Heimskringla - 09.08.1944, Qupperneq 1
*“—-—■— —-—- —'— ■
IWe recommend for
your approval our
"BUTTER-NUT
LOAF "
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
-------------_____----
LVIII. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN. 9. ÁGÚST 1944
We recommend for
your approval our
"BUTTER-NUT
LOAF"
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
NÚMER 45
3xéttaglixlit
Islendingadagurinn
Hátíðin á Gimli var ekki eins
íjölsótt af Winnipeg-íslending-
um og undanfarin ár. Ástæðan
fyrir því var eflaust rigning og
þrumur að morgni hátíðardags-
ins, sem dróg úr áhuganum og
sem hjá sumum hefir kanske
ekki verið mikill. En af fólki var
samt margt annárs staðar að, og
einkum úr Gimli-bæ og nágrenn-
inu, svo að yfir svipaðan mann-
fjölda sýndist að líta og vana-
lega.
Norður á Gimli rigndi ekkert;
loftið var skýjað og svali lék um
lundinn. Fyrir útisamkomu var
veðrið mjög ákjósanlegt.
Ávörp og kvæði sem flutt
voru á hátíðinni, eru hér birt.
Aðal-ræðurnar, sem þeir dr.
Richard Beck og Karl Tþorkels-
son kennari flutu, verða hér
ekki birtar, vegna þess að þær
voru ekki nema að litlu leyti
skrifaðar. Getur verið að blöð-
unum berist þær síðar. Dr. Beck
sagði frá ferð sinni og viðtökum
heima og bar Vestur-íslending-
um kveðjur. Mr. Thorkelsson
ræddi þætti úr sögu Canada og
mintist á stefnu þess í alþjóða-
málum; aðhyltist þar alþjóða-
bandalag eins og stjórnarformað-
ur landsins nú gerir. Ennfrem-
ur ávörpuðu þingmennirnir ís-
lenzku, Skúli Sigfússon og G. S.
Thorvaldson lögfr. áheyrendur,
og gestur einn lengra-að, Ben S.
Gröndal, yngsti blaðamaður Is-
lands, sem í Heimskringlu hefir
skrifað nokkrar skemtilegar
greinar, sagði nokkur orð, sem
vel voru rómuð af áheyrendum.
Hátíðahaldið fór fram með
sömu reglu og áður. Blandaður
kór söng nú í fyrsta sinni og var
að því tilbreyting.
Ekki heyrðum vér annað en á-
heyrendur hefðu notið skemtun-
ar af að vera á hátíijinni.
Samsæti fyi’ir Beck
Stjórnarnefnd Þjóðræknisfé-
lagsins braut brauð með dr.
Richard Beck og frú hans í gær-
kvöldi á Marlborough hótel í
Winnipeg. Tilefnið var heim-
koma forsetans úr íslandsferð-
inni. Bauð stjórnarnefnd rit-
stjórum íslenzku blaðanna að
vera viðstöddumj Grettir Jó-
hann’ssyni konsúl, móður Rich-
ard Beck, bróður hans, Jóhanni
forstjóra og frú. Þá voru og
frú S. E. Björnson frá Árborg og
frú A. P. Jóhannsson viðstadd-
ar. Dr. Beck gerði stjórnar-
nefndinni grein fyrir för sinni,
sem var eins og kunnugt er af
skeytum, sem að heiman hafa
verið að birtast, hin ágætasta og
ástúðlegum móttökum af hálfu
stjórnar íslands og þjóðar.
Hugulsemi stjórnar Islands að
bjóða Vestur-íslendingum að
senda fulltrúa á lýðveldishátíð-
ina, mun hér lengi minst veröa.
Lýstu allir er til máls tóku mik-
illi ánægju yfir þessu um leið og
starfs fulltrúans, dr. Becks, var
minst og þakkað. Hugir þeirra
er viðstaddir voru, voru áreið-
anlega heima á íslandi meðan dr.
Beck gaf skýrslu sina og sagði
frá hinum ágæta samvinnu- og
samúðarhug þjóðarinnar til
Vestur-Islendinga Ferð dr.
Becks heim verður vissulega eitt
af því, sem stórkostlega styður
að auknu sambandi við heima-
þjóðina, en það er það, sem oss
ríður mest á í þjóðræknisstarf-
'inu vestra.
Frú R. Beck var að verðugu
minst af mörgum ræðumaiana,J
og lAmóagnix
sem í öllu þjóðræknisstarfi
manns síns hefir átt miklu
meiri þátt, en almenningi ■ er
kunnugt.
