Heimskringla - 20.04.1955, Blaðsíða 1
FAGNIÐ SUMRI 1 SAMBANDSKIRKJUNNI A MORGUN - 21. APRÍL
FRÉTTAYFIRLIT OG UMSAGNIR
UR ÖLLUM ÁTTUM
Fyrir skömmu lét Eisenhower
forseti svo ummælt, að afnema
skyldi allar viðskifta hömlur
sem væru á útbreiðsíu ihins nýja
lyfs við lömunar veiki, Salklyf-
inu svo nefnda. Má samkvæmt
því senda það hindrunarlaust til
motkunar út á meðal allra þjóða
heims, hvar sem eru, og hvort
sem innan járntjalds eða utan
telja sig búa. Hafa blöð hér
vestra mjög einróma lofað þetta,
segja það mannúðlega aðhafst og
til fyrirmyndar í viðskiftalífi
Þjóða.
•Ml
JVTarilyn Bell heitir 17 ára
Stúlka í Toronto. Er hún kunn
um alt þetta land og eflaust víð-
ar fyrir sundafrek eitt fyrir
rúmu ári, á Ontario vatni. Á kom
andi sumri hefir hún ákveðið, að
freista frekar sundhæfni sinnar,
á Ermarsundi. Hefir blaðið Tor-
onto Telegram hvatt hana til
'þessa stórræðis og heitið $15,000
að launum fyrir tilraunina,
hvernig sem henni lýkur.
Sir Anthony Eden, forsætis-
ráðherra Breta, hefir ákveðið að
DÁN ARFREGN
Guðrún Pétursson
Á þriðjudaginn hinn 15. marz
síðastliðinn lézt að heimili dótt-
ur sinnar í Mount Royal Quebec,
Mrs. Guðrún Pétursson, 81 árs
gömul. Foreldrar hennar voru
þau hjónin Jóhannes ísleifsson
og María Magnúsdóttir. Guðrún
var fædd 9. febrúar 1874 á Önd-
ólfsstpðum í Aðal-Reykjadal í
Suður-Þingeyjarsýslu á fslandi,
þar sem foreldrar hennar þá
Ljuggu. Tíu ára gömul fluttist
hún með þeim vestur um haf
(1884) og ólst upp hjá þeim á
heimilisréttarlandi þeirra nálægt
Hallson í Norður-Dakota. Ung
að árum giftist hún Birni Péturs
syni, sem þá stundaði skóla-
kennslu og verzlunarstörf þar
syðra. Laust eftir aldamótiri
Uuttu þau til Winnipeg og
bjuggu þar um margra ara skeið.
þau eignuðust þrjú börn tvo
sonu (Ludvig Pétur, sem dó í
sept. ,1943, og Arthur Eugenc,
dáinn í ágúst 1953) og eina dóttr
ur, Maríu Filipíu, Mrs. Allan
Gilmour, sam gaf móður sinni
heimili og annaðist ihana mörg
síðustu ár ævinnar. Hana lifa nú,
auk dótturinnar ,tvö barnabörn
og tveir bræður Jón Jóhannes-
son í Elfros, Sask., og Jósef
Jóhannesson hjá Woodside,
^an. — Útförin var gerð frá
heimili dóttur hennar og tengda
sonar í Mount Royal ,sem er
e‘tt af hinum mörgu úthverfum
Montreal-borgar.
kosningar skuli fram fara 26 mai
á Englandij Lætur hann ekki
dragast að leita álits kjósenda
um embættisskipun sina; ma
það vel virða. Á flokksfundi i-
'haldsmanna nýlega, var kosn-
ingastefnuskráin aðallega talin
í þrennu fólgin: Áframhaldandi
samnings-tilraunum um frið við
Rússa, afvopnun og upprætingu
fátækra hverfa. Héðan séð, virð
ist ekki mikið nýtt í þessu, en
aðeins vera bygt upp pólitískt
almenningsálit, sem hvaða flokk
ur sem er, getur og mun reyna
að tileinka sér. Hitt er meira
vert, er að er gáð, að Bretland
virðist síðustu fjögur árin hafa
ótrúlega mikil áhrif haft á heims
málin, borið saman við mann-
fjölda og afkomu þess nú. Þau
áhrif má sennilega þakka þeim
Churchill og Eden flestu öðru
fremur. En það er efnið, sem
kjósendur í næstu kosningum
missa varla sjónir á, þar sem eins
mikið ber á þessu út á við og
raun er á.
