Heimskringla - 07.05.1941, Qupperneq 7
WINNIPEG, 7. MAl 1941
7. SIÐA
HEIMSKRINGLA
ISLENZKT HEILSUFAR
Framh. frá 3. bls.
geng. Hestar fældust og urðu
slys að. Þá eru sjóslys, slys
við smíðar og hafnarvinnu. —
Líka á skemtiferðum. Drukkn-
ir menn verða fyrir byltum
eða slasast í áflogum. Við eitt
sjóslysið sprakk slagæð í heil-
anum og blæddi inn að heilan-
um. Héraðslæknirinn (í Vest-
mannaeyjum) meitlaði upp
hauskúpuna, batt fyrir æðina
og bjargaði lífi sjómannsins.
Sami héraðslæknir getur þess,
að hann sprauti slasaða menn
með serum gegn ginklofaveiki
(stífkrampa), ef mold eða slík
óhreinindi lenda í sárum. Eins
og kunnugt er, var þessi hroða-
lega veiki áður fyrr landlæg í
Vestmannaeyjum, og munu
sýklarnir sífelt leynast þar í
ræktaðri jörð.
I 34 héruðum eru talin fram
238 beinbrot og liðhlaup. Flest
eru rifbrot og úlnliðsbrot
(fract.radii); þá fótleggs- og
viðbeinsbrot. Hryggbrot voru
í 4 skifti, en vafalaust koma
þau þó oftar fyrir, án þess að
vitað sé. Liðhlaup voru lang-
oftast í axlarlið, eða 18 sinn-
um, en þar næst í olnbogalið.
í Hofsóshéraði fór maður úr
augnakörlunum, enjækninum
tókst að koma mjaðmarliðnum
í samt lag.
Sjúkrahús og heil-
brigðisstofnanir
Rúmafjöldi sjúkrahúsa telst
1167, og koma 9.9 rúm á hverja
þúsund íbúa. Á heilsuhælum
eru rúmin 284. Ársskýrslan
ber með sér, að spítalarnir eru
mjög misjafnlega útbúnir. Lít-
ið verður úr spítalahaldi þar
sem ekki er ráðin lærð hjúkr-
unarkona. Héraðslæknirinn í
Norðfjarðarhéraði getur þess,
að bærinn treystist á engan
hátt til að reka sjúkrahúsið
sjálfur, en hefir selt hjúkrunar-
konunni það á leigu með öllu
tilheyrandi. 1 sjúkraskýli
Rauða Krossins í Sandgerði er
rekið baðhús fyrir sjómenn og
skólabörn, og er það til mikils
þrifnaðar og menningarauka.
Heilsuverndarstöðvar eru
stofnaðar í Reykjavík, Akur-
eyri, Seyðisfirði og í Vest-
mannaeyjum. 1 Reykjavík rek-
ur félagið “Líkn” stöðina og
fara þar fram berklavarnir og
ungbarnavernd. Alls komu
3579 sjúklingar í fyrsta sinni
til berklaskoðunar. Með virka
berkla voru 158, en smitandi
38. Auk þess fjöldi hópskoð-
ana, aðallega á skólabörnum
og kennurum. Stórkostlegu
starfi var afkastað undir for-
ystu berklayfirlæknisins, og
framkvæmdar margar röntgen
skoðanir, loftbrjóstagerðir,
berklaprófanir o. fl. Hjúkrunar-
kona Ungbarnaverndarinnar
fór í rúmlega 3 þús. vitjanir.
Mæðrum var hjálpað um fatn-
að, vöggur, lýsi og fleira.
Sjúkrasamlög voru á 10 stöð-
um með 30,544 meðlimum, þ.
e. 29.6% allra landsmanna.
Rannsóknarstofa Háskólans.
Samkvæmt stuttu yfirliti próf.
