Heimskringla - 20.04.1955, Qupperneq 4
4. SIÐA
HEIHSKRINQLA
WINNIPBG, 20. APRfL 1955
FJÆR OG NÆR
Messuboð
Sumri fagnað
iHaldið verður upp á fyrsta
sunnudag í sumri n. k. sunnudag.
24. apríl, í Fyrstu Sambands-
kirkju í Winnipeg við kvöld
guðsþjónustuna. Prestur safnað-
arins messar.
★ ★ ★
Giftingar
Séra Philip M. Pétursson gifti
Jacob Heppner og Mary Wiebe
s.l. laugardag í Fyrstu Sam-
bandskirkju í Winnipeg, og
sama daginn gaf hann saman í
hjónaband, William Robert Gair
og Eleanor Irene Hampsar að
898 Magnus Ave.
★ ★ ★
GULLNA HLIÐIÐ
SÝNTÁNÝ
Ákveðið er, að Leikfélag land-
ans sýni á ný þætti úr Gullna
hliðinu í fyrstu vikunni í maí.
Verður ein sýning í Winnipeg
og önnur—að öllu forfallalausu
—í Geysisbyggð, en fleiri sýn-
ingum því miður ekki viðkomið.
/Sýningar þessar verða nánara
auglýstar í næsta blaði.
★ ★ ★
HÓPFERÐ TIL ÍSLANDS
Einhverjar óviðráðanlegar or-
sakir hljóta að valda því, að eng-
ar endanlegar upplýsingar hafa
enn borizt frá íslandi um far-
gjöld og annað varðandi hina
væntanlegu hópferð. Má vera, að
verkfall það, er staðið 'hefur á
fslandi að undanförnu, eigi sinn
þátt í þessum drætti og lausn
ÍROSE theatre
—SARGENT & ARLINGTON—
j APRIL 21—23 Thur. Fri. Sat. (Geu
APACHE (color)
I Jcan Peters, Burt Lancaster
SHE COULDN’T SAY NO
Jean Simmons, Robert Mitchum
| APRIL 25-27 Mon Tue Wed (Ad.
BLOWING WILD
[ Gary Cooper, Barbara Stanwyck
TROUBLE IN STORE
| Margaret Rutherford
* .—«—>—<■—•»—<.——
muni fást í þessu máli jafnskjótt
og verkfallið leysist, en um það
hafa ekki enn borizt neinar frétt
ir. Er því ekki annað að gera en
taka á þolinmæðinni og sjá,
hverju fram vindur.
Vinsamlegast!
THOR VIKING
515 Simcoe Street
Winnipeg 10. Man.
★ ★ ★
Fellowship Service
Verið er að efna til guðsþjón-
ustu í Fyrstu Sambandskirkju í
Winnipeg sem nefnist “Fellow-
ship Service”, kl. 11 f.h. sunnu-
daginn 1. maí. Verið er að bjóða
safnaðarmönnum og vinum úr
Sambandskirkjum í næriiggjandi
bygðum. Þetta er árlegt fyrir-
tæki sem góður rómur hefur ver
ið gerður að, og gert er ráð fyr-
ir að það verði vel sótt. Veiting-
ar verða á eftir guðsþjónust-
unni og tækifæri fyrir menn að
kynnast.
★ ★ ★
,Mrs. Helga S. Frederickson,
612 Langside St. Wpg., dó s.l.
fimtudag. Hún var 62 ára, fædd i
Winnipeg og átti hér heima unz
hún flutti til Vancouver 1943,
en flutti til bakka á s.l. ári. Hana
lifa eiginmaður hennar Joseph,
3 dætur og einn sonur. Hún var
jörðuð s.l. laugardag.
★ ★ ★
Dr. Ric'hard Beck flytur fyrir
lestur um íslandsferð sína og
konu sinnar s.l. sumar, í Geysir
Community Hall á laugardags-
kvöldið kemur 23. apríl, kl. 9.
I Dans á eftir.
* ★ ★
The Icelandic Can. Club
Several people have expressed
interest in t'he projected excur-
sion to the Icelandic Centenary
clebration in Utah, next June.
An offer has been received from
the Gryhound Bus Co., to pro-
vide a bus, if 37 passengers offer
themselves, the round fare to be
$55.00, with hotel accommoda-
tion and meals en-route included.
★ ★ *
Petur Jónsson, maður 84 ára,
til heimilis að Riverton, dó 17.
apríl. Fer jarðarförin fram i
dag (miðvikudag) kl. 2 e.'h. frá
kirkju Bræðrasafnaðar.
