Heimskringla - 10.12.1941, Qupperneq 1
The Modern Housewife Knows
Quality That is Why She Selects
CANADA
BREAD’
"The Quality Goes in
Before the Name Goes On”
Wedding Cakes Made to Order
PHONE 33 604
LVI. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 10. DES. 1941
NÚMER 11.
«- HELZTU FRETTIR"
ófriðurinn breiðist út
um allan heim
Með Japan og Bandaríkjun-
um nú komnum í stríð, má
heita að ófriðurinn hafi breiðst
út um allan heim.
Milli Japan og Bandarikj-
anna byrjaði stríðið þannig, að
Japanir hófu s. 1. sunnudags-
morgun sprengjuárásir um
bandarískar og brezkar eyjar
víðvegar um Kyrrahaf. Árás-
irnar voru algerlega óvæntar,
því á sama tíma og þær hófust
sátu fulltrúar Japana á friðar-
ráðstefnu í Washington með
fulltrúum Bandaríkjastjórnar.
Tjónið varð vissulega miklu
meira af árásunum vegna j
þessa. En hepnir eru Japanir,
ef þiem gelst ekki fyrir slíka
sviksemi við þá þjóð, er þarna
átti hlut að máli, og fyr en þá
nú grunar.
Staðirnir sem árásirnar voru
gerðar á, voru þessir: Hawaii-
eyjar, Hong Kong, Singapore,
Norður-Malaya, Thailand og
Phillipseyjar.
Fyrstu fréttirnar komu frá
Honolulu á Hawaii-eyjum, um
2500 mílur austur í Kyrrahafi
frá Japan. Sögðu þær tjónið
mikið, en það reyndist þó enn
meira en í fyrstu v.ar sagt. Nú
er talið að 3000 manns hafi fyr-
ir slysum orðið og af þeim
séu 1500 dánir.
Tvö herskip, “Oklahoma”,
20,000 tonn að stærð, 'með yfir
1300 manna skipshöfn, og
“West Virginia”, 32,600 tonn
að stærð, með 1923 mönnum á,
var sökt í Pearl Harbor her-
skipalæginu, sem nefnt hefir
verið “Gibraltar Kyrrahafsins”.
Um manntjón getur þarna ekki.
Þriðja stór-herskipið, er haldið
að hafi farist og mörg fleiri en
smærri. Á höfninni er og sagt,
að tvö olíuflutningaskip hafi
verið eyðilögð.
Flugför Japana er ætlað að
verið hafi 150 er þátt tóku í
þessari árás. Komu þau yfir
fjöllin á Oahu-eyju og sáust
ekki fyr en þau voru rétt yfir
Pearl Harbor. Var strax tekið
að skjóta á þau bæði af sjó og
landi og úr lofti, en mörg þeirra
höfðu áður losað sig við
sprengjur sínar. Fimm af flug-
skipum Japana dýfðu sér og
flugu lágt. Þau hittu skot-
markið. Árás þessi stóð yfir í
rúman klukkutíma — frá kl.
8.10 til 9.25 f. h. (eftir Hono-
lulu tíma, sem er um 12.40 e. h.
í Washington). Af flugförum
Japana var mikið skotrið niður.
Ennfremur var skipi* sökt er
mtlað er að flutt hafi flugförin
til Hawaii-eyju.
Hickam-flugstöðin á Hawaii-
eyju, varð fyrir harðri sprengju
árás. Er sagt að um 350 her-
menn hafi farist þar. Flug-
stöð þessi er aðeins 3 mílur
norður af Honolulu.
Á Phillipseyjum biðu 270
tnanns bana í árásinni. Var
gerð árás á nokkra staði þar,
úieðal annars á Fort Stotens-
burg, Clark Field, Bagnio, sum-
3r-bústað o. fl. Á sjálfa höfuð-
borgina, Manila, var ekki ráð-
ist.
1 Honk Kong var árásarliði
Japana snúið frá án nokkurs
verulegs tjóns. Er Canada-
úiönnum sem þar eru, ekki sem
stendur talin hætta búin.
Til Malaya, fyrir norðan
Thailand, reyndu Japanir að
^omast, hugsuðu sér að stöðva
með því umferð um Burma-
veginn. Bretar ráku þá til
baka.
Sunnar reyndu • Japanir að
lenda með her á Malaya-strönd-
inni. Það tókst ekki heldur í
fyrsta sinni, þó nú sé fullyrt að
þeir hafi komið her þar á land.
