Heimskringla - 09.11.1955, Síða 1

Heimskringla - 09.11.1955, Síða 1
LXX ÁRGANGUR WINNTPEG, MIÐVIKUDAjGINN, 9. NÓV. 1955 NÚMER 6. 80 ára landnám Á þessu hausti voru 80 ár frá því er landnám hófst á Gimli. Það var á síðasta sumardag, þ.e. 22 október árið 1875, sem fyrsti innflytjenda hópurinn lenti þar. Ekki höfum vér heyrt neitt um, að þessa afmælis hafi verið minst, eða líkindi fyrir að það verói gert á þessu ári. í kirkjuraeðum mun þó á það hafa verið minst. Að líkindum hefir þótt of mikið nú að efna til hátíðarhalds út af þessu sama efni og gert var fyrir 5 árum, er 75 ára landnáms Gimli var minst. Einn maður heima, Árni Bjarnason á Akureyri, lagði þó út í að helga blað sitt er út kom 22. október þessu efni. Skrifar hann og ýmsir fleiri góðar grein- ar um landnámið á Gimli. Hafa suglýsendur styrkt hann til þess og flytja auglýsingarnar allar sama boðskapinn, heilla- óskir til Vestur-íslendinga. Það má ekki minna vera en að við þökkum þessa hugheilu og bróðurlegu kveðjur frændanna heima og útgefanda Laugardags blaðsins. Býður ódýr hús 1 Montreal gerir samvinnufé- lag ráð fyrjr ag reisa íveru'hús, er ekki kosti yfir $48.00 á mán- uði, með 20 ára greiðslu og $100 borgun út í hönd. Gert er ráð fyrir 7 herbergja húsum. Hafa þegar verið pöntuð 300. ÞVERNEITAR KOSNINGU Molotov þverneitaði í gær á Geneva f undinum, að samþykkja tillögur Vestlægu þjóðanna um sarneiningu Þýzkalands með al- mennri atkvæða greiðslu.. Molotov sagði almennar kosn- ingar, að sumu leyti koma í bága við stefnu Edens um að sameina Þýzkaland fót fyrir fót, en ekki alt í einu. Tillaga um atkvæða- greiðslu hefði meira að gera við að sameina alt Þýzkaland Atlanz hafs þjóðasambandinu í eina sterka heiid en nokkuð annað. Útliðið er, ag ^ þessum Gen- eva fundi stanai hnífurinn í kúnni og alls ekkert verði gert, ef Molotov ræður. Dulles er þrátt fyrir alt ekki vonlaus um starf fundarins ennþá eða að það verði að engu gert. Það verði aðeins ti! að herða sóknina til sigurs hin- um góðu málstað, sem virðist þýða á móti Rússum. EISENHOWER FLYTUR TIL WASHINGTON Næstkomandi föstudag heíir Eisen'hower ráð gert að flytja úr spítalanum í Denver til Wash- ington. Má af þessu líklegt telja, sem og vonandi er, að forsetinn sé á góðum batvegi. En um það að hann taki við stjórnarstarfi, verð ur ekkert ákveðið, fyr en í jan- úar eða febrúar. Og þá verður ennfremur svar- að spurningunni um, hvort að hann verði í vali við næstu kosn- ingar. SÓLARLJÓSIÐ ORKU- GJAFI Um 900 sérfræðingar í orku- hagnýtingu sólarljóssins frá 36 þjóðutn, komu nýlega saman á fundi I Phoenix, Ariz., í Banda- ríkjunum. Hugmyndin var að kynnast hvað liði tilraunum með notkun sólarorku við framleiðslu Tilraupirnar eru orðnar tals vert víðtækar. Og margir segja, að í sólarljósinu, sem umlykur okkur jarðarbúa, sé fólgin hita orka, er beizluð verði fyr eða síðar og eigi eftir að uppylla orkuþörf mannkynsins um milj ónir ára. Það er eins og af þessum fjöl- menna fundi má sjá, mikið meiri athygli veitt hitaorku sólarljóss- ins, en á orði er haft. Var í frétt um af fundinum sagt, að Rússar voru hugvitsamastir á þessu sviði. En það er eitt sem fram- för í þessa átt háir. Það er fram leiðslukostnaður við beizlun sól- arorkunnar. Héldu ymsir aðrar orkulindir verða um tíma mikið ódýrari. Til framleiðslu, hita eða orku sólarljóss eru speglar eða safn- gler notuð. SPJALLA