Heimskringla - 09.08.1944, Blaðsíða 7
WINNIPEG, 9. ÁGÚST 1944
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA
DAN ARMINNINC
Mánudaginn 24. júlí s. 1. and-
aðist að heimili sínu, Winnipeg-'
osis, Man., Jón Jónsson. Hann
var fæddur 23. apríl 1874 á Með-'
alfelli í Nesjum í Hornafirði í!
Austur-Skaftafellssýslu.
Foreldrar hans voru hjónin
Jón Jónsson og Þórdís Halldórs-!
dóttir; hjá þeim ólst hann upp^
og var altaf með þeim þar til
þau dóu. Til þessa lands flutt-
ust þau hjón 1893, og 3 börn
þeirra, Jón, Vilborg og Halldóra,
hún dáin 1898.
Þetta fólk settist að í Nýja
Islandi í Isafoldarbygð, á landi,
sem kallað var Framnes. Svo(
færði það sig til þangað sem
Framnesbygð myndaðist og heim]
ilisnafnið fylgdi því og pósthúsið (
hlaut sama nafn, og varð Jón(
póstafgreiðslumaður þar og hafði
það embætti á hendi í 19 ár, eðaj
þar til hann flutti í burtu til(
Winnipeg 1921. Þá voru for-(
eldrar hans bæði dáin; Þórdís dó
1907, en Jón 1910.
í Winnipeg var hann í 7 ár,
flutti þá til Winnipegosis 1928;
gekk þá í félag með frænda sín-
um, Sigurjóni Stefánssyni (þeir
voru systkinasynir), með sögun-
armyllu, sem bæði sagar og hefl-
ar byggingarefni, en aðallega
bjuggu þeir til fiskikassa, og var(
Jón að mestu verkstjóri yfir því(
verki, því frændi hans hafði oft
öðru að sinna. Þeir áttu gufu-j
bát og var Sigurjón kafteinn á
honum, oft í ýmsum flutnings-
ferðum á .vatninu.
Eftir að foreldrar Jóns dóu
tóku þau systkinin við búskapn-
um, Vilborg og hann. Þau hafa
altaf búið saman með sæmd og
prýði, ógift og barnlaus.
Mig, sem þessar línur skrifa,
skortir alla rithæfileika til að
lýsa Jóni heitnum eins og vera
bæri. Hann var prýðisvel gefinn
maður, og er það óræk sönnun
fyrir því hvað mörg ábyrgðar-
störf hann hafði á hendi í Nýja
íslandi. Hann var skrifari Ár-
dalssafnaðar, hann var einn af
stofnendum rjómabúsins “North
Star” í Árborg og í stjórnarnefnd
þess og bókavörður lestrarfélags-
ins mörg ár, og virðingar maður
var hann einnig í þeirri sveit. Að
leysa öll þessi störf vel af hendi
er vel gert af manni sem engrar
skólamentunar naut, en gáfurn-
ar voru góðar.
Þessi 16 ár sem hann lifði í
Winnipegosis kynti hann sig að
öllu leiti vel í orðsins fylstu
merkingu, áreiðanlegur maður í
orði og athöfnum, fáskiftin um
annara hagi og orðvar með af-
brigðum. Hann var bókhneigð-
ur maður, las mikið og mundi
vel. Hann átti stórt og vandað
bókasafn, en þó hann læsi mikið
forsómaði hann ekki vinnuna;
honum féll ekki verk úr hendi
meðan nokkuð var til að gera,
eins lengi og kraftarnir leyfðu,
óg hirðumaður sem bezt má vera.
Það var mynaar umgengni á
heimili þeirra systkina jafnt inn-
anhúss og utan, gestrisni og alúð
létu þau öllum í té sem til þeirra
komu. Hann var ekki skráður
meðlimur neins félagsskapar hér
nema lestrarfélagsins, en hann
studdi bæði íslenzka söfnuðinn
og önnur þörf málefni með f jár-
framlögum.
Það var langt sjúkdómsstríð
Heimskringla á fslandi
Herra Björn Guðmundsson,
Reynimel 52, Reykjavík, hefir
aðalumboð fyrir Heimskringlu á
Islandi. Eru menn beðnir að
komast í samband við hann, við-
víkjandi áskriftar-gjöldum, og
einnig allir þeir sem gerast vilja
kaupendur hennar, hvar sem er
á landinu.
Hr. Guðmundsson er gjaldkeri
hjá Grænmetisverzlun ríkisins,
og þessvegna mjög handhægt
fyrir borgarbúa að hitta hann
að máli.
