hann aftur og var kosinn á
sambandsþingið. Hefir hann ver-
ið þar síðan. Árið 1927 var
hann kosinn foringi íhaldsflokks-
ins á flokksþingi sem haldið var
í Winnipeg. f kosningunum 1930
vann flokkur hans einn sinr
glæsilegasta sigur.
Sem stjórnarandstæðingur á
sambandsþinginu nú, virðist sem
Bennett tali einn fyrir flokk
sinn; áhugi hans í löggjafar-
starfinu er hinn sami og fyr.
En það að hann heldur oft
ræður og langar ef með þarf, er
ekki það eina, sem um hann verð-
ur sagt, sem ræðumann. Eitt
andstæðingablað hans gefur hon-
um þann vitnisburð, að hann
gæti talað af meira viti um fleiri
mál, en'nokkur annar þingmað-
ur.
Hver eftirmaður Bennetts
verður, er með öllu óvíst ennþá.
New York-sýningin
Eins og áður hefir verið tekið
fram, skipa 15 menn sýningar-
ráð íslands, sem á að standa
fyrir þátttöku landsins í New
York sýningunni.
Nefndin hélt fund í gær í Al-
þingishúsinu. Kaus hún í fram-
kvæmdaráð Vilhjálm Þór sem
formann, en meðstjórnendur
Harald Árnason og Ragnar E.
Kvaran.
Formaður sýningarráðs var
kosinn Thor Thors, en varafor-
maður Guðm. Vilhjálmsson. Rit-
arar nefndarinnar eru Stein-
grímur Steinþórsson og Emil
Jónsson.
Vilhjálmur Þór er nú á leið til
Reykjavíkur, vegna sýningarinn-
ar.—N. Dbl. 11. feb.
* * *
Bæjarbruni
f gærkvöldi brann til kaldra
kola bærinn að Ásmundarstöð-
um á Melrakkasléttu. Bærinn
var timburhús 3,6x13,30 mtr.,
tvílyft, ásamt tveimur skúrum.
Stóviðri var, er bærinn brann.
Nokkru af innanstokksmunum
varð bjargað. Bóndinn Jón Jóns-
son var ekki heima, er eldsins
varð vart, en kom að brunanum.
Upptök eldsins eru ókunn. —
Bærinn var vátrygður, en innan-
stokksmunir ekki.—Vísir 8. feb.
GUÐNI FRÁ
SIGNÝARSTÖÐUM
Þú hefir stigið stóra sporið,
—Stundar-klæði lagt að jörðu—
Stigið út úr stríði hörðu,
Stigið inn í friðsælt vorið.
Nu má fróðleiks-elskur andi
óhindraður flugið þreyta,
Svífa hærra, lengra leita,
Leystur úr jarðar vista-bandi.
Fátækt þig ei fjötra kunni
Fót og hönd þó særði stritið.
Andinn frjálsi, vilji og vitið
Veg þér ruddu að fræða-brunni.
Þótt mót lífsins ergi og önnum
Oftast mættir huga beita,
Við þig fróðleiks fangbrögð
þreyta
Fáum dugði skóla-mönnum.
Margur vana og heimsku hlekkur
Höggvinn var, og numin fræði
Þar sem f jóss og fjárhúss-næði
Fyrsti var og efsti bekkur.
Þar sem eilíf árdags-sunna
Allri þoku og skýjum dreifir
Hittumst frændur heilir, reifir
Hinumegin tjaldsins þunna.
Kristján S. Pálsson
Séra Eyjólfur J. Melan frá
Riverton, Man., var staddur í
bænum fyrir helgina.