Heimskringla - 09.08.1944, Blaðsíða 5
WINNIPEG, 9. ÁGÚST 1944
HEIMSKRINGLA
5. SÍÐA
MINNI ÍSLANDS
Þú háttvirta ísland, vort hjartkæra land,
Vér heilsum þér fagnandi í dag.
Að minnast þín, ættjörð, og yrkja’ um þig ljóð
Það eykur vorn þjóðræknis brag.
Hér íslenzki manngrúinn fagur og frjáls
Sér fylkir í anda þér hjá.
Og lútandi heyrir á heilagri stund
Þitt hjarta af fögnuði slá.
Þú eldþrungni hólmi, viðheimskautið kalt
Ert heimsfrægast land undir sól.
Með elfur og heiðjökla, fossa og fjöll
Og feðranna þjóðkunnu ból,
Þar geymdist vor auðlegð um aldanna fjöld,
Og ódauðleg smáþjóðar sál,
Sem barðist og sigraði, trúföst og traust
Og talar sitt íslenzka mál.
Nú bjóða þér félagsskap frelsisins lönd
Og framtíðin brosir við þér.
Hinn voldugi Breti vill eiga þig að
Og annast, til virðingar sér,
Hann Jónatan veit hversu verðmæt þú ert,
Hann verndar þitt sjálfstæði og frið;
Sem ástríkur kærasti kyssti þig strax
Og kaus þér að standa við hlið.
Vér blessum þann dag þegar brotnaði vald,
Sem batt þig og deyddi til hálfs;
Því gleðst nú þinn lýður og guðirnir eins
Að getur þú upprisið frjáls.
Að morgni dags ljómar þitt frelsi og frægð
Og fyrnist þitt langvinna stríð.
Guð blessi þig, ísland, með velgengni og vernd,
Sem vari um erlífa tíð.
V. J. Guttormsson
sem það hefir fengið, og þakkaði
óllum sem starfað höfðu í sam-
bandi við útgáfu þess.
Séra E. J. Melan gaf munn-
lega skýrslu um fræðslumál. —(
Lexíur hafa/verið fengnar hjá
A. U. A. og fríkirkjufélagi í
Bandaríkjunum. Lexíur fyrir
72 börn kosta um $100 yfir árið.
Þessar lexíur hafa alla reiðu
verið sendar út til ýmsra barna
og góður rómur hefir verið gerð-
ur að þeim. Vonast er gftir að
árangurinn verði góður.
Séra Eyjólfur J. Melan gaf
einnig skýrslu um sálmabóka-|
mál og sagði að nefndin sem sett j
hafði verið í þetta mál hefði
leitast við, á árinu, um mögu-j
leika að fjölrita og gefa út lítið
sálmasafn. Ýmsir * erfiðleikar
stóðu í vegi fyrir þessu fyrirtæki,
og þar stendur málið enn.
Þá lá fyrir , að lesa safnaða
skýrslur sem var gert. Söfnuð-
irnir sem höfðu sent inn skýrsl-
ur voru: Riverton, Quill Lake.
Lundar, Árborg, Piney, Árnes,
Gimli, Winnipeg. Séra E. J.
Melan gaf munnlega skýrslu
fyrir söfnuðinn á Mikley, þar
sem Gestur Pálsson var forseti.
Þá gerði Páll S. Pálsson tillögu
um að fundi sé frestað til 12.45
næsta dag (laugardag). B. E.
Johnson studdi og tillagan var
samþykt. — Og þá var fundi
frestað.
•
Annar fundur þingsins byrj-
aði kl. 1, laugardaginn 24. júní.
Þá um morguninn hafði kvenna-
sambandið byrjað þing sitt, en
nefndir aðal þingsins höfðu mætt
og samið nefndarálit sem fram
áttu að koma á þinginu.
Forsetinn setti fundinn, og
kallaði fyrst á fjármálanefndina
og bað hana að bera fram álit
sitt fyrir þingið. Dr. S. E.
Björnsson, formaður nefndar-^
innar las nefndarálitið, sem var
í sex liðum.