Til Singapore, brezka hafnar-
virkisins mikla, komust nokkur
japönsk flugskip og köstuðu
sprengjum á hús í útjaðri borg-
arinnar og þorpum í grendinni.
Tóku Bretar skjótt á móti þeim
og hröktu flugförin til baka.
En 63 menn biðu bana í árás-
inni og 133 meiddust.
Þegar Japanir höfðu í myrkr-
inu komið öllu þessu til leiðar,
segja þeir Bandaríkjunum stríð
á hendur, en fyr ekki.
Hvers vegna ekki? Voru þeir
hræddir um að þeim yrði minna
ágengt ef Bandaríkjunum yrði
tilkynt það sem vakti fyrir
þeim? Vissulega! Þessvegna
varð að nota aðferð bleiðunn-
ar! Síðan Japanir sýndu hvað
þeir voru að fara, hefir sókn
þeirra verið lítil. Þeir og Þjóð-
verjar eru að útvarpa, að sjó-
floti Bandaríjanna hafi nú ver-
ið svo lamaður, að Japanir
þurfi ekkert að óttast. Það
hefir óefað verið áformið, að
læðast að flota þeirra á meðan
friður ríkti og eyða honum.
Það gat verið erfiðara að kom-
ast nógu nærri honum, eftir
að farið var í stríð.
Síðan að Japanir stigu þetta
fyrsta spor í stríðinu, sem nú
hefir verið lýst, hefir stríð hald-
ið áfram, aðallega fyrir sunn-
an Kína á Hong Kong, Phillips-
eyjum og Malaya. Hefir Jap-
önum ekki orðið neitt ágengt,
en hafa jafnvel orðið fyrir
nokkru flugvéla- og manntjóni,
einkum við árásartilraun í loft-
inu á Phillipseyjar í gær. —
Þetta er fullyrt í fréttum það-
an, þó ítarlega sé ekki frá tapi
Japan greint. Það sem er víst,
er það, að um 25,000 Japanir á
eyjunum hafa verið hneptir í
varðhald; þeir munu sumir
hafa verið fluttir til eyjanna
fyrir eigi löngu og til þess að
njósna; aðrir hafa búið þar
nokkur ár.
Meðan þetta er skrifað, á
þriðjudagskvöld, er sagt að or-
ustur séu háðar í norðurhluta
Malaya, milli Japana, er þar
hefir hepnast að komast á land
og brezks og bandarísks her-
liðs.
Hvað er um herstyrk Japana
og Bandaríkjanna? Sjófloti
Japana er sagður mikill og ná-
lega eins stór og Kyrrahafs-
floti Bandaríkjanna er vana-
lega. En talan er sögð þessi:
Stór-herskip: Japanir 10,
Bankaríkin 16; skip til að flytja
flugför: Japanir 8, Bankaríkin
7; beitiskip: Japan 46, Banda-
ríkin 37; tundurspilla: Japan
125, Bandaríkin 170; kafbáta:
Japan 71, Bandaríkin 113. Allur
verður þá floti Japana 262 skip,
en Bandaríkjanna 344. 1 smíð-
um eiga Bandaríkin 345 skip,
þar af 15 herskip, en Japan 38
skip, en 6 af þeim herskip.
Þetta kann að vera ónákvæmt
metið, en það gefur nokkra
hugmynd eigi að síður.
Flugskip Japana eru sögð
2500 til 3500. Þeir hafa ekki
aukið tölu þeirra mikið síðan
stríðið við Kina byrjaði. Hrað-
framleiðsla er sagt að eigi sér
ekki stað á flugskipum hjá
þeim. Ef þetta er satt, eru þeir
þarna illa staddir.
1 ræðu sem Roosevelt forseti
hélt í gærkveldi, skýrði hann
frá að vopnasmiðjur Bandaríkj-
anna ynnu hér eftir 7 daga í
viku í stað 5Vk eða 6. Um tjón-
ið á Hawaii, kvaðst hann ekki
vita annað en það sem öðrum
hér væri kunnugt. Að það væri
mikið, efaði hann ekki, en fyr
en menn vissu hvað væri hægt
að gera við af skipum og flug-
förum aftur, væri ekki hægt að
meta skaðan nákvæmlega. —
Hann kvaðst búast við hörðu
og löngu stríði. Það sem
stjórnin gerði, væri með það í
huga gert. Þjóðin mundi neyta
þeirrar orku er hún hefði í
mannafla og auði í þessu stríði,
sem hún væri komin út í —
ekki til að vinna lönd, eða í
hefndarskyni — heldur til að
sporna við því, að hin óhæfa
stefna þeirra Hitlers og Musso-
lini yrði ofan á í heiminum.
