Heimskringla - 06.01.1943, Qupperneq 8
8. SIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 6. JAN. 1943
FJÆR OG NÆR
MESSUR í ÍSLENZKU
SAMBANDSKIRKJUNUM
Messur í Winnipeg
Umræðuefnið við morgun
guðsþjónustuna í Sambands-
kirkjunni n. k. sunnudag verð-
ur, “The Spirit of Freedom
Walks The Earth”, og við
kvöldmessuna, “Andi frelsis-
ins ríkir enn”. Sækið messur
Sambandssafnaðar.
*
Messa í Árborg
Messað verður í Sambands-
kirkjunni í Árborg, sunnudag-
inn 10. jan. n. k. kl. 2 e. h.
★ ★ ★
Ársfundur
Kvenfélags Sambandssafnað-
ar verður haldinn að heimili
Mrs. B. J. Hallson, 638 Alver-
stone St., þriðjudagskvöldið 12.
jan. kl. 8 e. h. Ársskýrslur,
kosning stjórnarnefndar og
mörg áríðandi málefni liggja
fyrir fundinum' svo félagskon-
ur eru beðnar að mæta stund-
víslega.
Ólína Pálsson, forseti
Steina Kristjánsson,
ritari
★ ★ ★
Skírnarathöfn
Miðvikudaginn, 30. des., fór
fram skírnarathöfn að heimili
Mr. og Mrs. John Anderson,
468 Home St., er séra Philip M.
Pétursson skírði ársgamlan son
þeirra, Gary Jón, að nokkrum
vinum og ættmennum við-
stöddum.
★ ★ ★
Þjóðræknsfélagið á íslandi
hafði gengist fyrir því, að Vest-
ur-lslendingum yrðu sendar
jólakv. frá þjóð vorri heima.
Var svo til ætlast, að kveðjan
væri flutt af hljómplötu og sá
sem flutti hana var séra Frið-
rik Hallgrímsson. En svo ó-
heppilega tókst til, að hljóm-
platan brotnaði í flutningnum
vestur, svo af henni varð ekki
kveðjan flutt. En til þess að
bæta úr þessu, verður nú
kveðjan lesin yfir útvarps-
stöðvar CBC, föstudagskvöldið
8. jan., kl. 11.50 e. h. (eftir
Winnipeg tíma). Eru íslend-
ingar beðnir að minnast þessa.
★ ★ ★
Þrjú börn Hannesar Kristj-
ánssonar og konu hans á Gimli
heimsóttu foreldra sina yfir
hátiðirnar. Eru tveW' synir
hans, Baldur og Kristján við
háskólann í Edmonton, en
María, vinnur á skrifstofu hjá
stjórninni í Ottawa. Öll fóru
þau til baka um síðustu helgi.
★ ★ ★
Matreiðslubók
Kvenfélags Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnipeg. Pantanir
sendist til: Mrs. E. W. Perry,
723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S.
Feidsted, 525 Dominion Street.
/erð $1.00. Burðargjald 5í.
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU
LESIÐ HEIMSKRINGLU
BORGIÐ HEIMSKRINGLU
(ÞnimimniaiiniimiiitiiiiiiiiiimuiiiiiiiiniiniiiMiiiiiiianiiuiiiMiC*
I ROSE THEATRE |
| ----Sargent at Arlington----- g
1 Jan. 7—8—9
ABBOTT & COSTELLO
"RIO RITA"
i Arthur Kennedy—Joan Perry I
“STRANGE ALIBI" |
| Jan. 11—12—13
| Merle Oberon—Alan Marshall i
"LYDIA"
1 Pricilla Lane—Richard Wolf =
| "BLUES IN THE NIGHT" |
&MiimuiiuiMiiiiiiiioiiiiiiiiiiiuiiimimiiuiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiinicö
Dánarfregn
Guðrún Jónsdóttir Berg-
mann, ekkja Bergþórs heitins
Ófeigssonar frá Hafnanesi i
Hornafirði, lézt s. 1. mánudag
að heimili sínu 565 Simcoe St.,
Winnipeg. Hún var nærri 77
ára að aldri, fædd 4. febrúar
1864, að Vindborðseli á Mýrum
í Austur-Skaftafellssýslu. Voru
foreldrar hennar Jón Pálsson
og Steinunn Sigursdóttir er
bjuggu að Sléttaleiti í Suður-
sveit, Eskey á Mýrum og víðar.
Að foreldrum sínum dánum,
fór Guðrún að Hafnanesi í
Nesjum og giftist þar Bergþóri.
