Heimskringla - 09.03.1938, Síða 7
WINNIPEG, 9. MARZ 1938
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA
1 Hrafl
Ýmislegt af því sem nú er að
ske út um heim allan, að með-
taldri Ameríku, kemur mér að
iða í skinninu af þrá til að leggja
orð í belg. En af því hve ógjarnt
mér er að hæla illmennum og
leiða hjá mér hinn óguðlega á-
trúnað, sem allur fjöldinn enn
knékrýpur í fáfræði sinni', á eg
litla von á að orð mín finni náð
fyrir augum þeirra er valdið
hafa í þeim sökum. Tekur sá
efi því oftast fyrir framkvæmd-
ir — til happs eða hnekkis, eftir
því hvernig á er litið.
Ófriðarsamningarnir, eða öllu
heldur ákvæðin, sem efnt var til
í Versölum 1919, sællar minn-
ingar, eru nú farin að bera ríku-
legan ávöxt eins og vænta mátti.
Heimska sú og óbilgirni, sem
þar riðu við einteiming, ásamt
hroka, eru nú farin að hitta
sjálf sig fyrir, og líkar illa. —
Höfuðfíflin fjögur, sem þar
stóðu í broddi fylkingar, eru
nú flest dáin, sem betur fer; því
þungbært hefði jafnvel orðið
sumum þeirra að sjá allar afleið-
ingar gerða sinna. Hinn ógreind-
asti þeirra, og eðlilega sá eini,
sem eftir lifir, Lloyd George hinn
brezki, virðist enn ekki skilja að
fullu til hvers var stofnað með
þeim ákvæðum og heldur enn á-
fram að hreyfa ummælum án
sýnilegrar blygðunar. Eg hefi
ekki harðýðgi' í mér til að stað-
hæfa að hann hafi vitað betur en
hann lét, jafnvel þó hann nú sé
orðinn svaramaður erkióvinar-
ins, sem vegna Versala-ákvæð-
anna gat þróast upp í að verða
hinn hættulegasti spellvirki' í
mannheimum.
Auðvitað er L. G. ekki einn í
þeirri flokkun. Með honum,
hvernig svo sem látið er, er alt
ráðuneytið brezka og flest allir
efna- og stjórnmálamenn heims-
ins. Og þeim fylgja að málum
ennþá allir liberalar og conserva-
tívar; en allir aðrir miðlunar-
flokkar, svo sem C. C. F., social
credit o. s. frv., dreyfa kröftum
þeirra, sem fasismanum eru and-
vígir. Kommúnistar einir vita
það viðnám, sem verða má, og
því er hatrið á þeim svo ægilegt
og hræðslan við mögulegan sigur
þeirra öllum ótta yfirsterkari.
Það er nokkurn vegin áreið-
anlegt að drotnunum í hinum
enskumælandi heimi, og jafnvel
víðar, er ekki alskosta um fas-
isma. Þeir vildu gjarnan halda
áfram með hið svokallaða lýð-
ræðis fyrirkomulag, en eru nú
loksins farnir að sjá að það get-
ur ekki lengur staðist með þeim
ójafnaðar reglum sem þeim finst
nauðsynlegar sér til viðhalds og
vellystingar. Verða þeir því, eftir
sinni skððun, að neyðast til að
viðtaka fasisma þegar gömlu
stoðirnar hrynja, því Jannars
kæmist jafnaðarstefnan (kom-
múnisminn) á' — og þá væri
þeirra yfrdrotun á enda.
Afstaða þessara manna er vel
skiljanleg. Þeir álíta sig sitja á
IHHKOLLUNARMENN HEIMSKRINCLU
( CANADA:
Amaranth.............................J. B. Halldórsson
Antler, Sask:........................K. J. Abrahamson
Árnes...............................Sumarliði J. Kárdal
Árborg................................G. O. Einarsson
Baldur..........................................Sigtr. Sigvaldason
Beckville..............................Björn Þórðarson
Belmont...................................G. J. Oleson
Bredenbury..............................H. O. Loptsson
Brown..............................Thorst. J. Gíslason
Churchbridge........................ H. A. Hinriksson
Cypress River......................................Páll Anderson
Dafoe...................................
Ebor Station, Man....................K. J. Abrahamson
Elfros.................................
Eriksdale.......................................ólafur Hallsson
Foam Lake.........................................John Janusson
Gimli................................... K. Kjernested
Geysir............................................Tím. Böðvarsson
Glenboro..................................G. J. Oleson
Hayland............................ Slg. B. Helgason
Hecla................................Jóhann K. Johnson
Hnausa.................................Gestur S. Vídal
Hove..................................Andrés Skagfeld
Húsavík.................................John Kernested
Innisfail............................Hannes J. Húnfjörð
Kandahar................................
