Heimskringla - 22.08.1945, Blaðsíða 5

Heimskringla - 22.08.1945, Blaðsíða 5
WINNIPEG, 22. ÁGÚST 1945 HEIMSKRINGLÁ 5. SIÐA nefnd, er lagði fram eftirfarandi tillögur, er voru samþyktar: Að þingið láti í ljósi ánægju sína til Jóns Sigurðssonar fé- lagsins og Icelandic Canadian Club fyrir að vekja máls á iþess- ari nauðsyn, um samkomuhús fyrir Íslendinga í Winnipeg, og vill eiga samvinnu við alla góða íslendinga um framkvæmdir þessa máls. Að 7 manna mlliþinganefnd sé skipuð til að finna leiðir og hafa framkvæmdir í þessu máli. Bendum vér þessari nefnd á nauðsyn þess • að auka við sig að minsta kosti einum meðlim úr hverju þessara félaga, Jóns Sig- urðssonar félaginu og Icelandic Canadian Club, og leggi nefndin fram skýrslu um störf sín á næsta þingi, en eigi annars sam- vinnu við stjórnarnefnd Þjóð- ræknisfélagsins um málið. Bendum vér nefndinni á, að Islendingar eigi nú þegar bygg- ingu hér í bænum, I.O.G.T. Hall, og byggingu Þjóðræknisfélags- ins á Home Street. Gæti komið til mála að eiga samtal við við- komandi hlutaðeigendur um þessar byggingar, sem hugsan- lega undirstöðu fyrir þvílíka byggingu sem við höfum í huga. Eftirfarandi tillögu frá deild- inni “Esjan” um skýrsluform fyrir deildir var vísað til vænt- anlegrar stjórnarnefndar: að framvegis semji stjórnarnefnd félagsins starfsskrá (forms) í spurningaformi, sendi þessar spurningar til deildanna í tæka tíð og svörin síðan lesin á þing- um. Einnig var samþykt undir nýj- um málum svohljóðandi tillagaj frá Mrs. Ingibjörgu Jónsson: Aði væntanlegri stjórnarnefnd Þjóð-J ræknisfélagsins sé falið að leita samskota hjá meðlimum félags- ins og öllum þeim, sem íslenzk- um þjóðræknismálum unna, málefnum félagsisn til styrktar. Nær þinglokum kom Ingólfs- sjóður til umræðu. Eftir að mál- ið hafði verið all-mikið rætt, var það afgreitt á þann hátt, að stjórnarnefnd var falið að ráð- stafa málinu þannig, að unt sé að leggja það fyrir næsta þjóðrækn- iáþing til endanlegra úrslita. Kosning embættismanna Þessir voru kosnir embættis- menn félagsins fyrir yfirstand- andi starfsár: Forseti: Dr. Richard Beck Vara-forseti: Séra Valdimar J. Eylands Ritari: Séra Halldór E. Johnson Vara-iritari: Jón Ásgeirsson Féhirðir: Grettir L. Jóhannson ræðismaður Vara-féhirðir: Séra Egill H. Fáf- nis Fjármálaritari: Guðmann Levy Vara-fjármálaritari: Árni G. Eggertson, K.C. Skjalavörður: Ólafur Pétursson Endurskoðendur voru kosnir þeir Steindór Jakobsson og Jó- hann T. Beck, en í útnefningar- nefnd hlutu kosningu Sigurður W. Melsted, Hjálmar Gíslason og Guðmundur Eyford. MINNINGARORÐ . hafna, en þolinn og þrautseigur ÆFIMINNING er hann var genginn að verki. Var hann því talinn góður liðs-1 maður að hverju sem hann vann. Hinn 16. maí s. 1. andaðist á Misericordia sjúkrahúsinu í Hann var trésmiður góður af Winnipeg, Man., Albert Björg- manni sem aðeins hafði lært af vin Johnson. Hann var fæddur æfingu, laginn og athugull við 14. apríl 1911. Foreldrar hans alla vinnu. j voru hjónin Sigurjón og Guðrún j Fátækur var hann alla