Heimskringla - 22.08.1951, Blaðsíða 3

Heimskringla - 22.08.1951, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 22. ÁGÚST, 1951 HEIMSKRINGLA 3. SÍÐA öllum hafi liðið vel á Gimli og að hver hverfi nú heim til sín með ljúfar endurminningar. Th. Thorvaldsson lagði til og var það stutt af séra E. J. Melan að þess sé minst í fundargjörn- ingi þessa þings, að Mr. Frankl- in B. Olson, sonur B. B. Olson og frú hans Guðrúnar Sól- mundardóttur Olson, sem nú eru bæði dáin, hafi verið skírð- ur af Dr. Franklin C. South- worth er kirkjufélag þetta var stofnað, þann 16. júní, 1901, að Gimli. Samþykt. Tillaga frá séra E. J. Melan studd af Miss Elin Hall, að rit- ari fyrir hönd kirkjufélagsins, votti Mr. Árna Þórðarsyni, sem nú er 92 ára að aldri, þakklæti fyrir hans góðu og miklu að- stoð við söng, bæði í kirkju Winnipegsafnaðar fyr á árum og nú síðari árin í kirkju Gimli safnaðar, og þá ekki síst fyrir ■aðstoð hans við söngin á þessu kirkjuþingi. Samþykt. Séra E. J. Melan lagði til og Hjálmar Þorsteinsson studdi, að Mr. Stefáni Guttormssyni sé sent skeyti frá kirkjufélaginu í tilefni af því að hann var einn þeirra manna, er var við stofn- un þess 16. júní, 1901. Samþykt. Séra E. J. Melan lagði til, og Miss Hlaðgerður Kristjánsson studdi, að stjórnarnefndinni sé falið, að ljúka þeim málum, sem eftir kunna að vera ókláruð, og að samþykja þennan síðasta fundargjörning. Samþykt. Svo var af þingheimi sungin sálmurinn 643 í sálmabókinni. Að þv loknu sagði forseti hinu 29ársþingi hins Sameinaða Kirkjufélags fslendinga í N., Ameríku lokið og þakkaði þing gestum fyrir greiða afgreiðslu þeirra mála sem fyrir þingið komu. TAKRÆNN ATBURÐUR f borginni Madison, Wis., er dagblað, sem nefnist Capital Times. Frelsisdaginn ,fjórða júlí þessa árs, tók einn af frétta riturum þess upp á sig þau ný-1 mæli að leita undirskrifta að “bænarskrá”, er samanstóð ein- göngu af smáatriðum úr stjórn- ar- og frelsiskrá Bandaríkjanna. Af 112 einstaklingum, sem leit-, að var til, neituðu 111 að skrifa' undir. Tuttugu spurðu hand- hafa hvort hann væri kommún-| isti. Einn sagði: “Þú fær mig ekki til að skrifa undir þetta.! Eg er að sækja um stjórnar- stöðu og verð að verjast öllu grunsamlegu athæfi.” Ein kona las skjalið gaumgæfilega til enda og sagði: “Þetta kann að vera hin rússneska frelsisskrá, | en enginn getur sannfært mig um að það eigi jiokkuð skylt við hugsjónir okkar eigin þjóðar.” Eitt forsjált gamalmenni með ærna reynzlu að baki sagði “Eg- sé að þú viðhefur hinn gamla hrekk kommúnista að bendla nafn Guðs við róttæka bænar- skrá.” í fljótu bragði virðist þetta vera ótrúlegur viðburður; og víst er það, að hann er staðbund inn, og líka dæmi í fremur smá- um stíl. En eg hygg að útkom-' an yrði svipuð, hvar sem reynt| væri í Ameríku. Ekki fyrir það að fólkið sé yfirleitt á móti frelsi og friði, heldur vegna þess að það óttast að einhver fé- lagsskapur sem það hefur ímug- ust á, standi þar að baki. Það veit hvað lítið þarf til, um þess- ar mundir, að það brennimerk-j ist til vinstri hliðarinnar, og hvaða sektum það sætir. Margir