Heimskringla - 05.02.1941, Page 2

Heimskringla - 05.02.1941, Page 2
2. SIÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 5. FEBRÚAR 1941 “EDISON ISLENDINGA” Það var laugardaginn 17. ágúst, eitthvað um kl. 5 e. h. að við lögðum af stað frá heim- ili mínu í Wilmette; ferðinni var heitið til “Rock Island”, Wisconsin, til Mr. C. H. Thor- darsonar frá Chicago. Hann hafði boðið Th. Thorkelsön og hans fjölskyldu að heimsækja sig í tveggja vikna fríinu, sem hann fékk frá vinnu sinni; (hann er bókhaldari í verk- smiðju Mr. Thordarsonar). Og hann gerði mér boð að slást í förina með fyrir nokkra daga. Þáði eg það boð með þökkum. Þó eg aðeins hefði þrjá daga til ferðarinnar, varð eg strax ung- ur við tilhugsunina um að létta mér upp og gleyma öllu dag- legu vafstri í heila þrjá daga. Við ókum eins og leið liggur norður með Michigan vatni til Milwaukee; áðum við þar í nokkrar mínútur; ekki svo að skilja að fararskjótinn væri þreyttur, það þurfti aðeins að gefa honum að drekka af þess- um dýrmæta lög, sem knýr hann áfram viðstöðulaust. Svo var líka önnur ástæða til þess að við höfðum þar viðdvöl. Okkur Mr. Thorkelson munaði í eina eða tvær ölkollur, því heitt var og þungt loft; líka var okkur forvitni á hvernig öl Wisconsin-búa væri á bragðið; í það minsta fanst okkur það góð afsökun fyrir viðdvölinni. Héldum við síðan af stað hressari í bragði; urðum við fegin að komast út úr bænum, svo við gætum skelt á skeið og flýtt förinni. Milwaukee sýnist hreinlegur bær, og mun víða fallegt þar meðfram vatninu. Bærinn hefir hátt upp í 600,000 íbúa. Áfram héldum við svo í eina tvo klukkutíma; stönsuðum við þá í litlum bæ, sem heitir Mani- towak, að mig minnir, og mun það nafn úr Indíánamáli; man ekki betur en að Manitou sé nafn á guði Indíána. Enga guði sáum við þar samt, ekki Indíána heldur, en nóg af “skandinövum”. Höfðum við þar kvöldverð og hvild í nokkr- ar mínútur. Nú var orðið aldimt og helli- rigning komin, en ekki var til setunnar boðið, því langt var til áfangastaðar þess, er við settum okkur, áður en á stað var lagt, en það var Sister Bay; n\un það um 300 milur frá Chi- cago. Var því lagt út í dimm- una; kemur það sér þá vel að vegir eru vel merktir, svo mað- ur getur lesið sig áfram, þó hægara verði að fara, en í dagsbirtu. Fanst mér svo dimt stundum, að maður gæti ekki séð út úr augunum á sér, eins og eg heyrði menn segja stund- um í ungdæmi mínu á Islandi. Dettur mér og þá til hugar ferðalag mitt eitt sinn yfir f jallveg á gamla landinu í nátt- myrkri og þoku svo dimmri, að eg sagði fólkinu þegar heim kom, að eg hefði ekki séð fram yfir makkann á hestinum, er eg sat á, en hann hafði haldið veginum, án minna afskifta. En hræddur er eg um að bíllinn hefði ekki haldið veginum án afskifta Mr. Thorkelssonar; hafði hann því líf okkar í hendi sinni það sem eftir var ferðar- arinnar það kvöld Alt gekk vel, engir árekstrar, bauðst eg nokkrum sinnum til að keyra bilinn, en Mr. Thor- kelsson kvaðst óþreyttur, og svo væri hann kunnugur veg- inum. Þótti mér undir niðri vænt um að losast við að.stýra; hafði því hvíld og næði til að virða fyrir mér það sem fyrir augun bar, sérstaklega meðan dagsbirtan entist; mátti víða sjá blómleg bændabýli, upp- skera sýndist