Heimskringla - 15.07.1953, Blaðsíða 1
AT ALL LEADING GROCERS
Super-Quality
“BUTTER-NUT”
BREAD
“Tops in Quality & Taste”
CANADA BREAD -look £or the
Bright Red Wrapper
AT ALL LEADING GROCERS
Super-Quality
“BUTTER-NUT”
BREAD
“Tops in Quality & Taste”
CANADA BREAD —look for the
Bright Red Wrappet
LXVII ÁRGA! ÍGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 15. JÚLÍ 1953
NÚMER 42.
FRÉTTAYFIRLIT OG UMSAGNIR
FORSÆTISRÁÐHERRA
CANADA VESTRA
Rt. Hon. Louis St. Laurent
kom til Winnipeg s.l. miðviku-
dag. Hann er í kosningaleið-
angri um vestur fylkin.
í Winnipeg hélt hann ræðu í
Auditorium bæjarins. Var fund
ur hans ekki eins vel sóttur og
vera hefði átt, segir fregnriti
Winnipeg Tribune, þar sem um
æðsta valdsmann þjóðarinnar
var að ræða, og búast mátti við
að menn fýsti að sjá og hyera.
Umræðuefni hans hér var held
ur þurt. Það var eins og að bíta
í torf. Hann reyndi með enda
lausum ívitnunum og tölum að
sanna áheyrendum, að þetta
fylki hefði grætt fé á skattsamn
ingum Manitoba-fylkisstjórnar
og sambandsstjórnar.
Sá gróði nam miljónum, þar
sem Sambandstjórn greiddi fylk
inu 24 miljónir, en sjálft hefði
það ekki getað innheimt nema 17
miljónir. Hvort forsætisráðhr.
Rt. Hon. Louis St. Laurent
var að reyna að telja Manitoba-
búum trú um, að sambandsstjórn
in innheimti skatta fyrir fylkið
fyrir alls ekki neitt, eða að sam- [
bandstjórnin var svona mikið
betri rukkari, en fylkisstjórnin. j
fáum við ekki að vita. En hvað
fylkisbúar yfirleitt græða á hin-
um góða rukkara, er oss dulið.
Meini þetta, að sambandsstjórn-
in taki féð frá öðrum fylkjum,
og dragi til munaðar við Mani-
toba, þá er það alls ekki til, að
flagga með í kosningum, því
það geteur þá ekki annað meintj
en að verið sé að fá fé frá öðrum j
fylkjum til að halda kjósendum’
í Manitoba við trúna á libeerala.1
Þetta var illa valið umræðuefnl
og hefir líklegast gert komu!
stjórnarf ormannsins áhrifa
minni, en til var ætlast, þrátt fyr
ir þó ræðumaður kæmi að öðru
leyti vel fyrir og flytti mál sitt
með hógværð og stillingu.
Með forsætisráðherra er hinn
nýbakaði ríkis-ritari Canada. —
Hann heitir Jack W. Pickers-
gill, er fæddur í Winnipeg, en
hefir verið stjórnarþjónn undan-
farin ár og var nýlega skipaður
í stöðu sína, landritara embættið,
af forsætisráðherra Canada.
Sætti það miklum deilum, að
maður var tekinn úr stjórnar-
þjónustu í þetta embætti, þegj-
andi og hljóðalaust, og án þess
að nokkur viti um hvernig af-
stöðu þessi maður hefir hjá al-
menningi til stöðunnár. Ritara-
embættið er ráðherra staða, og
leyfið til þeirra er ætlast til að
með samþykki almennings sé
veitt.
Fyrir þetta- fylki og þessa
borg kvað forsætisráðherra mik-
ið hafa verið gert af liberal-
stjórn, en nefndi fátt af því,
vegna þess að menn fóru að skim
ast um í allar áttir og uppurn
rjáfur hinnar miklu samkomu
hallar sem er eitt mesta mann-
virki sinnar tegundar í Vestur-
Canada. En forsætisráðherra
mun þá hafa minst þess, að þessi
mikla höll sem hann var að
tala í, var reist af stjórnarfor-
manni sem Bennett hét, en ekki
liberal-stjórnarformanni. Frá
sögn sinni lauk hann því áður
en varði og fytjaði upp á öðru.
Héðan hélt hann áfram vestur í
land.
