Heimskringla - 27.12.1944, Qupperneq 2
2. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 27. DES. 1944
Hicimskringla
(StofnuB 181«)
Kemur út ó hverjum miðvikudegi.
Eigendur: THE VIKING PRESS LTD.
853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg — Talsíml 86 537
Ver8 blaðsins er $3.00 árgangurinn, borgist íyrirfram.
Allar borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD.
öll viðskiftabréf blaðinu aðlútandi sendist:
Manafer J. B. SKAPTASON, 853 Sargent Ave., Winnipeg
Ritstjóri STEFAN EINARSSON
Utanáskrift til ritstjórans:
EDITOR HEIMSKRINGLA, 853 Sargent Ave., Winnipeg
Advertising Manager: P. S. PÁLSSON
"Heimskringla" is published by and printed by
THE VIKING PRESS LIMITED
853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. — Telephone 86 537
WINNIPEG, 27. DES. 1944
Áramótin
Það lítur ekki út fyrir að við þessi áramót sem nú fara í hönd,
sé mikilla áraskifta (þ. e. breytinga) að vænta. Komandi ár mun
teljast með undanförnum stríðsárum, ekki sízt af því að dæma,
sem síðustu dagana hefir verið að gerast í Evrópu. Of skuggsýn-
um augum ætti þó ekki enn á það að líta. Innan um fréttirnar er
gefið í skyn að Þjóðverjar verði stöðvaðir innan nokkra daga í
Belgíu. En það er þó ekki til neins að dylja hitt, að sókn Þjóðverja
á vesturvígstöðvunum hefir tafið vetrarsóknina, eftir áætlun
Eisenhowers. Annað, sem ekki er heldur eins æskilegt og margur
hefði viljað, eru borgara-uppreistirnar í þeim löndum Evrópu,
sem bjargað hefir verið úr klóm nazista og sem ekki hefir unnist
fórnarlaust. En vonandi rætist betur úr þessu öllu, en áhorfist
þessa stundina.
Hinu skildi nú Iheldur ekki gleymt, að það var fyrst á liðnu
ári, sem sigurvonin varð að fullri vissu hjá Bandaþjóðunum. Það
verður vonandi það atriði í reikningi ársins 1944, sem þungt verð-
ur á metum og flestu mikilsverðara.
Eins og horfurnar út á við eru enn ekki það, sem æskilegt
væri, eins eru þær heima fyrir, bæði í Canada og flestum öðrum
löndum, í óskapnaði og öngþveiti. Jafnvel þó stríðið endist alt
árið, kemur að líkindum til þess, að búa þjóðfélagsreksturinn
undir það sem við tekur, að stríði loknu, og sem fólgið er í því, að
finna þeim atvinnu, sem leystir verða úr hernum erlendis og her-
gagnaþjónustu heima fyrir. Það er sagt að búið sé að hugsa fyrir
þessu öllu, en samt eru menn nú, sem frá herframleiðslu eru
leystir í náð, atvinnulausir, og í Winnipeg og eflaust víðar einnig
húsnæðislausir. Gleðirík iheimkoma, er ekki svo? Þetta stafar af
því, að iðnaður í bæjum öllum hefir tekið risaskref, en alt í þágu
stríðsins, og íbúum bæjanna hefir fjölgað. Úr þessum vandræð-
um verður aðeins leyst með auknum iðnaði, en satt bezt sagt, bólar
ekkert á honum ennþá. Húsabyggingar eru hér í bráðina mest
aðkallandi, en þó er svo að sjá, þrátt fyrir herför dagblaðanna hér
í bæ, einkum blaðsins “Winnipeg Tribune”, sem hvorki sambands-,
fylkis- eða bæjarstjórn séu farnar að skipuleggja neitt starf í þessa
átt; og af öðrum virðist ekki mikils að vænta.
Þetta blasir nú við augum manna af áramótasjónarhólnum í
þetta sinn. Það er ekki hægt að kalla það vonbjart, en ekki er til
neins að örvænta. Það er einnig nokkuð til, sem birtu vekur að
minsta kosti íbúum þessa lands. Það eru nægtir kjörlandsins
góða, Canada. Það hefir gert undraverk í þessu stríði og það
getur auðvitað alveg eins, og ekki síður, gert það á friðartímum.