Keewatin...............................Sigm. Björnsson
Kristnes.............................. Rósm. Ámason
Langruth............................................B. Eyjólfsson
Leslie.............................................Th. Guðmundsson
Lundar........................Sig. Jónsson, D. J. Líndal
Markerville..........................Hannes J. Húnfjörð
Mozart..................................
Oak Point.............................Andrés Skagfeld
Oakview.............................
Otto.............................................Björn Hördal
Piney....................................S. S. Anderson
Red Deer.............................Hannes J. Húnfjörð
Reykjavík.........................................Árai Pálsson
Riverton.........................................Björn Hjörleifsson
Selkirk__________________________ Magnús Hjörleifsson
Sinclair, Man.......................K. J. Abrahamson
Steep Rock........................................Fred Snædal
Stony Hill.......................................Björn Hördal
Tantallon..............................Guðm. ólafsson
Thornhill...........................Thorst. J. Gíslason
Víðir...................................Aug. Einarsson
Vancouver...........................Mrs. Anna Harvey
Winnipegosis.............................Ingi Anderson
Winnipeg Beach..........................John Kernested
Wynyard..................................
( BANDARfKJUNUM:
Akra............................‘.....Jón K. Einarsson
Bantry.................................E. J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash..................Mrs. John W. Johnson
Blaine, Wash...................Séra Halldór E. Johnson
Cavalier..............................Jón K. Einarsson
Chicago: Geo. F. Long, 2428 Hamlin Ave., Logan Square Sta.
Edinburg....................................Jacob Hall
Garðar................................S. M. Breiðfjörð
Grafton...............................Mrs. E. Eastman
Hallson...............................Jón K. Einarsson
Hensel............................... J. K. Einarsson
Ivanhoe............................Miss C. V. Dalmann
Los Angeles, Calif....Thorg. Ásmundsson, 4415 Esmeralda St.
Milton..................................F. G. Vatnsdal
Minneota...........................Miss C. V. Dalmann
Mountain..............................Th. Thorfinnsson
National City, Calif.....John S. Laxdal, 736 E 24th St.
Point Roberts.........................Ingvar Goodman
Seattle, Wash.........J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W.
Svold.................................Jón K. Einarsson
Upham................................ E. J. BreiðfjörB
The Viking Press Limited
Winnipeg. Manitoba
hátoppi velmegunar, í hagfræði-
legum skilningi, en óttast hins-
Vegar refsireiði hinna undirok-
[ uðu ef þeir skyldu missa taum-
haldið; því þeir vita á sig ótelj-
! andi og óheyriiega glæpi frá upp-
hafi vega. Þó eru nú komnar
sannanir fyrir því, að þeim yrði
gert jafnt undir höfði svo fljótt
sem þeir semdu sig að hinu
breytta skipulagi. Hitt er ó-
skiljanlegra, hversvegna hinir
sístríðandi og langþjáðu þrælar
í miðri' hringiðu lífsbaráttunnar
svo sem smærri kaupmenn,
fræðimenn, stjórnarþjónar,
blaðamenn og prestar, standa svo
að segja óskiftir með sínum yfir-
boðurum á móti þeim, sem vilja
leysa þá úr ánuðmni. Væri ekki
svo ynnist baráttan á svipstundu
án nokkurra hryðjuverka.
Eftir öllu útliti að dæma eru
nú alræðisstjónir í þágu stór-
eignamanna að komast á um
heim allan, að undanskildu Rúss-
landi og skandinavisku löndun-
um. Aldan er komin yfir til
Ameríku, og “vagga frelsisins”,
Bandaríkin sjálf, munu veræfar-
in að finna alvarlegar sveiflur
þeirrar hreyfingar. Hin núver-
andi stjórn Canada er auðsjáan-
lega hliðholl þeirri stefnu og bíð-
ur óþreyjufull eftir táknmerki
frá móðurlandinu og er það ekki
að undra með hina svokölluðu
liberala í stjórnarsessinum. Hver
hreyfing í lýðfrelsisáttina er
vægðarlaust brotin á bak aftur,
en ójöfnuður og undirokun sam-
þykt með þögninni. Það fer
eftir sköpum.
Að sönnu hafa ýms kapitalista
blöð mótmælt þessari afstöðu
stjórnarinnar með vægum orð-
um, og þar á meðal má nefna ís-
lenzku blöðin okkar bæði; en það
er nokkuð seint að fara að loka
fjósinu þegar féð er alt á burt.