vera góð á korni og maís, ef hægt er að fara eftir hvað þéttar hrúgur eru á akri. Landið er víða öldu- myndað og mjög fallegt útsýni eins og víða í Wisconsin. Vatn- ið höfðum við á aðra hönd, og sáum grylla í það af og til, þannig þutum við áfram yfir hæðir og lægðir með frá 40—50 mílna hraða á klukkutíma, í gegn um myrkur og regn, og sáum lítið annað en lítinn spöl af brautinni fram undan og svo þessi glóandi augu í bílunum sem voru að mæta okkur, kom- andi með jafn miklum hraða á móti okkur, þjótandi í öfuga átt. Getur varla hjá því farið undir svona kringumstæðum að manni detti til hugar hvað skamt er á milli lífs og dauða stundum; ekki nema örfáir þumlungar á milli bílanna þegar þeir skjótast hver fram hjá öðrum; enda eru slysin mörg, og oftar en hitt af áað- gætni. Við komum til Sister Bay milli kl. 12 og 1 um kvöldið. í miðjum bænum, sem er nú ekki stór, eru tvö hótel, sitt hvoru meðin á aðalstrætínu. í öðru sýndist alt uppljómað og á ferð og flugi, en hinu var víst verið að loka; streymdi því hópurinn sem þar var yfir á knæpuna sem opin var; var þar glatt á hjalla og hafði Bakkús náð góðu haldi á æði mörgum bæði piltum og stúlkum. Flest af því var ungt fólk, mun hafa verið þar á að giska um 60—70 manns. Mátti þar sjá misjafn- an sauð í fnörgu fé. Sýndist þar vera allra þjóða lýður sam- ankominn, ljóshærðir skandi- nafar, margir hverjir stórir og myndarlegir. Þegar maður sér þá innan um svona mislitan hóp, eru þeir töluvert áberandi. Mið-Evrópu svipinn mátti sjá þar víða, einnig latnesk andlit; innan um þetta voru fáeinir Indíánar. Voru þeir ekki eftir- bátar hinna þegar til flöskunn- ar kom. Einn lítill lögreglu- þjónn varð að vandra innan um þennan hóp; virtist hann þekkja þetta fólk vel, og var ekki neinn óróleiki að sjá á svip hans, þó hávaði væri mik- ill. Gistingu fengum við á öðru hótelinu og sváfum svefni hinna réttlátu til morguns. Þá var komið þurt veður og sól skin, svo nú var ákveðið að nota vel daginn. Strax eftir morgunverð fór- um við að hitta Joe Lindal, sem þar á heima. Þekkja Thorkels- son hjónin hann vel, því hann er ættaður úr Lundar, Man., og er einn af þessari stóru Líndals familíu sem margir kannast við; systir hans, Helga, er gift Dúa syni Hr. Thordarsonar, sem við vorum að heimsækja. Næst tókum við okkur keyrslu- túr um skemtigarð, sem þar er á tanganum (National Park). Er þar mjög fagurt landslag, og sýndist vera vel hirt. Turn hefir verið bygður þar við vatn- ið sem kallaður er Arnarturn, er hann 75 fet á hæð og stendur á höfða, sem er 225 fet yfir vatnsmál; klifruðum við upp á efstu hæð hans, og tókum myndir. Var þar víðsýnt mjög, þó ekki sæum við öll ríki ver- aldar, er hætt við að dýrðin hefði ekki sýnst mikil á sumum stoðum hennar eins og nú standa sakir í henni veröld. Þegar eg var staddur þarna uppi um 300 fet yfir vatnsmál, og sá yfir þetta yndisfagra landslag: vatnið spegilslétt á aðra hönd eins langt og augað eygði, með eyjum og hólmum hér og þar; landið öldumyndað með skógarbeltum hingað og þangað og sléttir grasfletir á milli alt í mesta blóma; fólk al- staðar á ferð að skemta sér bæði á vatninu og um skemti- garðinn. Þá kom í huga minn hvílík afskapleg mótsögn væri í þessu mannlífi hér á