eflaust álíta að svona atvik lýsi fáfræði eða skilnings leysi fólksins. En það þarf ekki nauðsynlega að vera aðal ástæð- an. Eg er nærri viss um að því-j líkt hefði ekki getað átt sér stað áður en útvarpið kom til sög-! unnar. Fólk les sízt minna nú en* fyr á dögum og hugsanafærin hafa trauðla hrörnað að mun við menninguna. En áróðurinn Frh. á 4. bls. Hvíta vofan AMERISK FRÁSAGA “Þér hljótið sannarlega að hafa trú á krafta verkum, ef þér haldið, að nokkur mannleg hjálp geti bjargað jafn syndugri sálu og hans,” svar- aði Mendon háðslega. “En það var einmitt um hann, sem eg þurfti að tala við yður. Við skul- um fara ofan að hesthúsinu og láta leggja á hest og senda hann eftir yður þá getum við, meðan á því stendur, gengið áleiðis og talað um mál þetta, án þess að þér tefjist neitt.” Presturinn féllst á þessa uppástungu, og þegar þeir höfðu gert nauðsynlegar ráðstafanir til þess, að hesturinn yrði sendur á eftir þeim, lögðu þeir af stað gangandi. Mendon gekk lengi þegjandi, svo að presturinn varð að lokum að byrja og mælti: “Jæja, sonur minn, hvað var það þá, sem þér þurftuð að tala við mig um þetta veslings gam- almenrii?” “Ekkert nýtt um hann. En vitið þér það, að það er nýskeð kominn nýr heimilismaður í "Óhugðarborg.” Það var auðséð á svip prestsins, að hann gat ekki trúað þessu, og hann mælti: “Það er þó óhugsandi, að Lecour hafi farið að taka við nokkrum nýjum manni á heimili sitt? Hver hefir verið svo djarfur, að setjast að hjá honum?” “Ung stúlka, og það meira að segja ákaf- lega falleg stúlka”. Presturinn staðnæmdist allt í einu, sneri sér að Mendon og spurði skjálfandi af ákafa: “Hver er hún? Hvaðan kemur hún, og hvaða tilkall þykist hún eiga til þess, að setjast að hjá honum?” “Hafið þér ekki heyrt það, að dótturdóttir Lecours kom frá New-Orleans með sama bátn- um, sem við maddama Crozat komum með? Að hún þáði ekki, að koma til okkar, en kaus held- ur, að fara undir eins til Bellair?” Presturinn var venjulega fölur í andliti, en nú þegar hann heyrði þetta, varð hann öskugrár. Hann áttaði sig samt fljótlega og mælti: “Þessi unga stúlka hlýtur að vera eitthvert svikakvendi. Dótturdóttir Lecours, eini afkom- andinn hans, er svo vel geymd í klaustrinu sínu, að það er engin leið til þess, að hún hafi getað ráðizt í slíkt ferðalag. Þetta hlýtur að vera eitt- hvert glæfrakvendi, sem hefir heyrt talað um auðæfi Lecours, og læzt nú vera erfinginn”. “Nei, nú held eg að yður skjátlist, faðir Eustace, því að ungfrú Durand dró enga dul á það við okkur, að hún hefði strokið úr klaustri því, er hún átti að vera í. Hún hafði andstyggð á því, að verða nunna, og með því að hún var ó- vitandi um grimmd og harðýðgi afa síns, flúði hún á hans náðir”. “Hún skal ekki njóta verndar hans til lengd ar, því að það er skylda mín, að tilkynna biskupn- um þetta, svo að hægt sé að ná þessari ófyrir- látsömu persónu sem fyrst aftur í skaut kirkj- unnar, er hún hefir yfirgefið á svona syndsam- legan hátt”. “Hægan, hægan, faðir Eustace, það var alls ekki um það, sem eg vildi tala við yður. Ungfrú Durand hefir lýst