SAMAN UM PEÐRÍKI RÚSSLANDS John Foster Dulles sem nú er i Geneva—og Tító forseti Júgó- slavíu, áttu skraf saman síðast liðinn sunnudag um peðríki Rússlands. Hélt Dulles fram, að öllum þessum ríkjum Austur- Evrópu yrði að veita frelsi; heim urinn gæti ekki til lengdar horft upp á þau rúin sjálfstæði sínu, eins og þau nú væru. Verkefni Sameinuðu þjóðanna væri að vinna að frelsi þeirra. Þegar hann spurði Tító um skoðanir á þessu máli, kvaðst hann vera Dulles sammála. Tító er ekki einn af stórþjóða utanríkisráðherrunum fjórum, á Geneva-fundinum. En skoðanir hans mega sín eigi að síður mik- ið. ÍSLENZKUKENNSLA FYRIR BÖRN íslenzkukennsla fyrir börn hefst á vegum Þjóðræknisfélags ins næstkomandi laugardag, 12. nóvember, klukkan 10:30 fyrir hádegi í efri sal lútersku kirkj- unnar við Victor stræti. JÖRÐIN OKKAR INNVORTIS Því^var lengi haldið fram (á nítjándu öldinni), að jörðin væri glóheit innan, bráðin málm- blanda undir geysilegum þrýst mg. Hinn nafnfrægi enski vís- indamaður, Kelvin lávarður, var með þeim fyrstu til að véfengja þessa hugmynd, sem þá virtist vera byggð á traustum grund- velli_ Útras hita, svo sem úr eiö fjöiium, hverum, o.s.frv. virtist benda a innvortis 'hita, og þdg sérstaklega, að gröftur, svo sem í djúpum námum, leiddi í ljós, að jarðhiti jókst reglulega eftir því sem neðar dróg, ein gráða á C. hver 104 fet í Evrópu (ein gráða hver 138 fet í vesturheimi) Héldust þessi aukning óbreytr myndi hitinn vera orðinn 1000 gráður á C. á 20-mílna dýpi í Evrópu (á 26 mílna dýpi í vest- urheimi). Var álitið að jarðskorp an, en hún er að jafnaði 44 mílur á þykkt, væri því nokkuð þykkri undir vesturheimi. Nú er hugmyndin um ástandið innvortis í jörðinni með nokkuð öðrum hætti, jafnvel að taki að draga úr hitanum þegar komið er niður fyrir skorpuna. Og eng- um efa er það nú bundið, að fyrir neðan hana mun Vera lítið um bráðinn málm, og að kjarni ihnatt arins, svo sem 4000 mílur í þver- mál, er að mestu járn-nikkel blanda, mjög samanþrýst. Þetta er vitað með vissu á því, hvernig bylgjur frá jarðskjálftum haga sér, en þær fara þess hraðar sem efnið sem þær fara um er þéttara. Verður því nákvæmlega reikn- að út hvaða efni P (primary) bylgjan fer um. Og svo reiknast til, að jörðin í heild sé fimm-og -hálft sinnum þyngri en væri hún öll úr vatni. Sagan segir að þegar Kelvin lávarður var að skýra fyrir læri- sveinum sínum að jörðin væri ekki lögur innvortis, þá notaði hann tvö egg, annað hrátt en hitt harðsoðið, sem hann svo setti í snúning Kom þá í ljós, að hráa eggið stóðvaðist nokkru fyrr en ið harðsoðna, sem kom til aí því, að lögurinn í því snérist ekki eins hratt og skelin, og snúningurinn af þessu dró því úr snúningshraðanum, en þetta ætti sér ekki stað í harðsoðna egginu. Væri jörðin lögur að innan, myndi hún hlýða sama lögmáli, að snúningurinn dragi úr snúningshraða hennar. Nú er vitað að hún hefur hring sólast með sama hraða í þrjár biljónir ára, og vel það, en væri hún lögur að innan, ihefði hún hætt að snúast um möndul fyrir löngu, eins og túnglið, snéri ætíð sömu hlið að sólinni. Er haldið af þeim sem gefa sig að þessum fræðum, að jarð- hitinn sem gerir vart við sig i eldgosum, nái ekki niður fyrir skelina, sem að jafnaði er aðeins 44 mílur á þykkt. —L. F. Skagfirðingar fá bréf og handrit Magnúsar frá Fjalli Árni Eylands stjórnarráðsfull- trúi og frú voru