Heimskringla - 15.04.1953, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 15. APRÍL 1953
HEIMSKRINGLA
3. SÍÐA
DÁN ARFREGN
Mrs. Sólveig Jóhannsson, 667
Alverstone St., Winnipeg, dó s.l.
miðvikudag á Grace sjúkrahús-
inu í þessum bæ. Hún var 89 ára
Vestur um haf kom hún um síð-
ustu aldcunót, með eftirlifandi
manni sínum, Stefáni Jóhanns-
syni frá Litla-Ósi í Húnavatns-
sýslu, en þau giftust 1897. Sól-
veig var fædd í Krysuvík. Voru
foreldrar hennar Ólafur Jónsson
og Guðný Vilhjálmsdóttir, er
þar bjuggu. En alin var hún
að mestu leyti upp hjá Guð-
mundi Eiríkssyni og Ráðhildi
konu hans á Kalmanströnd í
Höfnum í Gullbringusýslu. —
Fyrstu 16 árin hér vestra, áttu
Stefán og Sólveig heima í Glen-
boro, Manitoba, en úr því innrit-
aðist maður hennar í herinn, og
sonur þeirra 17 ára gamall, er
Óskar hét. Féll hann í stríðinu'
15. ágúst 1918.
Flutti 'Sólveig þá til Winni-
Peg og áttu þau hjónin ,eftir að
Stefán kom heim úr stríðinu, hér
heima úr því.
Auk eiginmannsins lifa Sól-
veigu ein dóttir, Ráðhildur, gift
hérlendum manni Lornfl Lyn-
don að nafni og búa í Winnipeg.
Sólveig heitin var kona vel-
gefin, las mikið og fylgdist vel
með því sem gerðist, ekki sízt í
átthögum hennar á Islandi. Hún
var félagslynd, vinsæl og
skemtin í viðræðum um áhuga-
mál sín og mat mikils veglyndi
og góðvild í fari samferðafólks-
ins. Hún var í fylsta skilningi
orðsins, göfug og góð kona.
Jarðarförin fór fram frá A. S.
Bardal, útfararstofu s.l. laugar-
dag að fjölmenni viðstöddu. —
Séra Valdimar J. Eylands jarð-
söng.
Líkmenn voru: Tryggvi próf.
Olson, Davíð Björnsson, Stefán
Einarsson, G. Hólm, Emil John-
son og Paul Goodman.
Jarðað var í Brookside-graf-
reit.
Canadian
Notebook
Þetta er ein þeirra greina, sem sér-
staklega er ætluð nýjum Canadamönn
um.
BANKAMAL
1 Canada eru tíu löggiltir bankar,
er hafa til samans yfir þrjti þúsund
útibú í borgum, bæjum og þorpurn
frá strönd til strandar. Canadísíkir
bankar inna af hendi margvíslega
*■ þjónustu í þágu viðskiftavina 9inna.
Hver, sem vill, gctur opnað spari-
sjóðsreikning og hann getur tekið út
peninga eftir þvf, sem þörf gerist.
Innstæðupeningar gcfa af sér vexti,
scm lagðir erti við höfuðstól með-
ycglubundnu millibili. Hlaupareikn
ingar bera ckki vexti, en eru til þess
gerðir að greiða fyrir daglegum við-
skiftum og kvitta fyrir seldar vörur.
Sameiginleg innstæða kemur sér vel
fyrir fleiri en eina persónu, svo sem
hjón, er geta ba’ði tekið út peninga
úr sama reikningi.
Bankar gcta yfirfært pcninga úr
einum stað í Canada til annars og
cinnig landa á milli mcð litlum til-
kostnaði. Þeir gefa cinnig út ferða-
mannaávísanir, scm skiíta má í pen-
inga í hótelum, járnbarutaskrifstof-
um, böknum og stórum búðum svo
menn þurfa ekki að hafa á sér mikið
af lausum peningum.
Einnig leigja bankar öryggishólf
fyrir lágt verð til gcymslu skraut-
muna og verðbréfa. Forstjórar banka
og starfsfólk jrcirra lcggur sig í b’tna
um að grciða fyrir fjármálaviðsknt-
um yðar og í hinum meiriháttat
bygðar'iigum eru bankajtjónar, scm
mæla á flest Evrópumál.
Uppástungur og athuganir í sam-
bandi við framhaldsgreinar verða
kærkomnar hjá Calvert House og
mun ritstjóri þessa blaðs koma þeint
á framfæri.