yfir því, að hún kjósi heldur að deyja, en hverfa aftur undir ánauð klausturs- ins, og vissra hugsanlegra orsaka vegna er það bæði ósk mín og maddömu Crozat, að þessi unga stúlka verði losuð undan eftirliti kirkjunnar”. “Og þessar orsakir eru?” spurði presturinn með kuldalegum alvörusvip. “Ef hún er í raun og veru erfinginn að auð- æfum Lecours, þá er það tilgangur minn að gera enda á brösum okkar um auðinn með því, að gift ast dótturdóttir hans.” “Eg hélt að dómstólarnir væru þegar búnir að skera úr deilunni milli ykkar”, svaraði prest- urinn. “Já, auðvitað er henni lokið meðan Lecour er á lífi. En þegar hann er dáinn, mun eg byrja aftur og gera þá mitt ítrasta til þess, að ná í auð inn, svo framarlega, sem ekkert verður úr þessu hjónabandi”. Faðir Eustace hafði nú haft tíma til þess að hugsa sig um, oð mælti nú með þýðri röddu og stúrinn á svipinn: “Það er skylda mín, að hjálpa yður og yðar góðu stjúpu til alls þess er samvizkan leyfir mér, því að eg borða við ykkar borð, og kenni börnunum yðar að ganga braút trúarinnar og sannleikans. Fyrst um sinn skal eg ekki gera neitt til þess að hefta stúlkuna, en ef það skyldi koma í ljós, að hún sé ekki afkomandi Lecours, þá mun eg undir eins gera ráðstafanir til þess, að afhjúpa svikin, og láta hegna henni eftir mak legleikum.” Mendon varð fölur og svaraði: “Jafnvel þótt svo kynni að fara, getur þó hugsazt, að það yrði hrein og bein skyklda mín, að verja hana gegn öllum árásum, og giftast henni”. “Þér talið undir rós, sonur minn”. “Já, þetta er gáta, sem tíminn mun ráða, faðir Eustace. Þegar sá tími kemur, skuluð þér fá að heyra merkilega ættarsögu. Mér er ekki enn þá vel ljóst um öll atvik hennar, en eg skal komast fyrir þau áður en langt um líður, og þá skal eg segja yður söguna”. “Eg get beðið, þar til þér hafið hentugleika, og eg skal vera vægur við stúlkuna á meðan. Eða er það ekki yðar vilji, að eg sé það fyrst um sinn?” “Jú, einmitt — fyrst um sinn. Fari svo að það komi í ljós, að Adrienne Durand sé ekki hinn löglegi erfingi, þá getur vel skéð, að eg lofi yður að senda hana aftur í klaustrið.” Það vottaði ofurlítið fyrir hæðnisbrosi á vörum prestsins, er hann svaraði: “Hvað þér hljótið að elska hana innilega og af heilum huga, sonur minn. En eg get verið ánægður með þessa fullyrðing^yðar, því að hún gefur mér ótakmarkað vald yfir framtíðarhlut- skifti þessarar áræðnu stúlku”. “Eg skil yður ekki, faðir Eustace”. “O, það gerir heldur ekkert til — en mér dettur það nú í hug, að með því að hjálpa yður til að ná í erfingjann að auðæfum Lecours, ræni eg kirkjuna þeim. Stúlkunni var, frá því hún fæddist, ætlað að ganga í klaustur, og auður hennar rennur til þess klausturs sem hún er nunna í”. “Eg hefi hugsað um þetta, og það er ásetn- ingur minn, að láta kirkjuna fá þriðjunginn af eignum hennar — það er miklu meira, heldur en nirfillinn hann afi hennar lætur kirkjuna nokk- urn tíma fá, ef hann fær leyfi til að semja arf- leiðsluskrá”. Áherzlan, sem Mendon lagði á þessi síð- ustu orð, var svo einkennileg, að presturinn leit upp, og hann mælti í