Það er og stundum talað um, að mönnunum sé ekki að verða neitt
ómögulegt og hefir mörgu fjarstæðara verið haldið fram. En
jafnvel þó svo sé ekki, er framförum mannanna komið í það horf,
að þeir ætíú engu að þurfa að kvíða um framtíð sína, allra sízt í
þessu landi, ef hver þjóðfélagsborgari gerir sitt bezta til að stuðla
að velmegun fjöldans, bætir í búi sambýlisins, en einblínir ekki
á eigin hag. 1 þeirri von og henni einni, að þeir geri það, getum
við boðið hvert öðru gleðilegt komandi ár!
HREINDÝRARÆKT í
NORÐUR CANADA
Þó menn óski hver öðrum
gleðilegra jóla í ár, eins og vant
er, þá vitum við að þessi jól geta
ómögulega haft hina venjulegu
jólagleði í för með sér. Það eru
svo margir vinir fjarverandi,
dreifðir um allar heimsálfur, í
hernum, á sjó, á landi eða í loft-
hernum. Og margir sem eftir
sitja eiga um sárt að binda.
Samt kom Sankti Kláus til
Winnipeg eins og önnur ár, því
börnin verða að fá að njóta jól-
anna. Og við vonum að þau
börn sem nú njóta jólanna, hvar
og hver sem þau eru, verði þeim
mun vitrari þegar þau eru upp-
vaxin, en við, að þau láti ekki
geigvænlegan ófrið eyðileggja
jólagleði barna sinna.
Sankti Kláus hafði með sér
hreindýr í ár, eins og jólasögur
segja að eigi að vera. Hreindýr
eru hér sjaldséðir gestir, því
þetta er ekki heimaland þeirra.
Margan mun því hafa langað til
að vita hvaðan þessi dýr væru
komin. Það eru hreindýrahjarð-
ir í Norður Canada og því líklegt
að þessi dýr hafi verið flutt það-
an. Saga þessara hjarða er eitt
lítið sýnishorn þess sem afkasta
mætti mönnunum til blessunar
ef þjóðirnar gætu aðeins lifað í
sátt hver við aðra og notað kraft-
ana til að byggja upp heldur en
til þess að rífa niður og eyði-
leggja.
1 Canada búa um 7000 Eski-
móar, nærri allir á strönd Norð-
ur-íshafsins. 1 margar aldir hef-
ir þetta fólk lifað á veiðum. Þeir
hafa aðallega treyst á sjávardýr
(seli, rostunga, hvali, fisk) og
svo Caribou dýr, af landdýrum,
sér til viðurværis. Sérstaklega
voru þessi síðastnefndu dýr á-
kjósanleg veiði. Eskimóar og
Indíánar átu kjötið, bjuggu sér
til klæði úr húðunum, ýms verk-
færi úr hornunum og, beinunum
— í stuttu máli, alt var notað.
Þegar Caribou veiðin brást, þá
var þröngt í búinu.
Áður fyr voru Caribou hjarð-
irnar í norðvestur héruðunum
álíka eins og vísundahjarðirnar
á vestur sléttunum þegar hvítir
menn komu hingað. Eftir að
Eskimóar og Indíánar fengu ný-
móðins byssur og riffla, var svo
auðvelt að drepa dýrin að mörg
fleiri voru skotin en hægt var að
nota, fór svo að ekki var lengur
hægt að treysta á þessa veiði.
Gekk þetta svo langt að í sumum
héruðum var fólkið bjarglaust
nema það gæti veitt loðdýr og
selt belgina af þeim fyrir mat-
/öru og aðrar nauðsynjar. Stund-
um brást þessi veiði og þá fór
illa, því þá hafði það hvorki mat
eða klæði.
Síðari hluta nítjándu aldar
voru hreindýr flutt frá Síberíu
til Alaska og Eskimóum þar kent
að nota dýrin sér til viðurværis.
Þessi tilraun gekk vel.
Dominion-stjórnin hugsaði sér
nú að gera slíka tilraun í Norð-
ur Canada. Nefnd sem skipuð
var til þess að rannsaka hvar
haglendi væri bezt fyrir dýrin,
ráðlagði að þau væri sett í 'hér-
aðið fyrir austan mynni Mac-
Kenzie fljótsins og norðaustur
með íshafsströndinni.