Samsætið stóð yfir á fjórðu
klukkustund.
Sig’ui’för Mannings
Þjóðeyrisstjórnin í Alberta
var endurkosin í fjórða sinni í
gær, með svo stórfeldum sigri,
að undrun vekur.
Flokkur Mannings, núverandi
stjórnarformaður, hefir þegar
lilotið 39 þingsæti, en er á undan
í 10 öðrum. Flokkurinn er lík-
legur til að hafa alt að 50 þing-
menn, af 57 alls á þingi.
Óháði flokkurinn hefir engu
sæti náð ennþá, en er á undan í
fimm.
C. C. F. hafa komið einu þing-
mannsefni að og eru á undan í
einu kjördæmi.
Þjóðeyrisflokkurinn var alls
staðar mjög á undan út um sveit-
ir. Hann bjóst við að tapa þing-
sætum í borgunum Calgary og
Edmonton. Samt fór nú svo í
Edmonton, þar sem Manning
sótti sjálfur, að hann hlaut þar
fleiri atkvæði, en nokkur einn
maður hefir áður gert. Elmer E.
Roper, C. C. F. foringi, má heita
að hafa náð kosningu og verð-
ur að líkindum eini maðurinn á
þingi, eins og áður, úr þeim
flokki. Það er að vísu annar
C. C. F. framarlega í Calgary, en
hann er óviss ennþá um kosn-
ingu.
Óháði flokkurinn (liberalar, í-
haldsmenn o. s. frv.) gera betur
en C. C. F. og ná að líkindum 4
sætum, en varla meiru.
Nationalistar sigra eystra
í Quebec-fylki standa nú sak-
ir þannig eftir kosningarnar í
gær, að Duplessis og National-
istar eru fremstir, skortir aðeins
eitt þingsæti til að hafa meiri-
hluta allra flokka. Flokkur þessi
hefir nú 45 sæti„ en liberal
flokkurinn, Godbout-stjórnin, er
var við völd, hefir náð í 37 þing-
sæti. Tala þingmanna alls, er
91. Bloc Populaire flokkurinn
náði 4 sætum, en C. C. F. einU.
Ófrétt er enn úr tveimur kjör-
dæmum, svo Duplessis er lík-
legur .til að hafa að lokum meiri-
hluta Hitt þykir mikið vafa-
mál, hvort fylkisstjóri taki kosn-
ingu hans góða og gilda og skipi
heldur Godbout liberal stjórn-
inni að mynda stjórn, með fylgi
Bloc Papulaire og C. C. F., ef
þess er kostur. Duplessis-flokk-
urinn þykir halda nationalista
stefnuna svo ákaft fram að full-
komna andúð leiði af því gegn
öllu brezku.
Frá stríðinu
í síðustu fréttum frá Moskva
er haldið fram, að Þjóðverjar
hafi háð gagnsókn á öllum aust-
urwígstöðvum Þýzkalands, sem
eru um 1000 mílur að lengd, en
rauði herinn hafi víðast hrakið
þá til baka og sæki fram þrátt
fyrir alt. Mannfall segja
Moskva-fréttir mikið hafa orðið
af Þjóðverjum.
A Frakklandi hefir her banda-
manna náð að mestu Bittany-
skaganum og hefir sóknina, en
leiðin til Parísar reynist torfær.
Guðjón Ármann frá Grafton,
N. D., var hér nyrðra um helg-
ina og sótti Islendingadaginn á
Gimli. Hann hefir þann góða sið
að sækja öll hin meiri íslenzk
mót sem hér eru haldin og væri
I betur, að svo gerðu fleiri.
Dr. Guðmundur Finnbogason látinn
Frétt hefir borist vestur um haf af því, að dr. Guðmundur
Finnbogason, hafi látist 17. júlí. Hann var á ferðalagi og var
staddur á Sauðárkróki, er andlátið bar að. Vegna þess að
frétt þessi barst oss ekki fyr en í gærkvöldi, verður í þetta sinn
ekki hægt að minnast hins látna, en með honum sér íslenzk
þjóð á bak einum sínum mesta rithöfundi, mentafrömuði og
í hvívetna merkasta manni.
íslendinga báðum megin hafsins,
og ætti að leggja mikla rækt við
að treysta og auka persónuleg
tengsl ættmenna og vina yfir
hafið.”
Það mátti finna fasta trú og
innilega hrifningu í orðum Dr.