N. P. Dungals hefir mjög verið
rannsökuð berklaveiki, m. a.
gerðar 1025 hrákalitanir. —
Sýklarannsókn vegna lekanda
í 805 skifti, en 590 sinnum
vegna syfilis. Holdrannsóknir
vegna meinsemda voru 666, en
ýmsar húsdýrarannsóknir
1061. Samtals voru gerðar 5026
rannsóknir. Það er mikið starf
og vandasamt. Krufningar
voru 116, og er gerð nánari
grein fyrir þeim í ársskýrslu
Landspítalans.
Matvælaeftirliti ríkisins er
stjórnað af dr. Júlíusi Sigur-
jónssyni. Mesti fjöldi sýnis-
horna af matvælum og krydd-
vörum var tekinn til skoðunar.
Dæmi: “Saft” reyndist í eitt
skifti vera litað sykurvatn.
Kakaó vantaði næga fitu. 1
kryddi var of mikil aska. —
Haframjöl rakt og súrt, en
sandur í rúgmjöli. Mjólkur-
ostur reyndist tvisvar neðan
við tilskilið fitumagn, en
smjörlíki í eitt skifti of vatns-
borið.
Húsakynni og þrifnaður
Hérsaðslæknum flestum
kemur saman um, að nýbygðu
steinhúsin í sveitunum reynist
mjög misjafnlega. Frágangur
oft slæmur, enda stundum
flutt í húsin ófullgerð. Mjög
kvartað um, að nýju húsin séu
köld og saggasöm vegna ó-
nógrar upphitunar og mis-
jafnlega vandaðra bygginga.
— 1 flestum læknishéruðum
vantar tilfinnanlega salerni við
heimilin; í sveitum ganga
menn þá örna sinna í fjósin. í
sjávarþorpi á Vestfjörðum hafa
50 fjölskyldur ekki salerni eða
aðgang að því, segir héraðs-
læknirinn. Hvað á þessi ósómi
að haldast lengi? Vafalaust
eru mörg mjólkursöluheimili
salernislaus.
Þrifnaður misjafn. Sumstað-
ar talinn i góðu lagi. En ann-
arstaðar mjög ábótavant utan
stafs og innan. “Lúsin heldur
velli enn þá”, segir einn hér-
aðslæknirinn.
Fatnaður og matargerð
Að mörgu leyti eru ýmsar
framfarir í þessum efnum. Ný-
metisneysla mun yfirleitt fara
vaxandi, þar á meðal garð-
ávaxta og grænmetis. Líka
meira sint berjavinslu en áður.
Víðast hvar lögð áhersla á að
hafa næga nýmjólk og mjólk-
urafurðir. Þó hafa einstaka
héraðslæknar aðra sögu að
segja. í Eyrarbakkahéraði er
það t. d. þannig, að “bændur
og fólk þeirra mun neyta mjög
lítils smjörs. Smjörlíki er
aðalviðbitið, engu síður í sveit-
um en við sjó.” Þetta er vara-
samt ástand, en alþekt frá út-
löndum, þar sem bændur losa
sig við alla nýmjólk, pening-
anna vegna. — 1 Reykdælahér-
aði er þess og getið að bæti-
efnarýr kaupstaðavara komi í
stað heimaframleiddra mat-
væla.
Víða er látið vel yfir fatnaði
almennigs, en annarsstaðar
miður, einkum hve fótabúnaði
sé áfátt. Ólafsvíkurlæknirinn
segir fatnað þar vanhirtan og
fátæklegan, og börnin kulda-
lega klædd. Öxarfjarðarlækn-
irinn kvartar um, að innlendur
skófatnaður sé “í ósvífnu
verði”, og hinn útlendi í skjóli
hans dýr.
Mjólkurframleiðsla
og mjólkursala
Merkilegustu upplýsingar í
þessum kafla eru frá héraðs-
lækninum á Eyrarbakka um
ástandið í fjósum bænda, sem
senda mjólk í Mjólkurbú Flóa-
manna. — Héraðslæknirinn
kemst svo að orði: “Dýralækn-
“irinn tjáir mér, að þrifnaður
“í fjósum sé víða af mjög
“skornum skamti og óvönduð
“umgengni, enda sé meðferð
“mjólkurinnar eftir því. Van-
“hús vantar á fjölda bæja, og
“eru fjósin þá ætíð notuð i
“þeirra stað. Dýralæknirinn
“kveðst hafa bent stjórn Mjólk-
“urbús Flóamanna á þetta og
“beint því til hennar að beita
“sér fýrir umbótum”.
