Heimskringla - 03.01.1945, Qupperneq 4
4. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 3. JAN. 1945
iÍJeintskringla
(StofnuO 188S)
Kemur út á hverjum miðvikudegi.
Eigendur: THE VIKING PRESS LTD.
853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg — Talsími 86 537
Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn, borgist íyrirfram.
Allar borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD.
öll viðskiftabréf blaðinu aðíútandi sendist:
Manager J. B. SKAPTASON, 853 Sargent Ave., Winnipeg
Ritstjóri STEFAN EINARSSON
Utanáskrift til ritstjórans:
EDITOR HEIMSKRINGLA, 853 Sargent Ave., Winnipeg
Advertising Manager: P. S. PÁLSSON
"Heimskringla" is published by and printed by
THE VIKING PRESS LIMITED
853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. — Telephone 86 537
WINNIPEG, 3. JAN. 1945
í hverju liggja árekstrarnir?
Það er mikið talað um árekstra milli Bandaþjóðanna um
þessar mundir. Sigrar Þjóðverja hafa ef til vill dregið eitthvað
úr sundurlyndinu. Það er enginn misskilningur ríkjandi um það
hjá þeim, að leggja þurfi Þýzkaland að velli. En það hefir samt
sýnt sig, að þeim ber á milli jáfnvel í smáu. Eigi að síður má rekja
það flest eða alt til einnar rótar: stefnu Rússa og hinna Bandaþjóð-
anna flestra, stefnumunar kommúnista og kapitalista. Sá munur er
svo mikill, að þeir eru nú margir, sem ekki geta séð, að með þeim
þjóðum, sem aðhyllast sína hvora, sé nokkur kostur á að semja
þau alheimslög, er hvorutveggju aðilar geti orðið á eitt sáttir um.
En það eru nú einmitt álík alheimslög í þágu varanlegs friðar, sem
hugur allra þjóða heimsins snýst mest um.
Af undirtektum Rússa á Dumbarton Oaks fundinum, kom í ljós,
að þeir voru ekki með því, að ágreiningsmál væru lögð fyrir al-
heims-dómstól, eða gerðardóm. Þeir hafa söguna fyrir sér í því,
að slíkir gerðardómar í alþjóðamálum, hafa ekki verið vinveittir
Rússlandi. Halda Rússar fram, að hvaða mannval sem í þá hafi
verið kosið, hafi þeir jafnan dregið taum þeirrar stefnu sem Rúss-
um sé skaðleg, hafi m’eð öðrum orðum dregið taum auðvaldsins,
eins og það sé, í lýðræðislöndum, en ekki eins og það sé í löndum,
eða landi kommúnismans. Rússland þykist hafa á þessu kent,
eftir síðasta stríð og þá ekki sízt í Þjóðbandalaginu. En Rúss-
land var þá lasburða og fékk ekki rönd við neinu reist, tapaði lönd-
um við friðarsamningana 1918 og var í hvívetna gert erfitt fyrir.
Alt þetta muna Rússar nú. Að samþykkja nokkur alþjóðalög, sem
halli á rétt þeirra, vegna þess að þeir hafi þar ekki eins marga
málsvara og kapitalista-stefnan í lýðræðislöndunum hafi, sé ekki
til neins fyrir sig.
Rússar játa, að þeir hafi sinn eigin hag fyrir augum er þeir
halda slíku fram. En þeir sjá sig samt ekki vera að gera annað, en
lýðræðislöndin séu að gera með því.
Þegar “fjögur stórríkin” koma saman, að núverandi stríði
loknu og fara að smíða stefnuskrána eða lögin, sem vernda eigi
friðinn, er hætt við, að “þjóðirnar fjórar” verði varar við óþægi-
lega árekstra.
Meðan Rússar tilheyrðu Þjóðabandalaginu, komu þeir, eða
fulltrúi þeirra, Litvinov, sérstaklega vel og ákveðið fram í friðar-
málunum. Tillaga hans um algera afvopnun, vóg mikið í hugum
almennings út um allan heim. Það er því ekki það, að Rússar séu
á móti friði, að þeir eru ekki í öllu samþykkir því, sem forvígis-
merai eru að leggja til, að gert sé til þess að koma á varanlegum
friði. Það er aðeins hitt, að þeir skoða ekki stefnu sína óhulta
með því, hvort sem það er ballað óþörf tortryggni, eða eitthvað
annað.