★ ★ ★
Frétt barst blaðinu, að Byron
Johnson, fyrrum forsætisráðhr.
British Columbia, hafi veikst
snögglega og sé nú í sjúkrahúsi
þar vestra. Eftir fréttinni að
dæma er hann á bata vegi, en
ekki segir hvað að honum sé.
★ ★ ★
iLestrafélagið á Gimli er að
hafa sína árs samkomu á föstu-
dagskvöldið 22. apríl í Parish
Hall, kl. 8.30. Próf Richard Beck
flytur ræðu þar. Svo verður upp-
lestur og söngur, Tomibóla og
raffle.
★ ★ »
Messað verður sunnud. 24.
apríl á þessum stöðum:
Lundar, kl. 11 f.h.—family ser-
vice. —Vogar kl. 2 e.h., á ensku;
Silver Bay, kl. 4 e.h., á ensku;
Steep Rock kl. 8 e.h. á ensku.
Séra Bragi Fridriksson
Nýstárleg og einkennileg
hugmynd
Stuttur útdráttur úr ritgerð í
Macleans’ vikuhlaði, eftir Nor-
man J. Berrill, próf. af Zoology
McGill University með fyrir-
sögn: Erum vér eina mannkynið
í alheiminum?
Eftir að hafa athugað skilyrði
fyrir lífi á öðrum jarðstjörnum
í' voru sólkerfi, fullyrðir hann
að lífverur í líkingu við það sem
er hér á jörð sé algjörlega útilok-
að.
En er þá, spyr hann, nokkur
möguleiki fyrir að líf geti átt
sér stað annarstaðar í alheimin-
um?
Þetta segir hann sé mjög mik-
ilvæg spurning og undir svarinu
sé að nokkru leyti komið hvað
tilgangurinn með einstaklings
lífið og markmiðið með alheim-
inn sé.
Þá rekur hann í stórum drátt-
um sögu lífsins á jörðunni. Hann
telur að fyrstu lífverur hafi
myndast fyrir meir en tvö þús-
und milljónum ára, en steinrunn
ar lífverur í jarðlögunum segja
framþróunnar sögu lífsins um
fimm hundrað milljón ára bil.
Síðan varpar hann fram þeirri
spurningu hvort fleiri sólkerfi
en vort sé í alheiminum, og
kemst að þeirri miðurstöðu að
ótölulegur grúi, og í hverju sól-
kerfi mun vera ein, jafnvel tvær
jarðstjörnur sem hafi líffram-
leiðslu skilyrði. Og nú spyr
hann: Geta slíkar jarðstjörnur
framleitt mannkyn?
Áður en vér getum gefið á-
kveðið svar, segir hann, þurfum
vér að athuga vora jörð, vort
eigið sólkerfi, vora sól. Og vér
mættum spyrja hvort það finnist
nokkrir tveir einstaklingur,
maður á þessari jörð sem eru
algjörlega eins, ekki aðeins að
ytra eðli? Og svarið er: Algjört
og ákveðið nei! Líkindi til að
tveir einstaklingar finnist alveg
ens er með öllu útilokað*. Sam-
kvæmt þeim mælikvarða geta
verið milljónir sólna þó engin
LÆGSTU fargjöld til ÍSLANDS
Douglas Skymasters-flugstjórar og
Bandaríkja-lærðir Skandinaviskir
flugmenn, sem er trygging fyrir
þægindum öryggi og vinalegu við-
móti.
Bókið hjá Agent félagsins
C.A.B. ábyrgist. Reglulegar flug-
ferðir frá New York til
ISLANDS, NOREGS
SVÍÞJÓÐ, DANMERKUR
og ÞÝZKALANDS.
Beinar samgöngur við alla Evrópu.
n /-] n
ICELANDIÚ mIRLINES
ulAauu
15 West 47th Street, New York 36
PL 7-8585
VELJIÐ 1 ÖRYGGI HJA TIP TOP TAILORS
Gamlir og nýjir viðskiftavinir njóta hinnar sömu
kjörkaupa, hinnar sömu persónulegu afgreiðslu
hjá elztu og frægustu fatagerðar verzlun f Canada
eftir máli, jafnt fyrir konur sem karla. Búðir og
umboðsmenn f hverri borg frá strönd til
strandar.
BEZTU FÖT í CANADA SEM FAANLEG ERU
— Avalt Tip Top búð í nágrenninu —
T 3t
Tip
Top
tailors
Enter Barley Contest
To be eligible to compete in the Manitoba Barley Contest,
the barley grower must enter the Contest before July 15th,
1955.