Þetta er ófögur lýsing á
bændamenningunni austan-
fjalls — fjósin eru um leið
kamrar sveitafólksins! — Það
er skemtileg tilhugsun fyrir
þá, sem hafa þá ánægju að
kaupa mjólkurafurðir úr þeirri
átt.
Nýlega hefir gengið faraldur
af illkynjaðri blóðkreppusótt í
Reykjavík og víðar. Er full-
komin ástæða til að ætla, að
þessi veiki geti átt upptökin i
óþrifalegri meðferð mjólkur-
innar. Bersýnilega er mikið
verkefni framundan fyrir heil-
brigðisstjórnina, að kenna
sveitafólkinu að nota salerni.
Grímneslæknirinn getur þess
og, að flestir bændur láti alla
mjólk af heimilunum, en noti
eingöngu smjörlíki sem viðbit.
Mjólkurmálunum er ber-
sýnilega svo komið, að kaup-
staðabúar neyta miklu meiri
mjólkur en sveitafólkið, enda
geta héraðslæknar um, að tals-
vert kúahald sé í sumum smá-
kaupstöðum. Á Sauðárkróki
eru 150 kýr. Kaupstaðabúar
hafa löngum leitast við að
koma börnum sínum í sveit.
En það er eftir litlu að sækj-
ast í sveitinni, ef nýmjólk er
ekki á boðstólum, og yfirleitt
lítið um nýmeti.
Áfengisnautn, kaffi og tóbak
Víðast er kvartað undan
því, að áfengisnautn sé til leið-
inda á samkomum, en áð öðru
leyti sé drykkjuskapur lítill.
Neftóbaksnautnin þykir víst
svo sjálfsagður sóðaskapur, að
hennar er ekki getið sérstak-
lega. En héraðslæknirinn í
Berufjarðarhéraði getur þess,
að flestir unglingar byrji að
reykja opinberlega þegar þeir
eru fermdir. í öðru læknis-
héraðinu í Árnessýslu er talið
algengt, að stúlkur eyði helm-
ingi kaups síns í sígarettur, og
vel það.
Meóferð ungbarna
íslenzkum mæðrum má telja
til mikils sóma, að þær fara
yfirleitt vel með ungbörnin.
Læknunum ber alveg saman
um það. Á brjóst voru lögð
88%. En þess er reyndar ekki
getið, hve lengi þau voru á
brjósti. Áður fyr voru fæst
börn lögð á brjóst, en fengu
pela — misjafnlega vel úr
garði gerðan — enda var ung-
barnadauðinn fyrrum afskap-
lega mikill.
Skólaeftirlit og barnauppeldi
Margskonar fróðleik er að
finna í skýrslum héraðslækn-
anna um heilsu skólabarna og
útbúnað skólahúsanna. 1
Ólafsfj.héraði er þess getið,
að um annatímann á sumrin
gangi yngri börnin oft “sjálf-
ala og eftirlitslaus fram á næt-
ur”. 1 öxarfjarðarhéraði: “ .. .
margir foreldrar, sem ekki láta
sér detta í hug uppeldi, þ. e. a.
s. neitt um áhrif gerða sinna og
annara á börnin”. 1 Vest-
mannaeyjum: “Barnauppeldi
agalítið á mörgum stöðum. —
Börnin læra enga mannasiði
og orðbragð þeirra ljótt inn-
byrðis.”