En hvað sem það er kallað, liggur áreksturinn milli Banda-
þjóðanna, er til friðarmálanna kemur, fyrst og frefnst í þessu.
Það er og hann, sem smærri árekstrum mun einnig valda, að stríði
loknu, og veldur nú þegar í Evrópu, hvort sem er í löndum þeim,
sem undir handleiðslu Breta eða Rússa eru. Rúmenum og Pól-
verjum líður ekki hóti betur í hjarta sínu undir eftirliti Rússa, en
Grikkjum og Itölum undir Bretum. Þar mundu eigi síður bylt-
ingar vera, ef þeirra væri kostur, en annar staðar.
JóLARÆÐA
Minningarnar svífa víða og
hverfa aiftur í árin og aldirnar.
Það fyrsta sem við rekum okkur
á, þegar við hugleiðum hið um-
liðna, að frá sjónarmiði heims-
ins, virðist alt svo undur fátæk-
legt við hátíðaihaldið bæði að því
er snertir hin fyrstu jól í heim-
inum og eins að því er viðkemur
hátíðahaMinu í eigin barnæsku
vorri — já fátæklegt í heimsins
augum en samt einhvernvegin
svo undra auðugt í fátækt sinni,
auðugt af þeim verðmætum, sem
ekki verða gulli keyptar.
Fáeinir af eldra fólkinu og
nokkur börn, sjá í hugar hilling
ferðalag þessara fátæklinga: Jó-
seps og Maríu, frá Nazaret til
Betlöhem, til manntalsins að
boði æðsta valdhafans í heimin-
um, keisarans í Rómaborg. Hann
þurfti ekki að hugleiða erfiðleika
hinna snauðu, sem sárfættir og
illa skóaðir, klæðlitlir og éaldir
urðu að feta yfir fjöll og firnindi
svo þeir yrðu taldir Sem sauðir í
réttum og dregnir í dilka ætt-
bálks síns. Þessvegna urðu þau
Jósep og María að ferðast til
Betlehem, svo þau yrðu talin til
síns rétta kynþátts “því þau voru
af a|tt og kynþætti Davíðs kon-
ungs” eins og ritningin kemst
að orði. Gangandi fólk myndi
vera um viku tíma á leiðdnni svo
nærri má geta hversu híxmi
ungu, væntanlegu móður muni
hafa liðið, því lausnartími henn-
ar var aðkallandi. Ekkert af
þessu þurftu valdhafarnir í
Rómaborg að taka til greina,
fremur en flestir valdhafar nú-
tíðarinnar taka tillit til kring-
umstæðna hinna lágu og snauðu
í þjóðfélögunum. Þau urðu að
hlýða og til Betlehem var kom-
ist einhvernvegin. Þar var
troðningur mikill svo ekkert
gestarúm gafst fyrir hina jóð-
sjúku fátæklings konu og hjónin
urðu að leita sér afdreps í fjár-
húsi, sem efalaust var bara hell-
ir í hæðunum kringum bæinn.
því það var ekki siður fjárhirð-
ara í hinum sólvörmu Austur-
löndum að byggja peningshús
fyrir hjarðir sínar, þótt þeir leit-
uðu sér stundum afdreps í
þrumustormum ef nokkurt skjól
var að finna. Þannig fæddist
Kristur í fjárhúsi, því mennirn-
ir úthýstu honum undir eins og
hann var í heiminn borinn.
Utan um jólasögnina, um fæð-
ingu Jesús hafa samt unaðs fagr-
ar hugmyndir ofist í vitund
Kristsvina víða um heim. Hin
upphaflega jólasaga er af snill-
ingum framreidd, svo auðug er
hún og lífsönn, svo einföld og þó
svo tignarleg, svo hugðnæm og
hrífandi.
Stjörnur himins vísa vitring-
um vegin, að jötunni þar sem
Krists barnið hvíldi í Betlehem.