Þakka fangarnir umbæturn-
ar Rauða Kross félaginu og
heimsókn Bandaríkjasendiherr-
ans, er fangaverin heimsækir
að minsta kosti á þriggja vikna
fresti. Bögglarnir sem Rauði
Krossinn færir þeim með mat
og öðru góðgæti, eru með
miklum fögnuði og þakklæti
þegnir.
Deildin í Ottawa, sem fregn-
ir og upplýsingar gefur um
fangana (War Information
Bureau), minnir á, að böggla
sé ekki til neins að senda of
þétt. Frá einstaklingum fái
fangarnir ekki að taka við
bögglum nema á þriggja mán-
aða fresti eða 4 böggla alls á
ári. En Rauðakross félagið
fær að gera það sem það álítur
nauðsynlegt; það hefir frjáls-
ari hendur.
Annar sigur fyrir Japani
í morgun barst sú frétt, að
Japanir hafi sökt tveimur
stærstu skipum Breta, herskip-
unum “Prince of Wales” og
beitiskipinu “Repulse”. Það
var austur af Malaya, sem ó-
happið varð. Stór orusta er
sögð standa yfir í dag á hafinu
fyrir sunnan og austan Kína
milli flota Breta og Bandaríkj-
anna annars vegar og Japana
hins vegar.
Herskylda á Bretlandi
Herskylda var samþykt á
brezka þinginu s. 1. fimtudag.
Stjórnin lagði frumvarpið
fyrir þingið. Var farið fram á
að herskylda alla á aldrinum
18M> árs til 50 ára. Þótti sum-
um 40 ára aldur nægja. Frum-
varpið náði ennfremur til ó-
giftra kvenna á 20—30 ára
aldri.
En við frumvarpið gerðu
verkamenn þá breytingar-til-
lögu, að herskylda einnig auð-
inn. Fólst í breytingunni, að
stjórnin tæki í sínar hendur til
starfrækslu iðnaðarfyrirtæki,
sem einstaklingar eiga. En
þessi breytingartillaga var feld
á þinginu. Á móti henni voru
greidd 336 atkvæði, en með að-
eins 40. Með henni var því felt
að herskylda auðinn.
En frumvarpið um að her-
skylda mannafla, karlmenn og
konur, eins og að ofan er tekið
fram, var samþykt. Voru 326
atkvæði með henni, en 10 á
móti.
Verkamannaforingjarnir utan
þings og innan, er sagt að verið
hafi herskyldu fylgjandi. En
einn þingmanna, George Bu-
chanan, var þó á móti því að
hún næði til kvenþjóðarinnar.
“Þó eg væri ekki nema einn
uppistandandi, gæti eg ekki
annað en verið á móti þessu;
það er eitt það herfilegasta,
sem hér hefir nokkru sinni ver-
ið aðhafst,” sagði hann.
Clement Attlee, (lord privy
seal), mælti eindregið með her-
skyldu, en sagði verkamönnum
á fundi þeirra að það næði
ekki til þess að herskylda auð-
inn. Atkvæði með slíkri til-
lögu, væri atkvæði á móti
stjórninni.
932 canadiskir hermenn
í þýzkum fangaverum
Skýslur frá Ottawastjórninni
hermdu s. 1. fimtudag, að 932
canadiskir fangar væru í
fangaverum á Þýzkalandi.
Segja fangarnir að vel fari
um sig og vistin sé mun betri
en hún var fyrst eftir að stríð-
ið braust út.
Lindbergh lokar sig inni
Skeyti til blaðsins New York
Herald Tribune, frá West Tis-
bury í gær, sagði að Charles
Lindbregh, er á móti því hefir
verið að Bandaríkin tækju þátt
í þessu stríði, hefðist við á búi
sínu við Seven Gates og neitaði
að tala við fregnrita og veitti
engum skeytum móttöku, er
eftir skoðunum hans grensluð-
ust um stríðsyfirlýsingu Japans
á hendur Bandaríkjunum.
Varð frá að hverfa
Það var eftir þýzkum yfir-
manni í hernum haft s. 1. mánu-
dag, að Þjóðverjar hefðu á-
kveðið að hætta við allar til-
raunir að taka Moskva á þess-
um vetri. Við allan stærri
hernað yrði hætt á austur-víg-
stöðvunum þar til voraði.
Hann sagði hreinskilnislega
að Moskva yrði ekki unnin fyr
en með vorinu.
