Heimskringla - 10.10.1956, Qupperneq 2
2. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG 10. OKT. 1956
WINNIPEG 10. OKT. 1956
FRÉTTAPISLAR FRÁ
KYRRAHAFSSTRÖNDINNI
Frh. frá 1. bls.
ingum þeirra.
Fjallkonan var frú Emma
Scheving, sem flutti ræðu, ásamt
frumsömdu kvæði eftir Jónas J.
Middal. Hinar voru ungfrú
Ethel Vatnsdal, frú Margret
Gustafson, Mabel Thordarson
og Valdis Bracken.
Aðal ræðumaðurinn v ar Hall-
dór Kárason, frá Bellingham.
Þá tóku til máls þeir: K. F. Fred
erick og séra Russel Weberg. Þa
söng Tani Björnson1 nokkur lög.
Við ihljóðfærið var frú Erika
Eastvold. Þá lék á fiðlu, frú
Kristin Smedwig, hana aðstoð-
aði frú Erna Dolan.
Loks var almennur söngur,
og flutt þjóðrækniskvæði. Að
endingu voru framreiddar veit-
íngar. Samkoma þessi var vel
sótt, og varð fólki til mikillar
ánægju. —J-M.
Hið frumsamda kvæði, eftir
Jónas J. Middal, sem Fjallkonan
flutti, 17. júní:
Eg er konan, fjalla fríð,
með fossinn, dalinn, græna hlíð.
Og trygðum bundinn traustum
lýð.
Tignarleg um ár og síð.
Eg á fornann fræða sjóð
og frelsisríka menta þjóð.
Og skáldin sem að semja .1 jóð,
um sveina, menn og göfug fljóð.
Eg hef forna frelsi náð,
fjötrum engum lengur háð.
Dagur nýr um loft og láð,
leiðin verður geislum stráð.
Flétti þjóðir friðarband.
Framtíð ekki kvíðum grand.
Meðan báran berst við sand
blessi Drottinn fsaland.
Frú Hanna Bjarnadóttir, og
Þórarinn Jónsson.—Þessi h'jón
voru stödd hér í Seattle, þann 9.
júní s.l. og var elft til samkomu
fyrir þau, undir nafni Vestra.
Bæði eru þessi hjón ung og fríð.
Maðurinn stundar múraraiðn, en
konan hefur stundað söngnám
um nokkur ár, og síðustu tvö árin
hefur hún dvalið í Los Angeles,
California. Þarf þá ekki að efa
um hennar hæfileika og list.
Hún söng fyrir Seattle íslend
inga sem allir dáðu hennar fram
komu, því hún hefir mikil og
fögur ihljóð og beitir þeim hríf-
andi vel og þvingunarlaust. Frú
Victoria Johnston aðstoðaði með
sinni viðurkenndu slaghörpu-
kunnáttu.
Vestra félagskonur fram-
reiddu veitingar og lengdist þá
um allann helming þessi hríf-
andi gleðistund.
SKÓGARGILDl VIÐ MÖRTU
VATN —(Martha Lake)
Þangað eru réttar 16 mílur,
frá miðbiki Ballardborgar, og er
þessi staður í Snowhomish Coun
ty. Vegur er greiðfær aila leið
°g liggur yfir lágar hæðir og
lautir. Meðfram veginum er
bygð á báðar hliðar, og við kross
götur eru vegamerki, .^r því auð
iatað um landið, sem og sýndi
sig bezt þann 22. júlí s.l.. Þá var
haldið hið árlega íslendinga
gildi við vatnið, og sótti þetta
mót um 300 manns.
Varð þetta fyrir atorku Vestra
nefndarmanna og áhrií sumar-
blíðunnar.
Til skemtunar var söngur
Tana Björnssonar og frú
Margrétar Kristjánssonar og
hljóðfærasláttar frúnna Eriku
Eastvold og Sigríðar Björnsson.
Þá var harmonikuflokkur Sig-
urðar Thorlakssonar.
Aðal ræðumaður var Herbert
Axford prófessor, en til máls
tóku séra Eiríkur Brynjólfsson
og ræðismaður K. F. Frederick,
sem líka var forseti dagsins i
fjarveru séra Guðmundar, for-
seta Vestra.
Loks voru íþróttir og verð-
laun veitt. Það má um þessa sam-
komu segja, að þar komu allir
fram innilega glaðir, og nutu
hins heilnæma loftslags við vatn
ið, sem blandaðist saman við þá
andlegu fæðu, er á boðstólum
var.
Ein nýbreyttni var þama ao
kaffi lagði hver og einn sér til
sjálfur, og hver át úr sínum
poka, og voru allir anægðir með
þetta.
Síðan þetta skeði, hefur verið
almenn ánægja á meðal fólksins,
og fer vellíðan manna þar eftir.
DÁN ARFREGNIR
Þann 8. júlí s.l. andaðist ekkj-
an Geirþrúður Helga ólafsdótt-
ir, sem bezt var þekt undir nafn-
inu Mrs. Dúa Hanson, Útför
hennar fór fram 13. júlí. Hin
látna hafði dvalið hér í Seattle
all lengi, hún var ættuð af Vest-
fjörðum á íslandi. Hana syrgja
hér fjórir synir og tvær systur,
og aðrir nánir ættingjar á ís-
landi.
Þann 28. ágúst s.l. andaðist í
Seattle, Gunnar Bergsveinsson
Þorlákssonar 75 ára. Hann var
ættaður af A\isturlandi, en hafði
dvalið í Vesturheimi um 50 ár
og stundað múraraiðn. Jarðar-
iör hans fór fram 1. september.