NÝJASTA HREINSUNIN
í KREMLIN
Það hefir margt bent til þess,
siðan Stalin kvaddi þennan
heim, að látlaus barátta hafi ver-
ið háð í Rússlandi um völdin
Hugsanlegir eftirmenn hans
voru þrír: Malenkov, Beria og
Molotov. Hinn fyrstnefndi hlaut
stöðuna, eða var valinn til henn-
ar af Stalin. Næsti maður hon-
um að völdum var skipaður Lav-
antry P. Beria, yfirmaður leyni-
lögreglunnar. Hann áleit Stalin
vaskastan til víga í hreinsuninni
1930. Hann var Georgíu-maður,
með austurlenzkum eða Asíu
hugsunarhætti fram yfir hina
tvo, Malenkov og Molotov, sem
vestlægari þykja í hugsunar-
bætti. Með Stalin kvöddum,
virðist Austurlenzki hugsunar-
hátturinn hafa dvínað. Um þetta
getur reipdráttur hafa átt sér
stað milli Malenkov og Beria.
Það er þetta, sem Malenkov að
minsta kosti notar, á móti höf-
uð keppinaut sínum. Hann finn-
ur Beria til saka, að hafa ekki
kunnað hóf sitt í Austur-Þýzka
landi og því hafi uppreist byrj-
að þar og breiðst út til flestra
stærri leppríkja Rússlands.
Þetta getur alt verið hugsanlegt.
En þegar farið er að bera Beria
á brýn, að hann hafi verið kapit-
alisti, gránar gamanið. Manni
sem miljónir bænda drap 1930
til að ná í jarðir þeirra og koma
undir stjórnina, virðist ekki hafa
verið mikið með séreignastefnu
einstaklinga. Og að ætla hann
vera að brugga banaráð sovétfyr
trkomulaginu með aðstoð kapit-
alista vestlægra ríkja, getur
varla annað verið en hreinasta
f jarstæða.
Þessi nýjasta hreinsun er lík-
legast ekkert annað en áflog um
völdin. Hefði Beria farið fram
á, að kosning Malenkov væri ó-
lýðræðisleg, hefði hann haft
eitthvað til síns máls í augum
vestlægra þjóða. En hann gerði
það ekki, var ofmikið með ein-
veldi Rússlands til þess.
Blöð Rússa hella sér nú yfir
Beria, sem landráðamann og
hans bíður sjáanlega ekkert ann
að en gálginn. En skyldi nú þar
við sitja. Hafi Beria haft þá
skoðun, að Malenkov væri ekki
hinn rétti stjórnari, skyldi ekk-
ert af herliði hans hafa orðið
fyrir áhrifum hans í því efni?
Ef svo væri, getur þetta verið
byrjun “hreinsunar í herbúðun-
um”, sem við höfum ekki enn
séð fyrir enda á.
STJÓRNIN SEM HATAR
TOLLA!
Maður að nafni P. Beaulieu
frá Emerson, brá sér nýlega suð-
ur til Hallock, Minn., í bíl. Bil
aði “tire” á leiðinni svo hann
varð að kaupa sér nýjan syðra.
Hann kostaði $13.00. Þegar hann
kom norður á landamæri Can-
ada var honum sagt, að hann
yrði að greiða Sambandsstjórn
Canada skatt sem næmi $11.95
(Það var tollur $5.06, söluskatt-
ur $2.76. og framleiðsluskattur
$4.13.)
Frétt þessi stóð í Emreson
Journal s.l. viku, ekki í Winni-
peg Free Press.
ER UPPREIST AÐ HEFJ-
AST f RÚSSLANDI
Ef alt er satt, sem nú er í frétt
ir fært, um Rússland, gengur
þar á ýmsu. f leppríkjunum, —
Austur-^Þýzkalandi, Póllandi og
Tjekkóslóvakíu, þarf sífelt að
vera að bæla niður óeirðir. Ofan
á það bætist svo bardaginn í
flokksmálunum innbyrðis. Béria
annar hæsti maður í valdasess-
innu, á nú að vera spæjari kapit-
alista riíkjanna vestlægu, verður
honum eflaust rutt úr vegi, ef
ekki er þegar búið, að skjóta
hann niður. Og svo er Vassily
Stalin, sonur einræðisherrans
sæla, er sagður er í varðhaldi
geymdur að skipan Malenkovs.
Hann hefir tapað stöðu sinni,
sem ritari kommúnista-flokks-
ins. Hann hefir ávalt þar til nú
verið stjórnari flugliðsins við
hátíðahöldin 1. maí. Er gizkað á
að erfðamál föður hans, en hann
var sviftur arfi, séu orsök þess
að hann situr nú í fangaverum.
Þá er einkaritari Stalins, Maj.
