Heimskringla - 29.11.1944, Page 5
WINNIPEG, 29. NÓV. 1944
HEIMSKRINGLA
5. SIÐA
GULLBRÚÐKAUP
Guðm. Jónsson og Ingveldur Arngrímsd.
Frá Skarðshóli í Miðfirði flutt-
Ust árið 1900 hjónin Guðmundur
Jónsson og Ingveldur Arngríms-
dóttir vestur um haf. Námu þau
iar,d í Geysisbygð í Nýja-Islandi,
°g nefndu bæ sinn að Reykjum.
BJuggu þau þar í 28 ár, en seldu
Þa jörð sína og fluttu til Winni-
Peg- Síðustu þrjú árin hafa þau
dvalið á Gimli.
Bjórða nóvember 1944, áttu
Guðmundur og Ingveldur gull-
brúðkaups-afmæli, höfðu þá ver-
gift í 50 ár. Mintust börn
Þeirra, sem eru sjö á lífi hér
vestra afmælisins með veizlu
goðri að heimili yngsta sonar
þeirra, Matthíasar, að 709 Sim-
c°e St., Winnipeg. Sóttu nálega
öll börn hjónanna sem vestra
eru samsætið og venzlafólkið,
barnabörn, sem eru 14 og barna-
harnabörn fjögur. Var því þarna
stor og fríður hópur afkomenda
Saman kominn. Og með ýmsu
°ðru voru hin aldurhnignu hjón
glödd.
Guðmundur er nú 79 ára, en
tngveldur 78. Hafa þau unnið
^úkið dagsverð á sinni löngu æfi,
því ekki var braut landnemanna
her ávalt slétt og blómum stráð.
•^uk þess var fyrir stórum barna-
hóP að sjá, eða 10 alls, er öll kom •
Ust upp, nema eitt, er dó í æsku
a leiðinni vestur — og sem öll
eru mannvænlegasta fólk. Land-
Uemarnir íslenzku þurftu á for-
sJa, reglusemi og atorku að
halda. Hafa gullbrúðhjónin
sýnt, að þau hafi átt sinn skerf af
þessum eiginleikum í fórum sín-
um.
Guðmund þektum vér að því,!
að vilja veita hverju máli er
hann áleit til velferðar bygð
sinni og mannfélagi sínu, aðstoð
sína. Hann er og ljúfmenni í
viðkynningu og bezti drengur í
hvívetna. Ingveldi kyntumst vér !
ekki mikið, en svo mikið þó, að;
maður veit, af afkomu þeirra að
dæma, að hún hefir verið manni;
sínum samhent.
Hér fara á eftir nÖfn barna!
I
gullbrúðhjónanna, eftir aldurs-
röð: '
1. Jóhanna, nú dáin, gift
Richter Anderson, sænskum að
ætt; var sonur þeirra Art'hur
Paul Anderson, um tíma starfs-
maður hjá Viking Press, en nú í
flughernum og talinn “missing”.
2. Ingibjörg, gift Birni Ey-
jólfssyni í Hafnarfirði á Islandi.
3. Páll Ragnar, í Redvers,
Sask., giftur konu af skozkum
ættum.
4. Ólafur Helgi, í Grand
Marais, Man.
5. Guðrún, gift G. Payne,
býr í Winnipeg.
6. Elinbjörg, gift Jóni Good-
man, búa í Winnipeg.
7. Margrét (Mrs. K. Hansen)
búa við International Falls.
8. Jón Júlíus, giftur Þórunni
Einarsdóttur Sigurðsson, búa í
Flin Flon. ,
9. Matthías Arnberg, giftur
Vera Berg, búa í Winnipeg.
Tíunda barnið dó í æsku, sem
áður er getið.
Heimskringla óskar gullbrúð-
hjónunum til heilla í bráð og
lengd.
eg þóttist sjá að það myndi ekki
takast áður en skipið sykki.
5 björgunarflekar voru á skip-
lnu- Tveir þeirra losnuðu þegar
skiPið sökk. En 3 þeirra runnu
ut af skipinu, af því losað var
um þá.
Þegar aftur hluti skipsins var
k°minn í sjó, fóru menn að kasta'
Ser í sjóinn. En ekki er hægt að
v*ta hve margir hafa reynt að
h.1arga sér á þenna hátt. Eg var
einn þeirra. Eg synti að fleka
emum þegar skipið var sokkið.
Brásögn Frímanns
^*l,ðjónssonar, bryta
Brímann Guðjónsson, bryti,
segir svo frá:
Eg var staddur í reyksaln-
Uln, þegar tundurskeytið hitti
skiPið. Rankaði eg við mér, þar
Sem eg lá á gólfinu, og maður
gekk yfjr mig i myrkrinu. Því
hB ijós sloknuðu að sjálfsögðu
Vlð sprenginguna, svo dimt var
ha þar inni, en gluggar byrgðir.