Þegar búið er að hylla og veg-
sama þessa legáta og forsvara
stefnu þeirra þangað til allur há-
vaði kjósenda er orðinn ruglað-
ur í rökfræðinni þá er um sein-
an að snúa við. Enda er það
máske ekki tilgangurinn. Það
er erfitt að ímynda sér að blöð
þau séu nú fyrst að sjá hvert
stefnir.
Þakkavert samt sem áður er
alt það, sem vendir til betri
áttar. Heimskringla hefir í
seinni tíð flutt nokkrar vekjandi
ritgerðir. Þar á meðal minnist
eg langrar greinar eftir Jakob
Norman, sem að efni til var öll
réttu megin, þó frásögnin væri á
parti fremur dæmisögulegs eðlis
en rökfærandi. Getur það verið
fult svo áhrifamikið, sé vel á
haldið. En vegna þess minnist
eg á þessa greina, að eg var búin
að fá grun (og ekki að ástæðu-
lausu) um það, að Jakob væri
orðinn fylgjandi Social Credit
stefnunnar. Átti eg þó hálf bágt
með að trúa því, vegna þess að
hann var sá fyrsti, sem sann-
færðr mig um að það, sem þyrfti,
væri að afnema peninga með
öllu. Áður hafði eg ímyndað
mér (eins og svo margir höfðu
gert og gera enn) að hægt væri
að fyrirbyggja misbrúkun þeirra
með lögum. En eins og gefur að
skilja yrði það ámóta auðvelt og
það, að afnema glæpi með lög-
um. Áreksturinn liggur í því,
að mannasetningar eru alls ekki
lög. Menn fara einungis eftir
því, sem þeim virðist ágóðavæn-
legt í svipinn, hvað sem boðorðin
segja.
Eina ábyggilega leiðin er því
sú, að haga skipulaginu þannig,
að hagur hvers einstaklings
verði' að vera hagur heildarinn-
ar. Þá þarf ekki peninganna
lengur við, því þeir geta aldrei
verið til annars en þess, að aftra
framkvæmdum og ójafna arðinn.
Var mér því hugnun í að vita, að
Jakob er S. C. mönnum hliðholl-
ur, eins og eg, aðeins vegna þess
að þeir eru að leita útleiðar frá
því, sem er, þótt vitalaust ráfi.
Jónas Pálsson er ef til vill
sömu trúar hvað Aberhart stefn-
una áhrærir, og hefir hann
margt vel sagt hinum ríkjandi'
sið til ógagns, jafnvel þótt mér
finnist hann eiga bágt með að
afneita honum í fullri alvöru. Og
með “bersögli” sinni leiddi hann
í ljós, að meðal okkar, hinna
frelsi-elskandi fslendinga, eru að
springa út fasistar í fullu fjöri.
Hvers má þá vænta meðal hinna
óæðri kynþátta?
í morgun heyrði eg í gegnum
viðvarpið að eina leiðin til að
bjarga Vancouver-borg frá a1-
geru gjaldþroti væri sú, að i;»g-
leiða lotterí (sweepstake), sem
rekið yrði í stórum stíl. Skatt-
arnir eru orðnir eins háir og lög
leyfa og varasjóðurinn allur upp
étinn. En fyrir skömmu síðan
gat bærinn ráðist í að bæta við
sig lögregluþjónum og hermönn-
um, með áttatíu þúsund doDara
aukakostnaði á mánuði, til þess
eins að aftra uppskipunarmönn-
um frá því, að ná rétti sínum. Og
Vancouver er ekki neitt sérstakt
fyrirbrigði í þeim málum. Sam-
bandsstjórnin, til dæmis, sker
allan fátækra styrk við neglur
sér, en ef eitthvert nauðsynja-
mál krefst úrlausnar fyrir ítrek-
aðar áskoranir fólksins, er nefnd
lögmanna stofnuð til rannsókn-
ar og þóknun hvers eins ákvörð-
uð minst $200 á dag. Ein þeirra'
sat hér lengi eitt árið j því skyni
að réttlæta að 20c á dag væri
hæfilegt kaup fyrir unga menn
við brautarvinnu, sem ekki
þyrftu að erfiða nema átta
klukkustundir á dag. Turgeon-
nefndin, sem var sú síðasta af
mörgum, er skapaðar hafa verið
til að rannsaka hvort spákaup-
menska sé nauðsynleg í sam-
bandi við' hveiti framleiðsluna,
kostaði fólkið um $115,000, og
er það óvanalega smá upphæð.