•Ml
Nú við byrjun sáningu á þessu
vori nema fyrirliggjandi birgðir
af hveiti í Canada yfir 600 milj-
ón mælum. Mest af verðinu á
hveitinu mun nú goldið bænd
um, samt sem áður, eða um $1.50
hvern mæli, en aðeins 10 cents
af hverjum mæli ógoldið. í ræðu
er viðskiftamálaráðherra C. D.
Howe hélt nýlega, tagði hana
ógoldna skuld á birgðum þess-
um verða greidda áður sáning
byrjaði, en sem enn er ógoldin.
*MI
Um 1200 verkamanna við
hleðslu kornskipa í Port Arthur
gerðu verkfall í síðustu viku-
lok, neituðu að starfa er fyrsta
skipið kom þangað eftir hveiti.j
Kaup þeirra er $1.35 á kl.st. og
40 stunda vinnuvika. En þeir
krefjast hækkaðs kaups. Eftir
afhleðslu bíða um 3000 vagnar
með hveiti hjá CPR og 2500 hjá
CNR í hafnborgunum.
Fimtán frekari skipa var von
til Port Arthur eftir 'hveiti. En
þeim kvað hafa verið símað af
verkamannasamtökunum að
koma ekki meðan á verkfalli
stendur.
*M»
Hn. Ron Robertson, akuryrkju
málaráóherra Manitoba, hefir
bent sambandsstjórn Canada á,
að engin dráttur megi ver a a
samningi við verkfallsmenn i
Port Arthur, þar sem lifsnauö-
syn sé að tapa ekki af marka 1,
sem fáanlegur er í Evrópu þc»sa
stundina, en aðrar þjóðir munu
skjótt færa sér í nyt, ef hveitió
er ekki tafarlaust sent þangað.
*MI
Vestur-Berlin barst fyrir
skömmu tilkynning frá Rúss-
landi um, að umferðarleyfi á
flutningstækjum til Berlínar frá
Vestur-Þýzkalandi hafi verið
hækkað. Stappar þetta næri þvi,
sem var 1945, er umferð frá V,-
Þýzkalandi var bönnuð nema í
loftinu.
í þetta sinni er grikkur þessi
gerður vestlægu þjóðunum í mót
mælaskyni við hervæðingu
Þýzkalands.
Eftirlit Berlínar er skift milli
stórþjóðanna. í nyrðri hluta
borgarinna rer brezkur, banda-
rískur og frakkneskur stjórnai-
her. í suðurhlutanum rússnesk-
ur.
Berlin er um ,110 mílur fyrir
austan landamæri Vestur Þýzka-
lands. Því geta Rússar leikið sér
að þessu að banna umferð þang-
að yfir sitt land að vestan.
Að vísu græðir Austur Berlín
eða Rússar ekkert á þessu banni.
Vestur Berlín er sem fagur, fjór
lundur í eyðimörk, er hefir
ávalt nægtir af öllu handa öll-
um íbúum borgarinnar. Austur-
Þýzkaland fer heldur ekki var
hluta af þeim nægtum.
Berlín er þarna sem eyja, er
Rússar að líkindum taka alla
þegar frá líður af vestlægu þjóð
unum, ef þannig heldur lengi á-
fram.
*MI
Því er haldið fram að ibúa tala
Bandaríkjanna verði um 220
miljónir árið 1975.
Fæðing á sér stað á hverri
áttundu sekundu. Dauðsföll
verða á hverjum 20 sekundum.
Fjögur síðustu árin hefir inn-
flutningur verið mikill, enda
mannfjölgun meiri en nokkru
sinni fyr.
Árið 1960 verður íbúatalan um
178 miljónir.