í næsta mánuði — Mentamál
Calvcrt
DISTILLERS LTD.
AMHERSTBURG, ONTARIO
Sonur lýðsins
(RAGNAR STEFÁNSSON ÞÝDDI)
“Meinarðu það virkilega”, sagði Andras
mjög undrandi, “að þessi illræmda mylna sé til-
búin, og að hann hafi fyllilega ákveðið að starf-
rækja hana?”
“Já, það er alveg víst, að hann ætlar sér það
þrátt fyrir það þótt alt bændafólkið á landeign-
um hans sé óánægt, og þrátt fyrir það þótt fað-
ir Ambrosius stofnaði til sérstaks bænafundar,
að eldur kæmi af himnum ofan til þess að tor-
tíma þessari byggingu hinna illu máttarvalda.
Það á, sem sagt, að byrja á verkinu þar á morg
un eða næsta dag. Hveitinu hans er öllu stakkað
þar, til reiðu að þreskjast með einhverjum yfir-
náttúrlegum hætti, og það sem nú þegar er
þreskt, verður malað fínna en nokkur dæmi eru
til, eftir fyrirskipunum djöfulsins og fydgis-
manna hans.”
Gyðingurinn hafði sagt þetta í mjög svo
kuldalegum og hæðnisfullum rómi, en Andras
sem þrátt fyrir menntun sína, gat ekki losað
sig við hjátrú almúgafólksins, hlustaði með ótta
og efasemdum.
“Mér finnst herra lávarðurinn breyta ákrf-
lega heimskulega”, sagði hann að lokum; ef
það væri til nokkurs minnsta gagns, eða nokkuð
við það unnið, að hafa þrjá menn að verki, í stað
tuttugu, og eyða í það kaupgjaldi tvö hundruð
manna, það gæti eg skilið, En hveitið verður
ekkert betur framleitt með því, og hann reitir
hvern einasta almúgamann á landeignum sín-
um til reiði með þessu; hann er sannarlega bara
asni!”
“Hann er áreiðanlega þeirrar skoðunar, og
hefir þá föstu sannfæringu, að hann verði rík-
asti maðurinn hérna megin við Tarna, en með
því að reyna að verða svona ríkur, er hann að
setja sig sjálfan á höfuðið. En þrátt fyrir það,
afhenti eg honum tvö hundruð og fimmtíu þús-
und florins, samkvæmt ósk þinni, með eftir-
fylgjandi tryggingu og vöxtum . . . .”
“Heyrðu mér nú hérna, gamli minn, eg sagð
ist ekki vilja lána neina meiri peninga.Eg óska
eftir að kaupa land.”
Rosenstein hristi höfuðið. “Eg gerði allt
sem eg gat. Eg bauð fram allt það fé, sem herra
lávarðinum þóknaðist að kref jast. Hann vill ekki
selja.” Vonbrigða-svipurinn á andliti hins unga
stórbónda lýsti sér mjög grimilega, og hann
kreppti hnefann sem hélt pípunni svo fast, að
hið granna munnstykki nálega brotnaði.
“Hann er asni,’ endurtók hann eftir dálitla
þögn, “lánsféð endist ekki í mörg ár, og þó að
vextirnir séu lágir, þá getur hann aldrei greitt
höfuðstólsféð, sem hann eyðir algerlega í kostn
að við að koma sér upp þessum Satans vélum og
byggingum. Fyr eða siðar neyðist hann til að
láta landeignirnar af hendi. Mig langar til að
kaupa landið nú þegar. Eg er auðugur. Eg
myndi borga honum allt það fé, sem hann myndi
krefjast. Hann er asni!’
“Hinn göfugi lávarður segjist ekki vilja
láta eitt fet af landi af höndum til almúgamanns
og leiguliða eða gyðings.”
“í>á, svo hjálpi mér guð!. . . .” sagði Andras
og barði hnefanum í borðið.
Örin' sem Gyðingurinn með undrunar-
verðum klókskap hafði beint að viðskiftavini
sínum hafði hitt prýðilega í mark.
Móðgunin, sem átti að hafa verið kastað að
leiguliðanum með því að leggja hann að jöfnu
við þennan hataða og fordæmda kynflokk,
hafði valdið því að hann var orðinn eldrauður í
andliti af reiði, en hinn æfilangi, rótgróni vani,
að stilla sig, náði þó brátt yfirhöndinni. Frammi
fyrir þessum manni, sem var í þjónustu hans,
varð hann að vera rólegur, þótt hann þyrfti að
beita sjálfan sig valdi til þess, svo hann endur-
tók aðeins með hægð: “Hann er asni!”
