Heimskringla - 18.10.1950, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 18. OKT. 1950
HEIMSKRINGLA
3. SÍÐA
bandslaganna, um jafnrétti Dana
og fslendinga. Gekk eg á fund
þáv. menntamálaráðherra Dana,'
Jakobs Appel. Hann hafði veriðj
lýðháskólastjóri í Askov, en þann ■
skóla höfðu margir íslendingar
sótt, hafði komið til íslands og
þótti af þessum ástæðum vænt
um ísland og íslendinga. Eg var
honum auk þess kunnugur per-
sónulega.
Nú lagði eg málið fyrir hann.
Hann svaraði án umsvifa, að auð-
vitað ættu þessar íslenzku stúlk-
ur að, fá styrk eins og þær
dönsku. Hann kallaði á starfs-
mann þann í ráðuneytinu sem
hafði afgreitt málið og sagði: —
“Hvers vegna fengu þessar tvær
stúlkur engan styrk?” “Af því
að aðrir fá ekki styrk en danskar
stúlkur”, svaraði hann. — “Þér|
gleymið þá 6. gr. sambandslag-
anna. Viljið þér sjá um að þess-
ar íslenzku stúlkur fái sama
styrk og þær dönsku tafar-
laust”, sagði hann í mjög ákveðn-
um tón. Og þær fengu styrkinn.
Nokkrum vikum síðar hitti eg
Appel í samkvæmi. Hann gekk
til mín strax og sagði: “Er það
ekki eins og eg hef alltaf sagt?
fslendingar eru sérstakir í sinni
röð”. Svo sagði hann mér þessa
sögu: Fyrir nokkru höfðu syst-
urnar frá Brimnesi komið í ráðu-
neytið, sagst hafa fengið styrk úr
sambandsdsjóðnum, eftir að þær
fengu styrkinn í ráðuneytinu ogl
því væru þær nú komnar til þess
að skila aftur styrknum. Málið
var lagt fyrir ráðherrana. Eg
sagði, að mér þætti vænt um að
heyra þessa sögu um landa mína.
“Hvernig haldið þér að málalok-
in hafi orðið?” spurði hann. Það
vissi eg auðvitað ekki. “Eg þurfti
enga umhugsun. Auðvitað skulu
þær halda ríkissjóðsstyrknum
lí'ka. Svo óvenjuleg framkoma
verðskuldartvöfaldan styrk, og
þótt meira væri.”
Eg hef aldrei gleymt því, hve
þessar tvær fátæku stúlkur gerðu
garð fslands frægan með þessari
framkomu sinni, og mér finnst
að slíku eigi að halda á lofti. Og
nú gefst tilefni til þess við and-
lát annarar þeirra.
Bessastöðum á höfuðdaginn
1950
ar. Var minkurinn kominn um
það bil hálfa leið, en út í Hrapps-
ey eru um fjórir kilómetrar. —
“Hafði enginn átt von á því að
sjá mink á þessari leið”, bætti
Carlsen við, “og var því ekki
skotvopn við höndina til að
granda honum.”
Ennfremur átti Vísir tal við
aðra minkaskyttu um síðustu
helgi. Sagði sá maður sömu sögu
og Carlsen, að minkum fækkaði
nú til muna, en hann taldi það
meðal annars því að þakka, að
menn hafa lagt talsverða stund á
að eyða honum, en veiðimaðurinn
fær 60 krónur fyrir hvern unninn
mink, eins og Vísir hefir skýrt
frá áður. Á stað einum fyrir sunn
an Hafnarfjörð, þar sem maður
þessi er gagnkunnugur, 'kvaðst
hann hafa skotið 50 minka á
nokkrum vikum sumarið 1948, en
árið eftir hefði hann skotið 40 á
um það bil jafnlöngum tíma
Mátti hvort tveggja teljast góð-
ur fengur. í sumar skaut hann
hinsvegar ekki nema 15 min'ka og
telur því, að þeim hafi fækkað
til muna þar syðra.
Vísir vill ekki leggja neinn
dóm á það, hvort það eru veiði-
mennimir, sem halda f janda þess
um í skefjum eða pest hefir kom-
ið upp í stofninum eins og Carl-
sen getur sér til, en sé svo, þá er
það sennilega eina pestin sem við
megum þakka fyrir, að komið
hefir upp í dýrum hér á landi.
—Vísir 8. sept.
Brennerskarð til Innsbruck í
Austurríki. Frá Innsbruck verð-
ur haldið til Garmisch-Parten-
kirchen, en þar geta þátttakend-
ur farið með hinni einstöku braut
á hátind Zugspitzen, hæsta fjalls
Þýzkalands, yfir 2900 m. á hæð.