Árni Thordarson gerði tillögu
og Páll S. Pálsson studdi, um að
álitið verði tekið fyrir lið fyrir
lið. Samþykt. Fyrstu tveir
liðirnir voru samþyktir án
breytinga. Um þriðja liðinn|
urðu umræður, en að lokum var,
hann einnig samþyktur. Umj
fjórða liðinn urðu einnig miklar
umræður. Breytingartillaga var^
gerð, en var feld og að lokum
var liðurinn borinn upp og sam-
þyktur án breytinga. Og þá
voru 5. og 6. liðurinn lesnir og
báðir samþyktir. Þá gerði Páli
S. Pálsson tillögu og G. O. Ein-
arsson studdi, um að samþykkja
álitið í heild sinni, og tillagan
var samþykt, sem var á þessa
leið:
Álit fjármálanefndar
Nefndin leggur til eftirfylgj-
andi:
1. Nefndin lýsir ánægju sinni
yfir því, sem gert var á síðasta
ári í sambandi við námskeiðið á
Hnausum og mælist til þess, að
samskonar fyrirkomulagi verði
haldið áfram í sumar við fyrir-
hugað námskeið sem verður
haldið á Sumarheimilinu frá 20.
til 27. ágúst. Nefndin lýsir
einnig ánægju sinni yfir því, að
styrkur hefir komið austan að
frá A. U. A. og A. U. Y. til
styrktar þessu fyrirtæki, til að
borga eitthvað af ferðakostnaði
námsskeiðarmanna, sunnudaga-
skóla og ungmenna, sem koma
langt að.
2. Nefndin leggur til að
stjórnarnefndinni sé heimilað að
sjá um útvarp á guðsþjónustum
eins og að undanförnu hefir ver-
ið gert. Ennfremur mælist
nefndin til þess, að stjórnar-
nefnd leiti fyrir sér um mögu-
leika á því, að fá fleiri útvarps-
messur jafnvel þó að það gæti
ekki orðið á venjulegum messu-
tímum. Þá vill nefndin benda á
það að útvarpssjóðurinn ætti að
notast eingöngu fyrir útvarps-
messur.
3. Nefndin leggur til að
kirkjufélagsnefndinni sé heimil-
að að styrkja eftir föngum mann
til guðfræðisnáms, eigi hún völ
á einhverjum, sem hún álítur
heppilegan til þess, og til fram-
tíðarstarfs meðal Vestur-lslend-
inga.
4. Nefndin leggur til að rit-
ara kirkjufélagsins láti prenta
útdrátt úr kirkjuþingstíðindun-
um, og að eintak úr þeim út-
drætti verði sent ritara hvers
safnaðar til hliðsjónar við starf
safnaðarins á árinu, einnig til
fulltrúa, sem setið hafa þetta
kirkjuþing.
5. Nefndin vill minna á það
nauðsynjamál þessa félagsskap-
ar að sjóður sé sem fyrst mynd-
aður til framtíðar starfsemi, og:
að æskilegt sé að söfnuðirnir,
haldi því máli vakandi með óskj
um að menn minnist safnaða
sinna og kirkjufélagsins í erfða-
skrám sínum.
6. Nefndin leggur til að öll-
um fjármálum sem um útgjöld
fjalla af hálfu kirkjufélagsins, sé
á þinginu vísað til fjármála-
nefndar.
Winnipeg, 23. júní 1944.
S. E. Björnsson
J. B. Skaptason.
Björn Bjarnason
A. Thordarson
Mrs. B. Björnson
Guðm. Einarsson
• J. O. Björnsson
DROTNING STÓR-BRETLANDS
Elizabeth drotning varð 44 ára síðastl. föstudag. Hún er
fædd 4. ágúst árið 1900. Á afmælisdag hennar voru margar
byggingar í Winnipeg flöggum prýddar í virðingar- og minn-
ingarskyni við hennar hátign. Annars var engin tilbreyting
hér um slóðir. — Á Englandi var sama að segja, að engin há-
tíðahöld voru þar um hönd höfð. Hún sat heima ásamt manni
sínum og dætrum og tók á móti heillaskeytum er henni bárust
víðsvegar að — frá brezku nýlendunum og erlendum þjóðum
um heim allan, auk mesta fjölda frá Bretlandseyjum.
Að þessu máli afgreiddu gerði
Sveinn Thorvaldson tillögu um
að fundi verði frestað, til að veita
mönnum tækifæri til að vera
viðstaddir við kveðjuathöfnina
sem þá átti að vera haldin í
Fyrstu lútersku kirkjunni, fyrir
Dr. B. J. Brandson. Páll S. Páls-
son studdi tillöguna, og hún var
samþykt. Þá gengu allir af þing-
inu og fóru til lútersku kirkj-
unnar í virðingarskyni við minn-
ingu hins góða manns, sem þar
var verið að kveðja.
