Heimskringla - 05.02.1941, Blaðsíða 1

Heimskringla - 05.02.1941, Blaðsíða 1
The Modern Housewife Knows Quality That is Why She Selects “CANADA BREAD” “The Quality Goes in Before the Name Goes On” Wedding Cakes Made to Order PHONE 39 017 ALWAYS ASK FOR— “Butter-Nut Bread’’ The Finest Loaf in Canada Rich as Butter—Sweet as a Nut Made only by CANADA BREAD CO. LTD. LV. ÁRGANGUR WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 5. FEBRÚAR 1941 NÚMER 19> * < HELZTU FRETTIR - * Hernaðarstarfið aukið I ræðu sem Mackenzie King, forsætisráðherra Canada hélt s-1. sunnudag, kvað hann hern- aðarstarfið á árinu 1941 verða aukið sem hér segir: Sendar til Englands 25 deild- ir (squadrons) flugmanna frá flugskólum í Canada í þjónustu lofthers Breta. Að auka tölu flugnema um helming; talan er nú-36,000. Auka sjóflota Canada; hann hefir nú 175 skip; eru 15,319 uienn á þeim. í lok marz 1942 eiga skipin að vera 413 og sjó- liðið 26,920 menn. Til Englands skal senda af- ganginn af tveimur herdeild- unum sem þar eru og auk þess hriðju herdeildina í viðbót. Skriðdrekasveit á og að senda. Ennfremur stóskotalið nokk- urt. Til þess að fylla skarðið, sem verður við þetta í verksmiðjum hér, er talið að þurfa muni 40 til 80 þúsund mapna. Stjórnin kveður alls þessa sérstaka nauðsyn vegna þess, að búist er við voða áhlaupi af hálfu Þjóðverja með vorinu á England. Her ítala í Eritrea hrakinn af Bretum t Eritrea eru að verða tvenn- lr tímarnir fyrir ttölum. Landið iiggur norðan við Bláland og haðan sóttu Italir Blálendinga heim sællar minningar. Voru heir þá hinir bröttustiLOg töldu stríðið leik einn, eins og það var við lítt vopnaða þjóð. Nú eru Bretar að sækja að ítölum 1 Eritrea, vestan að og norðan að. Fara ttalir mjög halloka fyrir þeim, mistu í gær borg- i^nar Agordat, við aðal-járn- hrautina er liggur til Asmara, höfuðborgarinnar, og Massawa, stóra hafnborg við Rauðahafið. Her Itala á öllu þessu svæði, í Blálandi og Somalilandi mun Vera um 200,000 og er talinn í ^ikilli hættu. Lið Breta þarna er nokkuð frá Indlandi. Blá- iendingar eru farnir af stað eitthvað heima hjá sér og mun ieiðbeint af Bretum. ItÖlskum skipum sökt Eyrir helgina var hermt að hafbátar Breta og Grikkja hefðu farið upp eftir Adria- hafinu, þar sem Þjóðverjar og ttalir voru að selflytja birgðir til Albaníu-hersins og söktu 7 skipum fyrir þeim. Voru sum skipin sögð stór. Á hverju var tjöldi manna og voru líkin sögð tljótandi um alt á þessu svæði. hiokkur hafa rekið á land. ?r bylting yfirvofandi 1 Kína? Eregnritum í Kína er nú °rðið tíðtalað um að vel geti verið að bylting vofi yfir í Kína. Það hefir á óeirðum og uPPþotum borið svo miklum í sumum hersveitum Chiang Kai- Shek, að hann hefir orðið að afvopna þær. Er talið að alt að 4000 manns hafi í þessum uPpþotum látið lífið. Komúnistar í hernum valda hess. Yrði alger og víðtæk Rússar séu á bak við þessi upp- þot, en þar sem um flokksmenn þeirra er að ræða, má nærri geta hvar stuðningur þeirra er. Það er líklegast ekki nema eitt, sem bjargar Kína og það er skjót aðstoð frá Bandaríkj- unum. Það hefði ekki verri afleiðingar en að selja Rússum loftför. Petain fastur fyrir Milli Vichy-stjórnarinnar og Þjóðverja hefir hvað eftir ann- að legið við að alt færi í bál út af því að Þjóðverj- ar eru að reyna að reka Frakka út í að berjast á móti Bretum. Petain segir heiðri Frakka með því kollvarpað og þetta geri stjórn hans aldrei. En hann býður Þjóðverjum samvinnu í hagsmunamálum og stjórnmál- um að öðru leyti. Gekk stapp- ið svo langt í gær, að