Þá verður haldið áfram um Augs-
burg, Wurzburg, Göttingen, Han
nover, Hamborg, Flensborg og til
Danmerkur.
I .
Frá aðal-brautarstöðinni í
Höfn verður farið í hópgöngu til
Jesú Hjartakirkjunnar í Stenos-
götu, þar sem pílgrímaförinni
lýkur með Te deum og blessun
með hinu Allrahelgasta Sakra-
menti. —Vísir 11. september
HITT OG ÞETTA
FRÉTTIR FRÁ ÍSLANDl
Skæð pest virðist komin
upp í villiminkum
Einn manna þeirra, sem bezt
vita um útbreiðslu minka hér í
nærsveitum Reykjavíkur, telur,
að pest muni vera komin upp
meðal þeirra, sem drepur þá unn-
vörpum.
Vísir átti í gær viðtal við Carl
Carlsen, sem er manna kunnug-
astur þessu máli og skýrði hann
blaðinu svo frá, að minkum færi
ört fækkandi, þar sem hann vissi
til. Gerir hann ráð fyrir því, að
einhver bráðapest muni hafa;
komið upp í stofninum, enda hafi
bændur, til dæmis í. Laugardal í
Árnessýslu og Höfnum á Suður-
nesjum, fundið sjálfdauða minka
hingað og þangað á víðavangi.
Sjálfur kvaðst hann hafa fundið
tvo dauða minka eða öllu heldur
beinagrindur og var ekki annað
sjáanlegra, en að þeir hefðu orð-
ið sjálfdauðir. Sá Carlsen þess
engin metki á beinum minkanna,
að þeir hefðu orðið fyrir skotum
eða hlotið einhvern áverka. Hins
vegar var ekki hægt að gera'
neinar aðrar rannsóknir á þeim,
sem sannað gætu tilgátu hans.
Ennfremur benti hann á það,
til sönnunar tilgátu sinni um
fækkun minka, að á þeim slóðum
þar sem minkar hefðu sézt 5 — 6
sinnum á dag, þegar mest var af
þeim, kunni nú að líða heil vika
svo, að ekki verði nokkurs dýrs
vart af því tagi.
Þá sagði Carlsen blaðinu einn-
ig frá því, að það sé örugglega
sannað, að minlkar syndi langar
leiðir í sjó. Ekki alls fyrir löngu
átti hann erindi í Breiðaf jarðar-
eyjar. Er hann var a leið með
vélbáti — frá Brokey til lands
sá hann og fleira fólk í bátnum, I
mink á sundi og stefndi hann
frá Stykkishómi til 'Hrappseyj-
íslendingar í suðurgöngu í
næsta mánuði
Hópur kaþólskra manna á
Norðurlöndum leggur upp í
pílgrímsför til Rómar fra Kaup-
mannahöfn hinn 8. næsta mánað-
ar, þar á meðal 6 — 8 íslendingar.
Pílgrímsför þessi er hin þriðja
og síðasta, sem kaþólskir Norður-
landabúar leggja upp í á þessu
helga ári kaþólskra manna, en ís-
lendingar hafa ekki tekið þátt í
hinum tveim fyrstu.
Vísir hefir átt stutt tal við síra
Hákon Loftsson, prest við kaþ-
ólska sööfnuðinn hér, og fengið
hjá honum uplýsingar þær, er hér
fara á eftir.
Þeir íslendingar, sem héðan
fara í pílgrímsförina fara hver i
sínu lagi, en í Kaupmannahöfn
safnast svo saman pílgrímar frá
Noregi og Svíþjóð. Fararstjóri
islenzku þátttakendanna verður
síra Ubaghs, hollenzkur maður,
sem er sóknarprestur í Landa-
koti. Jóhann Gunnarsson biskup
fer héðan á undan til þess að und
irbúa förina. Förin frá Kaup-
mannahöfn og þangað aftur mun
taka 14 daga.
Frá Kaupmannahöfn verður
farið að mogni hins 8. október
með jámbrautarlest, og verður
flutt heilög messa á leiðinni.
Farið verður um Padborg, Flens-
borg, um Bad Oldesloe, Ham-
borg og Gottingen. Á öðrum degi
verður farið um Bebra, Frank-
furt við Main, Heidelberg, Karls-
ruhe, Offenburg og Basel til
Luzern í Sviss. Síðan verður
haldið áfram til ítalíu, farið um
Chiasso, Milano, Verona og Pa-
dua til Feneyja, en þar verður
dvalið í einn dag. Þar verður
morgunmessa í Markúsarkirkj
unni, en um eftirmiðdaginn stutt
guðsþjónusta í Frari-kirkjunm.