Secure your entry form from your Agricultural Represen-
ative or your elevator operator, send form to the Soils and
Crops Branch, Department of Agriculture, Legislative
Building, Winnipeg 1, Manitoba.
This space contributed by:
Winnipeg
Brewery Limited
M.D. 354
alveg eins og vor sól. Það geta
verið milljónir af jarðstjömum
í líkingu við vora jörð, en engin
þó 'hafa sömu aðstöðu til sinnar
eigin sólar sem vor jörð, engin
mun snúast um sinn eigin mönd-
ul og kringum sína sól með
sömu hlutföllum og vor jörð,
engin vera af sömu stærð né hafa
algjörlega sömu efnasamsetning.
Svo mikill er breytileiki heims-
ins að óhugsandi sé að tveir ein-
staklingar finnist sömu tegund-
ar.
Sérihver lífberandi jarðstjarna
í alheiminum hlýtur að vera al-
gjörlega sérstæð þrátt fyrir hvað
góða afstöðu sem hún hefur til
sinnar sólar, hún mun vera stærri
eða minni en jörðin, hafa öðru-
vísi veðurfar, ef til vill meira
land að tiltölu við hafið eða
máske hreint ekkert land.
Allar kringumstæður í smáu
sem stóru svo bráðnauðsynlegar
fyrir tilveru og framþróun vits-
manna vera, munu vera að ein-
hverju leyti öðruvísi.
Mannlegar verur voru mynd-
gangandi á tveimur fótum, með
alla vorra sérstæðu kosti og ó-
kosti munu vera til aðeins á þess
ari jörð, og hvergi annarstaðar
í alheimi.
Aðrar jarðstjörnur í geimnum
hafa áreiðanlega sínar eigin
vitsmuna verur, að útliti sem oss
er ómögulegt að gjöra oss hug-
mynd um. Jarðstjörnur hagstæð-
lega settar framleiða líf, og líf
fyrr eða seinna þróast í vitsmuna
verur.
Og verur gæddar vísdómi,
fegurð og mætti, ef til vill langt
framyfir það sem þekkist á vorri
jörð, áreiðanlega byggja ótölu-
legan grúa jarðstjarna víðsvegar
um geiminn. Hvað um gildir:
Vér erum áreiðanlega ekki ein
í alheiminum.
* Saman ber: Engin tvö lauf-
blöð, engir tveir snjókristallar
finnast algjörlega eins byggðir.
Halld. Gíslason þýddi
FRÉTTIR FRÁ ÍSLANDI
120 umsóknr frá bændum
um þýzkt verkafólk
Búnaðarfélag íslands hefur
spurzt fyrir um það hjá bændum
Ihvort þeir óski að ráða þýzkt
verkafólk til landbúnaðarstarfa
í sumar, og eins kynnt sér mögu
leika fyrir því í Þýzkalandi að
fá hingað fólk.
Samkvæmt upplýsingum -er
Vísi fékk hjá skrifstofu Búnað-
arfélagsins í morgun, er ekki að
fullu ráðið ennþá hvort af því
verður að fá hingað þýzkt fólk.
Hinsvegar hefur það komið fram
að töluverður áhugi er fyrir því
meðal bænda, að fá þýzkt fólk
til landbúnaðarstarfa, og hafa
um 120 umsóknir borizt. Skipast
þær nálega að jöfnu á konur og
karla. —Vísir 8. marz
★
Fór með freðfisk, kemur
með appelsínur
M.s. Vatnajökull, sem væntan-
lega kemur hingað um miðjan
næsta mánuð (apríl) mun þá hafa
meðferðis um 800 lestir af appel
sínum.
Héðan fór skipið rétt fyrir
mánaðamót til Ceuta í Norður-
Afríku og tók þar olíu. Þaðan
fór skipið í gærkvöldi áleiðis
til Haifa í Israel, en þangað er
7—8 daga sigling frá Ceuta. —
Skipið hefur meðferðis 700—800
lestir, eða fullfermi af freðfiski
til Israels.
Innflytjendasambandið mun
eiga ávextina, sem Vatnajökull
kemur með frá Israel.
Vísir 10. marz
★
Forsetinn heimsækir Noreg
Eins og kunnugt er ætluðu
forseti íslands og frú hans að
heimsækja Noreg, ásamt hinum
Norðurlöndunum á síðastliðnu
ári, en sökum hins sviplega frá-
falls Mörthu krónsprinsessu,
varð ekki af hinni opinberu
heimsókn þá.
Hefur nú verið ákveðið, að
forsetahjónin komi í opinbera
heimsókn til Noregskonungs 25.
maí n.k.