Hann sagði gasolíuna hefði
frosið í geymunum, menn hafa
átt ílt með að verjast kali, svo
væri frostið mikið. 1 þesskon-
ar veðri væri ekki starfandi
úti við. Veturinn hefði byrjað
í Rússlandi fyr en þeir áttu von
á; því hefði þetta verið ákveð-
ið af herráðinu. Lið til þess að
hafa gætur á hvað Rússar
gerðu, yrði samt kyrt á víg-
stöðvunum.
Ófarir Þjóðverja hafa verið
orðnar miklar fyrir Rússum, að
til slíks örþrifaráðs skyldi vera
tekið.
Frá Rússlandi
Rússar halda áfram að reka
Þjóðverja til baka. 1 grend við
Kalinin um 100 mílur norður
af Moskva, hafa Þjóðverjar ver-
ið hraktir til baka og 800 menn
drepnir af þeim á undanhald-
inu. Suður hjá Tula, um 100
mílur suður af Moskva eru
Þjóðverjar einnig í undanhaldi.
S. 1. snnudag var hörð orusta
125 mílur suðaustur af Lenin-
grad. Skutu Rússar 44 flugför
niður af Þjóðverjum. Sjálfir
mistu þeir 11.
Frostið var 17 gráður fyrir
neðan núll á Fahrenheit á víg-
stöðvunum; þótti Þjóðverjum
nóg um það. En Rússar sögðu:
“Þetta er ekkert, bíðið ögn
lengur!”
Suður við Svartahaf eru
Þjóðverjar einnig enn á flótta.
Útlitið er að Rússar verði
búnir að brytja talsvert niður
af þeim áður en þeir komast
burt úr Rússlandi.
Japanir hafa tekið tvær smá-
eyjar lengst suður af Hawaii,
er Guam og Wake heita og eru
eign Bandaríkjanna.
ÚR ÖLLUM ÁTTUM
Vancouver-borg hefir verið
myrkvuð í tvær eða þrjár næt-
ur síðan stríðið við Japani
hófst. Canada hefir búið sig
vel til varnar á allri vestur
ströndinni. Óvinanna getur
alt af verið von. Þó mun þeirra
ekki hafa orðið vart á vestur-
strönd Canada. En við strend-
ur Bandaríkjanna, í San Fran-
cisco og Los Angeles, hafa hóp-
ar af japönskum flugförum —
alt að 60 að því er haldið er —
verið á sveimi á hverri nóttu
síðan á sunnudag að striðið
braust út. Sex sáust í fyrri
nótt, yfir Golden Gate. Um leið
og flugförin sáu, að eftir þeim
var tekið, flugu þau á haf út.
# # #
Þessar þjóðir hafa síðan á
sunnudag lýst stríði á hendur
Japönum: Canada, Bandaríkin,
Bretland, Kína, Hollenzka Ind-
land, Costa, Rica, Ástralía,
Nicaragua, Haiti, Honduras og
Panama.
# # #
CKY útvarpsstöðin í Winni-
peg, hefir mínkað afl sitt í 1000
watt á hverri nóttu hér eftir.
Hún heyrist því lítið út fyrir
Winnipeg. Þetta er gert vegna
óvina flugskipa, er áhöld hafa
með sér til að vita hvaðan út-
varp kemur og geta stýrt eftir
þeim á staðinn eða bæinn, sem
það kemur frá. í Vancouver-
borg er útvarpinu nú lokað
allar nætur.
# # *
Bandaríkjunum þótti vænt
um hve skjótt Canada var að
viðurkenna hættuna af Kyrra-
hafsstírðinu og lýsa striði á
hendur Japönum.
# # #
Washington þingið samþykti
s. 1. mánudag stríðsyfirlýsing-
una á hendur Japönum með 82
atkv. í efri deild þingsins og
engu á móti, en í neðri deild
með 388 atkv. en 1 á móti. Það
var atkvæði konu á þinginu,
Miss Jeanette Rankin, fulltrúa
frá Montana. Hún greiddi at-
kvæði 1917 á móti því að
Bandarikin færu í stríðið á
móti Þjóðverjum; þetta getur
verið vegna trúarskoðana eða
einhverra sérskoðana.
# # #
Canada-stjórn kvað ætla í
n. k. febrúar að reyna fyrir sér
með að fá lán innanlands, er
nemur $500,000,000 (hálfri
biljón).
* * •
Charles Lindbergh hvatti
Bandaríkja þjóðina í gær til að
vera einhuga og óskifta í að
hjálpa til að koma Japönum á
kné.