æfi, Johnson í Odda í Árnesbygð. enda var hann örlyndur og hjálp-. Sigurjón dó árið 1925, og bjó samur um efni fram. Að sönnu ekkja hans áfram á landi þeirra átti kona hans nokkrar eignir með börnum sínum, og þar ólst fyrir jörð er hún seldi heima á Albert sál. upp. Árið 1928 misti Islandi, en þeir peningar munu hann heilsuna, fékk lömunar- hafa eyðst að mestu árin sem veikina, sem svo mörgu ungu þau dvöldu í Winnipeg, því oft: fólki hefir skæð orðið í þessu Sigurður Sigurðsson frá Húsey Góðar bækur Icelandic Grammar, Text, Glos- sary, Dr. Stefán Einarsson, (bandi) ------------- „$8.50 Björninn úr Bjarmalandi, Þ. Þ. Þ. (óbundin) -----$2.50 (bandi) ----------------$3.25 Hunangsflugur, G. J. Guttorms- son, (bandi) —,--------—$1.50 Úr útlegð, J. S. frá Kaldbak, (óbundið) -------------- 2.00 (bandi) -------------- 2.75 Fimm einsönglög, Sig. Þórðar- son (heft) -------------$1.50 Björnsson’s Book Store 702 Sargent Ave. — Winnipeg ★ ★ * VIÐ KVIÐSLITI Til linunar, bóta og styrktar •eynið nýju umbúðírnar, teyju- lausar. Stál og sprotalausar. — Skrifið: Smith Manfg. Company, Dept, 160, Preston, Ont. Hann var fæddur í Hólshjá- leigu í Hjaltastaðaþinghá 2. maí 1859. Faðir hans var Sigurður j Jóhannesson, Árnasonar Eyfirð-! ingaskálds, Jónssonar. Lengrai verður sú ætt ekki rakin hér, en Árni mun hafa flutst ungur aust- ur á Fljótsdalshérað, og dvalið þar um lengri eða skemri tíma. Kona Sigurðar Jóhannessonar, móðir Sigurðar yngra, var Sig- ríður Jónsdóttir, bónda í Gagn- stöð í Hjaltastaðaþinghá Stef- ánssonar. Faðir Sigurðar bjó í Hólshjá- leigu; hann var gleðimaður og hagmæltur vel sem faðir hans og afi, og vel viti borinn. Skrif- ari var hann ágætur og hagur á alt er hann lagði hendur að. Þegar hann var um tvítugt misti hann báða fætur um öklalið. Var það afleiðing af illri aðbúð er hann lá þungt haldinn í tauga- veiki. Eftir það gekk hann æ- tíð á hnjánum, en vann þó flest verk sem heilfættur væri. Hann varð úti um hávetur 1859 í of- viðri, milli Hólshjáleigu og Víða- staða. Þá var Sigurður yngri ekki fæddur. Hann fæddist 2. maí sama ár sem áður er getið. Hann var tekinn til fósturs viku gamall af ömmusystur sinni Helgu Jónsdóttur, ekkju eftir Halla bónda á Nefbjarnar- stöðum, Jónssonar bónda í Tungu í Fáskrúðsfirði, Björns- sonar prests á Stað í Stöðvar- firði, Hallssonar. Tíu ára gam- all fluttist Sigurður að Húsey með Birni frænda sínum, og ólst þar upp til fullorðins ára. Taldi hann þar jafnan heimili sitt meðan hann dvaldi á Islandi. Sigurður gerðist lausamaður þegar hann var fullþroskaður og vann þá ýmist að smíðum eða við sjómensku um nokkur úr. Á þeim árum kyntist hann Járn- gerði, sem síðar varð kona hans. Hún er Eiríksdóttir bónda í Kverkártungu á Langanesströnd Guttormssonar, en systir Stef- áns Eiríkssonar skálds og þeirra bræðra; hún er fædd 1872. Þau fluttust vestur um haf 1891 og giftust ári síðar í Winnipeg. Þar dvöldu þau til 1899, en þá flutt- ust þau til Nýja íslands og tóku land nærri því sem nú er Win- nipeg Beach og bjuggu þar 