hálfum hljóðum, líkast því sem hann hefði lesið huga Mendons: “Svona gamall fábjáni, eins og hann, get- ur naumast verið fær um, að semja neina arf- leiðsluskrá. En segið mér sonur minn, öll áform yðar hreinskilnislega. Verði komið í veg fyrir það, að Lecour semji arfleiðsluskrá, og það skyldi koma í ljós, að stúlkan sé ekki dóttur- dóttir hans — hvað ætlið þér þá að gera?” “Ef hún er ekki sú rétta ungfrú Durand, þá er hún — nei, eg get ekki sagt yður það nú, það er ekki fyllilega áreiðanlegt. Eg segi ekki, að ekki verði lögð fram nfein arfleiðsluskrá. Eg er þvert á móti þeirrar skoðunar, að til hljóti að vera arfleiðsluskrá, sem veitir þessari svoköll- uðu dótturdóttir hans eignarrétt að auðnum, hvort sem hún er það eða ekki.” “Það er þá áform yðar, að giftast henni nú þegar?” spurði presturinn alvarlega. “Nei, alls ekki. Fyrst verð eg að hæna hana að mér, og fyrirhöfn mín í þá átt verður komin undir arfshorfum hennar. Þér skuluð fá það vel borgað, er þér hjálpið mér, því að Lecour hlýt- ur að hafa hrúgað saman ógrynni fjár”. “Þér treystið helzt til mikið liðveizlu minni, sonur minn”. Mendon brosti háðslega. “Eg hefi yðar eigin hagnað fyrir augum, faðir Eustace. Þér berið bezt úr býtum, ef þér hjálpið mér til að ná takmarkinu”. “Og þér setjið það ekkert fyrir yður, að hrifsa brúður himinsins frá altarinu? Og skilj- ið þér það ekki, sonur minn, að þér ætlizt til að eg geri mig sekan um svik og vélræði, eg, sem er smurður sonur kirkjunnar?” spurði faðir Eustace með blíðri röddu, en leit um leið svo alvarlega til Mendons, að Mendon varð blátt áfram hræddur um, að áform sín myndu öll fara í hundana. Og í þessum svifum náði þjónninn í þá með hestinn handa prestinum, og presturinn steig á bak, kvaddi Mendon rólega, og reið af stað án þess að mæla fleira. 9. Kapituli Þegar Eady gamla kom inn í svefnherbergi Lecours, morguninn eftir atburði þá, sem lýst er í næst síðasta kapítula, var Lecour gamli sár- veikur bæði á sál og líkama. Röddin var lág og veikluleg og útlitið því iíkast, sem hann væri með óráði, er hann reis upp og spurði: "Hver er það? Hvað viljið þér?” “Það er bara eg, húsbóndi góður, eg er ætíð vön að koma hingað inn til yðar á hverjum morgni. Þér eruð ekki vanur að verða hræddur, þótt þér sjáið mig.” Lecour hneig aftur ofan á koddann, og það fór hrollur um hann allan. “Eady — hvíta vofan heimsótti mig í nótt, enn þá einu sinni. Hún kom hérna inn í her- bergið. Hún æpti svo hátt, að hún vakti mig.” Eady hlustaði á hann með vantrúarglotti. “Þetta er eintóm ímyndun. Eg hefi verið á flakki hér í húsinu í alla nótt, og ekki heyrt eða orðið yör við neitt óvenjulegt. Eg hræði stundum hann Pierre með því, að eg hafi séð vofu eða afturgöngu, en eg hefi samt sem áður aldrei séð neitt, og ímynda mér helzt, að eg sjái það aldrei”. “En eg segi þér alveg satt, að eg sá vof- una með mínum eigin augum. Ó, það var voða- leg — voðaleg sjón!” Professional and Business Directory— — J Office Phone Res. Phone 924 762 726 115 Dr. L. A. SIGURDSON 528 MEDICAL ARTS BLDG. Consultations by Appointment