Samkomuhús og kirkjur
Vönduð samkomuhús voru
reist í Dala- og Þingeyrarhér-
uðum. Um samkomuhúsið í
Ólafsfjarðarhéraði: “í það var
sett salerni, samt ekki nema
eitt að sinni, ennfremur sæmi-
legar mottur við báðar inn-
göngudyr. Var þetta gert fyrir
tilstilli heilbrigðisnefndar, en
þó ekki mótspyrnulaust, þótt
undarlegt megi virðast.” í
Öxarfjarðarhéraði virðist bág-
borið viðhald á kirkjum og
þær því varasamar fyrir heils-
una. A. m. k. tekur héraðs-
læknirinn svo til orða: “Af
guðs mildi eru kirkjur lítið not-
aðar.” , t
Störf heilbrigðisnefnda
Árangurinn misjafn. 1 Svarf-
dælahéraði þykir lækninum
gott að eiga aðgang að nefnd-
inni um lagfæringar, “þegar úr
hófi keyrir óþrifnaðurinn og
óreiðan”. — Héraðslæknirinn
á Akureyri hefir gengið rögg-
samlega fram í lagfæringu
vatnsbóla. 1 Glerárþorpi voru
17 brunnar svo úr garði gerðir,
að hætta var talin stafa af. Á
einum stað var hlandfor og
mykjuhaugur rétt við brunn-
inn.
Krufningar eftir
kröfu lögreglunnar
Á Rannsóknarstofu Háskól-
ans voru framkvæmdar skoð-
unaraðgerðir í 19 skifti á
mönnum, sem fundust örendir
eða fórust voveiflega.
Aftast í heilbrigðisskýrslun-
um eru ítarlegar töflur um
allskonar sjúkdóma í læknis-
héruðunum; ennfremur um
f æ ð i n g a r, bólusetningar,
sjúkrahús o. fl.
Heilbrigðisskýrslunum lýk-
ur með vel saminni yfirlits-
grein á ensku um heilsufar og
heilbrigðismál á íslandi eftir
landlækni Vilm. Jónsson. Þetta
mun í upphafi hafa verið sam-
ið til notkunar á íslandsdeild-
inni á heimssýningunni í New
York. En yfirlit þetta er
prýðilega saman tekið handa
öllum, sem vilja í fljótu bragði
átta sig á heilbrigði þjóðarinn-
ar og heilbrigðisstofnunum.
Aftan við Heilbrigðisskýrsl-
urnar er svo á fimm blaðsíðum
yfirlit á ensku um heilsufarið
1938.
A
Hér hafa verið tínd til nokk-
ur helstu atriðin úr þessum
heilbrigðisskýrslum frá árinu
1938. Landlæknir hefir ber-
sýnilega lagt mikla vinnu í að
gera þær sem best úr garði.
Skýrslurnar eru mjög mikils-
verðar. Reikningsdæmið er
gert upp, og sýndur með þeim
árangurinn af starfi lækna,
hjúkrunarkvenna, Ijósmæðra
og annara, er starfa í þágu
:n ekki eins
FURÐULEGT
BRANVIN
VERÐ
Borgið enga premíu fyrir efnisgæði. Hin
bragðgóðu og efnisríku Branvin, rauð
eða hvít vín, eru yðar á samaverði og
vanaleg vín.
Jordan Wine Co., Ltd.—Jordan. Canada
Búa einnig til Challenger Port og Sherry
jordan's BRANVIN
bÍg g^st WINE V A L U E
This advertisment is not inserted by the Govemment Liquor Control Commission. The
Commlssion is not responsible for statements made as to quality of products advertised.
x* ' . X • ■W' ,
<*>■■■ •-.•:• .... ... i
ÞEGAR BRETAR NÁÐU BENGHAZI
Þegar ítalir flúðu úr borginni reyndu þeir að eyðileggja vopn og byggingar eins og
tími vanst til. Mynd þessi var tekin eftir að borgin var fallin. Sjást á henni rústir flug-
skála og flugvéla hreyfla og ýmislegt fleira.