Síðan keypti stjórnin 3,400
'hreindýr af félagi í Alaska, og
fylgdi það samningnum að félag-
ið annaðist rekstur á dýrunum í
nýja heimkynnið þeirra. Voru
fengnir nokkrir Lappar til að
hafa umsjón á rekstrinum og
Eskimóar til að aðstoða þá.
Reksturinn hófst frá vestur-
strönd Alaska í desember 1929.
Er sagan af þessu langa og erf-
iða ferðalagi all merkileg, því
ekki gek kalt slysalaust. Hrein-
dýr eru ekkert hrifin af lang-
ferðum, en vilja sem mest vera
heima. Séu þau rekin úr heima-
högum er heimþráin sterk og
sækja þau fast að komast til
baka. Svo fór nú, og töpuðust
æði mörg af þessari ástæðu. Svo
urðu sum úlfum og öðrum dýr-
um að bráð — og önnur fórust
af ýmsum öðrum slysförum.
Það var ekki fyr en í marz
1935, að hjörðinni var skilað
umboðsmönnum Canada stjórn-
ar í hinu nýja heimalandi. Hafði
þá reksturinn staðið yfir í liðug
5 ár. Aðeins fimti hluti af
hjörðinni sem Canada-stjórn tók
við, voru dýr sem lagt höfðu af
stað í Alaska. Hin höfðu fæðst
á leiðinni. Hjörðin, sem komst
alla leið var því alt önnur en sú
sem lagði af stað. 1 alt voru nú
í hjörðinni um 2400 dýr.
Lappar voru fengnir frá Nor-
egi til að kenna Eskimóum
hvernig fara ætti með dýrin svo
þau yrðu að sem mestum notum.
Þetta hefir svo alt gengið ágæt-
lega. Nú, sem stendur, teljast
um 9000 hreindýr í Norður-Can-
ada.
1 desember 1938 voru 950 dýr
flutt um 150 mílur austur með
ströndinni og var hún fengin
tveim Eskimóum sem þá voru
orðnir vanir hjarðmenn. Eiga
þeir að gæta hennar unz þeir
geta skilað stjórninni 950 dýr-
um (jafnmörgum og þeir fenguL
Þá eiga þeir hjörðina frá þeim
tíma. Tveim árum síðar var
öðrum Eskimóum fengin hjörð
(850 dýr) upp á sömu kjör. —
Þannig er Canada-stjórn að
kenna Eskimóum ög Indíánum
kvikfjárrækt og bændasiði. Þetta
hefði einhverntíma verið talið ó-
mögulegt en virðist nú ætla að
ganga óskum framar.
Hreindýr eru smá, skrokkarn-
ir tilgerðir, vega 140—170 pund.
Landslagið þar nyrðra virðist
eiga vel við þau því hjarðirnar
vaxa óðfluga, og hafa dýrin
góða heilsu. Þau eru skoðuð og
talin á hverju ári og því slátrað
sem bezt þykir mega missa sig.
Þegar íbúar norðurlandsins
hafa sínar ihreindýrahjarðir og
kunna með þær að fara, þurfa
þeir ekki lengur að kvíða því að
veiðin bregðist. Þeir hafa æfin-
lega mat og klæði. J. G. J.
Aths.: Þessi ágæta grein var
skrifuð fyrir jólablað Hkr., en
varð vegna rúmleysis að bíða
eins og fleiri greinar og kvæði.
Er höfundur beðinn velvirðing-
ar á þessu. — Hkr.
Þann 12. desember s. 1. lézt á
sjúkrahúsi í Calgary, Alta., ís-
lenzk kona, Mrs. Guðfríður
Hansen, 78 ára að aldri. Hún
var fædd 1866, en kom vestur
um haf 1913, settist að í River-
ton og bjó þar unz hún flutti
1938 til Calgary. Hana lifa ein
dóttir, Mrs. T. Christiansen og
Binn sonur^ Ingi, í hernum fyrir
handan haf.
BRÉF
I Heimskringlu 29. nóv. 1944
er kvæði eftir Guðrúnu Jólhanns-
dóttur frá Brautarholti, tekið
upp úr Lesb. Mbl.