Þaðan verður svo farið til Padua,
en þar verður stutt guðsþjón
usta við gröf hins heilaga Anton
íusar; ennfremur verður {ariðti
heilagrar Giustinu-kirkju. Si an
verður haldið áfram til Bologna
og loks til Rómar.
í Rómaborg verður svo dval-
ið í fimm daga eða svo, skoðað
hið markverðasta í borginni, svo
sem flestar höfuðkirkjur og geng
ið á fund páfa.
Frá Rómaborg verður fanð til
Assísí, en þar verður heilög
miessa flutt í Fransískusarkirkj
unni. Síðan verður haldið þaðan
um Perugia og Terontola ti'
Flórens. Þaðan verður haldið um
Bologna og fleiri borgir um
Skuldir ríkissjóðs hafa
fimmfaldazt síðan 1945
Skuldir ríkissjóðs í árslok
1949 voru 271, 665,000 krónur, og
voru innlendar fastaskuldir 75,5
milljónir, innlendar lausaskuldir
164,6 milljónir, erlendar fasta-
skuldir 30,6 milljónir og erlendar
lausaskuldir 926 þúsund.
Hagtíðindi hafa nýlega birt
skrá yfir skuldir ríkisins síðustu
10 ár, en þær hafa farið stöðugt
hækkandi síðan 1945 og eru nú
meiri en fimmfaldar miðað við
það ár. Ríkisskuldirnar hafa ver-
ið sem hér segir samtals:
1940 ............... 55,330,000
1942 ............... 80,408,000
1945 ............... 55,029,000
1947 .............. 130,074,000
• 1948 ............... 198,380,000
1949 271,655,000
Erlendu skuldirnar hafa auk-
izt mjög síðustu árin og voru þær
22 mil'ljónir 1947, 67 milljónir
1948 og 75 milljónir 1949, en á
þessum árum var meðal annars
tekið stórlán fyrir nýju togurun-
um, sem verið er að smíða í Eng-
landi.
Eignir umfram skuldir ríkis-
ins hafa aukizt jafnframt skuld-
unum og voru 1940 29 milljónir,
1943 90 milljónir, 1946 164 millj-
ónir og 1949 180 milljónir.
—Alþbl. 15. september
Ekki samræða að tala um peninga
Eg dvaldi um tíma í Reykja-
vík í vor. Menn töluðu um dýr-
tíð. Vöruskort og dýrtíð, gengis-
fall og dýrtíð, viðskiptaklæki og
dýrtíð. Rétt eins og þyrfti að
fræða einhvern um, að komin
væri dýrtíð! — Dýrtíðin var
ekki nærri eins fyrirferðarmikil
þar sem eg kom til að heilsa upp
á kunningja mína í afskekktri
sveit. Eg kom á bæ, þar sem bónd
inn og nágranninn voru í f jörug-
um samræðum um — ekki um
dýrtíðina, heldur um lausavísur
og hnittin svör ýmissa nafn-
greindra manna. Það ætti að
vera hægt að fylgjast með vísi-
tölunni án þess að láta vitsmuna-
lífið hrörna. í sveitunum hafa
samræður enn ekki lagzt niður.
Eg kalla það ekki samræður að
tala um peninga. — Eg kom á
annan bæ. Þar voru þrír bræður
um tvítugs aldurs. Enginn þeirra
reykti. Eg frétti líka af úti-
skemmtun, þar sem ekkert ung-
menni bragðaði vín og tæpast var
sjáanlegt að áfengi væri haft um
hönd. Aumt er að slíkt skuli telj-
ast frétt á íslandi.
For Better Civic Government-
ELECT
These INDEPENDENT
CANDIDATES
for for
Aldermen School
SCOTT Trustee
HALLONQUIST JESSIMAN
• •
Endorsed by the
CIVIC ELECTION COMMITTEE
Mark Your Ballot 1 and 2 in order
of your preference
Polls are Open 10 a.m. to 9 p.m. — Wednesday, Oct. 25
Grunnt á hjátrúnni
“Ung kona sagði við mig: “Dá-
samleg er nú Reykjavík”. Það
hafði eg raunar heyrt fyrr, en
hún hélt áfram: “Veiztu hvað!
Þegar eg var 1 Reykjavík lærði
eg bæði ensku og dönsku í náms-
flokkkunum. Eg var á saumanám
skeiði. Og svo vann eg auðvitað
fyrir kaupi, og eg---------”•
Flestir eru að eðlisfari námfúsir.