“Heyrðu mér nú”, sagði Gyðingurinn með
ákafa, “aðstaða þín batnar með hverju ári. Bil-
esky hefir nú veðsett þér allar sínar landeignir,
nema óðalsetrið sjálft, byggingarnar, garðinn
og nokkur útihús. Þú getur reitt þig á það sem
eg segji, að fjárupphæðin sem þú lánaðir hon-
um í dag með Sarda að veði endist honum ekki
lengur en sex mánuði, eftir því að dæma hvern-
ig hann eyðir og sóar nú hverri florin, sem
hann nær í. Að sex mánuðum liðnum þarfnast
hann meiri peninga, meiri og meiri. Þú átt næga
peninga, þú getur látið hann hafa allt, sem hann
þykist þurfa, en hann á þá ekki eftir eitt ein-
asta fet af landi til að veðsetja. Þá geturðu lög-
sótt hann með lítilsháttar viðbótar-kostnaði, og
þú verður eigandi að öllum löndunum.”
“Hann reynir þá að fá peningana til þess að
komast úr skuldunum frá einhverjum þeirra,
sem hann telur jafningja sína”, sagði Andras
þurlega. “Þeir hinir sömu hafa aldrei neina
peninga aflögu, þessir göfugu greifar og lávarð-
ar á Ungverjalandssléttunni, þeir eyða hverjum
skilding sem þeim áskotnast í mat og drykk,
veizluhöld og óhóf, til þess að skara fram úr
nágrönnum sínum í praktugheitum og óhófs- j
lifnaði. Og þar að auki, þar sem þú varst fús til
að lána meira út á löndin ,en þau í raun og veru
.eru verð, þá myndi enginn vilja taka að sér veð-
skuldirnar. Þeir myndu ekki vilja gera það, ef
peningarnir hefðu komið frá einum þeirra þjóð-
bræðra, þar sem okurvextirnir settu landeigand-
ann á höfuðið. Þeir vextir sem eg set eru svo lág
ir, að hver og einn getur greitt þá, og hagnast
mikið”.
“Eg veit það! eg veit það!” sagði Gyðing-
urinn dálítið æstur. “Eg er margbúinn að ráð-
leggja þér að heimta sanngjarnari vexti”.
“Eg get ekki byrjað á neinum okraravið-
skiftum. Eg verð að lána út peninga mína, þar j
sem eg nú á þá, og mig langar til að kaupa
landeignina, en móðir mín og eg myndum aldrei
saurga hendur okkar á okri. Hvaða vexti greið-
ir lávarðurinn af þessum síðustu tvö hundruð
og fimtíu þúsund florins?”
“Fimm þúsund mæla af hveiti, fjörutíu
gripi og fimmtíu kindur”, sagði Rosenstcin, og
rét-ti Andras skjalið. Kvíðafullur gaf hann nán-
ar gætur að andliti unga manr.sins, meðan
hann las.
Professional and Business
===== Directory ---------■
Office Phone Res. Phone
924 762 726 115
Dr. L. A. SIGURDSON
528 MEDICAL ARTS BLDG.
Consultations by
Appointment
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG C.LINIC
St. Mary’s and Vaughan, Winnipeg
Phone 926 441
J. J. Swanson & Co. Ltd.
REALTORS
Rental, Insurcmce pnd Financia!
ficents
Sími 927 558
DR. A. V. JOHNSON
DENTIST
★
506 Somerset Bldg.
*
Office 927 932 Res. 202 398
Thorvaldson Eggcrtson
Bastin & Stringer
Lögfrœðinqar
Bank oí Nova Scotia Blds.
Portage og Garry St.
Sími 928 291
H. J. PALMASON & Co.
Charterod Accountanta
505 CONFEDERATION LIFE Bldg
“Já, það stendur víst nokkurn veginn
heima”, bætti hann við, um leið og hann braut
skjalið saman og stakk því í vasa sinn.
“Eg er nú að geta mér til,” sagði hann, —
“hvað mikið þú hagnast á þessu.”
“Þú veizt það fullvel, að eg græði ekkert á
þessu, nema það sem þú gefur mér af góðsemi
þinni.”
“Jæja, eg lét þig hafa tvö hundruð florins
fyrir þessa vinnu, ertu ánægður með það?”