Frá Holtum á Mýrum fluttu
þau vestur um haf 1903 og
bjuggu i Winnipeg öll árin hér
vestra. Fjögur börn lifa Guð-
rúnu: Gunnar, á heima í Þinga-
nesi í Hornafirði; Jón, rekur
verzlun i grend við Winnipeg;
Lovísa og Jóhanna, er heima
hafa verið hjá móður sinni og
hafa nokkur ár rekið verzlun
og selt kvenklæðnað i Winni-
peg.
Guðrún sál. var ein hin á-
gætasta kona, ram-íslenzk í
anda og fastheldin við þær
dygðir, sem Islendingum hafa
verið beztar eignaðar. Vinfesti
hennar og trúmenska einkendu
líf hennar.
Jarðarförin fer fram fimtu-
daginn 7. jan. frá heimilinu, kl.
2 e. h. Séra V. J. Eylands
jarðsyngur.
★ ★ ★
Heimilisiðnaðarfélagi heldur
næsta fund á miðvikudags-
kvöldið 13. jan. að heimili Mrs.
O. Swainson, ste. 16 Queen’s
Apts., Maryland St. Fundurinn
byrjar kl. 8 e. h.
★ ★ ★
Jacob Sigvaldason Jr., og Ósk
Anna Jónasson, bæði frá Víðir,
Man., voru gefin saman í
hjónaband þ. 19. des. af séra
Bjarna A. Bjarnason á heimili
hans í Árborg. Brúðguminn er
sonur Jakobs Sigvaldasonar og
konu hans, Unnur; en foreldr-
ar brúðurinnar eru Tómas og
Mabel Jónasson. Afi brúður-
innar í móðurætt er Gísli P.
Magnússon, prentari og útgef-
andi timartisins “Dagrenning”
í Silver Bay, Man. Heimili
hinna ungu hjóna verður i Við-
irbygðinni.
★ ★ ★
Sjúklingur (við lækni): —
Fyrir tveim árum ráðlögðuð
þér mér að forðast raka vegna
bölvaðrar gigtarinnar. En ætli
mér værj nú ekki bráðum ó-
hætt að fá mér bað?
TIL VINA OKKAR
Óheilla nornir réðu því, að við hjónin gátum ekki, sem
að vanda, sent vinum okkar heillaóskir fyrir þessar nýaf-
stöðnu miðsvetrar hátiðir, þar sem við lágum bæði veik.
Við tökum því þetta ráð til þess að óska öllum þessum
staðföstu vinum gæfu og blessunar á þessu nýbyrjaða ári,
sem má búast við að verði örlagaríkt fyrir alt mannkyn
hér á jörðu.
Megi allar ykkar beztu vonir rætast.
Norwood, Man., 4. jan. 1943.
Mr. og Mrs. Magnús Peterson
Viðauki — Meðan eg lá á spítala hér í nærfelt 5 vikur
bárust mér fjöldamörg bréf frá viðskiftafólki og öðrum. Er
'þessu enn öllu ósvarað, en eg er nú svo að hressast, að eg
vonast til að geta i.varað öllum þessum bréfum innan
skamms. Svo er nú loks komið það sem mig vantaði af
3. hefti Eimreiðarinnar fyrir liðna árið, og verður það sent
til kaupenda fyrir lok þessarar viku. Og einnig nýtt hefti
af Samtíðinni. m. P.
Sigurður Melsted og kona
hans komu til bæjarins yfir há-
tíðirnar, en Mr. Melsted er
starfsmaður stjórnarinnar í Ot-
tawa.
★ ★ ★
Minningarrit
Þeir, sem eignast vilja 50
ára minningarrit Sambands-
safnaðar, geta eignast það með
því að senda 50^ til Davíðs
Björnssonar, 702 Sargent Ave.
Ritið er mjög eigulegt, með
myndum og ágripi af sögi
kirkjunnar á íslenzku og ensku
★ ★ ★
Messur í Vatnabygðum
Sunnudaginn 10. jan. 1943:
Wynyard kl. 3 e. h.’ísl. messa.
B. T. Sigurðsson
HITT OG ÞETTA
Fluga hafði flokið inn í eyr-
að á Gvendi og tekið sér þar
bólfestu. Viku seinna átti
Gvendur erindi í kaupstaðinn
og kom við hjá lækni. Lækn-
irinn rannsakaði með mestu
nákvæmni eyrað á Gvendi,
helti inn i það oiíu og rak inn í
það allskonar ismeygileg verk
færi. Eftir að Gvendur hefir
þolað alla þessa fantameðferð
í hálftima, án þess að blikna
eða blána, segir læknirinn:
— Nú fjandinn hafi það, að
það er nokkur fluga í eyranu á
þér, drengur minn!