Becks, er hann svaraði spurn-
ingu minni um það, hversu hon-
um hefði litist á hina íslenzku
þjóð í heild og íslenzkt menn-
ingarlíf, eftir að hann hafði ver-
ið að heiman svo lengi. “íslend-
ingar,” sagði Dr. Beck, “sýndu
með því, hversu virðulega þeir
komu fram á lýðveldishátíðinni,
að þeir standa á fastri rót menn-
ingarlega og þeir sýndu enn-
fremur, að þeim er að öllu leyti
treystandi til að fara með mál
sín án nokkurrar erlendrar í-
hlutunar, nú er þjóðin hefir tekið
sæti meðal hinna fullfrjálsu lýð-!
ræðisþjóða. Annars sannar öll
saga íslenzku þjóðarinnar það.
að hún býr yfir þeim anda, þróttij
og atgerfi, sem svo lítil þjóð þarf
til þess að verða verðug fulls
sjálfsforræðis. Hinar geysimiklu
framfarir, sem orðið hafa á Is-
landi á síðustu árum bera því ó-
j rækan vott, að hin íslenzka þjóð
er þess fullfær að vera húsbóndi
mbii—himim „„M á sínu heimili í orðsins sannasta
— ■ 'V...............■ - == í skilningi. Ekki má gleyma hinu
RICHARD BECK j heima á íslandi í huga, þótt margþætta og auðuga menning-
KOMINN HEIM hann væri kominn hingað vest-; arlífi, sem á sér stað á íslandi.
------- j ur, og mér fanst sem eg hefði Sem dæmi um það má nefna hina
Eftir Benedikt Gröndal
verið heima nokkra stund, með-j geysimiklu bókaútgáfu, sem nú
an við töluðum um ferðir BecksJ er heima, og hinn glæsilegi há-
“Það var mér sérstakt ánægju-l ?kóli í Reykjavík og hinn ný-
efni og gæfa,” sagði hann, “að fa reisti sjómannaskóli er minnis-
að koma fram sem fulltrúi ís-imeriíi um það-”
Eg tók eftir því með mikilli
Grand Forks, N. D. — “Eg hef
aitaf verið stoltur af þjóð minni,
en aldrei hef eg verið stoltari en
eg var af því, hversu hún komjlendinga vestan hafs og flytja
fram á þeim örlagaríka og sögu-j kveðjur og heillaóskir til þjoðar-( ánægju,” hélt Dr. Beck áfram,
lega degi 17. júní s. 1„ er lýðveldi' innar. Án þess að fella nokkurnj “að menn hafa notað hið mikla
íslands var endurreist.” Þannig dóm á það, hvernig mér fórst það fé, sem flestir hafa nú með hönd-
fórust Dr. Richard Beck orð, er
hann leit yfir tveggja mánaða
ferð til íslands, þar sem hann
var fulltrúi Vestur-Islendinga
við lýðveldishátíðina 17. júní.
Hann kom aftur rétt í tíma til að
vera viðstaddur Islendingadag-
inn að Gimli.
Dr. Beck ljómaði allur af á-
nægju og lífsfjöri, gildur af
skyri og rjóma og átti vart orð
til að lýsa gleði sinni yfir ferð-
inni og móttökunum heima. —
Hann hafði ferðast flugleiðis og
farið svo hratt á milli landa, að
íslenzk mold var enn á skóhlíf-
um hans er hann kom til Grand
Forks, og hann gat fært konu
sinni fersk, íslenzk jarðarber.
Það hafði verið frámuna tíð nær
allan tímann, sem hann var
heima og hitar miklir í Reykja-
vík. Það var bersýnilegt, að
ferðin mundi verða Dr. Beck ó-
þrjótandi efni í ræður og frásög-
ur, en eg bað hann þó að segja í
stuttu máli frá aðalatriðunum úr
íerðasögunni.