Þar sem vonar ljós heims og
himins var að nýju kveikt með
fæðingu barps, sem gat lifað
guði til dýrðar en mönnunum til
blessunar. Fjárhirðarar heyra
englasöng í ihimneskri birtu og
hraða sér til að sjá sveininn ný-
fædda. Vitringar og erfiðis-
menn, þessir málsvarar hinna
heiðarlegustu og nytsömustu
stétta mannfélagsins mætast
þarna við jötuna, til að lofa guð
fyrir nýfædda barnið, nýja von
í mannheimi um endurlausn frá
oki aldarfars og ranglætis, fyrir
nýbyrjandi líf á jörðinni. Frá
þessum tveimur stéttum er öll
efnisleg og andleg auðlegð kom-
in og báðir eru þeir erfiðismenn í
akurlandi mannlífsins: verka-
maðurinn, sem byggir húsin,
ræktar jörðina, leggur vegina
auðgar landið og mannkynið
með svita síns erfiðis og vitring-
urinn sem leitar að fyllri, stærri
og meira sjálflýsandi sannleika.
Báðir eru verkamenn og mikils
verðugir en á þeirra þreyttu
herðar hefir ranglætis ok heims
valdsins lagst einna þyngst. —
Ræningja og harðstjóra hendur
hrifsað ávexti iðjunanr frá
Verkamanninum en ofsóttu vitr-
ingana fyrir ljósahöldin, því þeir
elskuðu myrkrið, sem huldi
glæpi þeirra og gerðir. Hverjir
myndu fremur fagna fæðing
frelsarans en verkamenn og
vitringar, fæðingu þess guðs og
mannvinar, er beina vildi lífs-
brautum mannanna til guðsríkis
réttlætis, sátta og friðar á jörð-
inni?
Hvað er eðli'legra en að engl-
arnir syngju fagnandi við Krists
fæðingu Þeir hafa ekki æfinlega
ástæðu til að syngja fagnaðar
söngva yfir viðburðum mann-
lífsins. Séu þeir góðir h'ljóta
þeir oft að tárast yfir vanvizku
vorri, sem leiða oss af lífsvegin-
um út á heljarslóðir; frá ljósinu
til myrkursins; frá ástundun
réttlætis til þjónustu við rang-
lætið. Ef athafnir obkar vekja
ekki viðbjóð og hrygð í himin-
sölum eru englarnir ekki við-
kvæmir fyrir mannlagu böli og
mannlegum yfirsjónum.
Svo segulmögnuð er guð-
spja'lla frásögnin í allri sinni,
listrænu, skáldlegu tign að snill-
ingum allra alda hefir hún orðið
óuppausanleg uppspretta og
lagt þeim til lífsvakann í ódauð-
legar myndir, sönglög og ljóð.
Við órofa blik hennar hafa hinir
snauðu, vinalausu og voluðu
ornað anda sínum þegar and-
gustur örlaganna blés þeim kalt
á lífsins leiðum.
Nú erum við óðar að gleyma
þessari sögu, og inst inn í sál
vorri heyrum við engan engla
söng á jólunum og fyrir sálar-
sjónum vorum blikar ekkert
vonarljós er beinir huganum til
betri kynna. Jafnvel í sjálfum
kirkjunum eru ógna skuggar af
guðsreiði, erfðasynd og eilífri
glötun dregið yfir Kristmynd
kærleikans og jólafögnuðurinn
druknar í hyldýpi fávíslegra og
kreddufullra mannasetninga. —
Kristni kærleikans er ennþá út-
hýst, bæði úr musterum sínum
og mannabústöðum.
Þótt við höldum ennþá jól
með margskonar veizlulfögnuði
er þessi saga, sem eg ætla nú að
segja ykkur, engan vegin svo
einstæð, sem ætla mætti.
Á efnamanns heimili var einu
sinni efnt til jólaveizlu. Það
þurfti ekkert að spara og var
heldur ekki sparað, að gera hana
sem glæsilegasta. Þar voru
kræsingar og dýrindis vín á
borðum og vinargjafir til verð-
ugra gesta, og vajidamanna. —
Börnunum var lofað að vera
með, því jólin eru hátíð bar-
anna. Undir borðum hóf ungur
sonur húsráðenda upp rödd sína
til að spyrja, með unglingslegri [
forvitni: “Hvað á nú þetta eigin-
lega alt að þýða og í hvers minn-
ingu eru jólin haldin”. Hann
vissi alt um þjóðhátíðardaginn
4. júlí — því þetta var banda-
rískur drengur — hann vissi um
þakklætishátíðina og um minn-
ingardaginn en hafði enga húg-
mynd um jólin eða hversvegna
þau væru hátíðleg haldin. Hann
vissi heilmikið um Washington
sem herforingja og um Napoleon
keisara og um Nelson aðmírál,
en ekkert um Krist.