Gvendur: Eg hélt, að lækn-
irinn ætlaði að blása í gegnum
höfuðið á mér, því að flugan
er í hinu eyranu.
★ ★ ★
Hinn frægi píanósnillingur
Liszt heimsótti eitt sinn Ros-
sini og lék þá fyrir hann lik-
sönglag, sem hann hafði sam-
ið í tilefni af andláti tónskálds-
ins Meyerbeer.
Eftir að Rossini hafði hlust-
að með athygli á lagið, varð
honum að orði: Ætli það hefði
ekki verið heppilegra, að þú
hefðir dáið og að Meyerbeer
hefði samið lígsönglagið?
★ ★ ★
i Householders Attention
At the present time we have adequate stocks of most
grades of Coal in our yards, Hut this conditions may
not long continue. Due to scarcity of labor at the mines
and consequent decreased production, also transporta-
tion difficulties, there is almost sureHo be a shortage
of certain kinds of Fuel during the coming winter.
We suggest you fill your COAL BINS NOW and not let
them run low or you may be without fuel. We further
suggest you anticipate your requirments a few days
ahead. Deliveries will be more difficult this season.
—For Assured Comfort Fill Your Coal Bins Now—
MCC
URDYQUPPLY^O. Ltd.
BUILDERS' B^SUPPLIES ^and COAL
Phone 23 811—23 812
J 5
1034 Arlington St.
strœtisvagni
1. farþegi: — Viljið þér gera
svo vel og flytja löppina á
yður ofan af fætinum á mér?
2. farþegi: — Sjálfsagt, ef
þér viljið taka pipuna yðar út
úr mér.
★ ★ ★
Margir menn eiga tign lífs
síns miklum örðugleikum að
þakka. — Spurgeon.
WARTIME PRICES AND
TRADE BOARD
Spurningar og svör
Spurt: Mig langar til að fá
upplýsingar viðvíkjandi karl-
manna fatnaði. Maðurinn er
6 fet 3 þumlungar á hæð, og
yfir 200 pund á þyngd. Hann
lætur vanalega sauma á sig
föt vegna þess að tilbúin föt
passa honum ekki. Hvernig á
hann að fara að því að fá sér
ný föt?
Svar: Ef hann tilkynnir
næstu skrifstofu Wartime
Prices and Trade Board, og
segir þeim hvar hann sé vanur
að kaupa fatnað, þá verða sér-
stakar ráðstafanir gerðar til
þess að útvega honum mátu-
lega stór föt.
Spurt: Er nokkuð hámark á
leigu á þvottavélum? Það er
erfitt að fá viðgerðir og kostn-
aður hefir hækkað.
Svar: Leiga fyrir notkun á
áhöldum og viðgerðarkostnað-
ur er hvorutveggja háð há-
marksreglugerðunum. Ef þér
finst að viðgerðarkostnáður
’hafi hækkað þá átt þú að til-
kynna næstu skrifstofu War-
time Prices and Trade Board
og láta þá rannsaka þetta frek-
ar.
Spurt: Eg hefi nokkrum sinn-
um fengið sérstaka tilsögn þeg-
ar eg hefi búið mig undir próf.
Nú voru launin fyrir þessa til-
sögn hærri en í vor. Er þetta
leyfilegt?
Svar: Já, það er ekkert há-
mark á kenslulaunum.
Spurt. Er nokkur skortúr á
“corn syrup”? Ungbarnið mitt
þarfnast þess, en eg hefi ekki
getað fengið það nú upp á síð-
kastið.
Svar: Ef “corn syrup” er al-
veg bráðnauðsynlegt, þá getur
þú fengið sérstakt skírteini hjá
Látið kassa í
Kœliskápinn
WvnoLa
M GOOD ANYTIME
Þér sem notið—
TIMBUR
KAUPIÐ AF
THE
lEmpire Sash & Door
CO.. LTD.
Birgðir: Henry Ave. East
Sími 95 551—95 552
Skrifstofa:
Henry og Argyle
VERÐ - GÆÐI - ÁNÆGJA
lækninum og keypt það sem
þarf. Annars mætti benda á,
að ungbörn eiga að fá sinn eig-
in sykurskamt.