. ^it;t fyrsta verk var að hlaupa
1 kiefa minn og ná mér í björg-
Unarbelti, sem þar var.
Bn síðan fór eg upp í einn
jörgi^arbátinn, sem eg hélt
yrst að myndi geta flotið frá
s ipinu. En hann hallaðist svo
mikið, að eg þóttist sjá að honum
^ayndi hvolfa. Sá þá að björg-
Unarfleki flaut rétt hjá, og komst
ut 1 hann.
Eftir andartak var ekki annað
ofansjávar af skipinu en fram-
siglan og stefnið. Bar flekann
frá skipinu. En er það var sokk-
ið, komu nokkrir menn á sundi
og náðu flekanum.
Voru brátt komnir svo margir
á þann fleka, að við sátum þar í
sjó í mitti. Því hann lá svo
djúpt í sjónum.
Nokkru síðar gátum við róið
okkur að öðrum fleka, þar sem
aðeins voru tveir menn. Skiftum
við okkur nú á flekana. Eftir
það gátum við komið okkur bet-
ur fyrir.
Það vildi svo einkennilega til,
að enginn okkar, sem þarna urðu
samferða, hafði á sér vasahníf.
Svo við gátum ekki losað segl-
dúka er voru á flekanum. Feng-
um við hníf frá mönnum á enn
öðrum fleka, til þess að leyst yrði
úr þeim vanda.
Leið okkur sæmilega þær
tvær klukkustundir, sem liðu
þangað til skip kom og bjargaði
okkur.
Frásögn frk. Áslaugar
Sigurðardóttur
Frk. Áslaug Sigurðardóttir var
eini kvenmaðurinn sem bjarg-
aðist.
Hún segir m. a. svo frá atburð-
inum:
— Eg var stödd í ganginum
fyrir framan borðsalinn, þ^gar
sprengingin varð. En hentist
með svo miklu afli í þilið í gang-
inum, að eg misti meðvitund, en
vaknaði .við óp og var þá kol-
dimt í ganginum. Hurðin fram
í búrið hafði opnast, og þaðan
gaus reykur og gufa, svo mér sló
fyrir brjóst.
Ekki get eg vitað hve lengi
eg var að koma til meðvitundar.
En einhver maður, sem þar kom
að, hjálpaði mér upp stigann upp
á efra þilfarið. Þar sá eg margt
fólk. Og þar sá eg bát, sem hall-
aðist mikið, rendi mér upp i
hann. En í sömu svifum var
tekið í mig og mér hjálpað yfir á
björgunarfleka. Eftir augna-
blik sá eg skipið sökkva.
»
Öllum heimildarmönnum
blaðsins kom saman um, að
furðulega mikil stilling hefði
verið á öllum á skipinu þessar
fáu mínútur, sem það var ofan-
sjávar eftir að sprengingin varð.
Þeir, sem tíðindamaður blaðs-
ins hafði tal af, létu þess sér-
staklega getið, hve mikilli alúð
þeir mættu og hjálpsemi í skipi
því, sem kom og bjargaði fólk-
inu af flekunum.
Það skip kom hingað nokkuð
eftir miðnætti á laugardagsnótt.
Sumir skipbrotsmanna fóru
strax heim til sín. En aðrir, sem
höfðu meiðst, eða voru þjakaðir,
voru fluttir í spítala. En ekki
er blaðinu kunnugt um að nokkr-
ir þeirra muni hafa varanlegt
líkamlegt mein af þessu.
Eyjólfur Eðvaldsson, loft-
skeytamaður, var einn þeirra
manna, sem komust á björgu’n-
arfleka. Hann hafði fengið mik-
ið sár á andlit. Hann var karl-
menni mikið, og lét sér hvergi
bregða, frekar en hann væri
heill.
En nokkru eftir að hann kom
um borð í björgunarskipið fékk
hann ákafa köldu, og var brátt
örendur.
•
Það sló óhug á bæjarbúa er
fréttirnar fóru að berast um
Goðafoss.
Lengi fram eftir kvöldi voru
menn að vona að full mannbjörg
hefði orðið. Veður var að vísu
allhvast af landsuðri, en ekki
svo, að það myndi torvelda
björgun mjög.
Menn voru að vona, að skipið
hefði getað flotið það lengi ofan-
sjávar, að hægt hefði verið fyrir
alla, sem í skipinu voru, að kom-
ast annaðhvort í báta eða á fleka.
En skipavon mikil á þessum
slóðum. Menn gera sér ekki
grein fyrir því, hve skip á stærð
við millilandaskipin okkar veita
lítið viðnám svo ægilegum morð-
tólum, sem tundurskeyti þýzku
kafbátanna eru.