21 ár. Þá seldi hann land sitt en keypti land við Poplar Park, P.O., og bjó þar í 14 ár. Þá hætti hann búskap, seldi land sitt en dvaldi hjá börnum sínum eftir það en lifði þá af eigin efnum til þess síðasta. Þeim hjónum varð 10 barna auðið, af þeim eru 6 enn á lífi: 1. Helga, gift Kristjáni H. Is- fjörð í New Westminster; 2. Þor- björg, gift hérlendum manni í Vancouver; 3. Þórunn, gift Hall dóri Johnson í Vancouver; 4. John, giftur hérlendri konu; 5 Kristján, giftur hérlendri konu í Poplar Park; 6. Björn, bóndi við Gimli, Man., giftur Hildi Holm. Sigurður var mikill maður vexti, og þreklega bygður, enda var talsvert meir en meðalmaður að burðum. En það var eins og fleira í háttum hans að hann hafði ekki atgerfi sína til sýnis. Hann var ekki f jörmaður eða á hlaupamaður til vinnu eða at- var þá lítið um vinnu. Ekki naut Sigurður mentunar í æsku fremur en flestir bænda- synir á þeim árum. En hann var fróðleiksfús og las allar þær fræðibækur er hann kom hönd- um á. Hann var vel viti borinn þótt ekki væri hann bráðskarp- ur. Hann las með áhuga og mundi furðu vel það er hann las og hafði þess því meiri not, en flestir aðrir. Hann var glað- lyndur og skemtinn í viðræðu. Bjartsýnn og tók öllum örðug- leikum með jafnaðargeði. Skap- lyndi hans og gáfnafar, var í góðu samræmi við athafnir hans, og fáa hygg eg hafi séð ihann skifta skapi. Oft var hann seinn til að láta skoðun sína í ljósi um menn eða málefni, en væri hann búinn að mynda sér fasta skoður. þá varði hann vel með stillingu og rökfærslu. Hann var trygg- ur vinur vina sinna, en sann- gjarn í garð andstæðinga sinna, og hataði allar öfgar og rang- færslur. Engum vildi hann rangt gert og fáa hef eg þekt eins áreiðanlega til orða og verka sem hann. Hann var vinsæll og hafði hvers manns traust og hylli, sem kyntist honum vel. Sigurður var hraustmenni, heilsugóður alla æfi, og bar vel ellina. Hann fluttist vestur að Kyrrahafi síðastliðið haust, því þangað voru börn hans flest far- in. — En kona hans var þangað flutt þrem árum áður, sér til lieilsubótar, með góðum árangri. Þau dvöldu hjá dóttur sinni og Helgu ísfjörð og manni hennar. Þar lézt Sigurður 12. júní s. 1. eftir stutta legu. — Með Sigurði er til grafar genginn einn af okkar ram-íslenzku bændum. — Hann hafði mörg einkenni hinna fornu íslendinga, sem sögurnar okkar lýsa svo að þeir voru: “dulir í skapi, en drengir góðir”. Mættum við ætíð eignast sem flesta þeim mannkostum búna. Guðm. Jónsson frá Húsey sakna hans, en sárastur harmur er samt kveðinn að móður hans, með fárra mánaða millibili er hefir orðið að sjá á bak tveimur sonum. Mesta huggun hennar er sú, að þeir voru báðir nýtir menn og heiðarlegir, sem gátu sér góðan orðstír. E. J. Melan ATHUGASEMD við grein Jónasar Pálssonar á 7. síðu þessa tölublaðs. Heimskringla á Islandi Herra Björn Guðmundsson, Reynimel 52, Reykjavík, hefir aðalumboð fyrir Heimskringlu á Islandi. Eru menn beðnir að komast í samband við hann, við- vikjandi áskriftar-gjöldum, og einnig allir þeir sem gerast vilja