Spurt: Börnin mín verða nú
bæði að fá sér gleraugu. Er
hægt að kaupa þau með af-
borgunum, eða banna lánslög-
in það?
Svar: Nei, alt. þessháttar er
undanþegið lánslögunum og
fæst með afborgunum.
Spurt: Eg hefi sent þvqtt á
sama þvottahúsið nú í nokkur
ár, en í vikunni sem leið var
mér sett 5 centum meira fyrir
þvott á hjúkrunarkonu bún-
ingi. Hafa þvottahús leyfi til
að hækka verð?
Svar: Nei, þú átt að tilkynna
næstu skrifstofu Wartime
Prices and Trade Board um
þessa verðhækkun.
Spurt: Bóndi, sem hefir selt
mér smjör að undanförnu, seg-
ir mér að það sé ekki nauðsyn-
legt að láta sig hafa nokkra
smjörseðla. Eg er hrædd um
að hann sé óafvitandi að brjóta
lögin, og mig langar til að fá
að vita hvað er rétt?
Svar: Hann á að taka við
smjörseðlum alveg eins og
hver annar verzlunarmaður. —
Leiðréttu þetta hjá honum, og
ef hann neitar að fylgja lögun-
um þá verður þú að tilkynna
Wartime Prices and Trade
Board.
Spurt: Hve mikið kaffi-efni
MESSUR og FUNDIR
i kirkju Sambandssafnaðar
Prestur, sr. Philip M. Pétursson
640 Agnes St. Sími 24 163
Messur: á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Safnaðarnefndin: Fundir 1.
föstudag hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan
þriðjudag hvers mánaðar,
kl. 8 að kveldinu.
Ungmennafélagið: Yngri deild
— hvert sunnudagskveld
kl. 8.30.
Eldri deild — annað hvert
mánudagskveld kl. 8.15.
Skátaflokkurinn: Hvert fimtu-
dagskveld.
Söngœfingar: Islenzki söng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskveldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju föstudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: Á hverjum
sunnudegi, kl. 11 f. h.
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG
ÍSLENDINGA
Forseti: Dr. Richard Beck
University Station,
Grand Forks, North Dakota
Allir íslendingar í Ame-
ríku ættu að heyra tii
Þjóðrœknisfélaginu
Arsgjald (þar með fylgir
Timarit félagsins ókeypis)
$1.00, sendist fjármálarit-
ara Guðmann Levy, 251
Furby St., Winnipeg, Man.
eða “Coffee Concentrate” fæst
fyrir hvern skömtunarseðil,
samkvæmt nýjustu reglugerð-
um?
Svar: Samkvæmt reglugerð-
unum fæst, með hverjum seðli,
nóg kaffi-efni eða “Coffee Con-
centrate” í 25 bolla af kaffi.
Spurningum á islenzku svar-
að á íslenzku af Mrs. Albert
Wathne, 700 Banning St. Wpg.
KS
I
1
• i flýtinum að kaupa leyfisbréfið .. .
undirbúnings áhyggjunum og hátíða-
höldum hjúskaparins . . . megið þér
ekki gleyma að lögin ákveða að þér
tilkynnið National Registration nefnd-
inni, gifting yðar.
Brúðurin breytir nafni og oftsinnis
breyta bæði hjónin um heimilisfang.
Munið einnig að hvert skifti sem karl
eða kona breyta um heimilisfang
verða þau að tilkynna National Regi-
strajion nefndinni það.
Alt fólk í Canada, 16 ára og yfir verð-
ur að skrásetjast, nema undanþága sé
gefin. Það er þegnskylda allra að hlýða
þessu boði. Með því komist þér hjá
sektum og óþægindum.
Allir sem skrásettir hafa verið og
ganga síðan í hjónaband, verða að til-
kynna Chief Registrar for Canada það
innan 14 daga.
Lögin ákveða að allir sem skrásettir
eru beri með sér skrásetningarskírteini
sitt hvar sem þeir eru. Þú verður máske
að framvísa því hvar og hvenær sem er.
Hver sem skrásettur er og týnir skír-
teini sinu, eyðileggur eða á annan hátt
skemmir það, verður að fá sér nýtt skír-
teini. (Eyðublöð og upplýsingar fást
hjá öllum Póstmeisturum í Canada).
■llll
l
'/Æ
\\S2*.
HUMPHRIY MITCHELL, Mlnl.t.r ol Labour, Ottawa
CANADA