Þetta er vel hugsað og menn-
ingarlegt kvæði — sorgblandið.
1 síðustu línu 6. erindis er
Eddu-kenning, sem eg vil gefa
nokkrar upplýsingar um, sem
sé “Opið Ginnungagap”.
Skáldkonan notar Ginnunga-
gap sem loka takmark hernaðar-
vitfirringu veraldarinnar. Þetta
er nú ekki illa til líkingar tekið.
Ginnungagap er forn Eddu-
kenning, eða þó öllu heldur á-
kveðið nafn á sérstökum stór-
flóa — sem sé — Persaflóanum,
sem gengur upp í landið þar sem
Euphrates-fljótið fellur til sjáv-
ar. Fyrst í Persaflóann (Ginn-
ungagap) og því næst í Oman
flóann og þá í Araba sjóinn.
Persaflóinn hét til forna
“Ginnung Gulf”, in Edda text
“Gap Ginnunga” or Gape or
Gulf of Ginnunga, dregið af
sumerian nafninu á þessum flóa,
sem eg gef ekki hér.
Ása Þór konungur ríkti 3380—
3350 f. kr.; þá gekk þessi flói
mikið lengra inn í landið. Orð
þetta þýðir “Gapandi hrædýrs
kjaftur” eða “gapandi kjaftur”,
sem gleypti öll vötn, sem suður
féllu í þetta “Ginnungagap”, sem
Islendingar nota stundum í skrif-
um sínum.
Samt er ætlast til, af lærðum
og ólærðum Islendingum, að
þetta Ginnungagap sé einhver
óskapleg — takmarkalaus víð-
átta, úti í geiminn, 'helzt á und-
an sköpun heimsins.
Sköpun heimsins og allar þær
bollaleggingar heimspekinganna
var ekki neitt sérstakt viðfangs-
efni, forföður vors, Ása Þórs og
goðanna, guðanna sem réðu og
stjórnuðu heiminum á þeim
(þeirra) dögum. Heldur var
þeirra mesta verkefni að sið-
menta vankunnandi, mislitt fólk
í ríki sínu, sem þeim tókst prýði-
lega vel að leysa af hendi.
Á hinn bóginn, höfðu þeir
einnig (goðarnir guðirnir). á-
kveðnar skoðanir (kenningar)
um alheiminn og drýðlegt mann-
lífið, sem var í þeirra vitund,
það helgasta jarðneska (alheims)
atriðið sem krafðist ljúflegrar
varðveizlu af lávarðum (lords,
ásum, Ása) drottnum jarðarinn-
ar, hinum hvítu guðum (goð-
um).
Þessi myndarlega menningar-
stefna Ásanna barst um allan
heiminn: til Kína, til Japan, til
Indlands (Asíu). (Jafnvel nú
rétt nýlega heyrði eg í útvarp
um hátíðahald í Japan, sem er
beinn trúarlegur arfur frá Ása
Þór. Þar ræðir um tvö helgisiða
atriði, sem er of langt að útskýra
hér); þekking Ása Þórs í trúar-
kenningum (siðum) og stjórnar
lögmálum barst til Egyptalands
og þaðan til Grikkja og Róm-
verja, (sjá Hellas, Ágúst Bjarna-
son, íslenzki heimspekingurinn
sem öllum Islendingum á að
vera kunnugt um).
Þau trúarbörgð sem heimur-
inn nú notar á margvíslegan
hátt, áttu sinn uppruna í sið-
menningu Ása Þórs forföður
vors hvíta Norðurlanda mann-
fólksins á þessari jörð.
Mínar heimildir eru “The Bri-
tish Edda,” sem eg fyrst sá í
feb. 1944, og hafði að láni í
nokkra mánuði.
Þetta eru dýrðleg forn fræði,
sem öllum íslendingum kemur
mikið við, persónulega og sem
þjóðarheild.
Það er alveg ómögulegt fyrir
lærða Islendinga að vitna í vor
fornu helgirit fyrri en þeir
kunna skil á þeim, og hafa hafn-
að öllum misskilningi Snorra
Sturlusonar.