Ráðgert er, að M,s. Gullfoss
flytji forseta og frú hans til
Osló, en að lokinni hinni opin-
beru heimsókn þar 27. maí,
munu forsetahjónin ferðast um
Noreg í boði norsku ríkisstjórn-
arinnar.
—Vísir 12. marz
MINNINGAR P. S. P.
MINNIS7
BETEL
í erfðaskrám yðar
Frh. frá 1. bls.
er Iþó slarkfær íslenzkum bíl-
stjórum, einkum ef farartækið er
“JePP^”. sem er léttur, sterkur
og hár undir kvið, herliðsvagn,
knúinn vél sem virðist hafa óút-
reiknanlegt afl, enda eru allar
vegleysur á íslandi kallaðar
“Jeppa-vegir”, og virðist þessum
farar-tækjum með hjálp hraustra
manna sem nóg er til af á Islandi,
allir vegir færir .
Nú vorum við komin í Hall-
ormsstaða-skóg. Margt var þar
gíæsilegra og gildra trjáa alls-
konar tegunda. Vaxtarlag þeirra
og útlit minntu mann á fjölda
fólks, karla og kvenna, sumt
langt og mjótt, sumt stutt og
digurt, an allt aðlaðandi og vin-
gjarnlegt, og í rjóðrum skógar-
ins vermireitir og uppvaxtarstað
ir hinna ungu trjáa, sem voru
ámismunandi vaxtarstigi, en öll
þeim skilyrðum búin, að vaxa
og verða eins stór og fyrirrennar
arþeirra, fyrir tækni og aðhlynn-
ing skógræktarmannanna, sem si
og æ vöktu yfir velferð þeirra og
þroska.
“Op niðr að Leginum þarna —
þarna,
þar fann eg lund, sem mér geðj-
ast að.
Sit því og sé, hvernig sólin
sindrar,
sit hér í skóginum við Hallorms-
stað”.
Svo kvað Matthías forðum i
einni af sínum hrifningum. Þess-
ar hendingar komu mér í hug
pegar vio aoum nja Atiavnt, sem
er mikið og fagurt rjóður við
“Löginn”. Eru þar samkomuhús
mikil og haglega smíðuð, og
margar ihéraðs-samkomur og mót
haldin þar. Minnti þessi staður
mig svo mjög á Seleyri, sem í
eina tíð var verzlunarstaður
Borgfirðinga í Hafnarskógi önd-
vert Borgarnesi. Batt eg þar sem
drengur fyrstu bagga mína, upp
á fimm hesta lest, hjálparlaust
og fyrirsagnarlaust.
Eftir nokkra dvöl við Atlavík
VINNIÐ AÐ SIGRI
1 NAFNI FRELSISINS
-a“gl- JEHOVA
Þjáir kviðslit yður? Fullkomin lækning
og vellíðan. Nýjustu aðferðir. Engin tegju
bðnd eða viðjar af neinu tagi.
Skrifið SMITH MFG. Company
Dept. 234 Preston Ont
COPENHAGEN
“HEIMSINS BEZTA
NEFTÓBAK”
ókum við heim til Hallormsstaðs,
var okkur vel tekið af forstöðu-
konu skólans, Ásdís Sveinsdótt-
ur, og þáðum hjá henni vel fram-
reiddar veitingar. Eftir ánægju-
legt samtal og margskonar upp-
lýsingar héldum við ferðinni
áfram heim til Fljótsbakka, vor-
um við þar um nóttina, sem var
okkar síðasta í þessu fagra og
eftirminnilega sveitahéraði.
nræsta aag, sem var xaugatUag-
urinn þriðji júlí, var lagt á stað
til Borgarfjarðar. Var það vinur
okkar Gissur Erlingsson, sem ók
okkur þangað í bíl sínum. Slóst
nú Þórarinn frá Fljótsbakka með
í förina, hafði hann ekki til
Borgarfjarðar komið um fjölda
mörg ár. Farið var á stað frá
Eiðum kl. 6 e.'h. Gekk nú ferðin
hið ákjósanlegasta upp á svo
kallað Vatnsskarð, enda vegur
þangað hinn ákjósanlegasti.
Framh.
BALBRIGGAN
LÉTTU
NÆRFÖT
Halda yður þægilega köldum
með verndar-hlífum fyrir
handar krika og læri.
Penmans léttu bómullar nær-
föt, eyða svitanum—fara vel,
engin bönd þörf, auðveld í
þvotti. í hvaða sniði sem er
fyrir menn og drengi.
★
Fræg síðan 1868