Professional and Business
=—= Directory -=
BREZKIR SKÓLAR Á STRÍÐSTfMUM
Miðdagsmáltíð í barnaskólum Bretlands. Börnin bíða
eftir ábætirnum.
INNKOLLUNARMENN HEIMSKRINGLU
Á fSLANDI
Reykjavík_____________Björn Guðmundsson, Reynimel 52
f CANADA
Antler, Sask....................................K. J. Abrahamson
Árnes, Man.......................Sumarliði J. Kárdal
Árborg, Man......................1....G. O. Einarsson
Baldur, Man...............................I...Sigitr. Sigvaldason
Beckville, Man.......................Björn Þórðarson
Belmont, Man...........................=..G. J. Oleson
Brown, Man...._...................Thorst. J. Gíslason
Cypress River, Man...................Guðm. Sveinsson
Dafoe, Sask............................S. S. Anderson
Ebor, Man.„,....................... K. J. Abrahamson
Elfros, Sask..................Mrs. J. H. Goodmundson
Eriksdale, Man...................... Ólafur Hallsson
Fishing Lake, Sask............... ...JRósm. Árnason
Foam Lake, Sask........................Rósm. Árnason
Gimli, Man._....................... K. Kjernested
Geysir, Man......................................Tím. Böðvarsson
Glenboro, Man..............................G. J. Oleson
Hayland, Man...........................Sig. B. Helgason
Hecla, Man............................Jóhann K. Johnson
Hnausa, Man..........................Gestur S. Vídal
Innisfail, Alta...............................Ófbigur Sigurðsson
Kandahar, Sask.........................S. S. Anderson
Keewatin, Ont.......................Bjarni Sveinssor.
Langruth, Man..........................Böðvar Jónsson
Leslie, Sask.......................Th. Guðmundsson
Lundar, Man.............................D. J. Líndal
Markerville, Alta.................. Ófeigur Sigurðsson
Mozart, Sask...........................S. S. Anderson
Narrows, Man........................... S. Sigfússon
Oák Point, Man........................Mrs. L. S. Taylor
Oakview, Man........................... S. Sigfússon
Otto, Man...........................Hjörtur Josephson
Piney, Man...............................S. V. Eyford
Red Deer, Alta..................... Ófeigur Sigurðsson
Riverton, Man....................... Einar A. Johnson
Reykjavík, Man,..,_...................Ingim. Ólafsson
Selkirk, Man...........................S. E. Davidson
Silver Bay, Man...i_._.................Hallur Hallson
Sinolair, Man.......................K. J. Abrahamson
Steep Rock, Man.............,._......(...Fred Snædal
Stony Hill, Man............................Björn Hördal
Tantallon, Sask.......................Árni S. Árnason
Thornhill, Man..........._.........Thorst. J. Gíslason
Víðir, Man............................Aug. Einarsson
Vancouver, B. C....................Mrs. Anna Harvey
Wapah, Man.........................-...Ingim. Ólafsson
Winnipegosis, Man...........................S. Oliver
Wynyard, Sask..........................S. S. Anderson
f BANDARÍKJUNUM
Bantry, N. Dak.........................ii. J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash................Mrs. John W. Johnson
Blaine, Wash.....................Magnús Thordarson
Grafton, N. Dak.....................
Ivanihoe, Minn.....................Miss C. V. Dalmann
Milton, N. Dak...........................S. Goodman
Minneota, Minn....................Miss C. V. Dalmann
Mountain, N. Dak------------------------C. Indriðason
National City, Calif.....John S. Laxdal, 736 E. 24th St.
Point Roberts, Wash.....................Asta Norman
Seattle, Wash.......J. J. Middal, 6723—-21st Ave. N. W.
Upham, N. Dak--------------------------E. J. Breiðfjörð
The Viking Press Ltd.
Winnipeg Manitoba
sem hann varð að líða, víst fult
l ár, með miklum þrautum síðasta1
tímann. Hann andaðist 24. júlí.
s. 1. Það er þungur harmur
í kveðinn að systir hans við þetta;
j fyrst að vera yfir honum allan
tíman og geta ekki linað neitt
þrautir hans, og fylgja honum
svo til grafarinnar, en hún bar
það alt með ró og stillingu. —
Þetta var hennar eina náið ást-
menni, og svo Sigurjón áður-
nefndur og systkini hans 3.