Eg hefi rekist á tilvitnanir í
forn Eddukvæði, af vorum beztu
íslenzku skáldum: Matthíasi,
Steingrími, Hannesi, St. G. St.
og fleirum, jafnvel Þorsteinn
Erlingsson er ekki laus við mis-
skilning, þó hann syndgaði allra
minst, vegna þess að hann var
svo skarpgáfaður maður, og bar
virðingu fyrir vorum fornu holl-
vættum. Allar þessar tilvitn-
anir þeirra gáfuðu og hálærðu
manna verða að hugsanavillu af
því þeir treystu Snorra. Við
þetta er ekki unandi.
Eg dróg athygli Þjóðræknis-
félagsins að þessu atriði á síð-
asta þingi þess 1944, með skrif-
uðu skeyti, sem eg frétti um að
hefði þó komist til skila.
Eg geri mér vonir um, að löng-
un þeirra til að vita hið rétta um
Eddu-fræðin, örfi þá til að at-
huga þessi fornu mennigar sann-
indi forfeðra vorra. Þetta eru
spennandi dýrðleg sannsöguleg
fræði, öllu íslenzku fólki við-
komandi.
I þriðju vísu Völuspá (á að
vera Völusjá, það er hið rétta),
er orðið “gap var Ginnunga”; í
þessari vönduðu bók eru svo
skýringar á ölluní vísunum, eft-
ir Sigurð Nordal, skarpgáfaðann
íslenzkan fræðimann. En — all-
ar skýringarnar fara fyrir ofan
H HAGB0RG FUEL C0. H
★
Dial 21 331 no'FU) 21 331
og neðan garð, sem við má búast
þar sem hann treystir Snorra.
En — Snorri hafði ekki fornu
heimildirnar sem hafa verið
grafnar úr borgarrústum guð-
anna fornu, nú á síðastliðnum
mannsaldri sem sanna uppruna
og efni “Völusjá”.
Þar að auki er ekkert vit í
Völuspá kvæðum Snorra, af því
hann skildi þau ekki, hann skildi
ekki forn saxnesku, eða forn
ensku, sem var töluð fyrir 4—5
þúsund árum síðan. Sæmundar
Edda var (er) skrifuð (copied) á
þessu forna rúnaletri.
Mér skilst að Sumerian tungu-
málið á dögum Ása Þórs 3350
f. Kr., væri aðal menningar
tungumál hvítu guðanna (goð-
THE ROYAL BANK OFCANADA
Gcncral Statemcnt, 30th Novcmber, 1944
L I A B I L I T I E S
Capitpl stock paid up... .......... $ 35,000,000.00
Rescrvc fund....................... $ 20,000,000.00
Balonce of profits carried forward as per Profit and
Loss Account................. 4,247,671.56
Dividends unclo’med...........................
Dividend No. 2?9 (at 6% P^r annum), payable lst
December, 1944................................
$ 24,247,671.56
50,575.46
525,000.00
1
24,823,247
Deposits by and balances due to Dominion Govem-
ment.................................... ....... $232,148,156.00
Deposits by and balances due to Provincial Govern-
ments............................................. 21,453,136.10
Deposits by the public not bearing interest........ 807,245,414.46
Deposits by thc public bearing inter#st, including
interest accrued to date of statement........... 592,851,469.10
Deposits by and balances due to other chartered
banks in Car^da..............................4 • 3,161.92
Deposits by and balances due to banks and banking
correspondents elsewhere than in Canada...... 23,183,358.61
Notes of the bank in circulation...................
Acceptances and letters of credit outstanding......
Liabilities to the public not included under the
foregoing heads.....................................
A S S E T S
Gold and subsidiary coin hcld in Canada............. $ 1,775,041.40
Gold and subsidiary coin held elsewhere............... 1,402,082.55
Notes of Bank of Canada............................. 36,421,787.75
Deposits with Bank of Canada....................• * • * 105,209,611.49
Government and bank notes other than Canadian.. 79,047,151.39
Notes of and cheques on other banks................. $ 75,260,199.08
Deposits with and balances due by other chartered
banks in Canada........................................ 6,674.81
Due by banks and banking correspondents elsewhere
than in Canada.................................... 78,630,240.06
Dominion Government direct and guaranteed
securities maturing within two years, not
exceeding market value..........................
Other Dominion Govemment direct and guarantced
securities, not exceeding market value..........
Provincial Government direct and guaranteed
securities maturing within two years, not
exceeding market value..........................