kaupendur hennar, hvar sem er á landinu. Hr. Guðmundsson er gjaldkeri hjá Grænmetisverzlun ríkisins og þessvegna mjög handhægt fyrir borgarbúa að hitta hann að máli. * * * “Brautin” II. árgangur Nýkomin út. Fæst hjá útsölu- mönnum víðsvegar. — Sjá um- boðsmanna skrá á öðrum stað í blaðinu. — Einnig hjá Björns- sons Book Store, Winnipeg, og P. S. Pálsson, 796 Banning St., Winnipeg. — Kostar aðeins $1. Mikið stærra rit heldur en I. ár- gangur. Tryggið yður eintak með því að kaupa strax. * * * Heimskringla er til sölu hjá hr. bóksala Árna Bjarnarsyni, Akureyri, Island. ★ ★ * Kaupi Neðanmálssögur “Heims- kringlu” og “Lögbergs”. Verða að vera heilar. Má ekki vanta titilblaðið. Björnsson’s Book Store 702 Sargent Ave., Winnipeg fylki, sem víðar um heim. Albert heitinn lá lengi þungt haldinn, en náði sér smátt og smátt, svo að hann gat haft fóta- vist, en alla æfi bar hann menjar þessarar veiki, en þrátt fyrir það, var hann ætíð eitthvað að starfa á heimilinu. Þrátt fyrir það að hann var svona fatlaður misti hann eigi kjarkinn né starfslöngunina. — Hann reyndi margt, svo sem ali- fugla- og loðdýrarækt, og gekk það vel, því að hann var ná- kvæmur við alt, sem hann gerði, og reyndi að kynna sér reynslu annara eftir fremsta megni. — Skólanám sitt, sem hafði fallið niður er hann veiktist, bætti hann upp með því að læra heima, og varð allvel að sér. Einnig lagði hann stund á hljóm- list og lék á mörg hljóðfæri. Fyr• ir nokkrum árum tók hann að nema gullsmíði, og gekk það vel, því að hann var listfengur mjög og ötull við það eins og annað., Hefir hann þessi síðustu ár unn- j ið við gullsmíði í Winnipeg, þar veiktist hann s. 1. vor, leiddi sú veiki hann til dauða, hinn 16. maí s. 1. Hann var jarðaður frá Samfoandskrikjunni í Árnesi, og lagður til hvíldar í grafreit Ár- nes bygðar. Æfi þessa unga manns varð ekki löng, en hún var oft örðug. Það er þungt hlutskifti að verða farlama, þegar vonir og fram- sóknarlþrá æskunnar brennur sem bjartast í brjósti manns. En það varð hlutskifti Alberts sál. Mörg þau sund, er hugur hans sá standa opin meðan heilsan vanst, lokuðust honum með öllu, er hann misti hana. En líf hans var samt þannig, að það getur verið til fyrirmyndar. Það sýn- ir oss fyrst og fremst mátt vilj- ans, er sigrar hindranir og örð- ugleika líkamlegs heilsuleysis. Framsóknarhug, er eigi lætur fougast af örðugleikunum, en leitar að nýjum leiðum, þegar aðrar lokast, og finnur lausn hinna margvíslegu vandamála, sem ætíð verða á leið manns, en gerast svo knýjandi þeim, sem þrá að vera sjálfstæðir, en eru sakir vanheilsu bundnir í báða skó. Enginn, sem þekti þennan unga mann, gleymir hinni hug- rökku baráttu hans, hinni vin- gjarnlegu framkomu hans og hversu rólega hann tók þessu mótlæti sínu. Ef spurt er hvað- an honum kom þessi styrkur, þá | er vafalaust, að svarið finst í ætt hans og umhverfi og lífslóð. — Foreldrarhans, Sigurjón og Guð- rún, voru framúrskarandi dug- leg og góð hjón. Stjálfstæð, framsóknardjörf og mannúðleg. Þau brýndu fyrir börnum sínum