DR. A. V. JOHNSON DENTIST • 506 Somerset Bldg. • Office 927 932 Res. 202 396 Talsími 925 826 Heimilis 404 630 DR K. J. AUSTMANN SérfræÖingur í augna, eyma, neís og kverka sjúkdómum 209 MEDICAL ARTS BLDG. Stofutími: 2—5 e. h. ANDREWS, ANDREWS, THORVALDSON & EGGERTSON Löglrœðingar Bank otf Nova Scotia Bldg. Portage og Garry St. Sími 928 291 Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary’s and Vaughan, Winnipeg Phone 926 441 DR. H. W. TWEED Tannlæknir 508 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Porytge Ave. og Smith 3t. PHONE 926 952 WINNIPEG J. J. Swanson & Co. Ltd. REALTORS Rental, Insurance and Financial Agents Sími 927 538 308 AVENUE Bldg. — Winnipeg H. J. PALMASON & Co. Chartered Accountanta • 505 CONFEDERATION LIFE Bldg. • TELEPHONE 927 025 THE WATCH SHOP CARL K. THORLAKSON Diamond and Wedding Rings Agent for Bulova Watches Marriage Licenses Issued 699 SARGENT AVE. Rovaízos Floral Shop 253 Notre Dame Ave. Ph. 932 934 Fresh Cut Flowers Daiiy. Plants in Season We specialize in Wedding and Concert Bouquets and Funeral Designs Icelandic Spoken WINDATT COAL CO. LIMITED Established 1898 506 PARIS BLDG. Office Phone 927 404 Yard Phone 28 745 A. S. BARDAL UMITED selur líkkistur og annast um útfanr. Allur útbúnaður sá besti. Ennfremur selur hann minnisvarða og legsteina 843 SHERBROOKE ST Phone 27 324 Winnipeg CANADIAN FISH PRODUCERS Ltd. J. H. Page, Managing Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS ST. Office Phone 26 328 Res. Phone 73 917 Union Loan & Investment COMPANY Rental, Insurance and Financial Agents Simi 925 061 510 Toronto General Trusts Bldg. M. Einarsson Motors Ltd. Distributors KAISER AUTOMOBILES The 1951 Kaiser Car is here Built to Better the Best on the Road IMMEDIATE DELIVERY Shewroom: 445 RIVER AVENUE Phone 44 395 & 43 527 GUNDRY-PYMORE Ltd. British Quality - Fish Netting 60 Victoria St., Winnipeg, Man. Phone 928 211 Manager: T. R. THORVALDBON Your Patronage Wiíl Be Appreciated The BUSINESS CLINIC (Anna Larusson) 308 AFFLECK BLDG. (Opp. Eaton's) Office 927 130 House 724 315 Bookkeeping, Income Tax, Insurance Mimeographing, Addressing, Typing Halidór Sigurðsson & SON LTD. Contractor & Builder • 542 Waverley St. Sími 405 774 MALLON OPTICAL 405 GRAHAM AVENUE Opposite Medical Arts Bldg. TELEPHONE 927 118 Winnipeg, Man. FINKLEMAN OPTOMETRISTS and OPTICIANS Kensington Bldg. 275 Portage Ave. Winnipeg PHONE 922 496 PRINCESS MESSENGER SERVICE Við flytjum kistur og töskur, húsgögn úr smærri íbúðum og húsmuni af óllu tæi. NEW ADDRESS: WHITLA Bldg., 70 ARTHUR ST. WINNIPEG, MAN. C. A. Johnson, Mgr. Vér verzlum aðeins með fyrsta flokks vörur. Kurteisleg og fljót afgreiðsla. TORONTO GROCERY PAUL HALLSON, eigandi 714 Ellice Ave. Winnipeg TALSIMI 37 466 Gimli Funeral Home Ný útfararstofnun hefir tekið til starfa á Gimli. Hún er á lst Avenue — Sími 32 Heimilissími 59 Allur útbúnaður hinn fullkomnasti. Ctfararstjóri: ALAN COUCH THOS. Jil M & SH\S LIMITED BUILDERS’ SUPPLIES COAL - FUEL OIL Phone 37 071 W’innipeg f I

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.