hér á ferð fyrir nokkrum dögum. Var erindi Árna að afhenda stjórn héraós- skjalasafnsins bréf og handrit Magnúsar Jónssonar frá Fjalli, sem andaðist í Blaine í Wash- ington, 1942. Þegar Árni Eylands var á ferð vestra fyrir skömmu, kynntist hann séra Albert Kristjánssyni, presti í Blaine, og hafði hann varðveitt bréf og handrit Magn- úsar. Séra Albert hafði ákveðið að gefa théraðsskjalasafni Skaga fjarðar handritin, og fól Árna Eylands að afhenda stjórn safns ins umrædd bréf og handrit. Bréfin eru allmikið safn og merkilegt, meðal annars eru þar nokkur bréf frá Stefáni G. Stepli ánssyni, sem ekki eru birt í bréfasafni skáldsins. Séra Helgi Konráðsson, for- maður stjórnar héraðsskjalasafns ins, þakkaði Árna Eylands fyrir greiðslu hans og milligöngu í málinu, og kvað safninu það mik inn feng að fá þessi handrit hins merka Skagfirðings og ágæta fræðimanns, sem Magnús Jóns- son var. Magnús Jónsson frá Fjalli futtist vestur um haf 1887, þá fulltíða maður, og var þá einn af forustumönnum Skagfirðinga, meðal annars í stjórn Háskóla. Hann gaf út vestra bókina Ver- tíðarlok, sem er í tveimur bind- um, og kom fyrra bindið út 1920, en það síðara 1933. —G. ó. —Tíminn 5. október FRÁ ÍSLANDI í september hefti “Samvinn- unnar” eru myndir sýndar á kápu ritsins af tveimur stúlkum, klæddum yfirhöfnum úr íslenzk um lambskinnum, sem líta út eins og beztu tegundir, Beaver- lamb—o.s.frv. Hefir verksmiðj- an Iðunn verkað skinnin, svo að úr þeim má gera þessar ágætu yfirhafnir ásamt fleiru. Heldur Samvinnan fram, að margt bendi til þess að almenningur í landinu hafi 'hraðvaxandi trú á íslenzka framleiðslu og styðji hana bet- Uf en áður. Yfirhafnir þessar kváðu mikið ódýrari, en sams- konar vara erlendis. • f blaðinu “Vísi”, 10. október segir frá öðrum nýjum iðnaðar- rekstri, sem farið var af stað með á s.l. sumri, er blómgvast hafi vel. Er það þakpappverk- smiðja. Eftirspurn pappa hvort sem notaður er úti eða inni, er mjög mikill og öll framleiðsla verksmiðjunnar selst jafnóðum og hún er búinn til. Það þykir og athyglisvert við þetta, fyrirtæki, að vélar þess eru allar búnar til á íslandi, hjá Keili, vélsmiðju Sigurðar Svein björnssonar og vélsmiðju ísa- fjarðar. Albert E. Kristjánsson: BROT ÚR BLAINE ANNÁL SUMARIÐ 1955 22. Mai. — Þennan dag kom frá Seattle, lest af bílum, hlöðn- um íslenzku fólki. Var ferðinni heitið að Stafholti, því þar skyldi veizla standa. Tóku íslenzku fé- lögin í Seattle upp þann fagra sið fyrir nokkrum árum, að fjöl menna til Blaine um þetta leyti árs, í þeim lofsverða tilgangi, að gefa vistfólki í Stafholti góðann og glaðan dag. Kemur það með (veizlufagnað allan með sér i bíl- i um sínum og ihina ágætustu jskemtiskrá. Treður þá hver sín- |um ellibelg undir rúmið og fer fram í borðsalinn og sezt við borðin blómum skreytt og vist- um hlaðin. Getur þar að lita vel mörvaðan blóðmör og rúllupylsu, hangna magala, og hænsnalæri, kæfu og hveitibrauð, kaffi og kleinur, vínartertur og vænar lummur, o.fl. o-fl. Á eftir er svo skemt með söng og hljóð- færaslætti, ræðum og kvæðum— alveg eins og í gamla daga, þeg- ar veröldin var ung. Vel sé þeim “Vestra” og “Einingu” fyrir þá hugkvæmu mannúð, sem kemur fram í þessari árlegu heimsókn til aldraða fólksins í Stafholti. 