jörðu. — Þarna var fólk að skemta sér í friðsælli sumardýrðinni og njóta lífsins í fylsta mæli. En ef við gætum séð nógu langt mundum við sjá eyðileggingu og dauða orsakað af heift og hatri mannflokka á milli stjórnað af fáeinum mönnum. Hvílíkt brjálæði! Fyrirgefið, eg er kominn út í aðra sálma en eg ætlaði að skrifa um, en þetta æði mannkynsins liggur svo þung á huga einstaklings- ins að hvar sem hann stingur niðúr penna, eða hefir sam- ræðu við nágrannana brýst þetta út óafvitandi. Þegar við höfðum keyrt yfir mestan hluta skemtigarðsins, og vilst dálítið af réttri leið, fundum við samt veginn til Gills Rock, þar sem við tókum ferjuna til Washington eyjunn- ar; bíllinn var tekinn með. Dá- lítið rugg var á bátnum, en eng- inn hafði tíma til að verða sjó- veikur, því það tók aðeins 45 mínútur að fara yfir sundið, sem er eitthvað um 8 mílur. Þegar þangað kom settumst við upp í bílinn og keyrðum þvert yfir eyjuna til Dan Lin- dals, bróður áðurnefnds Lin- dals. Er hann búsettur þar og stundar fiskiveiðar. Skamt frá heimili hans er bátahöfn fiski- manna og lendingarstöð þegar komið er frá Rock Island. Þar mætti Tryggvi Thordarson okkur með mótorbát og tók okkur það sem eftir var leiðar- innar til landsins helga. Þegar lagt er af stað yfir sundið á milli eyjanna, sem er 1*4 míla, blasir við manni báta- húsið og samkomusalurinn, sem er upp yfir því og eins hinar byggingarnar, sem eru á víð og dreif um allstórt svæði, sem hreinsað hefir verið og gert að rennsléttu túni. Er þar mjög fallegt um að litast; bak við þessa sléttu eru hæðir skógi vaxnar með mjög mörg- um mismunandi trjátegundum, bæði stórum og smáum. Eyjan má heita öll skógi vaxin. Hún er þúsund ekrur á stærð, og er eign Mr. Thórðarsonar að und- anskildum 90 ekrum sem stjórnin á og hefir hún þar vitahús; vinna tveir menn þar til að líta eftir vitanum. Byggingarnar sem Mr. Thórðarson hefir bygt þar eru að miklu leyti bygðar úr efni sem tekið er af eyjunni; sum húsin úr bjálkum og sum úr steini; eru þau mjög smekklega bygð, sérstaklega er báta hús- ið og samkomusalurinn stór- kostleg og eftirtektaverð bygg- ing. 1 þeim sal er eldstæði (Fireplace) sem er 7 fet á hæð og 8 fet á breidd, (sagt stærsta “fireplace” í veröldinni). Mr. Thórðarson sagði mér, að þeg- ar hann var að' láta byggja þetta eldstæði, hefðu menn spáð því að það mundi ekki lukkast að hafa eld í því; það mundi reykja. En hann hefir oft haft þar stóra elda, og hefir aldrei reykt. Þegar eldur er kveiktur í þessu mikla eldstæði koma manni í huga langeldar í skálum forfeðra okkar, sem við lesum um í fornsögunum, enda ýmislegt annað á þessu íslandi hans Thórðarsonar, sem minnir mann á gamla landið; alstaðar situr ísland honum, í andlegum skilningi, á hægri hönd hvar sem hann er. 1 sumar var verið að leggja víra og undirbúa fyrir rafur- magnsljós í allar byggingarnar. 