Að vísu tel eg það mjög nauð-
synlegt að vita einhver deili á
þessum herrum til þess að auka
þekkingu sína á sögunni, en þótt
við eigum þeim mikið að þakka
verða samt áhrif þeirra smá og
hverful saman borin við Krists.
Það er tæpast við því að búast
að Kristur verði þeim fyrirmynd
og kennari sem vita ekkert um
hvenær hann er fæddur eða
hvert hann hefir nOkkurn tíma
verið til.
Ef sú óheila stund upp rennur
að heimurinn gleymir Kristi og
öllu því sem hann kendi verður
hann fátækur, því þá hefir hann
glatað sínum dýrustu verðmæt-
um og “hugsunin, þekkingin
hjaðnar sem blekkingin, því þá
verður ekki hjartað með, “sem
undir slær” í samræmi við guðs-
ríkis undirvitund Krists og
guðsríkis trú hans.
Eg mintist á það í upphafi, að
jólahaldið hafi, á heimsins vísu,
verið fátæklegt heima á íslandi
en samt finst okkur nú sem þar
höfum við háldið hin hátíðleg-
ustu jól. Já í torfbaðstofunni
þar sem jólaljósið blakti á einu
eða tveimur kertisskörum, þar
sem jólagjafirnar voru fátæk-
legar og veizlukosturinn af
skornum skamti. Þá héldu menn
jól í fátækt sinni sem verða okk-
ur ætíð dýrðlega minnisstæð og
auðug af því sem vér metum í
raun og veru mest og munum
lengst. Þau urðu glæsileg af því
að þar var þeim gjöfum útfalut-
að, sem voru okkur til mlestrar
gleði og vöruðu lengst. Þar var
Kristi þjónað í kærfeika með
verklegum prédikunum einna
bezt; ætti heimilið sér þann
umhyggjusama æðsta prest, er
oftast gaf hinum góðu görnlu, ís-
lenzku heimilum svip sinn og
heillabrag friðar, rétlætis og
sáttfýsi. Þessi góði engill heim-
ilisins birtist oftast í persónu
móðurnnar og húsmóðurinnar,
sem dreifði ylgeislum síns fórn-
fúsa persónuleika til eins og
allra; eiginmannsins, sem hún
elskaði, barnanna, sem hún lifði
fyrir, vinnufólksins, sem hún
annaðist með skyldurækni, og
hins karlæga gamalmennis, er
fanst sem engill nálgaðist bólið
sitt hvenær sem blessuð hús-
móðurin vek að þeim til að
þjóna þörfum þeirra. Þetta fólk
trúði á englana af því það háfði
séð manneskjur í holdlegri
mynd, sem þeim fanst englum
líkjast. Þetta fólk gat trúað á
guðsríki friðarins á jólunum aí
því það hafði séð ímynd þess í
samstarfi fólksins á heimilunum.
Þá tengdust oft þau vináttu-
bönd, einmitt á sjálfri friðarfaá-
tíðinni, sem fallvelti tímanna
fékk ekki Slitið, þá voru þær
sættir samdar, sem héldust vel
og lengi, þá var þeim trygðum
heitið, sem dauðinn einn fékk
slitið: Þá var elskendum ljúft
í.ð opinbera tilfinningar sínar og
óvinum auðvelt að sættast. Þá
voru jó'lin ekki einungis fagnað-
ar hátíð heldur einnig friðar há-
tíð. Þess vegna voru þau held-
ur ekkert skyndiblik á hugar-
heimi mannanna heldur lífsvaki
og ljósgjafi nýrra hugsjóna og
lífernisframfara. Þar sem bezt
lét entist sú jólagjöf og jóla-
fögnuður gegnum skammdegið,
yfir sumarið og fram til næstu
jóla og lffið alt varð að uppi-
haldslausum jólum.
Að því skyldi líka stefnt. Þeg-
ar heimsbörnin verða, um alla
daga, jafn hjálpfús og kærleiks-
rík, sáttfús og samvinnulipur og
fólkið á beztu heimilunum heima
— og víst út um hvarvetna
kristnina — þar sem jólin voru
kristilega haldin endist jóla-
fagnaðurinn árið út, þá dregur
óðum að því hugsjóna takmarki
að mennirnir sýni trú sína í
verkunum og þurfi engra játn-
inga við.