Ó hæzt ánægður. Eg er fátækur maður og—
»»
303 AVENUE Bldfi — Winnlpsg
CA.\A1H \.\ FISH
PRODUCERS Ltd.
J. H. Page, Managing Dtrector
Wholesale Distributors of
Fresh and Frozen Fish
311 CHAMBERS ST.
Office Ph. 74-7451 Res. Ph. 72-3917
TELF.PHONE 927 025
Rovatzos Floral Shop
253 Notre Dame Ave. Ph. 932 934
Fresh Cut Flowers Daily.
Plants in Season
We specialize in Wedding and
Concert Bouquets and Funeral
Designs
Icelandic Spoken
“Ef eg nokkurn tíma kemst að því, að þú
hafir svikið mig í þessum viðskiftum, skal eg!
br jóta hvert einasta bein í þínum vesæla saman- i
skorpna skrokki”.
“Þú ert að gera að gamni þínu! Hvernig
gæti eg svo sem komið því við að svíkja þig,
þótt eg vildi, sem eg sver við Abraham, að mér
myndi aldrei detta í hug að gera, þú hefir séð
skjalið undirskrifað af Bilesky lávarði, þú í-
myndar þér þó ekki, að hann myndi skrifa und-
ir það, án þess að lesa það yfir fyrst?”
“Nei, eg get tæplega gert ráð fyrir því, að
hann gæti verið svo mikill asni! Eg þori að segja
að hann stingur einhverju smávegis að þér í of-
análag, er ekki svo?”
“Jæja . . . . já hann bauð mér eitt hundrað
florins í morgun, og”, baetti Gyðingurinn við
með einkennilegu nístandi hljóði milli tann-
anna, “hann gaf mér góðan miðdegisverð.”
“Nú, jæja þá, það var ágætt gamla hræða!
er ekki svo? Þú færð ekki oft góðan miðdegis
mat, þú ert of nirfilslegur til þess að fæða sjálf-
an þig almennilega. Svo hann gaf þér vel að
borða? Það gleður mig. Eg vona að þú hafir
þakkað honum vel fyrir?”
“Það var ekki mikill tími til að þakka hon-
um í dag”, sagði Gyðingurinn, “en þakklæti
mitt egtur ibeðið. Eg vona að innan tveggja ára
verði eg búinn að greiöa honum að fullu, fyrir
þann góða miðdegismat, sem hann gaf mér í
dag. He! he! he!” bætti hann við, og nuddaði
höndunum ánægjulega saman. “Eg er í mikilli
þakkarskuld við hinn göfuga lávarð! en Moritz
Rosenstein gleymir aldrei neinu, ef hann fær
tveggja ára gjaldfrest, þá borgar hann, honum
er sama um vextina, he! he! he! he! he! hann
borgar þá líka . . . upp í topp.”
Andras var hættur að hlusta á hann; hann
hafði tekið upp skjal Bileskys, og las það yfir
vandlega.
Auðsjáanlega var hann að öllu leyti ánægð-
ur með innihald þess, því hann braut það saman
og lét það í vasann innan á treyjunni sinni.
Hann hélt áfram að reykja í draumkenndri
leiðslu, og gaf Rosenstein engan gaum, en
starði stöðugt út yfir sléttuna í áttina til hins
fjarlæga sólseturs, þar sem landeignirnar voru,
sem honum voru svo kærar, landeignirnar, sem
hann frá barnæsku hafði hlúð að og ræktað, oft
við illa líðan og með beiskum tárum, fyrir harð
stjórann sem lá nú í gröf sinni. Löngunin til
að eignast þetta land með fullum rétti, var nú
draumurinn, sem fyllti hinn ómótaða og hálf-
menntaða hug hans. Það var draumur, sem fæðst
hafði í sál hans frá því augnabliki sem hann
var þess fullviss að hann hafði hald á miklum
auðæfum. Að því eina takmarki stefndi hann,
með því að erfiða alla daga, og læra á kvöldin.
Ekkert verk var of erfitt, ef hægt var að ná
þessu takmarki.
Honum var vel ljóst fyrirlitningin, sem að-
alsfólkið, samkvæmt aldagömlum erfðavenjum,
hafði á alþýðunni, og gizkaði á að það yrði ekki
auðvelt að þröngva Bilesky lávarði til þess að
selja landeignirnar hinum fyrirlitna, ættlága
bóndamanni, og leggja þannig grundvöll að
jafnrétti milli þeirra, en hann vonaði að með
tímanum myndi hann sigra. Hann hafði, nú þeg
ar, mjög mikið veðláns—hald á þessum eign-
um, sem honum þótti svo vænt um. Hann átti
þær nálega, en þó ekki alveg. Rosenstein lofaði
því, að hann skyldi brátt eignast þetta land.