17. júní. — Þjóðræknisdeildin, Aldan, sem er jafngömul hinu íslenzka lýðveldi, heldur upp á afmæli beggja ár hvert. Þennan dag, og gl'eymir því aldrei að það er einnig fæðingardagur frelsishetjunnar, Jóns Sigurðs- sonar. Enda á 'hann að sjálfsögðu öndvegissessinn á öllum slíkunt mótum. Að þessu sinni bauð Aldan íslendingum í Blaine og grendinni til ókeypis skemtunar og veitinga í samkomusal lút- ersku kirkjunnar í Blaine. Var það allra rómur þeirra er boðið sóttu, að hið bezta hefði skemt verið og að Öldu-konurnar hefðu enn sem fyr haldið uppi heiðri íslenzkra húsmæðra með rausn EGGERT J. ÁRNASON F. 6. júlí 1885 — d. 24. apríl 1955 Síðan við Eggert samleið áttum er nú hálf öld að ósi runnin. Sól var á tindi sumarmála, geislatöfrum snerti gróður jarðar. Man eg á þeim árum þú ortir ljóð og í ræðu og riti rökum beittir. Bækur þú lærðir og brauzt til mergjar yndi mest þú fannst í orðsins list. Vissir þú vísindi er velja og hafna: trú þín var frjáls I og fölskvalaus; Virti vitur rök vantrúarmanna er fann hún þá í leit eftir lífssannindum. Gekkstu snemma í lið með góðtemplurum og við gamla Bakkus og myndarskap við veizluborðin. j 3. júlí komu til Blaine Kjartan Ó. Bjarnason, ljósmyndari og Finnbogi Guðmundsson, próf., Unnu þeir af kappi þann dag og allan næsta dag að því að taka hreyfimyndir af íslendingum og háttum þeirra í Blaine og Bel- lingham. Hefðu landar hér gjarn an kosið að hafa þá sem nætur- gesti og sýna þeim aðra gest- risni, en þeir kusu heldur að gista í Motel, svo þeim yrði ekki “haldið uppi á snakki” og þannig tafðir frá stöfum. Varð eg þess var að kjartan leit oft til himins að morgni þess 4. “Eg er hrædd- ur við skýin þarna”, sagði hann En skýin sneiddu hjá sólinni og notaðist þeim félögum dagur inn vel til myndatökunnar, enda létu þeir hendur standa fram úr ermum, rétt eins og þeir væru að hirða þurra töðu heima á íslandi. Þó náðum við hjónin þeim til kaffidrykkju “drykklanga stund” um kvöldið. Þótti okkur þeir góðir og skemtilegir gestir og hefðum fegin viljað njóta ná- vistar þeirra lengur. Beztu þökk fyrir komuna og komið aftur og dveljið lengur. 31. júlí — íslendingadagurinn í Peace Arch Park í Blaine. Síð asti sunnudagurinn í júlí ár hvert, er sá dagur sem flestir íslendingar eru saman komnir á einum stað hér á Ströndinni. Koma þeir einkum frá Vancouver Point Roberts, Blaine og Belling ham. Talsverður hópur kemur frá Seattle og svo víðs vegar að frá fjarliggjandi stöðum. Aðal- ræðu dagsins flutti Mrs. Hólm- fríður Danielson og mælti hún á ensku að ósk nefndarinnar. Ætluninn var að ná eyrum yngra fólksins í því augnamiði að vekja áhuga þess á því að kynna sér hinn íslenzka menningararf, tileinka sér hann og vinna svo að þvi að vernda hann og ávaxta. Kom mönnum saman um að ræðu konan hefði leyst hlutverk sitt hið bezta af hendi og var henni klappað óspart lof í lófa. Annars munu flestir sem þar voru staddir hafa lokið upp einum munni um það, að nefndinni hefði í engu misheppnast að velja það eitt fólk til að skemta þennan dag, sem gerði daginn góðan, glaðan og eftirminnilegan. Þess má geta hér, að nefndinn hafði hugsað sér að nota komu frú Danielson, sem bezt í þarfir þjóðræknis- starfsins. Hafði hún í þessu glímu háðir; varðist sem víkingur hans vélabrögðum örfum anda þins og orðfimi. Stóðstu löngu síðar í styrjöldum tveim, sjálfboði í fylking þíns fósturlands og með hug og ihönd í hjálparliði sóttir særða í val og sjúka gladdir. Enn hefir þér runnið annar dagur og vordrauma