Gen A. N. Poskrebysheff, sagð-
ur horfinn. Er haldið að hann
hafi úr landi stokkið og hafi
í fórum sínum erfðaskrá Stalins
og önnur skjöl viðvíkjandi vali
yfirmanna hans. Eru njósnarar
um allar jarðir að leita hans,
Hefir þeirra orðið vart í Suður-
AmerLku eigi siður en annars
staðar.
FRÉTTAMOLAR
niður stjórnrastörf fyrir fuit og
alt.
•
Staðhæfingum Stuart Gar-
son’s, dómsmálaráðherra Og ann-
ara liberala, að George Drew, for
ingi íhaldsflokksins, gæti aldrei
fært skatta niður um x/2 biljón
dala, svaraði hinn síðarnefndi á
þá leið, að liberölum mundi
seint takast þetta, ef þeir héldu
áfram eins og þeir byrjuðu kosn
ingarnar. í þeim sagði Drew þá
hafa varið 10 miljón dölum til
að auglýsa sig sjálfa með, 50
miljón dölum í kosningaferða-
lög og 28 miljónum til að afla
sér sérfræðilegra upplýsinga,
sem skrifstofuþjónar stjórnarinr.
ar gætu veitt stjófninni henni
°g þjóðinni að kostnaðarlausu.
Með þvi að byrja á að spara
þarna, hefði strax nokkuð áunn-
ist.
•
Kosning hefir nú farði fram í
tveimur kjördæmum í Manitoba,
sem ókosið var í. Fullnaðar-úr-
slit eru ekki komin, en liberalar
eru á undan og líklegir til að
vinna bæði þingsætin. Kjördæm-
in voru St. Rose og Ruperts
Land. íhaldsmenn lýstu yfir áð4ar:
Hon. J. S. McDiarmid tekur
við fylkisstjórastöðu í Manitoba
I. ágúst.
•
Mrs. M. J. Coldwell, kona M.
J. Coldwells foringja C.C.F.
flokksins, dó 26. júní í Ottawa.
•
Social Credit-sinnar hafa nú
27 þingmenn kosna í British
'Columbia. f tveimur kjördæmum
sem enn eru í vafa, eru þeir á
undan. Þeir erp því líklegir að
hafa 5 framyfir einfaldan meiri-
hluta á þingi.
CCF flokkurinn hefir 14, liber
alar 2, íhaldsmennl og verka-
menn 1.
•
Rússar tóku 46 af þýzku lög-
reglumönnunum í Austur-Þýzka
landi af lífi í s.l. viku fyrir að ó
hlýðnast skipun rússneska hers-
ins, að skjóta á landa sína í upp
þotinu 17. júní.
•
Stjórnir Breta og Kína hafa
nýlega undirskrifað samning á-
hrærandi viðskifti. í fréttinni
segir ekki frá hvað miklu við-
skiftin nema.
•
Það var haldið eða vonað i
fyrstu, að veiki Winston Church
ill, forsætisráðherra Breta, væri
ekki alvarleg. En læknar er
skipuðu honum að hætta störf
um um skeið. hafa sjáanlega lit-
ið öðru vísi á málið. Það var
þeim ekki dulið, að stjórnarstarf
ið með krýningu og fundarhöld
um erlendra ráðherra, myndi
reyna á þolrif hins aldraða
manns, að ekki sé nefnt, að
standa á milli tveggja elda, —
Rússa og Bandaríkjanna, í al
heimsmálum til að koma á sætt-
um með þeim, og forða heimin-
um frá því, sem allir hafa óttast
að yfir mundi dynja, þriðja al-
heimsstríðið. Nú er haldið, að
Churchill muni verða að leggja
ur en kosning fór fram, að þeir
sæktu ekki í þessum kjördæm-
um. Andstæðingarnir voru CCF
og óháðir.
•
Joseph Laniel heitir hinn nýji
stjórnarformaður í Frakklandi. í
ráðuneyti hasn eru sex menn er
sllir hafa áður verið ráðherrar.
Nýji forsætisráðherrann er sagð
ur fremur íhaldssamur, en hann
þó með því að reyna að kom-
ast að, hvað Rússar vilja í frið-
armálum.
M. J. Coldwell, foringi CCF
flokksins heldur í þessum kosn-
ingum mjög mikið með þjóð-
eignarekstri sjúkrahúsa eða
lækninga. Segir hann að Sask-
atchewan-fylkið sé orðið kunn-
ugt út um allan heim fyrir hina
íarsælu stefnu sína í lækninga-
málunum .Hann telur skyldu
þjóðfélagsins að lækna' þegna
pína. Þeir verði þá fyrst nýtir
borgarar, að heilbrigðir séu. Að
græða á sjúkleika manna svo, að
heita megi okur, sé siðferðislega
ógeðfeld hugsun.