Hann var jarðaður í Winni-
pegosis grafreit 26. júlí að mörgu
fólki viðstöddu. Enskur prestur
flutti kveðjumál. Þar kvaddi
systirin hann við síðasta hvílu-
staðin með þakklátum huga fyr-
ir ástríka og bróðurlega um-
hyggju. 1 hinstu minning hans
i verður sígrænt blóm í sálu
I hennar. Vertu í guðs friði góði
j nágranni, við getum minst þín
bezt með því að breyta við ná-
ungann eins og þú breyttir við
samferðafólk þitt á lífsleiðinni.
August Johnson
MINNI ÍSLANDS
í LÖGRÉTTU
Lag: Eldgamla ísafold
Alþingis elzta mót
aldartugs réttarbót
réttlæta rök.
Dómstóla dregin skrá
dagsett er lögum hjá,
ljúfasta landsins þrá
lífsbjargar tök.
Saga þess sögð ei hér,
samt hana þekkja ber
þúsund ár þú,
hefir oss haldið vörð,
heimamál sinni gjörð,
borið og bygt í skörð,
barist með trú.
Hugljúfa foldin fríð,
friður þinn greyftur tíð,
guðsmáttar gjöf.
Ment er þín máttarstoð
mælt fram af drótt, það boð,
lögboði lyft á voð,
ljós sett á gröf.
Hátíð þess haldin er
hugljúfast gjalda þér,
góð þinga goð.
Lögrétta löngum var,
lögsagna dóma far,
kristni var kunngjör þar,
kær þjóðar stoð.
Úlfljótur árla sá
eiðfestu lögum hjá
lýðfrelsis lög.
Alsherjar orku mót,
unnið við sérhvern fót,
ákvæðið bana bót,
batt víga drög.
Lögboði landið bygt,
látum það standa vigt.
stöðva hvert stríð.
Það hefir þraut oss skráð,
þegnum í starfi og dáð,
miklað hvert mætast ráð,
margoft á tíð.
Minnast þess má vor þjóð,
máttar er skóp og hlóð,
skýrt merktan skjöld.
Yfir sinn manndóms móð,
merktan af vorri þjóð.
Lögboðið lagt við sjóð,
liggja við höld.
Ung þjóð á feðrafold,
fóstruð á hennar mold
silfur í sjóð.
Framstigið frelsis spor,
fléttast sem hugar þor,
mun gefast veglegt vor,
virðulegt, þjóð.
Erlendur Johnson
-Júní 1944.
GRÓÐLTR OG SANDFOK
Frh. frá 3. bls.
list — og eru lyginni þjónandi,
en ekki þeim veruleika, sem fel-
ur sannleikann í sér.”
1 lokakafla bókarinnar segir
loks:
“Eg hefi á það drepið, sem
raunar er hverjum og einum
ljóst, að öll hin stjórnmálalega
starfsemi íslenzkra kommúnista
hefir á sér einkenni æsingar og
ofstopa. Eg hefi fært ljós rök
að því, að afstaða þeirra til ís-
lenzkra mála hefir æfinlega ver-
ið mótuð í höfuðdráttum af trú
þeirra á óskeikulleika erlends
valds, en ekki mörkuð með tilliti
til íslenzkra þjóðfélagslegra og
menningarlegra aðstæðna. Eg
hefi einnig sýnt og sannað, að
afstaða þeirra til erlendra þjóða
og heimsviðburða hefir aftur og
aftur tekið breytingum, sem hafa
átt rætur sínar að rekja til átrún-
arar á erlent vald — og óskeikult
að þeirra dómi. Þá hefi eg leitt
þá sjálfa sem vitni um það, að
þeir líta svo á, að enginn, sem
ekki er kommúnisti, geti skrifað
skáldverk, sem hafi sannleiks-
gildi, og að jafnvel þau rit, sem
eru snildarverk að máli og stíl
og hafa að flytja áhrifamiklar og
heillandi lýsingar, geti verið
merkilegust fyrir það, hve ó-
merkileg þau eru, ef í þau vant-
ar hin kommúnistisku sjónarmið,
en hins vegar þurfi síður en svo
að vera um snild og fegurð að
ræða til þess að kvæði eða saga
—- samin í samræmi við hinn
“þróunarsögulega” skilning kom
múnsta og þeirra viðhorf við líf-
inu, geti talist góðar og gildar
bókmentir.”