M. Einarsson Motors Ltd.
Distributors
KAISER AUTOMOBILES
The 1951 Kaiser Car is here
Built to Better the Best on the Road
IMMEDIATE DELIVERY
Showroora: 445 RIVER AVENUE
Phone 44 395 & 43 527
The BUSINESS CLINIC
(Anna Larusson)
306 AFFLECK BLDG. (Opp. Eaton’s)
Office 927 130 House 724 315
Bookkeeping, Income Tax, Insurance
Mimeographing, Addressing, Typing
MALLON OPTICAL
405 GRAHAM AVENUE
Opposite Medical Arts Bldg.
TELEPHONE 927 118
Winnipeg, Man.
COURTESY TRANSFER
& Messenger Service
Flytjum kistur, töskur, húsgögn,
píanós og kæliskápa
önnumst allan umbúnað á smásend-
ingum, ef óskað er.
Allur fltuningur ábyrgðstur
Sfmi 526 192 1096 Pritchard Ave.
Eric Erickson, eigandi
• Gimli Funeral Home
PHONE - 59 - PHONE
Day and Night Ambulance Service
BRUCE LAXDAL
(Licensed Embalmer)
BALDWINSON’S BAKERY
749 Ellice Ave., Winnipeg
(milli Simcoe & Beverley)
Allar tegundir kaffibrauðs.
Brúðhjóna- og afmæliskökur
gerðar samkvæmt pöntun
Sími 74-1181
SAVE l/2 ON NEW RUGS
CARPET REWEAVING
NEW RUGS MADE FROM YOUR
OLD WORN OUT CLOTHES
OR RUGS.
Write For Free Illustrated Cataloge
CAPITOL CARPET CÖ.
701 Wellington Ave.
Winnipeg, Man. Ph. 74-8733
c'---------------------
GRAHAM BAIN & CO.
I PUBLIC ACCOUNTANTS and
AUDITORS •
! 350% HARGRAVE ST.
Bus. Ph. 93-7246 Rcs. Ph. 3-7390
\-----------—----------
J. WILFRID SWANSON
& CO.
Insurance in all its branches.
Real Estate — Mortgages — Rentals
210 POWER BUILDING
Telephone 937 181 Res. 403 480
LET US SERVE YOU
A. S. BARDAL
L I M I T E D
selur líkkistur og annast um
útfarir. Allur útbúnaður sá besti.
Ennlremur selur hann ailskonar
minnisvcrrða og legsteina
843 SHERBROOKE ST.
Phone 74-7474 Winnipeg
Union Loan & Investment
COMPANY
Rental, Insurance and Finandal
Agents
Sfmi 92-5061
508 Toronto General Trusts Bldg.
GUNDRY-PYMORE Ltd.
British Quality - Fish Netdng
60 Victoria St., Winnlpeg. Man.
Phone 928 211
Your Patronage Will Be
Appreciated
Manager: T. R. THORVALDBON
Halldór Sigurðsson
& SON LTD.
Contractor & Builder
•
542 Waverley St.
Sfmi 405 774
F I N K L E M A N
OPTOMETRISTS
and
OPTICIANS
Kensington Bldg.
275 Portage Ave. Winnlpeg
PHONE 922 496
Vér verzlum aðeins með fyrsta
flokks vörur.
Kurteisleg og fljót afgreiðsla.
TORONTO GROCERY
PAUL HALLSON, eigandi
714 ElUce Ave. Winnipeg
TALSIMI 3-3809
THOS. J!l kSII\ & SOHS
LIMITED
BUILDERS’ SUPPLIES
COAL - FUEL OIL
Phone 37 071 Winnipeg '
| Off. Ph. 74-5257 700 Notre Dame Ave.
Opp. New Maternity Hospital
NELL’S FLOWER SHOP
Wedding Bouquets, Cut Flowers
Funeral Designs, Corsages
Bedding Plants
Mrs. Albert J. Johnson
Res. Phone 74-6753
Office Ph. 32-5826 Res. 40-1252
DR H. J. SCOTT
Spccialist in
EYE, EAR NOSE and THROAT
209 Medical Arts Bldg.
HOURS: 9.30 - 12.00 a.m.
2 — 4.30 p.m.