sagt er að Petain hafi sent Weygand hershöfðingja Vichy-stjórnar- innar í Afríku skeyti um hvað gera skyldi, ef til hins versta kæmi milli Hitlers og hans. — Franski flotinn fékk svipaða fyrirskipun. LUCY (W. Wordsworth) Á eyðiheiði hún var og vann Hjá varmalindum sást. Og enginn hennar fegurð fann Og fáum gaf hún ást. Sú fjóla óx í urð við stein Er augað varla sá! —Sem stjarna björt, er aðeins ein Skín efst um hvolfin blá. Hún lifði ein og leynt þáð fór Er Lucy hvarf um nótt; Nú geymir hana gröf og snjór. Ó, guð hve alt er hljótt! Brjót, brjót, brjót (Alf. Tennyson) ylting úr þessu, léttir stríðinu a Japönum svo þeir geta betur sPúist við hernaði í suður átt móti Bretum og Hollendingum. L*að segir ekkert um hvort Dr. W. T. Alliston kennari í ensku við Manitoba-háskóla um langt skeið og afkastamik- ill rithöfundur og mentafröm- uður, dó í gær að heimili sínu í Winnipeg. * * * Mr. Wendell Willkie átti tal við DeValera í gær. Hvað þeim fór á milli segir ekki frá, en Willkie segist ekki hafa far- ið til írlands, til að segja De- Valera fyrir verkum, heldur aðeins að öðlast sem gleggsta mynd af hernaðarástandinu. Var í fréttum frá Englandi í gær sagt, að Mr. Willkie yrði í boði hjá konungi og drotningu á Englandi þann dag. — Framkoma hans í Englandi, hefir vakið eftirtekt og hrifn- ingu. * * * Frá höfuðborginni Sofíu, berst sú frétt, að F. Bagrianoff, búnaðarráðherra Búlgaríu, hafi sagt stöðu sinni lausri í gær. Hann var hlyntur sam- vinnu við nazista. Er sagt að hann og Bogden Philoff for- sætisráðherra hafi greint á um að leyfa nazistum með her yfir landið suður til Grikklands. — Erfiðleikar Hitlers mínka ekki við þetta. * * * Bretar eru nú komnir til Cir- ene í Libyu, en það er 60 mílum vestar en Derna, borg, sem þeir tóku s. 1. viku. Fyrir aðeins 11 dögum, var bær þessi bú- staður Graziani, yfirhershöfð- ingja Itala. Verður Bengasi næsta borgin, sem Bretar sækja heim. * * * Eric Willis, verkamálaráð- herra Bracken-stjórnarinnar, sagði frá því í gær, að nýlega hefðu 700 atvinnuleysingjar í Manitoba verið sendir til aust- ur-fylkjanna; fá þeir vinnu þar við skógarhögg hjá pappíra- gerðarfélögum. * • * Frank Knox, ritari í sjóliði Bandaríkjanna kvað skýrt og skorinort upp úr með það s. 1. föstudag á þingnefndarfundi senatóra, er ræddu um lán- veitinguna til Breta, að hann (Knox) væri orðin mjög hræddur um, að hjálp Banda- Brjót, brjót, brjót, Brim þitt Ægir við hrímgrá sker! Og eg vildi að tunga mín ætti orð Yfir alt, sem minn hugur sér. Og frjáls sért þú fiskimanns son, Með fagnandi systur við hlið! Og sjómaður gleðjist við söng, Er siglir hann bátnum á mið! Hin skrautbúnu skip fara hjá Þau skunda um lygnan sjó; Ef aðeins eg snert fengi horfna hönd Og heyrði’ eg þá rödd, sem dó! Brjót, brjót, brjót, Brim þitt Ægir við dauðans sker! Ljúfasta fegurð hins liðna dags Er nú lokuð um eilífð mér. S. E. Björnson ÞóRARINN JóNSSON LÁTINN 95 ÁRA ríkjanna kæmi ekki fyr en of seint til að bjarga Bretum. Hann sagðist ekki eiga við þetta lán frumvarp, heldur þá hjálp er með þyrfti. * * * Um hótun Hitlers í ræðu s. 1. viku um að gera út af við Eng- land á næsta vori og sökkva hverju skipi sem Bandaríkin sendu með vörur þangað, sögðu Bandaríkjablöð eina af hinum 724 axarsköftum Hitlers síðan stríðið hófst og hann hefði sjálfur sannað með framferði sínu. * * • S. 1. miðvikudag lézt John Metaxas, forsætisráðherra Grikkja. Hann var aðalmað- urjnn í stjórn landsins og þykir að honum mikill missir. Ein- ræðissinni var hann, en þjóðin var mjög ánægð með hann