# # *
Flugfar sáu menn í New
York í gær koma utan af At-
lantshafi og flaug það yfir svo-
nefndan Montauk-tanga á Long
ísland. Var þetta talið þýzkt
flugfar. Enginn virtist þó vita
það með visuu. En hvort held-
ur að var, kom það ekki í leit-
irnar, þó eftir því væri grensl-
ast. En til að eiga ekkert á
hættu, var skólum lokað og
mönnum sagt að halda sig inni.
Eftir því var nú ekki alveg far-
ið. En skólabörnunum þætti ef
til vill ekkert af því, að ein-
hver fyndi upp á svipuðu aftur.
* • •
Á sýningu í Chicago nýlega,
voru 44 nautgripir (shorthorn)
heldir á $615.23 hver til jafnað-
ar. Þar var og verðlaunanaut
(einnig shornhorn) selt á
$4000 og verðlauna kvíga á
$1500. Verð er ekki sagt að
hafa verið líkt því svona hátt í
s. 1. 20 ár.
* * *
Thailand var fullyrt í frétt-
um í gærkvöldi, að væri komið
undir “vernd” Japana. Þetta
gerir Japönum hægra fyrir
með að koma liði til Malaya.
# # *
Senator J. T. Haig hefir ver-
ið valinn foringi íhaldsmanna
í efrideild Ottawaþingsins í
stað Rt. Hon. Arthur Meighens,
sem forustu íhaldsflokksins í
Canada hefir tekist á hendur.
# • #
Njáll O. Bardal, lautinant í
Canada-hernum utanlands, hef-
ir verið gerður að kapteini í
hernum. Vinir hans fagna
þessari viðurkeningu á hæfi-
leikum íslendingsins.
• # #
John Hart, liberali, er búist
við að geti myndað samvinnu-
stjórn í British Columbia með
íhaldsmönnum. Verður hvern
daginn sem er gert út um þetta.
• # •
Japanir segjast vera búnir
að vinna á sjóflota Breta (frétt
í dag). Á mánudag sögðust
þeir hafa gert út af við sjóflota
Bandaríkjanna. — Þeir hafa
ekki mikið að gera úr þessu.
THORSON UM RÚSSA
Ummæli Hon. J. T. Thorsons
um Rússana í sambandi við
Rauða Kross sjóðsöfnun handa
þeim:
‘“Hreysti og fórnfýsi rúss-
nesku hersveitanna í þessum
tröllaukna hildarleik sem nú
stendur yfir hefir ekki aðeins
vakið aðdáun allra lýðræðis
þjóða, heldur einnig vakið al-
menna þrá að senda þeim alla
þá hjálp sem nokkur föng eru
á. Eg treysti því fastlega að
þessari sjóðsöfnun til hjálpar
Rússunum verði vel tekið og
eg vil mælast til þess að þátt-
takan verði sem almennust í
Canada. Með þvi munum vér
"feigi aðeins styrkja vorn eigin
málstað, heldur einnig sýna
vorum rússnesku samherjum
samúð vora og aðdáun á
drengilegri framgöngu þeirra í
stríðinu sem þeir nú heyja.”
Einnig gat Thorson þess að
samskonar söfnun væri hafin á
Bretlandi, Ástralíu og Nýja Sjá-
landi til hjálpar Sovét lýðveld-
unum.
Annar frægur landi vor, Vil-
hjálmur Stefánsson, hefir um
lengri tima haft miklar mætur
á menningarstarfi Sovét ríkj-
anna, ekki sízt í norðurhéruð-
um Rússlands, þar sem risið
hafa upp borgir og iðnaður í
stórum stíl. Vilhjálmur hefir
ráðið til náinnar samvinnu
Bandaríkjanna við Sovét Rúss-
land og gert sitt til að eyða for-
dómum Bandaríkjamanna á
Rússlandi, sem — því miður —
bólar talsvert á. Rússarir hafa
miklar mætur á Vilhjálmi og
bækur hans hafa afarmikla út-
breiðslu á Rússlandi. F. S.
TVÖ SKÁLDRIT
eftir Davíð Stefánsson
Sólon Islandus — Höfundur-
inn sneri pennanum í töfra-
sprota, og varð meistari. Og er
meistarinn slær sprotanum við
íslenzkan stein eða íslenzka
þúfu, opnar ísland hjarta sitt
fyrir honum og lærisveinum
hans.
Gullna hliðið — Aldrei hefir
betur verið mælt fyrir minni
íslenzkra kvenna.
J. P. Pálsson