*MI
Júlíus Raab, kanslari Austur-
ríkis, kom s.l. laugardag til
baka úr ferð sinni til Rússlands,
en hún var farin til að semja um
lausn Austurríkis undan stjórn
stórveldanna, en sem Rússar
hafa s.l. 10 ár ávalt verið mót-
fallnir. Kanslarinn sagði málinu
ekki lokið, en vonaði að skilmál-
ar Rússa væru nú loks þeir, er
vestlægu þjóðirnar gætu verið
ánægðar með.
f fréttunum er nú talaö
um nýja ofsókn í Rússlandi á
hendur forsprökkum búnaðar-
rekstursins. Nikita G. Khrush-
ehev hinn nýi ritari kommúnista
flokksins, telur óhjákvæmilegt,
að hreingerning fari þar fram,
svo mikil vanhöld, sem á búnaðar
rekstrinum sé. Búast bændur
Samtal við Mr. Lyngdal
Hér eystra hafa verið stödd í
f jóra mánuði Mr. og Mrs. F. O.
Lyngdal frá Vancouver. Þau
'hafa verið í heimsókn hjá próf.
og Mrs. J. G. Jóhannsson. En
dvölin er nú að styttast, og áður
en þessi mánuður er hjá liðinn,
verða þau horfin heim.
Mr. Lyngdal leit, sem oft áður,
inn á skrifstofu Hkr. s.l. föstu-
dag. Áttum við þá nokkurt sam-
tal við hann. Spurði blaðið 'hann
spjörunum úr af íslendingum
vestra. Skal hér frá nokkru af
því sagt.
Afkomu íslendinga í Van-
couver kvað hann góða. Atvinna
þeirra er margbrotin bæði á sjó
og landi, og efnalega engu siður
stæðir en hér eystra. Ástæðan
fyrir því, er kanske eins mikið
veðurblíða, eins og nokkuð ann-
að, sem náttúran er örlátari á
við þá vestra, en Winnipeg-búa.
Spurningu Hkr. um 'hvað marg
ir íslendingar væru í British
Columbia, svaraði hann á þá leið,
að þeir teldu þá orðið nokkuð á
þriðja þúsund.
Og hvað er um íslenzkt félags
líf þeirra á meðal að segja?
Við höfum þjóðræknisfélag,
sem heldur er að eflast. Það hef-
ir einn aðalfund og nokkra
nefndarfundi á ári. Þar höfum
við og annað merkilegt félag,
Sólskin, er konur og stúlkur
stjórna, styrkir það öll góð is
lenzk fyrirtæki. Öflugt lúterskt
kvenfélag, með um 30 meðlimi
er máttarstólpi lúterska safnað-
aðins. Sá söfnuður er að vísu
okkar veigamesti íslenzki félags
skapur og á eftir að vaxa og
blómgvast, er við fáum fyrirhug
aða nýja kirkju bygða á þessu
sumri. Þá höfum við öflugan
“Men’s Club”, er 'heldur fundi
býsna oft á árinu. Ungmennafé
jafnvel við endurtekningu á(lag er hér einnig fjölment og
bænda-aftökunum 1930.
Um tugi þúsunda er af eftirlits
mönnum Malinkovs-stjórnar í
velvakandi. Eitthvað mætti
fleira telja, en þetta sem komið
er, sýnir að hér er á ströndinni
bændamálum, sem eðlilegt er. —Jað vaxa upp og eflast dálítið
Eru þeir sagðir flestir sérfróðir J fjölþætt íslenzkt þjóðlíf, eins og
í búnaði. En í stöður þeirra þarf í stórborgum þar sem íslending-
ALBERT EINSTEIN
LÁTINN
Albert Einstein, sem 26 ára
gamall var orðinn heimsfrægur
fyrir afstöðukenningu sína (rela
tivity) dó s.l. mánudag á sjúkra
húsi í Princeton.
Hann var fæddur í Ulm á
Þýzkalandi 14. marz 1879, og ólst
þar upp, en varð á árum Hitlers
að flýja land. Fór hann þá tii
Bandaríkjanna og hefir síðan
kent þar við Prnceton-háskóla.
Einstein var af vísindamönn-
um um allan heim viðurkendur
fyrir 'heimspekisstarf sitt, ráðn-
ingu gátunnar um hvað þessi
heimur er.
Afstöðukennng hans er sögð
í því fólgin, að sýna fram á, að
eitt sé sameiningarafl alls og að
líkindum upphaf, en það er orka
(energy).
Með því að innifela tímann i
kenningu sinni mun f jórða stærð
in fyrst hafa komið til greina.
Áður var einungis talað um vídd.
breidd og þykt hlutanna.