Other Provincial Govemment direct and guaranteed
securities, not exceeding market value..........
Canadian municipal securities, not exceeding mar-
ket value.......................................
Public securities other than Canadian, not exceeding
market value.................................. • •
Other bonds, debentures and stocks, not exceeding
market value....................................
Call a»d short (not exceeding 30 days) loans in
Canada on stocks, debentures, bonds and other
securities of a sufficient marketable value
to cover........................................
Call and short (not exceeding 30 days) lcans else-
where than in Canada on stocks, debentures,
bonds and other securities of a sufficient mar-
ketable value to cover..............................
Current loans and discounts in Canada, not other-
wise included, estimated loss provided for...... $261,024,287.72
Current loans and discounts elsewhere than in
Canada not otherwise included, estimated loss
provided for..................................... ^9»Jj[7,470.17
Loans to provincial governments....................... 2,109,729.68
Loans to cities, towns, municipalities and school
districts......................................... 8,815,745.35
Non-current loans, estimated loss provided for.... 585,143.08
Liabilities of customers under acceptances and letters of credit
as per contra...................................................
Real Estate other than bank premises...............................
Mortgages on real estate sold by the bank..........................
Bank premises at not more than cost, less amounts, if any, written
off......................................................... •
Deposit with the Minister of Finance for the security of note cir-
culation.................• • • •................................
Shares of and loans to controlled companies........................
Other assets not included under the foregoing heads...........
$ 59,823,247
1,676,884,995
9,580,371
42,347,097
1,616,390
$1,790,251,802
19,
66
19
59
65
$ 223,855,674.5*
153,897,113.95
438,082,169.89
299,945,251 1*
43,459,453.9*
28,545.560.60
16,754,325.72
81,310,288.45
27,493,292.52
25,885,985.74
38,620,089.0«
$1,377,849,205.53
351,652,376.00
42.347,097.10
976,301-40
510,250.57
12,276,453.72
625,000.00
2,987,786.72
1,027,331-3»
$1,790,251,802^
M. W. WILSON, S. G. DOBSON,
President. General Manager.
AUDITORS’ REPORT
To the Shareholders, The Royal Bank of Canada: r
We have examined the above Statement of Liabilities and Asscts as at 30th Novemn^
1941, with the Ixxiks and accounts of Thc Royal Bank of Canada at Head Oftice and witn *
certiíied returns from the hranches. We have checked the cash and the securities reprefent>
the Bank’s investments held at the Head Office at the closc of the fiscal year, and at vaf,?ue
dates during the year have also checked the cash and invcstmént securities at several oi 1
important branches. . , , . . , . , , . nuf
We have obtained all the ínformation and explartation9 that we have required, and m
opinion the transactions of the Bank, which have come under our notice, have been within t
powcrs of the Bank. The above statement is in our opinion properly drawn up so as to di»ci .
the true condition of the Bank as at 30th November, 1944, and is as* shown by the booKS
Ihc Bank. M OGDEN HASKELL, C.A.,
of Haskell, Elderkin & Co.
GUY E. HOULT, C.A., fAuditors.
of P. S. Ross & Sons
Montreal, Canada, December 22, 1944.
PROFIT AND LOSS ACCOUNT
Balance of Profit and Loss Account, 30th November,
J943...................................... $ 3,815,487.77
Profits for the year ended 30th November, 1944, after
providing $2.127,214.86 for Dominion Govem-
ment taxes and after making appropriations to
Contingency Reserves, out of which Reserves
provision for all bad and doubtful debts has
been made..................................... 3,812,183.79 ^
APPROPRIATED AS FOLLOWS:
Dividend No. 226 at 6% per annum.............. $ 525,000.00
Dividend No. 227 at 6% per annum................. 525,000.00
Dividend No. 228 at 6% per annum................. 525,000.00
Dividend No. 229 at 6% per annum................. 525,000.00
$ 2,100,000.00
Contribution to the Pension Fund Society...... 880.000.00
Appropriation for Bank Premises............... 400,000.00
Baíance of Profit and Loss carried forward.... 4,247,671.56
7,627,671>
$ 7,627.671^
M. W. WILSON,
President.
Montreal, December 22, 1944.
S. G. DOBSON,
General Manager.