“Hátindur ferðar minnar,”
sagði Dr. Beck, “var að sjálf-
sögðu lýðveldishátíðin, þar sem
eg kom fram sem fulltrúi Vest-
ur-íslendinga. Endurminningin
um þá hátíð mun verða mér ó-
gleymanleg, og um hana mun
ávalt leika mikill ljómi í huga
mínum, bæði vegna þess, hversu
sögulegur atburður hún var, og
ekki síður vegna þess, hversu
virðulega og prýðilega þjóðin
kom fram við þetta tækifæri. Að
vísu var þungviðri og dimt í lofti
þennan dag, en engu síður var
bjart yfir deginum. Menn létu
sig engu skifta óhagstætt veður-
far, en sýndu það fyllilega að
þeim var ljóst, hversu mikilvæg-
ur dagurinn var, er hjartfólgn-
asti draumur þjóðarinnar rætt-
ist
Dr. Beck lýsti fyrir mér há-
tíðahöldunum, og er hann tal-
aði um menn og málefni heima
var bersvnilegt, að hann va*- <*nn
starf úr hendi, þá væri það van-
þakklæti að geta þess ekki,
hversu vel kveðjunum frá Is-
um heima, til að prýða heimiii
sín, meðal annars með málverk-
um og öðrum hætti, sem ber
lendingum hér vestra var fagnað menningarbrag þjóðarinnar fag-
af mannfjöldanum á Þingvöllum urt vitni. I íslenzkum listum er
þenna dag, þar munu hafa verið um að ræða mikinn gróður og
um 25,000 manns.” | bar listsýning sú, sem efnt var
“Fyrsta opinbera starf mitt,”| í sambandi við lýðveldishá-
liélt Dr. Beck áfram, “var að af-| tíðina, því glöggt vitni. Á ís-
henda forseta Islands (þáverandi lenzka þjóðin áreiðanlega í sín-
ríkisstjóra), Sveini Björnssyni um hópi marga gáfaða og efni-
skrautlegt skírteini þess efnis að ie§a listamenn, ekki sízt ef mið-
hann hefði verið kjörinn verna-' a® er við höfðatölu. | Önnur
ari Þjóðræknisfélagsins. Eftir merkileg sýning var haldin í
hátíðina bárust mér beiðnir um| sanibandi við hátíðina. Var það
að koma fram og halda ræður á' sýning um frdsis- og menningar-
ýmsum stöðum innan og utan j baráttu íslenzku þjóðarinnar,
Reykjavíkur, svo margar að eg' cem haldin var í Mentaskólanum
gat ei orðið við þeim öllum. Allirj1 Reykjavík. Gat enginn gengið
vildu fá fregnir af frændum og um herbergi þessara gömlu og
vinum vestra og alla langaði til' sögulcgu byggingar og skoðað
að heyra af starfi landa hérna' sýninguna án þess að fyllast eigi
megin hafsins og þjóðræknisbar-j nokkrum metnaði yfir því,
áttu þeirra. Eg ferðaðist víða um hvernig vorri fámennu þjóð hef •
Austur-, Norður- og Vesturland,
og get eg ekki rakið þá ferðasögu
ir á liðnum öldum tekist, oft við
hin örðugustu kjör, að halda við
hér, en eg mun hafa flutt alt aðj hjá sér menningarlífi á háu stigi.
40 ræðum á ýmsum stöðum. Vilj Þeirri þjóð, sem það hefir getað,
eg geta þess, að ríkisstjórn Is- mun án efa auðnast að koma
lands, sérstaklega utanríkisráðu-j skipi sínu heilu í höfn á komandi
neytið og utanríkisráðherra, að-; árum.”
stoðuðu mig á hinn ágætastaj Mér var áhugi að heyra, hvað
hátt á ferðum mínum og sá mér
fyrir farartækjum.”
Dr. Beck kvaðst hafa ánægju
af að segja, að hann hafi hvar-
vetna sem fulltrúi Vestur-íslend-
inga átt sem ágætustum og höfð-
inglegustum viðtökum að fagna.
Hann kvað áhuga Islendinga á
að fá fregnir af ættingjum og!
Dr. Beck hefði að segja um her-
námið á Islandi. Sjálfur hafði
eg verið heima og séð fyrstu
amerísku hermennina koma, séð
erfiðleikana í byrjun, séð þjóð-
ina og hermennina kynnast og
sambúð þeirra batna hröðum
skrefum. Dr. Beck mæltist svo:
“Hernámið hefir að sjálfsögðu
vinum vestra mjög mikinn. Vilji verið sérstakur þáttur í lífi þjóð-
þeirra til að halda sambandi við( arinnar, og ber þó að nota orðið
vini og venzlamenn vestra kom hernám í sérstökum skilningi er
glögt fram, er Dr. Beck hafði við-' talað er um dvöl ameríska hers-
talstíma í stjórnarráðinu nokkra ins á íslandi. Vitanlega hefir
morgna og menri komu tugum1 það haft ýms vandkvæði í för
saman til að leita upplýsinga um með sér, og það hefir markað
frændfólk og vini í Ameríku. J nokkur spor bæði í daglegt líf og
“Eg reyndi að greiða úr spurn- menningarlíf þjóðarinnar. Eigi
ingum þessa fólk^ eftir beztu fékk eg þó betur séð, en sam-
getu,” sagði Dr. Beck, “en eg erj komulagið milli hersins og þjóð-
sannfærður um að hér er um að arinnar væri mjög gott.”