Þó mönnum yfirleitt talað sé
kenning Einsteins sem ráðgáta,
eiga margar af stefnum og
straumum nútímans við hana að
styðjast. Glegst merki þess hvað
náinn hann er nútíðinni, er atom
sprengjan, sem hann er höfund-
ur að, eða þekking hans á orku
efnisins leiddi fram á sjónarsvið
ið.
Mentun sína fekk Einstein í
Zurich háskóla í Sviss. Þegar
hann gaf út heildar bók sina um
Afstöðukenninguna 1916 á hann
að hafa sagt kýmandi: “Ef kenn
ing mín reynist rétt, þá munu
þjóðverjar kalla mig góðan
Þjóðverja og Frakkar munu
kalla mig alsheimsborgara. En ef
hún reynist röng, munu Frakkar
kalla mig Þjóðverja, en Þjóð-
verjar segja mig Gyðing.”
Um þjóðernislega afstöðu hans
urðu margar skrítlur til, eftir að
hann varð frægur.
Friðarpostuli var Einstein
mikill, þrátt fyrir bréfið 1939,
sem hann skrifaði Roosevelt for
seta um, að vissara væri að verða
á undan Þjóðverjum með að fram
leiða atomsprengjur . og þvi
fylgdi upphaf atom-aldarinnar.
Hann var bæði blíður og nærgæt
inn við börn og þau leituðu með
reikningsdæmi sín óspart til Ein
steins. Snerist hann ávalt hið
bezta við óskum þeirra.
Einstein var tví-giftur. Með
fyrri konu sinni, sem hann gift-
ist 1901, Melva Marec átti hann
tvo syni, Albert og Edward. Þau
skildu' 1916. Elsa Einstein,
frænka hans, varð seinni kona
hans. Hún dó 1936.
Bækur skrifaði Einstein marg
ar um hugðarefni sín, vísinda-
lega, en sem jafnframt lýsa
mannúðarskoðunum hans. Hann
trúði á lýðræði, frelsi og frið
og umburðarlyndi.
Að frumleik í vísindastarfi er
bent á þá Newton og Darwin
sem svipaða Einstein. En hitt
er vafamál hvort nokkur hefiv
tekið honum þar fram.
PÁLL S. PÁLSSON:
að koma gæðingum Khrush-
chevs.
Útlitið er að uppskerubrestui-
inn í Rússlandi eigi að bitna á
flerum, en Malenkov.
Nokkrir eru bornir þeim sök-
um, að hafa unnið eyðileggingar-
starf á áhöldum og eru þegar i
geymslu stjórnarinnar!
*MI
Clemens Attlee, foringi verka-
manna á Bretlandi, kom nýverið
til Canada. Ætlaði hann að halda
fyrirlestra víða um land, en hef-
ir orðið að hætta því, vegna kosn
inganna á Bretlandi. Flýgur
hann á morgun frá Vancouver
heim. Hann 'hafði auglýst fund
í Winnipeg 21. apríl, en af því
eetur ekki orðið.
*MI
Ólíkt höfumst við að, má segja
[ um yfirlýsingu L. B. Pearson
utanríkismálaráðherra Canada
um það, að Ottawa stjórnin
veiti ekki Bandaríkjunum hern-
aðaraðstoð, þó þau fari í stríð
út af kínverskum eyjum og svari
Bandaríkjanna um, að það geri
þeim minst til; þau taki ekkert
aftur af loforði sínu um að lið-
sinna Canada við varnir þess.
Minningar frá Islandsferðinni 1954
'Fyrir helgina var sagt frá i
Winnipeg Free Press, að Jón
Sigurdson í Kenora, maður mið-
aldra væri dáinn. Upplýsingar
hefir blaðið ekki frekar getað
fengið um hann.
ar setjast að.
En ef þessi fjölgun eða flutn-
ingur til Strandarinnar heldur
áfram, eigi þið þá ekki von á
að fleiri ný íslenzk fyrirtæki
verði stofnuð?
Jú. Við höfum oft talað um
þá yfirsjón ykkar blaðaútgef-
enda, að sitja í Winnipeg hlið
við hlið, með tvö blöð, vitandi
að þið náið aldrei í fullnaðar
fréttir af þjóðlífi okkar öllu með
því.