Það var dapurleg fylkjng,
sem stóð niðri á hafnarbakka á
laugardagsnóttina og beið þess
að björgunarskipið kæmi til
lands, eða skipin tvö. Því þau
voru tvö, sem komu á vettvang,
þó annað þeirra hefði flesta skip-
brotsmanna. Enginn vissi þá,
hverjir höfðu bjargast. En þeg- (
ar sannfrétt var um það, þótti
sem eðlilegt er, átakanlegast um
læknisfjölskylduna, er fórst
þarna öll, hjónin og þrjú börn
þeirra.
Á laugardagsmorgun var al-
kunnugt um þetta mikla mann-
tjón. Sýndu bæjarbúar samúð
sína með syrgjendum með því
að fánar voru dregnir í hálfa
stöng um allan bæinn.
—ísafold, 15. nóv.
HEIMUR Á HELVEGI
Eftir Guðrúnu Jóhannsdóttur
frá Brautarholti
Syrtir fyrir augum,
soraský
hylja himinsal.
Þjáning, þjáning —
þjóðir skelfast.
Háð er heiftarstríð.
Rætt er um ráð —
ráðþrota, N
enginn úrbót sér.
Friðlausir menn
friðlausra þjóða
fylkja láta liði.
Váleg eru í veröld
veðraél.
Heimur á helvegi,
heiðið hold
hismi klæðist
meðan sál er svelt.
• • ( . if
Töpuð er trú,
traust glatað, —
ánauð aðeins til.
Flátt er mætt,
fögru lofað;
efnd einskisvirt.
Sakleysi er svívirt,
sæmd misvirt, —
fjót eru lokaráð.
Helvegur troðinn,
heilög vé
flekkuð lasti og lygð.
Hefnd! hefnd!
er heragi þjóða.
Valdihafar vaða í reyk,
blasir við augum
bölvæn sýn:
Opið Ginnungagap.
Mannkynið af fögrum frægðar-
tindi
fellur eins og laufblað fyrir
vindi.
Nýjar bækur
sem allir þurfa að lesa
BRAUTIN, ársrit Hins Sam-
einaða Kirkjufélags íslendinga í
Norður Ameríku. I. árg. 112
blaðsíður í Eimreiðarbroti. —
Fræðandi og skemtilegt rit. —
Verð _________________ $1.00
“ÚR ÚTLEGД, Ijóðmæli eft-
ir Jónas Stefánsson frá Kaldbak.
Vönduð útgáfa með mynd af höf-
undi. Góð bók, sem vestur-ís-
lenzkir bókamenn mega ekki
vera án. Bókin er 166 blaðsíður
í stóru broti. Verð____$2.00
HUNANGSFLUGUR, eftir
Guttorm J. Guttormsson. Kostar
aðeins $1.50 í bandi. Fæst nú i
FERÐAHUGLEIÐINGAR eft-
ir Soffanías Thorkelsson, í tveim
bindum, með yfir 200 myndum.
Bæði bindin á $7.00.
BJÖRNSSONS BOOK STORE
702 Sargent Ave. Winnipeg
★ ★ ★
Námsskeið til sölu
við fullkomnustu verzlunar-
skóla í Winnipeg. Upplýsingar
gefur:
The Viking Press Ltd.
853 Sargent Ave., Winnipeg
ATHUGASEMD
PJÓDRÆKNISFÉLAG
ISLENDINGA
Forseti: Dr. Richard Beck
University Station,
Grand Forks. North Dakota
Allir Islendingar i Ame
ríku ættu að heyra tii
Þjóðrœknisfélaginu
Ársgjald (þar með fylgir
Timarit félagsins Ókeypis)
$1.00, sendist fjármálarit-
ara Guðmann Levy, 251
Furby St., Winnipeg, Man.
Jarðarberja Plöntur
Ljúífengt, sœtt og lystugt
Suðurlanda ávöxt-
ur sem bæði er
ávaxtaríkur og.
fagur til hýbýla '
skrauts. — Þakini
blómum og ávöxt
um samtímis. —
Blómin snióhvit*
og angandi. Á-
vöxturinn á stærð
volhnotu, rauður
að lit og lúffeng-
ur, borðist hrár eða í jelly. Vex upp
af fræi, og byrjar snemma að
blómstra.
(Pk. 25í) (3 pk. 50ó) póstfrítt.
FRÍ—Vor stóra útsœðisbók fyrir 1945
þegar hún er tilbúin
DOMINION SEED HOUSE
Georgetown, Ontario
Við, sem byggjum eina óska
landið:
ættum nú að tryggja friðarband-
ið:
sameinast af krafti í kærleiks-
anda.
Kristin þjóð má engu fögru
granda.
Verið styrk á erfiðleika árum
yfir þó að skelli mótgangsbárum.
Leggjum veg til ljóssins friðar-
sala.
Látum verkin gera meira en
tala.