En það sem mér þótti einkenni-
legt við reikningana var það, að
Turgeon fékk $35.00 á dag í mat-
eyrir, Ralston $20.00 en Coyne
ekki nema $10.00 Og nú er mér
þó sagt að Turgeon sé sízt
stærstur að vöxtunum.
En án gamans, til hvers eru
stjórnir kosnar, ef ekki til þess
að ráða fram úr vandamálum
þjóðarinnar? Allar ábyggileg-
ustu skýrslur eru auðvitað ávalt
í höndum stjórnarinnar, og ef
hún veit samt ekki sitt rjúkandi
ráð í neinu máli, sem nokkru
varðar, hvaða rétt á hún þá á
sér sem stjórn. Og á hverju
byggjast þá stóryrðin um
stjórnvizku og hagsýni? Myndi
nokkur annar félagsskapur eða
fyrirtæki vera lengi ánægt með
ráðsmann, er þyrfti að skírskota
öllum vandamálum til óviðkom-
andi nefndar?
Hér hefir verið mikið rætt um
að banna alla verzlun við Japan
á meðan her þess rekur stríð á
hendur kínversku þjóðinni,
því á flestra vitorði mun nú vera
sú staðreynd að mikill hluti skot-
færaefnis þess lands er keyptur
hér í Canada. En eins og við
mátti búast hefir King þverneit-
að að setja nein höft á þá verzl-
un. Fyrst og fremst mun hann
eiga ýmsa pólitízka vini, sem við
framleiðslu þeirra hluta eru riðn-
ir; og svo mun hann vilja fara
eftir fordæmi Breta í þeim efn-
um eins og öðru. Svo kvað hann
lika bera því fyrir að það kunni
að vera hættulegt að gera neitt,
sem mætti móðga Japana. Þeir
væru þá vísir til að skreppa yfir
Kyrrahafs pollinn og taka Can-
ada með húð og hári'. En sá
fyrirsláttur gefur aftur á hinn
bóginn nothæfa ástæðu til þess
að stinga niður nokkrum skot-
byssum hér á ströndina, öðrum
vinum hans til ríflegs uppgangs
og þóknunar. Svo kvað hann
einnig hafa látið kaupa nokkra
flugdalla fyrir nokkuð á annað
hundruð þúsund dali hvern, til
vonar og vara. Megum við því
víst vera róleg þó hinir gulu
kynnu að ráðast í að senda okkur
sprengiefnin til baka í nýju
formi'.
! En hinsvegar væri máske ekki
úr vegi að minnast á það, sem
einstöku menn er nú farið að
gruna, að óvinir okkar“seu allir í
Canada.
—P. B.
- NAFNSPJÖLD -
Dr. M. B. Halldorson
401 BoyA Bldg.
Skrlfstofusími: 23 674
Stundar sérstaklega lungnasjúk-
dóma.
Er að finnl á skrifatofu kl. 10—12
í. h. o* * 2—6 e. h.
Heimill: 46 Alloway Aye.
Talsími: 33 lSt
G. S. THORVALDSON
B.A.. LL.B.
LógfraeBingur
702 Confederation Life Bldg.
Talsíml 07 024
Orrici Phoki
87 291
Ris Phoki
73 401
Dr. L. A. Sigurdson
10* MXDICAL ART8 BUILDINO
Ornci Houii:
13 - 1
4 F.H - • r.n
Otn IT APPOZKTIIIKT
W. J. LINDAL, K.C.
BJÖRN STEFANSSON
ISLENZKIR LÖGFRÆÐINGAM
á öðru gólfi
325 Main Street
Talsimi: 97 621
Hafa einnig skriístofur af
nundar oe Gimll og eru þar
að hdtta, fyrsta miðvlkuda* I
hverjum mánuðl.
Dr. A. V. JOHNSON
tSLENZKU R TANNLÆKNIR
313 Curry Bldg.. Winnlpeg
Oegnt pócthúalnu
Slmi: 96 216 HeimiUs: 33 396
M. HJALTASON, M.D.
ALMSNNAR LÆKNINOAR
Sérgrein: Taugasjúkd&mar
Leetur útl meðöl í vlðlögum
VltStalstímar kl. 2_4 «. fc.
7—8 aS kveldinu
Sími 80 857 665 vtctor *t.
Dr. S. J. Johannesdon
218 Sherburn Street
Talaiml 30 877
Vlðtalstimi kl. 3—8 a. h.
A. S. BARDAL
selur llkklstur og &nn&ðt nm útfar-
lr. Allur útbúnaður sá beatl. _
Ennfremur eelur hann
mlnnisvarða og legsteina.
843 8HERBROOKB 8T.