•
Hér hefir verið farið fljótt
yfir sögu, og aðeins á fátt eitt
drepið, og það mjög lauslega. Öll
er bókin hið markvissasta og
rökstuddasta rit, sem birst hefir
á íslenzku um hina pólitísku of-
stækismenn, og þó einkum
kommúnista. Hvert orð og hver
setningin vegin, hvert atriði
rökstutt til hlítar. Þar að auki
er hún skemtileg, því að þekking
höfundarins er geysimikil og rit-
snildin og'krafturinn hrífandi.
—Tíminn. J. H.
Orrici Phoni
87 293
Rrs. Phoni
72 409
Framvegis verður Heims-
kringla fáanleg í lausasölu, hjá
hr. bóksala Lárus Blöndal, Skóla
vörðustíg 2, Reykjavík, Island.
Dr. L. A. Sigurdson
116 MEDICAL ARTS BLDG.
Ornci Hours:
12—1
4 p.M.—6 P.M.
AND BT APPOINTMENT
DR A. V. JOHNSON
DBNTIST
506 Somersrt Bldg.
Office 88 124 Res. 202 398
Dr. S. J. Jóhannesson
215 RUBY ST.
Beint suður af Banning
Talsimi 30 877
Viðtalstiml kl. 3—5 e.h.
andrews, andrews,
THORVALDSON &
EGGERTSON
Lögfrœðingar
Bank of Nova Scotia Bldg
Portage t>g Garry St.
Sími 98 291
DR. S. ZEAVIN
Physician & Surgeon
504 BOYD BLDG. - Phone 22 616
Office hrs.: 2—6 p.m.
Res. 896 Garfield St., Ph. 34 407
DRS. H. R. and H. W.
TWEED
Tannlœknar
406 TOR0ffi;oV.EN. TROSTS
Cor. Portage Ave. og Smith St.
PHONE 26 545 WINNIPEG
J. J. Swanson & Co. Ltd.
RKÁLTORS
Rental, Insurance and Finandal
Agentt
Siml: 26 821
808 AVENUE BLDG.—Winnlpeg
THE WATCH SHOP
CARL K. THORLAKSON
Dlamand and Wedding Rings
Agent for Bulova WaAcbes
Uarrlage Licenses Issued
699 SARGENT AVE
SUNNYSIDE BARBER
& BEAUTY SHOP
Hárskurðar og rakara stofa.
Snyrtingar salur fyrir kvenfólk.
Ábyggileg og greið viðskifti.
Simi 25 566
875 SARGENT Ave., Winnipeg
Clifford Oshanek, eigandi
H. HALDORSON
BUILDER
23 Music and Arts Building
Broadway and Hargrave
Phone 21455
Winnipeg, Canada
CANADIAN FISH
PRODUCERS, LTD. .
J. H. Page, Managing Direotor
Wholesale Distributors of
Fresh and Frozen Fish
311 CHAMBERS ST.
Office Phone 86 651
Res. Phone 73 917
ÁSGEIRSON’S PAINTS
AND WALL PAPER
698 SARGENT AVENUE
Winnip>eg, Man.
Telephone 34 322
LIST YOUR PROPERTY
FOR SALE WITH
Home Securities Ltd.
REALTORS
468 Main St., Winnipeg
Leo E. Johnson, A.I.I.A., Mgr.
Phones: Bus. 23 377—Res. 39 433
p / • •
rra vini
H. J. PALMASON & Co.
Chartered Accountants
1103 McARTHUR BLDG.
Phone 96 010
Rovatzos Floral Shop
253 Notre Dame Ave., Phone 27 9lf
Fresh Cut Flowers Daily.
Planits in Season
w« speclallze in Wedding & Concert
Bouquets & Funeral Designs
Icelandic spoken
A. S. BARDAL
selur lfkkistur og annast um útfar-
lr. Allur útbúnaður sá besti.
Knnfremur selur hann allskonar
minnisvarða og legsteina.
843 SHERBROOKE ST.
Phone S6 607 WINNIPBO
Union Loan & Investment
COMPANY
Rental, Insurance and Financial
Agents
Sími 23 631
510 Toronto General Trusts Bldg.
GUNDRY-PYMORE Ltd.
British Quality - Fish Netting
60 Victoria St„ Winnipeg, Man.
Phone 98 211
Manager: T. R. THORVALDSON
Your Patronage Will Be
Appreciated
Halldór Sigurðsson
General Contractor
★
594 Alverstone St., Winnipeg
Simi 33 038
A. SAEDAL
PAINTER & DECORATOR
Phone 29 654
★
696 Simcoe St., Winnipeg
'JOfíNSON S
►KSTOREJ
702 Sargent Ave., Winnipeg, Mcm.