•
Frá Vancouver berst frétt um
að Tim Buck, kommúnistafor-
ingi í Canada, sé að vinna kapp-
samlega að útnefningu flokks
manna sinna. Hefir hann 18 þing
mannaefni í British Columbia,
en í öllu landinu 92.
•
Það er haldið að McCarthy
senator komi í koll ummæli sam-
verkamanns hans, J. B. Mathews
þau er hann hélt fram í blaða-
grein nýlega og lutu að því að
protestantaprestar væru svæsn-
ustu talsmenn kommúnisma í
Vesturheimi. Stjórnin rak Math-
ews úr rannsóknarnefndinni fyr
ir þetta. Og nú fara prestarnir
kapólskir sem aðrir á eftir Mc-
Carthy fyrir þessi ummæli. Má
mikið heita ef þau kosta hann
ekki stöðuna líka.
með orðum hins bezta íslend-
ings, hins mesta drengskapar
manns og eins hins snjallasta
skálds þjóðar vorrar fyrr og síð
ar, Stephans G. Stephanssonar,
er hann beindi til íslendinga
vestra við stofnun Þjóðræknis-
félags Vestur-íslendinga 1919:
Sér í fangi fagra sögu
framtíð lengi ber,
þó að grasið grói yfir
götu okkar hér.
Stígðu á Þingvöll stórra feðra.
Styrkur vex og þor
undir fótum vorum vita
vera þeirra spor —
vera hróðug þeirra spor.
—Tíminn
★
Fuglasöngur á hljómplötur
Minni íslands, verður einnig
helgað «ið einhverjuleyti skáld-
inu Stephani G. Stephansson.
Fjallkona fslendingadagsins,
að þessu sinni er vel valin eins
og undanfarin ár. Hún heitir Jór
un Vigdís Thorðarson og er
kennari á Gimli. Veit eg það
muni vera mörgum gleðiefni að
hún er valin frá Gimli í ár, og
mun engum efa bundið að hún
muni sóma sér vel og leysa hlut-
verk sitt fagurlega af hendi sem
fulltrúi Fjallkonunnar í Austri.
Margar fagrar og heillandi
svipmyndir bregða fyrir augu
og eyra þeirra sem verða á þess-
ari merkilegu hátið í sumar.
Þar verður blandaður kór frá
Nýja fslandi, undir stjórn hins
ágæat söngstjóra Jóhannesar
Á íslandi dvelur um þessar: Pálssonar. Kór þessi hefur mörg
mundir þýzkur maður, Ludwig um góðum röddum á að skipa Qg
Koch að nafni, í því skyni aðjer vel æfðurj sérstaklega þegar
taka hljóð íslenzkra fugla upp á tekið er tilHt til þesg hversu
geysilegum erfiðleikum það er
bundið, að sækja margar æfingar
um tuttugu mílna veg í misjöfnu
jveðri og stundum illfærum veg-
hljómplötur. —Vísir
★
Um kosningaúrslitin
Blaðið Fylkir í Vestmanna-eyj
um (fyrsta blaðið eftir kosning- i um. Kórinn syngur mörg íslenzk
arnar hingað komið) segir meðal, lög, gamla og nýja kunningja,
annars um nýafstaðnar kosning- Sem heilla munu hvern sannarx
fslending.
Eg heyrði kórinn syngja á
þjóðhátíðinni að Iðavöllum þann
fyrsta júlí. Það var yndislegt.
Eg er sannfærður um, að enginn
verður fyrir vonbrigðum sem
heyrir hann að Gimli á hátíðinni
í sumar. —Frh. í næsta blaði.
“Þessi orrahríð er nú gengin
hjá og þjóðin hefir kveðið upp
sinn dóm.
Sá dómur hljóðaði á þá leið,
að Sjálfstæðisflokkurinn vann
þingsæti frá öllum andstæðinga
flokkum sínum. Þrátt fyrir allar
tilraunir að veikja sjálfstæðis-
flokkinn, er hann öflugri eftir
þessa kosningu en nokkru sinni
fyr.
LÚÐRARNIR KALLA —
KOMIÐ!
f síðasta blaði endaði eg frá-
sögn mína á að kynna ykkur
próf. Watson Kirkconnell. En
nú ætla eg að kynna annan góð-
an gest.