Phone: 66 607 WINNIFMO
J. J. Swanson & Co. Ltd.
RMALTORS
Rental, Ineuranee and Finencial
Agents
Blmi: 94 221
888 PARIS BL2DQ.—Wlnnlpeg
THL WATCH SHOP
Thorlakson Baldwin
Diamonds and Wedding
Ringfl
Agents for Bulova Watche*
Marriage Licenaes Issued
699 Sargent Ave.
Gunnar Erlendsson
Planokenn&ri
Kenslustofa: 701 Victor 8t.
SLmi 89 535
MARGARET DALMAN
TMACHMR OF PIANO
654 BANNINO ST.
Phone: 28 420
Jacob F. Bjamason
—TRANSFER—
Baggage and Furniture Moving
691 SHERBURN ST.
Phone 35 909
Annut allwkxmar flutnlnga fram
og aftur um bœinn.
Rovatzos Floral Shop
206 Notre Dame Ave. Phone 94 964
FTe«h Cut Flowers Daliy
Plants in Season
We speci&llze in Weddlng tc
Concert Bouquets A Funeral
Designs
Icelandlc spoken
ÍSLANDS-FRÉTTIR
Bæjarkosningar í Reykjavík
Síðasta dag janúarmánaðar
fóru fram bæjarkosningar í Rvík
og fleiri bæjum á fslandi. í blöð-
um nýkomnum að heiman segir
frá úrslitum kosninganna í Rvík.
Vann sjálfstæðisflokkurinn þar
9 sæti, samfylking Alþýðuflokks-
ins og kommúnistar 5 sæti, fram-
sóknarflokkurinn eitt sæti. Frá
atkvæðamagni flokkanna og
nöfnum hinna kosnu skýrir
Morgunblaðið sem hér segir:
Sjástæðisfl.................9893 atkv.
Samfylking kommúnista
og Alþ.fl................6464 atkv.
Framsóknarfl................1442 atkv.
Þjóðernissinnar ...... 277 atkv.
ógildir seðlar ...... 50atkv.
Samtals greidd . ..18280 atkv.
Samkvæmt þessu hlutu kosn-
inggu af lista Sjálfstæismanna:
Guðm. Ásbjömsson, útgerðarm.
Bjarni Benediktsson, prófessor
Jakob Möller, alþingismaður.
Guðrún Jónasson frú
Guðm. Eiríksson, húsasmíðam.
j Valtýr Stefánsson, ritstjóri
Helgi H. Eiríksson, skólastjóri
|jón Björnsson, kaupmaður
Gunnar Thoroddsen, lögfr.
Af lista Samfylkingarinnar:
Stefán Jóh. Stefánsson, lögfr.
Ársæll Sigurðsson, bókari
Soffía Ingvarsdóttir frú
Jón A. Pétursson, framkv.stj.
Björa Bjarnason, iðnverkam.
Af lista Framsóknarflokksins:
Jónas Jónsson skólastjóri.
Sigurður P. Sívertsen látinn
Sigurður P. Sivertsen fyrver-
andi vígslubiskup og guðfræðis-
prófessor lézt í ífyritfnótt að
heimili sínu. Hafði lengi átt við
vanheilsu að búa.
Sigurður var 67 ára gamall,
ættaður frá Höfn í Melasveit.
Hann gekk ungur skólaveginn og
vígðist til prests að Útskálum,
en fluttist þaðan að Hofi í
Vopnafirði. Þegar háskólinn var
stofnaður, gerðist hann guð-,
fræðidósent við hann og nokkr-
um árum síðar prófessor.
—N. Dbl. 7. feb.
* * *
Fiskmjöl til manneldis
Frá því í júlí í sumar hefir
Guðmundur Jónsson, verkfræð-
ingur, unnið að rannsóknum á
fiskimjöli og notagildi þess til
manneldis og hafa þær rann-
sóknir borið góðan árangur. í
því tilefni bauð hann í fyrradag
Fiskimálanefnd, bankastjórum,
ráðherrum og blaðamönnum að
borða ýmsa rétti, er ungfrú
Helga Sigurðardóttir, matreiðslu
kenslukona, hafði matreitt úr
mjölinu. Réttirnir voru þessir:
Venjuleg fiskisúpa, brún fiski-
súpa, tómatfi'skisúpa, fiskibuff,
Fvsk-“gratin” og fiskabollur. —
Voru réttirnir hinir ljúffeng-
ustu. Fiskimjölið er framleitt úr
fiskinum með beinunum í. Er
hann aðeins slægður og tekin úr
honum tálknin.—N. Dbl. 6. feb.
Lesið Heimskringlu
Kaupið Heknskrlnglu
Borgið Heimekringlu