Framh.
SÍMSKEYTI
frá utanríkisráðherra íslands
til ræðismannsskrifstofunnar
Reykjavík, 1. ágúst 1944
Grettir Leo Jóhannson,
Consul of Iceland,
Winnipeg, Canada.
Mánudaginn 24. júlí var Dr.
Richard Beck heiðursgestur hjá
ættingjum sínum í Reykjavík. Á
þriðjudag var hann gestur fyrr-
um sambekkingja sinna í
Reykjavíkur Mentaskóla. Mið-
vikudaginn var hann heiðurs-
gestur í samsæti er Austfirðinga-
félagið og félag Austfirskra
kvenna stóðu fyrir í Oddfellow
húsinu í Reykjavík, þár sem yfir
100 Austfirðingar voru mættir.
Var honum afhent að gjöf brjóst-
líkneski af sér gert af frænda
sínum Ríkarði Jónssyni mynd-
höggvara. Fimtudaginn hélt
hann ræðu á Elliheimilinu í
Reykjavík og flptti kveðjur frá
Vesturheimi til gamla fólksins.
Um kvöldið var hann heiðurs-
gestur hjá Góðtemplurum. Á
föstudaginn afhenti hann eir-
töflu með áletrun frá Þjóðrækn-
isfélagi íslendinga í Vestur-
heimi Sveini Björnssyni forseta
Islands með hlýjum trúnaðar-
kveðjum frá Islendingum í Vest-
urheimi. Sveinn Björnsson for-
seti þakkaði gjöfina, og sagðist
vera sannfærður um, að gjöfin
væri viðtekin með sama hlý-
leika sem hún bæri með sér, hann
kvaðst virða þjóðræknisanda
Vestur-lslendinga, þeirra heitu
tilfinningar til gamla landsins.
Um kvöldið var hann heiðurs-
gestur í embættislegu boði hjá
utanríkisráðherra Islands og frú
Þór að heimili þeirra við tjörn-
ina í Reykjavík. Sveinn Björns-
son forseti og Björn Þórðarsson
forsætisráðherra sátu boðið á-
samt mörgum vísinda- og menta-
mönnum og Vestur-lslending-
um. Eftirfylgjandi fluttu ræð-
ur: Björn Þórðarson forsætisráð-
herra, Vilhjálmur Þór utanríkis-
ráðherra, Dr. Sigurður Nordal,
Próf. Ágúst H. Bjarnason, en
heiðursgesturinn svaraði með
snjallri óundirbúinni ræðu þar
sem Dr. Beck fór lofsamlegum
orðum um hina sögufrægu ís-
lenzku gestrisni: sagði ennfrem-
ur, að sér hafi hitnað um hjart
að ekki einungis af því að sjá sitt
ástkæra föðurland eftir fjórtán
ára fjærveru, heldur og einnig
fyrir að eiga kost á því að sjá
allar framfarir og kynnast bjart-
sýnum og hlýjum tilfinningum
gagnvart Vesturheimi og gera
verðmeiri þjóðræknisstarfsem-
ina í Vesturheimi.
Á laugardaginn hélt Árni G
Eylands forseti Þjóðræknisfé-
lags Islendinga heiðursgestinum
veizlu að Þingvöllum. Á sunnu-
dag var hann gestur Dr. Sigur-
geirs biskups Sigurðssonar eftir
að hafa flutt prédikun í Hall
grímssöfnuði við guðsþjónustu
sr. Jakobs Jónssonar. Á sunnu
aagskvöldið eftir afar annríka
viku, meðal annars ferðir til
Gullfoss og Geysis, áýarpaði Dr.
Beck íslenzku þjóðina yfir ríkis-
útvarpið, þakkaði alúðlegar við-
tökur og sagðist flytja með sér
hlýjar kveðjur vestur um haf.
Á mánudaginn 31. júlí heim-
sóttí hann Thor Jensen að Laga-
felli, býli hans skamt frá Reykja-
vik, seinna um daginn í boði hjá
elzta syni Jensens, Ólafi Thors
leiðtoga Sjálfstæðisflokksins. —
Fer héðan í dag.