sem foringja á þessum stríðstímum. Eftirmaður hans er Alexander Corizes, stjórnandi þjóðbanka Grikklands og mikill stjórn- málamaður. ENGINN VARÐ LÖGLEGA KOSINN PRESTUR Atkvæðin í prestskosningun um hér í Reykjavík voru talin í gær. Urðu úrslitin þau, að enginn umsækjendanna hlaut lögmæta kosningu, þar eð eng inn fékk meirihluta greiddra atkvæða. Talning atkvæðanna hófst kl. 9 í gærmorgun og var ekki lokið fyr en kl. 9y2 í gærkveldi. Talið var í lestrarsal Alþingis. Úrslitin urðu þessi: Nessókn. Þar féllu atkvæð- in þannig: atkv. Sr. Jón Thorarensen......451 Sr. Halldór Kolbeins.....159 cand. Ástr. Sigurst.son..147 cand. Pétur Ingjaldss....111 Sr. Ragnar Benediktss......59 Sr. Jón Skagan............54 Sr. Árelíus Níelsson......43 Sr. Magnús Guðmundss......27 Sr. Gunnar Árnason .......12 Ógildir seðlar 7, og auðir 5. Alls voru í Nessókn greidd 1075 atkv. Til þess að ná lög- mætri kosningu þurfti því 538 atkv. Sr. Jón Thorarensen, sem hlaut flest atkvæði vantar 87 atkv. til þess að ná lögmætri kosningu. Hallgrímssókn. Þar féllu at- xvæðin þannig: atkv. Sr. Sigurbj. Einarss.....2140 Sr. Jón Auðuns...........1771 Sr. Sigurj. Árnason......1581 Sr. Jakob Jónsson .......1534 Sr. Þorst. L. Jónsson ...1345 Cand. Stefán Snævar.......331 Ógildir seðlar 11, og auðir 13. 1 Hallgrímssókn voru alls greidd 4640 atkv. Þar þurfti Jví 2320 atkv., til þess að ná ögmætri kosningu. Sr. Sigur- björn Einarsson, sem hlaut flest atkv., vantar 180 atkv., til iess að kosning hans yrði lög- mæt. Laugarnessókn. Þar var sr. Garðar Svavarsson einn um- sækjandi. Alls voru greidd í sókninni 410 atkv. og hlaut sr. Garðar 402, en 8 sjeðlar voru auðir. Þessi kosning er einnig ólög- mæt, þar sem ekki helmingur kjósenda í sókninni greiddi at- kvæði; á kjörskrá voru 1120. Sú fregn barst með símrita frá íslandi, að Þórarinn Jóns- son frá Háreksstöðum hefði1 andast á Seyðisfirði eystra þ.1 21. jan. s. 1. Hann var sonuri Jóns Benjaminssonar, er lengst bjó á Háreksstöðum í Jökul- dalsheiði, en síðar flutti til Vesturheims og dó þar í hárri elli, óg fyrri konu hans Guð- rúnar Jónsdóttur. Albræður hans, sem enn eru á lífi, eru Isak, húsameistari í Seattle, Wash.; Gunnar: lengi bóndi á Fossvöllum í Jökulsárhlíð og Gísli, prentari í Winnipeg. Hálf- systkini eru Einar Páll, ritstj. Lögbei’gs; Sigurjón, prestur að Kirkjubæ í Hróarstungu, og María, gift Jóhanni gullsmið Straumfjörð í Seattle. Þórar- inn fluttist hingað til Winnipeg skömmu eftir síðustu aldamót og hafði um tíma hárskurðar- og rakarastofu, og síðar mat- vörubúð hér í nærri tuttugu ár. Eftir það bjó hann í Seattle um allmörg ár, unz hann flutti al- fari til Islands um eða eftir 1930, og hefir haft snyrtistofu á Seyðisfirði síðan. Þórarinn var óvenju músic hneigður og lærði ungur að leika á orgel — var hann líka um mörg ár organisti í kirkj- um, hér og annarstaðar, um lengri eða skemri tímabil. — Hann hafði gefið út fjögur hefti af frumsömdum sönglögum — “Vestrænir ómar”, á meðan hann dvaldi hér vestra og “Hljómboðar,” þrjú hefti, síðan hann flutti heim. Hafa þau fengið góða ritdóma í heima- landinu, enda eru þau flest, ef ekki öll einkar hljómfögur og sönghæf. Þórarinn var hærri vexti en í meðallagi, fríður sýnum, Ijós- hærður og bláeygur, greindur vel, hreinskilinn og örlyndur, fastheldinn og drenglyndur — og vildi ekki vamm sitt vita. Hann varð fullra 67 ára gam- all, fæddur í september 1873, og lifði og dó ókvæntur. Jón Jónsson fró Grund varð 95 ára s. 1. laugardag. Hann á nú heima hjá Þorbjörgu dóttur sinni í