Eitt blað hér og annað vestra,
væri eðlilegra og mundi lengja
lífdaga, beggja blaðanna. Með
því móti fengjum við fullkomn-
ara samband milli allra íslend-
inga á ströndinni, sem bráðnauð
synlegt er, ef viðhald þjóðemis
vors á að eiga 'hér lan'ga tilveru.
Hvernig fellur íslendingum
við Social Credit stjórnina í B.
C.?
Ef stefna flokksins er sú, að
hún þrífst í einu fylki, þá ætti
hún að geta þrifist í öðru. Og
hvaða fylki býr betur en Al-
berta, þar sem einmitt þessi|
sama stefna ríkir?
Mr. Lyngdal mátti nú ekki
lengur halda áfram vegna anna
og ferðahugs, og vonar um að
sjá bráðlega ströndina fögru og
blómlegu aftur. Hann sagði þar
mörg verkefni bíða íslendinga,
ef þeir næðu réttri aðstöðu til
skipulagningar og framkvæmda
á þeim.
Framh.
Skömmu eftir að við kvöddum
séra Benjamín og frú hans, kom
frændi konunnar minnar, Þórar-
inn Guðmundsson, til Egilsstaða
og flutti okkur heim til sín að
Fljótsbakka. Kona hans er Jó-
hanna Mattía Einarsdóttir Long.
Hafa þau búið á þessari jörð yfir
40 ár. Er þar bú mikið, túnið
afarstórt og grasgefið, og mun
gefa af sér hartnær 1000 hesta af
heyi. Buðu þau okkur vist með
sér eins lengi og við dveldum á
þeim stöðvum.
Seinna um daginn kom Gissur
Erlingsson stöðvarstjóri á Eið-
um og tók okkur 'heim til sín.
Kona hans og börn sýndu okkur
einlægan vinskap. Dvöldum við
þar í góðu yfirlæti til kvölds.
Um kvöldið heimsóttum við Ár-
mann Halldórsson kennara á
Eiðaskóla og frú hans. Var okk-
ur tekið þar opnum örmum af
þeim hjónunum, og fengum við
þá óvæntu ánægju að sjá allar
kenslustofur skólans og fá út-
skýringu á daglegum kenzlustörf
um, ásamt öðru sem skólann
varðaði. Það var bæði fræðandi
og skemtilegt.
Árla næsta morgun kom Giss-
ur, velgjörðamaður okkar, heim
að Fljótsbakka og bauð okkur í
bílferð um Héraðið. Var það
Það duldist ekki, eftir hið
skemtilega, en of stutta viðtal,
að Lyngdal er íslendingur af
huga og sál.
þakksamlega þegið. Enn varð eg
að fara yfir löngu og mjóu brúna
á Lagarfljóti, en allt var tilvinn-
andi til þess að sjá þetta fagra
Hérað. Miðdagsmat höfðum við
á Skriðuklaustri. Varð okkur
starsýnt á þennan einkennilega
bæ sem Gunnar Gunarsson rit-
ihöfundur hafði látið reisa eftir
sinni fyrirsögn og uppdrætti.
Til að sjá er bærinn mjög ólíkur
þeim sveitabæjum sem eg áður
hafði séð. Hvanngrænt torfþak-
ið var svo heillandi og áferðar-
fagurt að það minnti mig helzt
á flosklæði á fögrum kvenlík-
ama. Var allur frágangur eftir
því snyrtilegur og aðlaðandi.
Maður heillast af hinni jrtri feg-
urð.
Að innréttingu virðist bærinn
vera hið mesta völundar-hús og
ókunnugum villugjarnt þar inni
jafnvel þó þeir hefði með sér
kompás, en heilland var að ganga
um stofurnar sem rithöfundurinn
vinsæli, Gunnar Gunnarsson,
hafði sjálfur gengið um og hugs-
að og skrifað margt af sínum
ágætu ritsmíðum.
Svo var haldið áfram inn Hér-
aðið til Valþjófsstaða, þar er
kirkjustaður og virtist mér
kirkjan, utan að sjá, bera “mjög
lítið brúðarskraut”, en ekki eru
allar ástir í andliti fólgnar. Það-
an fórum við svo til baka hinu-
megin Lagarfljóts til Hallorms-
staða, er vegurinn ekki góður
þar til nær dregur skóginum, en
Frh. á 4. bls.