Kirkjan á að starfa að sjálfs
eyðileggingu með því að gera
heiminn svo góðan að hennar
þurfi þar ekki við. Alveg eins
og læknisvísindin eiga að starfa
að því að gera mannkynið svo
heilbrigt að lækna sé engin þörf.
En meðan það takmark er eins
langt undan landi og nú virðist
látum okkur ekki starfa að því
að gera jólin að aliheiðnum
drykkju og veizludögum, svo
æskunni verði á að spyrja hvers-
vegna eiginlega höldum við jól
og í hvers minningu?
Eg veit að sumir kalja þetta
öfgar og enda vitleysu, við get-
um þetta ekki, heiminum sé svo
eðlilegt að vera vondur og synd-
in ökkur samgróin. Hið allra
mesta sem búast má við að kirkj-
an geri, sé að frelsa fáeinar sálir
frá eilífri glötun eftir forskrift-
um hinna ýmsu kirkjudeilda.
Þessi kenning, að við séum
getnir í synd, fæddir í synd, lif-
um í synd og deyjum í synd er
aðal grundvöllurinn í kenningar-
kerfi fjölmargra kirkjudeilda.
Og þetta kalla guðfræðingarnir.
sem uppfræddu prestana, og í
sumum tilfellum uppfræða þá
enn, ihinn náttúrlega mann.
Það er ekki nema eðlilegt, þar
sem þessi kenning er svo eldforn
og alþjóðleg, að almenningur á-
líti hana frá Kristni komna en
svo er þó ekki; þvert á móti seg-
ir hann að við séum í guði og
guð í oss og Páll postuli talar um
manninn sem hið eiginlega
musteri guðs og að vér eigum og
getum orðið englum líkir.
Hvergi er þessari trú um sig-
urmátt lífsins betur lýst en í
sumum dæmisögum Krists um
landyrkju og sáðgarðs manninn,
er ýmist táknar sjálfan guð eða
þá mennina sem aðstoða hann.
Samlíkingin er ebki grip-
in úr lausu lofti fremur en
annað í dæmisögum meistar-
ans. Jesús var uppalinn í sveit-
arþorpi og Ihonum hafði gefist
að líta hvernig gripabóndinn,
sáðgarðsmaðurinn og jarðyrkinn
hlynnir að lífsgróðrinum. Hvað
segir blómræktarmaðurinn, til
dæmis, við sjálfan sig þegar
hann sér veikan og vanhirtan
einstakling í sáðlandi sínu? -—
Hann segir hér vantar hinn rétta
jarðveg, hér eru ekki hin nauð-
synlegu ræktunarskilyrði fyrir
| hendi, hér hefir mér yfirsézt og
| hér þarf umbóta við. Hann trú-
i ir á eðlismátt lífsins til framfar-
, anna sé rækt lögð við lífsins lög.
jvið vaxtarfög lífsins á jörðunni
Hann trúir á framfarir lífsins og
fullkomnun þess. Þessvtegna
hafa framfarir orðið í þróun lífs-
ins á hinum lægri sviðum, og
munu þó meiri verða éftir þvi
sem þekkingin eykst.
Er það nú heimska að halda
að sama muni gilda um manninn
hérna megin grafar — og reynd-
ar á öllum lífssviðum. Óbein-
línis könnumst við líka við þetta
á jólunum. Þá viljum við að
öllum líði vel og gerumst gjaf-
mild og góðhjörtuð svo hinn
hungraði fái fæðu, hinn nakti
skjólföt til að hlífa sér utan dyra
en eldsneyti til heima brúks.
Að sjálfsögðu er þetta fallega
hugsað en ef við viljum að því
starfa, að jólin haldist frá 25.
des. ár hivert til 25. des. næsta
árs þarf mikið meir að gera; ef
við viljum Kristi þjóna þurfum
við fleira að aðhafast en gefa
hungruðum fáeina munnbita á
jólunum. Við þurfum að burt-
nema háðung örbirgðar úr ver-
öld alsnægtanna. Ef við ætlum
okkur að vera verkamenn í vín-
garði drottins og stuðla að við-
gangi lífsins í þeim reit, ætti
ekkert af hans börnum að þurfa
að bera kalsár vetrar fyrir klæð-
leysi, ekkert að vanartast fyrir
hungur eða ala hatur fyrir órétt-
læti örlaganna.