ráðning þín vitund fengið þar sem orðsins list er utan bóka og sögu ríkari sjón þín varð. Vel sé valmenni vöskum sjálfboða er með lífs síns starfi líknaði og gladdi frjáls þinn andi fór til fjarra heima og vordrauma ráðning þin vitund fann. S. E. Björnson skyni lagt drög fyrir að hún mætti hópum af yngra fólki til viðtals um þjóðræknismál, í Se- attle, Bellingham og Vancouver. Af þessu varð svo í tveimur síð astnefndum stöðum. Er mér ekki kunnugt um með hverjum hætti þetta fór fram í Vancouver. f Bellingham er kvenfélag sem stofnað var fyrir tveimur árum af yngri konum af íslenzkum ættum, og nefnist Freyja. Þess- ar konur buðu frú Danielson og okkur hjónunum til miðdags- verðar á Hotel Leopold í Bel- hngham. Var setið undir borðum alt að því í tvo klukkutíma, því þegar menn (eða öllu heldur konur, því eg var eini karlmað- urinn) höfðu notið hinna ljúf- fengu rétta er fram voru bornir, var tekið ti) óspiltra málanna um þjóðræknismálin. Flutti frú Danielson þar snjalt erindi um þau mál. Síðan tóku allar kon- urnar þátt í samtali og spurning- um og svörum. Var þeim einkum hugleikið að fá fréttir af hátíða haldinu í Spanish Fork á síðast- liðnu sumri, sem haldið var í minningu um landnám fslend- inga í Utah fyrir 100 árum. Varla getur hjá því farið að sú ræktar semi við minningar feðranna sem þetta hátíðahald er augljós vott- ur sem hafi vakið þá kvöt hjá þeim sem þarna voru saman komnir til þess að vera ekki eft irbátar landanna í Utah í þessum efnum. Verður manni þá strax ljóst að verkefni liggja fyrir hendi. Hvenær hófst landnám ís lendinga í Washington ríki? — Hverjir hafa þar komið við sögu o.s frv.? Hér er verk sem þarf að hefjast áður en það er orðið of seint. 21. ágúst — Þennan dag var hópur eldri íslendinga í Blainc og grendinni saman komnir i garðinum Fyrir framan hús Gísla Guðjónssonar og konu hans. Voru það meðlimir bókafélags- ins “Jón Trausti”. Hefir það fé- lag um fjölda mörg undanfarin ár komið saman um þetta leyti sumars á samkomu undir beru lofti sem það kallar “skógar- gildi”. Hafa þau farið fram í ýmsurn stöðum, svo sem í skemtigörðum í Bellingham og Blaine, eða í fögrum skógarlundum fram við sjó. Nú er mörgum félaganna, mönnum og konum, farið að þyngjast sporið. Sumt þeirra eru nú vistmenn í Stafholti. “En andinn lifir æ hinn sami”, og skógargildunum er haldið uppi, þó skemmra sé nú farið en áður. Skemtunum er hagað á sama hátt og alt af hefir tíðkast hjá Jóni Trausta. Það éru nokkurskonar frjáls samskot úr andlegum sjóð um þeirra sem mættir eru. Getur úr þessu orðið furðu fjölbreitt skemtiskrá, svo sem ræður, söng ur, þulur, gátur, upplestur, skrítl ur, þulin ljóð eftir minni, kveðn ar rímur o. fl. Þennan áminsta aag var veður hið ákjósanlegasta og leið fólkinu vel þar sem það sat undir háu og skuggasælu álmtrjánum framan við hús Guðjónsons hjónanna. Eftir skemtiskrána var svo farið inn í húsið og sezt að hinum rausnar- legustu veitingum, sem konur félagsmanna lögðu til. Þessir gömlu andar hafa tileinkað sér hina ágætu lífsreglu Hávamál- anna; “Glaður og reifur skili guma hver, unz sinn bana bíður” 1. sept. — Björgvin tónskáld og kona hans koma til Van- couver 2. sept. — Þjóðræknisdeildin [“Ströndin”, stendur fyrir sam- jkomu í Vancouver í tilefni af komu Björgvins. Var þar vænn Framh. á 2 síðu

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.