En unglingar, sem hafa ofétið
sig á iskyldunámsgreinum, telja
víst ekki dönskutímana með
gleðistundum æfinnar.. Hvað er
langt síðan orðið námsleiði
komst inn í málið? — Þetta var
nú á þeim útkjálkanum. En svo
er það nesið okkar hérna, þar
sem norðaustanáttin er slæm. í
dag er Höfuðdagurinn. Fólk
trúði því áður fyrr, að tíð
breyttist með Höfuðdeginum. —
Og þrátt fyrir öll veðurvísindi
bíðum við Höfuðdagsins með ó-
þreyju. — Svona er grunnt á
hjátrúnni. Ekki er góðverk að
æsa hana eins og nú er að komast
í hefð.
—Þjóðviljin
* * *
Kantarabiskup atyrðir páfa
Dr. Fischer erkibiskup af
Kantaraborg hefur í nafni ensku
kirkjunnar lýst vanþóknun á
þeirri ætlun páfa að gera það að
trúarsetningu að líkami Maríu
meyjar hafi stigið upp til himna.
Einnig hefur dr. Fischer for-
dæmt rómversk-kaþólsku kirkj-
una fyrir að ýta undir ofsóknir
og kúgun, sem önnur kristiii
kirkjufélög eru beitt í rómversk-
kaþólskum löndum. —Þjóðv.
Kaupið Heimskringlu
Lesið Heimskringlu
Borgið Heimskringln
Öllum er sparsemin til einhvers nytsamleg
Ný heyþurkunarvél
Amerískur uppfyndingarmað-
ur hefir fengið einkaleyfi á hey-
þurrkunarvél, sem hann hefur
smíðað. Vélin er dregin af drátt-
arvél. Hún tekur nýslegið heyið'
úr múgnum og færir það á belti ^
inn í hitunarofn, þaðan sem það:
svo kemur út fullþurgað. Vélin|
skilar heyinu í garð eða á vagn
eða bíl, sem færist jafn hliða
henni. —Tíminn 15. september
5 íslenzkir togarar hlaupnir
af stokkunum í Bretlandi
Fimm hinna tíu togara, sem
nú eru í smíðum í Bretlandi á veg
um ríkisstjórnarinnar, eru nú.
hlaupnir af stokkunum.
Eins og kunnugt er, var á sín-
um tíma samið um smíði a tíu
togurum í Bretlandi eða 8 eim-
knúnum og 22 dieseltogurum.
Eimtogararnir verða um 685 lest-
ir að stærð, 183% fet á lengd, 30
fet á breidd og rista 16 fet. Verða
ieir álíka stórir og stærstu ný-
sköpunartogaramir, t. d. Neptún-
us. Dieseltogaramir verða um 15
lestum stærri, eða 700 lestir, 185
fet á lengd, 13% fet á breidd og
16 fet á dýpt.
Nú hafa fimm eimtogaranna
runnið af stokkunum, tveir hjá
skipasmíðastöð Alexander Hall
and Co. í Aberdeen, og heita þeir
“Víkingur” og “Höfrungur” og
þrír hjá skipasmíðastöð Hall,
Russel & Co., Ltd., einnig í Ab-
erdeen, en þeir hafa hlotið nöfn-
in “Hrefna” “Andvari” og
“Dröfn”. Síðasti togarinn rann
af stokkunum 28. ágúst s. 1. og
var það “Dröfn”.
1 Goole eru tveir dieseltogarar
í smíðum, en þeir eru enn ekki
komnir á flot. Þá eru tveir eim-
togarar í smíðum hjá John Lew-
is 8c Co. í Aberdeen, en þeir eru
heldur ekki komnir á flot.
Dieseltogaramir verða samkv,
þessu stærstu fiskikip íslend
inga. Gert er ráð fyrir, að öll
þessi skip verði búin fiskimjöls-
vinnsluvélum. —Vísir 14. sept
Tryggið sjálfstæði yðar
með
CANADA SAVINGS B0NDS
Hundruð þúsunda af Canada-fólki tilheyrandi öllum stéttum,
leggja fyrir vissa upphæð af kaupi sínu til þess að eignast Canada
Savings Bonds'. Þetta innstæðu-fé er altaf til reiðu þegar þörf
krefur, fyrir þá sök, að Canada Savings Bonds má altaf selja fullu
verði, að viðlögðum vöxtum, á hvaða tíma sem óskað er og til hvaða
banka sem kosið er.
Með því að kaupa Canada Savings Bonds fyrir mánaðarborganir
hjá félaginu sem þú vinnur hjá, gerir þer hlutina þægilegri. Einnig
má kaupa þessi skírteini hjá hvaða banka sem er, og öðrum fjár-
sýslumönnum, annaðhvort fyrir peninga út í hönd, eða með tíma-
greiðslu.
5th SERIES—NOW ON SALE!
!TfII