Stundum virðist mér jólin
verða okkur sem nokkurskonar
afsökun. Af því við gefum fá-
tæklingum kertisstúf til að
kveikja ljós, málsverð til að eiga
með okkur veizlukost, stingum
brjóstsykursmola upp í barn
og gefum vinum vorum vasa-
klút, finst okkur svo undur mik-
ið til um okkar kristindóm og
virðist slíkt jólahald ganga æði
langt í að borga fyrir misgerðir
og vanrækslu áranna. Eg er ekki
að gera lítið úr þessu né þeim
tilfinningum, sem jólin vekja,
þvert á móti held eg fram að
glatist jólin, sem kristileg hátíð,
glatist jafnframt maðurinn sem
bróðir Krists í kælreikanum. En
vinur minn, hverjum gafst þú
fyrst og fremst þessar gjafir?
Voru þær ekki í raun og veru
gefnar sjálfum þér? Hjálpuðu
þær þér ekki til að halda jólin
og njóta þeirra? Nautst þú ekki
stofuylsins ennþá betur í heima-
húsum af því þú hjálpaðir til að
hlýja hús náungans? Bar ekki
ljósið skærari birtu í kringum
þig af því þú kveiktir ljós í
hreysi öreigans? Naustu -ekki
veizlunnar betur af því þú gafst
svöngum saðningu?
Hvað segir Channing, postuli
Unitara: “Meðan meðbróðir
minn situr í svartfaoli er eg ekki
jfrjáls, sé hann svangur er eg
ekki saddur. “Ef þú vilt eiga
j endalaus jól með Kristi og með-
bræðrunum þarftu alla daga að
j vera jafn kristinn og á jólunum.
Þú verður að hjálpa til að gera
veröldina að kristilegum veizlu-
sal, frá einu heimskauti til ann-
ars, frá einum jólum til annara.
Jú, þetta væri nú ekki nema
gott og bfessað væri það hægt,
en við erum svo fáir, fátækir og
veikir. Hvað munar eiginlega
um okkur í mannhafi veraMar?
Þetta er bargmál aldanna, von-
leysis og trúleysis upphrópun
lífsflóttans á öllum öldum.
Jú víst voru þeir, fáir veikir
og smáir postularnir tólf, sem
gengu á hólm í orðspeki, við
hina mentuðu Grikki og lögðu til
orustu við hina voldugu Róm-
verja, þar sem andinn sigraði
vopnin að síðustu.
Víst var hún veik móður hönd-
in, sem leiddi þig út á lífsins
braut og benti þér á hamingju
vegin, á æfigöngunni.
Ef tólf ómentaðir og umkomu-
lausir Gyðingar geta valdið
stefnubreytingu í heimsrásinni;
hvað myndu þá ekki tvö hundf-
uð þúsund Islendingar, vestan
°g austan hafs, geta áohkað,
væru þeir samtaka til dáða. Ef
fátæk sveitakona getur leiðbeint
ungdóminum á lífsvegu réttlæt-
isins, kærlei’kans og sannlteikans;
hversu miklu gæti ekki kirkjan
áorkað væri hún guði vígð í
nafni og anda þess er var kon-
ungur sannleikans og opinberun
kærleikans?
Engin er svo úmkomulaus, að
faann ekki geti lagt rækt við
sjállfan sig. Engin er svo van-
burða, að hann ekki megni, að
hjálpa til að stofna og starfrækja
kristilegt heimili. Engin er svo
fárvís að hann ekki geti stutt að
guðsást og góðum siðum í sinni
sveit.
Á þessum jólum verður, að
vanda mikið talað um hina óum-
ræðilegu guðsgjöf í tilkomu
Krists. Það er vel að mennirnir
séu á það mintir en hinu megum
við ekki heldur gleyma að allar
gjafir þiggja laun og þannig er
því líka farið með hinar guðlegu
gjafir. Guði er auðvitað ekki
um megn að fullkomna sköpun-
arverk sitt í manninum, en hann
hefir útvalið okkur, börnin sín,
til þess veglega starfs, að veita
aðstoð í verkinu, svo heims-
menningin sé líka okkar verk og
okkar eign. Hann faefir gefið
okkúr sáðlandið og trúað okkur