Séra Kolbeinn Sæmundsson
flutti þar kveðjumál. Eftirlif-
andi syrgjendur eru þrír synir
cin dóttir, tveir bræður og ein
systir.
Gunnar heitinn var mjög fé-
lagslyndur. Hann var meðlimur
Oddfellows reglunnar, Ballard
Eagles félagsins, og íslenzka
safnaðarins.
GIFTINGAR
Þann 17. ágúst s.l. voru gefin
saman í Trinity Methodist
Church, þau Mr. Lee David
Nafies og ungfrú Kristín Dagný
Hilmansdóttir fráHafnarfirði á
íslandi. Framtíðarheimili þessa
ungu hjóna verður í Dayton,
Ohio, þar sem brúðguminn er
uppalinn.
Ofanritaðar fréttir eru teknar
úr Vestra blaðinu “Geysir”.
Til skýringar má geta þess að
þar sem ritstjóri Geysis kallar
íslendingadaginn “Skógargildi”
eða fslendinga gildi, að Félags-
skapurinn Vestri, hefur samþykt
að halda einn íslenzkan þjóð-
minningardag, það er að segja
17. júní, á hverju ári, og vanda
til þeirrar hátíðar af fremsta
rr.egni. En aftur að hinn gamli
íslendingadagur sem haldinn
hefur verið» vanalega fyrsta
sunnudaginn í ágúst, en var
haldinn að þessu sinni 22. júlí
að sá dagur verði bara Skógar-
gildi íslendinga í Seattle, á
hverju sumri, meðan þess er
8
$
WE ALL BENEFIT
from a strong, healthy community. We know that the
36 Agencies supported by the Winnipeg Com-
munity Chest are essential to building up such a
community . . • All contributions do add up to big
totals are essential to meet only the basic costs of
these Agencies.
GIVE YOUR FAIR SHARE
when the voluntary canvasser calls on you.
:«• •»> x«r<
Serr/ee
•RELIABL
• COURTEOUS
EXPERIENCED
T1 4 See your FEDERAL AGENT for yeor round crop service.
FEDERAL GRAIN
L I M I T E D
SERVING PRODUCERS ACROSS THE CANADIAN WEST
Jim’s ávísun er ein af
tveim miljónum
Það er borgunardagur-Jim hleypur i hasti yfir
bankann, fær fé út á ávísunina, eða leggur
hana í banka, lætur skrifa það í bók sína. Honum
geðjast að því, að höndla peninga svona
örugt og fyrirhafnarlaust.
Ávfsun Jims er aðeins ein af tveim miljón-
um höndluðum yfir daginn í Canada, gefnar
út fyrir vörur eða greiddar fyrir vinnu. Þær
eru nærri 90% af öllum peninga viðskift-
um og hin skjótu og æfðu handtök þeirra
er með þau fara, eru nauðsýnleg til þess að
engin töf verði á afgreiðslu.
Skiftavinir, sem oft skrifa út ávísanir, hafa
hlaupareikning, hinir sem peninga leggja inn
til geymslu, hafa spárireikning.
Banki í nágrenninu, sér um
þessa mikilvægu þjónustu.
THE CHARTERED BANKS SERVING YOUR COMMUNITY
Nýtt Sívirkt
Dry Yeast heldur ferskleika
ÁN KÆLINGAR
Konur sem reynt hafa hið nýja, skjótvirka, þurra ger
Fleischmans, segja að það sé bezta gerið, sem þær hafi reynt. Það
er ólíkt öðru geri að því leyti að það heldur sér vel þó vikur standi
upp á búr-hillu. Samt vinnur það sem ferskst duft, verkar undir
eins, lyptist skjótt, framleiðir bezta brauð, af allri gerð til fyrir og
eftir matar.
Uppleysist: (l)Leysið það vel upp í litlu af volgu vatni og bætið
í það einni teskeið af sykur með hverju umslagi af geri. (2) Stráið
þurru geri á. Lát standa 10 mínútur. (3)Hrærið vel í. (Vatnið not-
að með gerinu, er partur öllu vatni er forskriftin gerir ráð fyrir).
Fáðu þér mánaðarforða hjá kaupmanninum í dag. 4546—Rcv.
1 pakki jafngildir 1 köku af Fresh Yeast
kostur.
FRÁ blaine
Lestrarfélagið “Jón Trausti”
í Blaine hélt sína árlegu útisam-
komu sunnudaginn 12. ágúst,
sem hepnaðist ljómandi vel í
ólla staði, skemtisamkoman var
haldin á túninu hjá þeim góðu
fhjónum Mr. og Mrs. Gisli Guð-
jónsson, þar voru sleginn upp 3
Plenty of HOT WATER
at all tintes u lth a
WATER HEATER
from CiTV HYDR0
ÁícCL
aiy
EVERDUR COPPER
WATER HEATERS
with a
25 YEAR GUARANTEE
against leakage
Two immersion type heaters
the.mostatically controlled
3 inch fibreglass insulation
White and gold baked enamel
casing
30 to 40 Imperial gallons.
★
★
Monthly Payments
as low as
$4.00
Installation Within
24 Hours
DISTRIBUTED IN WINNIPEG BY GENERAL STEELWARES LTD.
BEL-AIR
n
GLASS LINED
WATER HEATERS
with a
5 YEAR GUARANTEE
* Two Immersion type heaters
themostatically controlled
* No danger of rust in water
* 3 inch fibreglass insulation
* 22l/2 and 30 gallon sizes
* Installation within 24 hours
Single Heater Models Double Heater Models
$99.50 »p $112.50 «p
MANUFACTURED BY GREENSTEEL INDUSTRIES LTD., WPG.
Citij UtjJic
PORTAGE, east of Kennedy
PHONE 96-8201