ræða mikilvægt atriði í sambandi1 Dr. Beck fór, sem áður var
sagt, víða um land, og var frá-
bærlega tekið, og var hann leyst-
ur út með gjöfum, góðum ræðum
og kvæðum. Það má fljótt finna
í samtali við hann, að hann lítur
á þetta sem velvild og vináttu í
garð Vestur-íslendinga allra,
sem hann var fulltrúi fyrir, engu
síður en í garð hans sjálfs.
“Ríkastar verða mér í huga
endurminningarnar um hina
söguríku hátíð á Þingvöllum,”
sagði Dr. Beck að lokum, “svo og
viðtökurnar sem eg sem tals-
maður Vestur-lslendinga átti
hvarvetna að fagna, svo og hin-
ar geysilegu verklegu framfarir
og hið fjölbreytta menningarlif
þjóðarinnar. Eg kem úr ferða-
lagi þessu fasttrúaðri á íslenzkt
þjóðerni, þroskamátt íslenzkra
menningarerfða. Eg er einnig
sannfærðari en nokkru sinni um
það, að Islendingar hér vestra
verða sem beztir borgarar bæði
í Canada og Bandaríkjunum
með því að varðveita og ávaxta
hinn dýrmæta menningararf
sinn.”
•
Hér er gott tækifæri til að
sýna aðra hlið á ferð Becks. Hann
hefir sagt okkur sjálfur frá ferð-
inni og þýðingu hennar eins og
hún kom honum fyrir sjónir.
Hér á eftir verða prentuð um-
mæli eftir íslenzkan blaðamann,
sem sýna, hvern veg íslendingar
heima litu á ferð þessa fulltrúa
Vestur-lslendinga. Vilhjálmur
Vilhjálmsson, sem ritar dálkinn
Hannes á Horninu í Alþýðublað-
ið, fór eftirfarandi orðum um
Beck daginn, sem hann fór frá
íslandi:
“Richard Beck fulltrúi Vestur-
Islendinga á þjóðhátíðinni, er nú
farinn eða að fara heim vestur
um loftið (maður hættir alveg
að segja vestur um haf) eftir
tveSgja mánaða dvöl hér á landi.
Hann var góður og vinsæll gest-
ur hér, enda hygg eg að hann
hafi orðið áþreifanlega var við
þann vina og bróðurhug sem við
berum til landa okkar vestra.
Richard Beck hafði nóg að gera
hér meðan hann dvaldi hér, enda
vildi hann sannarlega nota
hverja mínútu sem allra bezt.
Hann kvaddi þjóðina í út-
varpinu á sunnudagskvöld og eg
hygg að fleirum hafi fundist eins
og mér, að hann með orðum sín-
um skapaði alt í einu hátíð með
þjóðinni þetta kvöld, svo innileg
og glæsileg voru orð hans og svo
áhrifamikil ræða hans. Eg hygg
að hann hafi þessar mínútur
snortið hjarta hvers einasta Is-
lendings. Hann mun og hafa
túlkað tilfinningar þeirra mörgu,
sem dveljast fjarri ættjörðinni
og við hér heima hljótum að
fyllast djúpri lotningu fyrir
slíkri ást til landsins okkar allra.
Eg vil minna á eitt í ræðu
Becks. Hann sagðist undrast
þær stórkostlegu framfarir sem
orðið hefðu hér á landi á öllum
sviðum síðan 1930. Það er gott
að láta góðan gest segja sér
þetta — því að sannleikurinn er
sá, að við viljum í þreyjufullri
eftirvæntingu okkar gleyma því
sem við höfum gert. En það á
líka að vera okkur hvatning til
þess að halda áfram á þeirri
braut, — svo að hér geti skapast
sem glæsilegust menning og
þjóðin geti lifað við hin beztu
kjör.”
Walter J. Líndal dómari hélt
ræðu í Kiwanis-klúbbnum í
Brandon s. 1. mánudag, að beiðni
klúbbsins.
* * *
Böðvar bóndi Jónsson frá
Langruth, Man., var að heim-
sækja kunningja í bænum í gær.