Ræðumanninn sem flytur
Minni íslands, hafið þið aldrei
séð áður, og því síður kynnst
honum persónulega. En þið haf-
INNGANGSORÐ
Jóns Pálssonar forseta tslend-
ingadagsins á Hnausum 1. júlí
1953
Heilir og sælir! niðjar fslands
og allir aðrir hér viðstaddir.
Fyrir hönd nefndar þeirrar
sem stendur fyrir þjóðminning-
arhátíð þessari, býð eg ykkur öll
hjartanlgea velkomin hér á Iða-
velli.
Það er okkur áreiðanlega öll-
um ljóst að íslenzkar samkomur
og íslenzk gleðimót, þar sem
ið heyrt haná mikið getið upp á J “ástkæra ylhýra málið” er notað
síðkastið. Þessi maður er, séra j í ræðum, ljóðum og söng, fara
Einar Sturlaugsson frá Patreks- fækkandi ár frá ári í bæjum og
firði á íslandi, hann sem gaf há-
skólanum í Manitoba hið mikla
og vandaða blaða- og tímarita-
safn, sem skrifað hefur verið
sveitum.
Fjöldi fólks er þó enn hér á
meðal íslendinga í hinum ís-
lenzku bygðum sem unna svo ís-
svo oft um í íslenzku blöðunum lenzkri menningu og íslenzkri
hér. Séra Einari Sturlaugsson er
boðið hingað af háskóla Mani
tungu að það reynir af fremsta
megni að halda hvorutveggja við
toba fylkis. Hans er von hingað í lengstu lög; óttast það eflaust
með íslenzka “hópnum" sem fór að deyi hin íslenzka tunea á vör-
héðan til íslands og kemur til
baka í endanum á júlí. Séra Ein
ar verður gestur okkar um skeið
deyi hxn islenzka tunga á vör-
um okkar og barnanna okkar, —
fari íslenzk menning hér sömu
leið, og við sem íslendingar
FBÉTTIR FRÁ ÚSLANDl
og flytur Minni íslands á hátíð- j verðum andlegum dauða dæmd
inni að Gimli, og fléttar inn i
það minningar um skáldið St.
G. Stephansson í sambandi við
ísland.
Það er alltaf ánægjulegt og
gaman, að heyra, sjá og kynnast
góðum gestum hvaðan sem þeir
koma og ekki síst þegar þeir
koma frá íslandi. Og eg er sann-
færður um, að sú kynning sem
við höfum af séra Einari, verð-
ur góð og ber ávaxtaríkan gróð-
ur í félagsreit okkar íslendinga
vestan hafs, sem ætti að geta bor
ið ríkan ávöxt, ef vel er að
gróðrinum hlúð
Sagan og Framtíðin
í ræðu er dr. Þorkell Jóhannes
son flutti á þingvöllum í hópi
Vestur-íslendinganna sem eru í
heimsókn heima, rakti hann
sögu staðarins í stórum drátt-
um og þjóðarinnar. Hann mælti
og góð orð til gestanna að vest-
an og lauk ræðu sinni með þess-
um orðum:
“Máli mínu vil eg svo ljúka
ír.
Með þessu íslendingadagshá
tíðahaldi hér í dag gefur nefnd-
in sem fyrir því stendur öllum
sem sótt hafa daginn tækifæri
til þess að heilsa uppá gamla og
nýja vini, hlusta á íslenzkar ræð
ur, íslenzk frumsamin ljóð og ís-
lenzkan heilnæman og hressandi
söng og tækifæri til að sjá og
heyra lifandi tákn mynd okkar
ágæta lands Canada á þessum
þjóðminningardegi þess.
Og síðast en ekki síst enn á
ný, að gefa okkur tækifæri að sjá
og heyra lifandi táknmynd ís-
Við svona tækifæri, er hátið-. iands, fjallkonu dagsins, sem
in ekki fullkomin nema við fá- fiytUr ykkur kveðju frá ættland
um að heyra frumsamið kvæði.
Að þessu sinni verður þó aðeins
flutt eitt kvæði, og sá sem flytur
það er skáldið Guttormur J.
Guttormsson frá Víðivöllum
við Riverton. Eg þarf ekki að
kynna ykkur Guttorm, allir
þekkja hann og vita að hann hef
inu norður við heimskaut.
“Þið þekkið fold með blíðri brá
og bláum tindi f jalla,
og svana hljómi silúngs á
og sælu blómi valla
og bröttum fossi björtum sjá
og breiðum jökul skalla
ur alltaf eitthvað gott að seðja drjúpi’ hana blessun Drottins á
okkur með. Kvæði hans fyrir'um daga heimsins alla.”