Vilhjálmur Þór,
utanríkisráðherra
Viðvaningar
Nýliðinn gekk til foringja síns
og ávarpaði hann á eftirfarandi
hátt:
“Herra undirforingi”, sagði
hann kurteislega. “Eg er hrædd-
ur um að mér hafi orðið lagleg
skyssa á þegar eg lét skrá mig í
herinn. Eg hefði þá líklega átt
að skýra frá því að eg vildi fara í
flugliðið, en eg gleymdi því, og
KANADA: LAND OG ÞJOÐ
i.
Landið reis frá alda öðli
upp úr víðum sæ,
slegið döggvum, roðið röðli,
reifað mjúkum snæ.
Fuglar sungu í laufi léttu,
laxar stukku í ám,
hagadýrin hlupu um sléttu
himni undir blám.
II.
Landið beið um ótal alda raðir
eftir hvíta mannsins hönd, —
þar til íslands sveinar sigurglaðir
sigldu að Vínlands fögru strönd.
III.
Við lýsistýru í lágum sal
var letrað nafnið hans:
Hins fyrsta, er eygði Furðuströnd —
hins fyrsta hvíta manns,
sem brást þá gæfu, að festa fót
á fjörum þessa lands.
En margur síðar kappa knör
í kjölfar risti hans.
Og eftir langra alda skeið
varð álfan mönnum kvik;
því nýbygð reis við háls og hlíð
og hraun og skógarvik.
Hver bjálkakofi, brautu fjær,
var bóndans skýli og vörn,
er fyrstur sáði. í frjófga mold
og fyrstur gat þar börn.
Og borgir risu í bygð og vík,
og brautir girtu land.
Menn þráðu og sóttu frelsi og föng,
en fjáðu sérhvert band.
Frá öllum þjóðum þyrptist inn
hið þjáða en vaska lið.
Og stjón var háð og haldið þing —
að hvítra manna sið.
En þó var fjarri, að frelsis eykt
að fullu væri náð;
því styrjöld, styrjöld — ytra og inst —
er ævi mannsins háð.
Svo þeir, er engan áttu hlut
hins illa í þjóðarhag,
á blóðgum velli hlið við hlið
samt hinsta kvöddu dag.
Og enn oss mæða örlög grimm,
og ógna myrkravöld.
Vér ljós í austri eygjum samt
með áheit þúsundföld.
Þó skipist margt við skarðan hlut,
og skift sé tunga og mál,
í afli sára og sorgarelds
er soðið þjóðar stál.
IV.
Þér lækir smáu, er myndið ótal ár
- og elfarstrauma, er drekkur særinn blár,
og móður jörð fá megingjörðum vafið.
Svo er vort líf, vor unga hrausta þjóð;
hér allra landa streymir hjarta blóð —
og rennur loks í sama heildarhafið.
Þá rís þú, þjóð vor, voldug, fögur, frjáls,
með festar engar bundnar þér um háls,
og strauma lífs, er stíflur engar halda.
Er alt hið bezta úr allra þjóða her
í öflgan meginstraum hér blandar sér,
þá hefjast frelsi og vit og heill til valda.
Gísli Jónsson
nú hafa þeir sett mig í riddara-
liðið.”
“Nú! Hvað er athugavert við
riddaraliðið?” spurði undirfor-
inginn höstuglega.
“Nú, eiginlegt ekkert, að því
er eg get bezt séð,” sagði nýlið-
inn. “En það er eg sem er ó-
mögulegur. Eg veit ekkert um
hesta, eg hefi aldrei setið á hest-
iþaki á æfi minni, þess vegna
langar mig til þess að biðja yður
að lána mér meinlausan hest til
þess að byrja með.”
“Komdu hingað,” sagði liðsfor-
inginn, og ískyggilegum glampa
brá fyrir í augum hans. Hann
benti á grannvaxinn ungan hest
þar skamt frá: “Þarna er hestur-
inn þinn,” sagði hann. “Þú seg-.
ist aldrei hafa komið á hestbak.
Jæja! Þarna er þá hestur, sem
aldrei hefir verið komið á bak á!
Það er bezt að þið viðvaningarn-
ir vinnið saman!!”
John S. Brooks Limited
DUNVILLE, Ontario, Canada
MANUFACTURERS OF GILL NETTING
Okkar net eru búin til úr beztu tegund af hör tvinna
og “Sea Island Cotton”
Þér megið treysta bæði vörugœðum og verði
Allar pantanir fljótt og ábyggilega afgreiddar.
Captain M. R. Janes, Leland Hotel, Winnipeg
Umboðsmaður fyrir Manitoba, Saskatchewan og Alberta