Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 08.11.1890, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 08.11.1890, Blaðsíða 2
22 ÞJÖÐVILJINN. Nr. 6—7 eptirtektaverður, eigi síður en hinir fyr- nefndu fyrirlestrar séra Jóns. Séra Jiín viðurkennir í fyrirlestri pess- um. að íslendingar eigi iniklar og göfugar andlegar eignir, en lieldur pví jafnframt frain, að hin andlegu lífsöti pjóðarinnar séu eigi notuð sem skyldi, heldur séu hinar andlegu vatnslindir pjóðarinnar látnar frjósa og orðnar að ísi, og eigi petta sérstaklega lieima um evangelisk-lutherku kirkjuna hér á landi; en kirkjan vill séra Jón, að verði hinn ráðandi lifsstraumur hjá pjiíðinni, er láti öll málefni pjóðarinnar til sín taka. Um „Fjallkonuna“, ,,Heimskringlu“ og Pál Briein segir séra Jón Bjarnason: „pau hra'ðast pað pessi andlegu systkiu, pegar pau heyra bent á lífsvatn kristindámsins, .... en einkum og sér i lagi hræðast pau pað, ef menn fara að sýna sig liklega til pess að veita úr pví stærri eða smærri straumum út yfir eða inn í pjóðl.fið“. Seg- ir séra Jón, að pessi andlegu systkin pjá- ist af „Hydrophobia" eða vatnshræðslu. „þuð er óskiljanlegur en hræðilegur sjúk- (lómur, sem liundar stundum íá, helzt í sjóðheitu veðri um mitt sumar. f>eir verð i óðir og hræðast vatn meira en lieitan eld- inn ; og í pessu óða ástandi bíta peir hvern sem peir ná í, og slikt bit hefir lengst af verið talinn sjálfsagður bani“. Kveðst séra Jón ekkert geta sagt viðvikjandi peim sjúk- dómi „nema að minna k petta postullega orð (Filipp. 3, 2): ’Varið yður á hund- I unum’“. Um flokkaskipting íslendinga í Vestur- heimi viðvíkjandi íslenzku pjóðerni segir séra Jón Bjarnason: „p>að eru til meðal vors fólks hér i landinu tvær alveg andstæðar skoðanir pessu máli viðvíkjandi. J>að er til sú skoð- un, sem heldur pví fram, að íslendingar eigi hér að geyma svo vandlega pjóðerni sitt, að peir eigi svo að segja að girða ut- an um sinn pjóðflokk hér með kínverskum múrvegg. j>eir eigi að svo miklu leyti sem unnt sé að útiloka sig frá áhrifum annar- legs pjóðernis. j>eir eigi að halda öllum síuum pjóðháttum svo óbreyttum, sem kring- umstæður peirra frekast leyfa. j>eir eigi helzt að taka sér bólfestu í nýlendum iit af fyrir sig, sem sé lokaðar fyrir öllu ann- ara pjóða fólki. j>eir eigi jafnvel eigi að láta börnin sín læra annað mál en íslenzk- una, og pví samhljóða skuli kennslan í al- pýðuskólum slíkra íslenzkra byggðarlaga fara frain á íslenzku. Hugsunin er, að varoveita islenzka pjóðernið sem allra bezt og láta pað sitja fyrir öllu. Hin skoðun- in, sem pessari er fjarstæðust, gengur út á pað, að flýta pvi sem allra mest, að Is- lendingar hér sleppi sínu pjóðerni og vaxi andlega og likamlega hið allra bráðasta saman við hinn ensku-talanda lýð landsins, aðalpjóðbálkinn í landinu. j>eir. sem pess- ari skoðun fylgja eru svo bráðir á sér, að peir vilja helzt, að hér sé luett við allt sérstaklega íslenzkt félagslíf. j>eir ímvnda sér, að allur slíkur félagsskapur sé ekki til annars en tefja fyrir pví, að hinir liing- að fluttn landar sinir verði pað, sem peir eiga að verða og liljóti fyr eða siðar að verða, reglulega amerikanskir menn“. Af pví að blaðið „Lýður“ mun vera í fárra höndum hér vestra, leyfir „j>jóðvilj* inn“ sér að flytja eptir honum pettu kvæði um hinn heimsfræga B I S M A 11 C K . Nötrar Yinda nornin röm, Niflheims spáir falli, leggst ei gott í grimma höm —• gengið er Bismarck kalli. Allir dagar eiga kvöld undir tímans inerki, kveður nú sín víga-völd Voða-jarlinn sterki. Skoðun sinni um hið íslenzka pjóðernis- spursmál lýsir séra Jón Bjarnason á pessa leið : „j>að vakir pað fyrir mér, að hinn ís- lenzki pjóðtíokkur, seni hingað er kominii til Ameiíku og framvegis niun koma liing- að yfir um, liafi með pví að koma hingað fengið af forsjóninni alveg sérstaka köllun, köllun til ]>ess að vinna að tvöföldum and- leguiu vatnsveitingum, köllun til pess að i leiða einhverja ofur-litla frjóvgandi strauma Iir sínu eigin pjóðlifi heiinan af Islandi tit yfir liinar grænu og grasi vöxnu grnndir hér í landinu, og köllun til pess að veita einhverjum lífsstraumum héðan og heim út yfir pjóólifið á íslandi“. ÚR BRÉFI. Dalasýslu, 18. okt. ’90. .... „Yel mælist fyrir áskorun Isfirð- inga um blöðin hjá flestum, en pó eru stöku menn á móti, einkum hvað „ j>jóðólf“ snertir af gamalli tryggð, en óhætt er pó að segja, að almenningur er yfir höfuð fylli- lega með, eptir pví sem mér heyrist á ýms- um betri bændum og öðrum málsmetandi mönnum, enda skil eg ekki, að menn liljóti eigi að taka undir með „ j>jóðviljanum“, að pað sé óhvggilegt fyrir pjóðina að styrkja blöð pessi, eins og pau hafa illa brugðizt. Fréttir eru héðan fáar nema prestakosn- ingarnar í H vamms- og Miðdalapinga- prestaköllum. í Hvainmi var Kjartan Helgason kosinn af öllum, og í Miðdala- pingum er sagt, að séra Jóhannes Lynge tengdasonur og aðstoðarprestur séra Jakobs heitins hafi verið kosinn“. Ógnarbákn i Orra gný ægt hefir lengi foldu, jörðin skolfið, járn og blý jafnað allt við moldu. Járni varði járnuð völd, járn i stjómar glammi, járni og stáli járnaði öld járnkanslarinn rannni. Litur öldin unga til imunleiks með glotti, og á Hrungnis lnoðaspil horfir nú með spotti. j>rumir skalli pegi frýnn púsund yfir liaugum, gneypur mjög, en gnapa brýnnj geispar í móti drauguin. Yfir lítnr æfileik. ofinn heiptarblóði. heyrir nærri heljarbleik hneggja í jötunmóði. D y b b ö 1 syngur Dana morð, dynur í Badieims fjöllum, bautasteinar bana-orð belja’ á S e d a n s völlum. Fyr en stígur blakk’ á bak búast vill í tómi, trúir enn á blóð og brak, bundinn Heljar dómi. Blindu valda börn og fól, brott með Hlldar æði! Flýt pér bleika böðvar-sól bak við pyúðgan græði! M. J. w>;o:^:o;taor~r

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.