þýðingu iðjusemi og mentunar, og komu þeim til menta hverju af öðru. Tvær dætur þeirra eru kennarar, tveir synir þeirra hafa náð hinum hæstu mentastigum og skipa þýðingarmiklar stöður í þjóðfélaginu. Albert heitinn var þannig skapi farinn, að hann vildi verða nýtur maður og sjálf- stæður, og var það. Á hinni örðugu leið vanheilsunnar, naut hann styrks góðrar móður og systkina, sem hvöttu hann í fyrirtækjum hans og báru byrð- ina með honum. í framkomu sinni og breytni var Albert sál. hæglátur og prúð- mannlegur. Hann var félags- lyndur og átti marga vini, sem Heimskringla vill gera ' at- hugasemd, við þessa grein J. P. sem aðrar. Ætti ekki mikið á móti því að vera frá hálfu J. P. þar sem slíkar athugasemdir eru það bezta sem ritstj. Hkr. hefir skrifað, að hans dómi. Um ritvillurnar, sem þú byrj- ar á, fer þú rangt með. Setjirðu upp betri gleraugun þín og lesir handrit þitt vel, muntu sjá að Hkr. fór með rétt mál í síðustu athugasemd sinni. Það er því ekki sá hluti greinar þinnar, sem þessari athugsemd veldur. Þú teflir þar á, að geta haldið fram röngu máli gegn betri vitund og eg ætla ekki að fara neitt til að reyna að snotra þig fyrir það. 1 öðru lagi eru aðfinslur þínar við blaðið Hkr. að hún sé að tapa lesendum fyrir að flytja ekkert að gagni, nema líklega það, sem frá þínum penna kemur. Á eg að vera svo hreinskilinn, að segja þér að Heimskringlu hafa ekki aukist vinsældir fyrir síð- ustu skrif þín. Þær hafa ekki orðið neinn veggur undir vesöld hennar. Auk þess grípur þú til þess, er mörgum hættir við, ef eitthvað er sagt í blaði, sem þeir eru ekki sammála um, að minna á áskriftargjaldið. Hkr. heldur því sama fram við þig og aðra í því efni, að það breytir í engu hvaða skoðanir hún flytur, álíti hún þær réttmætar. Þú berð henni á brýn afturhald í stjórn- málum og trúmálum. Hvað trú- mál áhrærir, heldur hún fram hinni frjálsustu stefnu, er nokk- urt íslenzkt blað hefir boðað Að bregða henni þar um aftur- hald, er henni alveg nýtt. Hvað stjórnmálin áhrærir, hefir hún haldið fram af ritstjór- ans hálfu, beinni löggjöf í grein- um sínum og gerir það af ein- lægri sannfæringu hans um, að þjóðfélög heimsins öðlist aldrei fullkomið stjórnmálalegt lýð- ræði og frelsi án þess. Eg veit ekki til að önnur blöð hér hafi gengið lengra í frjálslyndi en það. Blaðið hefir ennfremur birt athugasemdalaust aðsendar greinar um C.C.F., Social Credit, liberalisma, conservative-isma og kommúnisma. Allar þessar stefnur bág við beina lög- gjöf, en hafa samt verið birtar, sem ekki var nema sjálfsagt, ef sæmilegar voru að frágangi. Að lesendur hafi metið þetta vitum vér af því, að þeim hefir ekki fækkað eins og þú gefur í skyn, hvaðan sem þú hefir það, og að j minsta kosti ekki neitt í híut- falli við það, sem þeim er ís- lenzku lesa, hefir fækkað á síð- ustu 20 árum. Það er og lítil hagsvon í því fyrir blaðið, ef þú átt með ummælum þínum við, að þú sért að vinna því gagr., að dreifa öðru eins rugli út um það, eins og í grein þinni er gert. Jónas Pálsson vill