heilbrigðismálanna. Árangur- inn af þeirri vinnu kemur fram, þegar bornar eru saman ársskýrslur frá fyrri árum. Þess hefir orðið vart í seinni tíð, að svartsýnir menn, sem láta sér ant um ýmisleg heil- briðisatriði, tilkynna þjóðinni í útvárpi og blöðum, að heilsu íslendinga fari sífelt hnign- andi. Krabbameinið leiki laus- um hala; meltingarkvillar fær- ist i vöxt, en hnignunar- og “hrörnungarsjúkdómar” séu að fara með íbúa þessa lands. Víst er það vel gert, að vara við hættum. En þessar stað- hæfingar eiga sér engan stað. Að vísu er ýmsu ábótavant í þrifnaði, heilsuháttum og mat-1 aræði; og gott væri ef æðsta stjórn þessa lands væri betur heima í næringarfræði nútím- ans en raun ber vitni. En þrátt fyrir alt, hefir heilsufar þjóð- arinnar tæplega verið betra í annan tíma. Heilbrigðisskýrsl- ur landlæknis sýna þetta svart á hvitu. En þær eru jafnframt uppörvun til freícari átaka á ýmsum sviðum heilsuverndar- innar. Einkum mætti ætlast til ,af stjórnarvöldunum, að þau settu skynsamlegri tolllöggjöf, sem örvaði menn til kaupa á hollum aðfluttum matvælum, en keyptu minna af mat, sem síður er heppilegur fyrir heils- una. G. Cl. —Heilbrigt líf.
- NAFNSPJÖLD -
Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldg. Skrlístofusími: 23 674 Stundar sárstaklega lungnasjúk- dóma. Br að finni & skrifatofu kl. 10—12 t. h. og 2—6 e. h. Heimili: 46 Alloway Ave. Talsími: 33 lil Thorvaldson & Eggertson Lögfræðlngax 300 Nanton Bldg. Talalml 87 024
Omct Pboot Res. Phon* 87 208 72 400 Dr. L. A. Sigurdson 100 MBDIOAL ART8 BUILDING Omci Houbs: 12-1 4 PJ*. - 6 P.M. Sm> BT APPOINTMENT M. HJALTASON, M.D. ALMENNAR LÆKNINGAR Sérgrein: Taugasjúkdómar Lætur úu meðöl 1 viðlðgum Vlðtalstímar kl. 2—4 «. h. 7—8 að kveldlnu Simi 80 857 643 Toronto St.
Dr. S. J. Johannesnon 806 BBOADWAT Talaiml 30 877 > Vlðtalstlml kl. 3—6 e. h. A. S. BARDAL selur llkkistur og annast um útfar- ir. Allur útbúnaður s& bestl. _ Ennfremur selur hann allskonar mlnniavarða og legstelna. 843 SHERBROOKB ST. Phone: 36 607 WINNIPEQ
J. J. Swanson & Co. Ltd. REALTORS Rental, Insurance and Financial Aqents Simi: 26 821 308 AVENUE BLDG.—Winnipeg Rovatzos Floral Shop 253 Notre Dame Ave. Phone 27 989 Fresh Cut Flowers Daily Plants ln Season We specialize in Weddlng & Concert Bouquets Sc Funeral Designs Icelandlc spoken
H. BJARNASON —TRANSFER— Baggage and Furniture Moving 691 SHERBURN ST. Phone 35 909 Axmast aliskonar flutnlnga fram og aftur um bæinn. MARGARET DALMAN TEACHER OF PIANO 654 BANNING ST. Phone: 26 420
DR. A. V. JOHNSON DENTisrr 506 Sonierset Bldg. Office 88 124 Res. 27 702 512 Medical Arts Bldg. Dr. K. J. AUSTMANN Stundar eingöngn Augna, eyma, nefs og kverka sjúkdóma Dr. J. T. CRUISE, 313 Medical Arts Bldg., lítur eftir öllum sjúkling- um mínum og reikningum í fjar- veru minni.
THE WATCH SHOP Thorlakson & Baldwin Diamond and Wedding Rings Agent for Bulova Watches Marriage Licenses Issued 699 Sargent Ave. Dr. P. H. T. Thorlakson 205 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 22 866 Res. 114 Grenfell Blvd. Phone 62 200