1 samkomusalnum verða þrír stórir ljósahjálmar, sem Mr. Thórðarson hefir smíðað sjálf- ur. Ef eg man rétt eru um 60 Ijós á hverjum þeirra með ýms- um litum; eitt af ýmsu ein- kennilegu við þessa Ijósa- hjálma er að á hverjum þeirra eru 20 buffalohorn, skygð og fægð, með Ijósi í hverju. Þeir mega heita sannkallað lista- smíði. Flaggstöng hefir hann sett þar upp, sem er 60 fet á hæð, þráðbeint “balsam” tré, tekið þar af eyjunni; stendur stöng sú við hlið mikið, bygt úr steini; vörður eru sitt hvoru megin við þetta hlið, 12 fet á hæð að mig minnir. Eg ætla ekki að leggja út i að lýsa byggingunum og verk- legum framkvæmdum sem þar hafa verið gerðar. Það yrði of langt mál og eg finn mig ekki fa ran um það svo í lagi sé. Nokkuð var það sem vakti athygli mína sérstaklega, og það var hvað ýmislegt virtist benda á og minna mann á Is- land og það sem íslenskt er; stórskorin náttúrleg fegurð, (rugged natural beautý) en lát- in blandast inn í eðlilega nátt- úrufegurð. Alstaðar má sjá frumlegar hugsanir á bak við alt sem þar er starfað, enda mun Mr. Thórðarson vera sá íslendingur sem hefir haft meir af frum- legum hugsunum en nokkur annar íslendingur sem nú er uþpi, enda sá eini uppfyndinga- maður af okkar þjóðflokki, sem nokkuð kveður að. Undir hans nafni eru yfir 100 einka- leyfi (patents). Getum við því sannarlega gefið honum nafn- ið “Edison Islendinga.” Ekki þætti mér undarlegt þó eitthvað eigi eftir að koma fyrir almennigssjónir af nýjum uppfyndingum eftir hann. — Hann mun enn í leit eftir nýj- um brautum og nýju ljósi. Heili eins og hans er aldrei aðgerða- laus, altaf nóg viðfangsefni til umbóta fyrir mannkynið, þó aðrir lifi aðeins til að rífa niður það sem hann og hans líkar byggja upp. Hann sagði mér að starf sitt þarna á eyjunni væri ekki hálfnað. Hann mintist lítillega á sumt af því sem hann hefir í huga að framkvæma þar. Eg ætla aðeins að minnast á einn liðinn af áformum hans, því eg fékk leyfi hans til þess. Mér fanst hugmyndin svo fögur og lýsa hans innra manni svo vel, með að láta eitthvað gott af sér leiða og um leið, að hafa gamla fsland í huganum. Bókasafnið hans fræga í Chi- cago, sem er álitið eitthvað mei;kasta prívat bókasafn í Eg Heiti— “Eg skil það að Canada kallar mig . . . til þess að vera með I hennar National Savings Plan . . . sem bœði er nauð- synlegt til að vinna stríðið og ómissandi trygging fyrir sjðlfan mig. a3s ■""Ctu hinir hugdjörfu menn í land-, sjðvar og flugher vorum, sem nú eru ð orustuvellinum . . . þurfa mín með ð velli peningamðlanna. Þeir þurfa með skotfœri, efni og ðhöld . . . og það er aðeins með mínum peningum, sem þetta getur verið keypt. Þeir vernda mig. Þeir kalla mig til þess að útvega sér nauð- synjar sínar. —að —að þetta þarfnast mikillar vinnu og fjðr. aðeins með harðri vinnu og sparsömu Iífi... með því að lðna alt sem eg get Canada . . . get eg gert minn skerf til að hjðlpa að vinna stríðið og skapa öryggi. Eg heiti því að kaupa engan óþarfa ... hversu lítið sem það kostar . . . og hvort sem eg ð auðvelt eða erfitt með að borga fyrir hann ... og sem vinnu tekur fró stríðs-vöruframleiðslu að búa til. og hindra með þvl herstarfið. —að Nö . . . með þessum mónuði . . . skal eg byrja að Ieggja svolítið af tekjum mínum I War Savings Certificates. Eg skal lóta taka það í hverri viku, mánuði, annað hvort írá viku- kaupi mínu, eða úr sparisjóði mínum. með samningi við vinnu- veitenda eða bankastjórann. (undirskrifað) HVER SANNUR CANADA ÞEGN Published by the War Savings Committee, Ottawa FEBRÚAR ER War Savings Pledée Month

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.