Riverton, ekkju Jóhannesar kaupmanns Sig- urðssonar. Jón er ekki sá eini sem þess- um háa aldri hefir náð en að hafa góða sjón og heyrn, geta bæði lesið og skrifað og vélrit- að eins og hann, það er að minsta kosti afar sjaldgæft, ef ekki eins dæmi. Jón á marga vini beggja meg- in hafsins, þeir óska honum allir heilla og hamingju og vonast til þess að hann sitji með góðri heilsu við ritvélina sína að fimm árum liðnum. Eg er einn þeirra mörgu sem þessa von eiga. Þú varst hvorki stór né sterkur, stormi og hríðum samt ei skeyttir; fórst um ísa og eyðimerkur: öðrum mönnum leiðsögn veitt- ir. Langan aldur högum höndum hélzt þú jafnt á öxi og penna.— Eftir þinnar æfi ströndum ótal bjartir vitar brenna. Sig. Júl. Jóhannesson Hvað nú? Þar sem enginn umsækjend- anna náði lögmætri kosningu, er svo fyrir mælt í lögum um veitingu prestakalla (nr. 32, 1915), að ríkisstjórnin sé ekki bundin við kosninguna. — Hún skal leita tillögu biskups um hverjum umsækjanda kallið skuli veitt.—Mbl. 20. des. Enski Únítara-söfnuðurinn heldur ársfund sinn föstudags- kvöldið 7. þ. m. í samkomusa Sambandskirkju. — Skýrslur verða lesnar og kosning em bættismanna til þriggja ára fer fram. Fundurinn verður undir stjórn A. W. Puttee, for- seta safnaðarins. fSLENZUR TOGARA- SKIPSTJóRI SÆMDUR BREZKU HEIÐURS- MERKI Guðmundur Sveinsson skip- stjóri á togaranum “Skalla- grími” var í gær sæmdur brezku orðunni M. B. E. fyrir vasklega framkomu, er hann og skipverjar hans björguðu 350 brezkum sjóliðum af brezka hjálparbeitiskipinu “Andania 16. júní s. 1. Sendiherra Breta hér á landi, Mr. Howard Smith, kallaði Guð mund á sinn fund í gærdag og afhenti honum orðuna í um boði Bretakonungs. Við það tækifæri voru starfsmenn sendisveitarinnar viðstaddir, en sendherrann hélt svofelda ræðu : Eg hefi beðið yður að koma hér á minn fund í dag vegna þess, að eg hefi fengið skipun Hans Hátignar George’s kon- ungs VI. um að tilkynna yður að Hans Hátign óskar að sýna yður viðurkenningu fyrir vask- lega framkomu yðar og skips- hafnarinnar á “Skallagrími” með því að koma til hjálpar H. M. S. “Andania” er hún var að sökkva eftir aðgerðir óvin- anna á s. 1. sumri. Þrátt fyrir það, að skip yðar var með fullfermi fiskjar og ó- hagstætt veður hamlaði, hik- uðuð þér ekki við að svara strax því kalli um hjálp, sem þér fenguð frá H. M. S. “For- far”, og fara 30 mílur úr leið yðar, og það er beinlínis fram- komu yðar að þakka, að svo vel tókst að bjarga jafnmörgum mannslífum og raun varð á úr skipinu, sem hafði verið skotið á með tundurskeyti. Hans Hátign hefir þessvegna skipað mér að afhenda yður fimtu gráðu af orðunni “Most Excellent Order of the British Empire”- í viðurkenningarskyni fyrir vasklega framkomu yðar. Eg vil leyfa mér fyrir mína hönd og starfsfólks míns, að óska yður innilega til ham- ingju með þenna heiður, sem þér eigið svo vel skilið. Vaskleiki yðar var ágætt dæmi um þá hreysti og maijn- úð, sem ávalt hefir einkent ís- lenzka sjómenn og sem breskir vinir gleðjast yfir að skuli hafa hlotið viðurkenningu kon- ungs.” Eins og menn muna þá hafði Guðmundur og skipshöfn hans áður fengið gjafir frá skipverj- unum brezku, er þeir björguðu, þakklætis og viðurkenningar- skyni. Guðmundur skipstjóri fékk vandað gullúr, en skip- verjar áletruð sígarettuveski úr silfri.—Mbl. 31. des. — Þú slapst vel eftir árekst- urinn. — Ójá, eg meiddi mig ekki sérlega mikið. — Þá getur þú brátt hætt að ganga við hækju? — Nei, ekki segir málafær- slumaðurinn minn það!

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.