Tökum saman höndum heil til
sátta,
er heimurinn sig býr til loka-
þátta.
Handaband sé heitt á landsins
þingi:
heilagt lögmál hverjum íslend-
ingi.
Leggjum niður vopnaþrætu
• þunga
þau hafa margan vegið: penni og
tunga:
hatur, lýgi, heift og öfund víki.
Hreinn og sannur drenkurskap-
urinn ríki.
Á fundi sínum þann 24. nóv-
ember s. 1. samþykti StjÓrnar-
nefnd Þjóðræknisfélagsins ein-
um rómi að gera eftirfarandi
athugasemd í tilefni af ummæl-
um í ritstjórnargrein í Heims-
kringlu, þann 1. nóv. s. 1.
Stjórnarnefndin gerði ítrek-
aðar tilraunir til þess að fá
Steingrím kennara Arason vest-
ur hingað til íslenzkukenslu og
annarar þjóðræknisstarfsemi á
árunum 1941-1942. Hafði nefnd-
in með ýmsum hætti undirbúið
komu hans, var reiðubúin að
taka á móti honum, og var þess
vænst að hann kæmi til Winni-
peg innan tiltekins tíma. En af
komu hans gat þó, því miður,
ekki orðið af ástæðum sem Þjóð-
ræknisfélagið fékk eigi við ráðið.
Stjórnarnefnd
Þjóðræknisfélagsins
Aths. Hkr.: Heimskringlu var
það ljóst, að Stjórnarnefnd Þjóð-
ræknisfélagsins “gerði ítrekaðar
tilraunir”, að fá Steingrím Ara-
\ son hingað norður til íslenzku
kenslu, en henni er ekki ljóst um
að nefndin hafi boðið honum
nein þau kjör, að til mála gæti
komið að þegin væru. Meðan hún
skýrir ekki frá því, lítur Hkr. á
þessa athugasemd hennar sem
Vindhögg um efnið sem um er að
ræða í Hkr. greininni; hún er
aðeins “einróma” firra.
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU—
útbreiddasta og fjölbreyttasta
islenzka vikublaðið
SAVINGS
#/*£>CERTIFICATES
esnnmniiQiimiiiiiiomniiimnimiminicjHmiimiiniiiiiiiiii;
1 INSURANCE AT . . .
REDUCED RATES
Fire and Automobile
1 STRONG INDEPENDENT
8
COMPANIES
j McFadyen I
| Company Limited |
| 362 Main St. Winnipeg |
g =
Dial 93 444
»mmiAiaiiiiniiuiiuiiiiitHiiiiniiiiiiiiiinniiuimiiiiuiiiiiiiiiiiic»
Framvegis verður Heims-
kringla fáanleg í lausasölu, hjá
hr. bóksala Lárus Blöndal, Skóla
vörðustíg 2, Reykjavík, Island.
Bækur til sölu á Heimskringlu
Endurminningar, 1. og II.
hefti, alls 608 blaðsíður, eftir
Friðrik Guðmundsson. Verð
upphaflega $2.50, báðar bæk-
urnar; nú $1.00.
Hetjusögur Norðurlanda, um
200 blaðsíður að stærð, eftir
Jacob A. Riis. íslenzkað hefii
Dr. Rögnvaldur Pétursson. —
Verð 35c.
Stríðið jafnar aldrei misklíð
manna.
Mildi og friður réttlætið er
sanna.
-Lesb. Mbl.
Heimskringla á íslandi
Herra Björn Guðmundsson,
Reynimel 52, Reykjavík, hefir
aðalumboð fyrir Heimskringlu á
Islandi. Eru menn beðnir að
komast í samband við hann, við-
víkjandi áskriftar-gjöldum, og
einnig allir þeir sem gerast vilja
kaupendur hennar, hvar sem er
á landinu.
Hr. Guðmundsson er gjaldkeri
hjá Grænmetisverzlun ríkisins,
og þessvegna mjög handhægt
fyrir borgarbúa að hitta hann
að máli. m
1
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU—
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU
BORGIÐ HEIMSKRINGLU
John S. Brooks Limited
DUNVILLE, Ontario, Canada
MANUFACTURERS OF GILL NETTING
Okkar net eru búin til úr beztu tegund af hör tvinna
og fyrsta flokks “Sea Island Cotton” og egypskum tvinna.
Þér megið treysta bœði vörugœðum og verði
Allar pantanir fljótt og ábyggýlega afgreiddar.
Captain M, R. Janes, Leland Hotel, VVinnipeg
Umboðsmaður fyrir Manitoba, Saskatchewan og Alberta
Prófið kornið að gróðrarmagni
Þag er mjög áríðandi að vita
frjóniagn hverrar korntegundar.
Umboðsmaður þinn fyrir Federal
ráðstafar prófuninni kostnaðar-
laust.
FEDERHL GRHIR LIIRITED