ekkert með kirkju- eða félagsmál hafa í blöðunum. Það er ekkj gott að skilja hvað það mundi efla hag íslenzkunnar hér vestra, að sinna ekkert íslenzkum félagsmálum. Það er innan íslenzkra félaga og kirkna, sem blöðin hafa mikla stoð, og það er ekki lítið því að þakka, að þau geta enn komið út í hverri viku á íslenzku, en þurfa ekki að koma aðra vikuna á ensku. En þeir eru fleiri, sem á þessum sjálfbirgingshætti hér suða, en Jónas, að við verðum þeim mun betri Islendingar, sem við losum okkur fyr og algerast við íslenzkt félagslíf. FJÆR OG NÆR Séra Rúnólfur Marteinsson og frú eru nú alflutt hingað til Winnipeg frá Vancouver, B. C., þar sem þau hafa búið í nokkur undanfarin ár. Heimili þeirra hér í bæ er að 800 Lipton St. Símanúmer þeirra er 28 168. ★ ★ ★ Nýjar bækur sem allir þurfa að lesa BRAUTIN, ársrit Hins Sam- einaða Kirkjufélags íslendinga í Norður Ameríku. II. árg. 120 blaðsíður í Eimreiðarbroti. — Fræðandi og skemtilegt rit. — Verð ________________$1.00 “ÚR ÚTLEGД, ljóðmæli eft- ir Jónas Stefánsson frá Kaldbak. Vönduð útgáfa með mynd af höf- undi. Góð bók, sem vestur-ís- lenzkir bókamenn mega ekki vera án. Bókin er 166 blaðsíður í stóru broti. Verð__$2.00 BJÖRNINN ÚR BJARMA- LANDI, Þ. Þ. Þ., í bandi $3.25, óbundin $2.50. FERÐAHUGLEIÐINGAR eft- ir Soffanías Thorkelsson, í tveim bindum, með yfir 200 myndum. Bæði bindin á $7.00. HUNANGSFLUGUR, eftir Guttorm J. Guttormsson. Kostar aðeins $1.50 í bandi. Fæst nú i BJÖRNSSONS BOOK STORE ríða'1702 Sargent Ave. Winnipeg MUSIC Tólf sönglög, Friðrik Bjarnason $ Sex sönglög, Friðrik Bjarnason_________7________ Tvö kvæði, St. G. St., Jón Laxdal ___________ Að Lögbergi, Sigfús Einarsson _ _______________ Til Fánans, Sigtfús Einarsson________________ Jónas Hallgrímsson, Sigtfús Einarsson Pétur Guðjónssen, Sigfús Einarsson______________ Fáninn, Sveinbjörn Sveinbjörnsson Now is the North of Maying, Sv. Sveinbjörnsson Up in the North, Sveinbj. Sveinbjörnsson ______ Þrjú sönglög, Bjarni Þorsteinsson .35 .35 .35 .35 .35 .35 .35 .35 .35 .35 .35 Bjarkamál, Bjarni Þorsteinsson __________________ .35 Huginn^F. H. Jónasson _________________________ .35 Þrjú sönglög, Hallgr. Jónsson ___________________ .35 Serenata, Björgvin Guðmundsson___________________ .35 Passíusálmar með nótum _________________________ 1.60 Harmonia, Br. Þorláksson ________________________ .50 Söngbók ungtemplara, Jón Laxdal _________________ .35 Skólasöngbókin II., Pétur Lárusson_______________ .25 Suðurnesjamenn, Sigv. S. Kaldalóns, Einsöngur____ .35 Þrá, Sigv. S. Kaldalóns, Einsöngur ______________ .30 Máninn, Sigv. S. Kaldalóns, Einsöngur ___________ .50 Kaldalóns þankar, Sigv. S. Kaldalóns, Piano _____ .35 Þótt þú langförull legðir, Sigv. S. Kaldalóns, Eins.__ .25 14 sönglög, Gunnsteinn Eyjólfsson ______________ 1.25 Ljósálfar, Jón Friðtfinnsson ____________________ 1.50 5 einsöngslög, (mneð ísl. og enskum texta) Sig. Þórð. 1.50 BJÖRNSSON’S B00K STORE 702 SARGENT AVE. WINNIPEG, MAN.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.