Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 20.10.1892, Page 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 20.10.1892, Page 1
Yerð árgaixgsins (minnst 80 arka) 3 kr.; í Amerikn 1 doll. Borgist fyrir maí- mánaðarlok. r Annae árgangub. BNGI. Uppsögn skrifleg, ógild nema komin sé til útgef- anda fyrir 1. dag júní- mánaðar. M 1. Háttvirtu landar! Eptir ósk og áskorun útgefanda „Þjóð- viljans unga“ heíi eg frá þessum degi að ðllu leyti tekizt á hendur ritstjórn og á- byrgð blaðsins. Hvað stefnu blaðsins snertir, verður hún, hvort sem ritstjórn mín verður lóng eða stutt, og hvort sem blaðinu verður haldið úti hér á ísafirði eða annars stað- ar, óbreytt sú sama, er verið hefir að undanfórnu. Treysti eg því, að landar mínir styðji blað þetta, ekki síðurhér eptir, en hing- að til. Af minni hálfu mun eg leitast við að gera þetta litla blað svo vel úr garði, sem föng eru á. ísafirði, 14. okt. 1892. Skúli Thoroddsen. Kaupfélagsfundur. Fulltrúar „kaupfélags Isfirðingaa hoðast hér með til fundar, sem haldinn verður á ísafirði mánudaginn 14. nóv. næstkomandi kh 12 (hádegi). Á fundinum verða rædd ýms félags- mál. 1 umhoði kaupfélagsstjórnarinnar: ísafirði, 17. okt. 1892. Skúli Thoroddsen. verzlan Leonli. Tang’s fæst: Gólfvaxdukur af fieiri breiddum. Magasinofnar. Eldavélar, stórar og smáar. Alþingiskosningarn < r. Á kjörfundi Eyfirðinga að Akureyri 24. sept. voru kosnir alþingismenn: Klemenz sýslumaður Jóusson og fyrv. þm. Norður-Þingeyinga, Jón ÍSAFIRÐI, 20. OKT. Jónsson frá íteykjum. Um at- kvæðatólu hefir ekki frétzt. Yantar þá enn að eins fregnir um kosningarnar i Norður-Múla-, Austur- Skaptafells- og Rangárvalla-sýslum. Horfurnar. Deilu þeirri, sem hófst á alþinginu 1889, milli sjálfstjórnar- og miðlunar- stefnunnar i stjórnarskrármálinu, var i raun réttri að fullu og öllu til lykta ráð- ið á alþingi 1891. Yið umræðurnar og atkvæðagreiðsl- urnar i því máli, varð það ljóst, að meiri hluti þjóðkjörinna þingmanna vildi eigi aðhyllast miðlunarstefnuna í þvi formi, er hún birtistíárið 1889, og þjóðin hefir við kosningarnar i liaust, eptir því sem oss er kunnUgt um skoðanir hinna ný kjörnu þingmanna, fyllilega staðfest þenna dóm. Engum hinna ný kjörnu þingmanna, ekki einu sinni gömlu þingmönnunum, 8r áður fylgdu miðlunarstefnunni í stjórn- arskrármálinu, mun þvi detta í hug, að fara henni fram. Og þetta er bæði hyggilega og ætt- ræknislega gjört af þeim. Þjóð vor hefir sannarlega við nóga erfiðleika og mótspyrnu að stríða, þó að ekki bætist þar ofan á, að beztu menn landsins berist á banaspjótum í hennar mestu velferðarmálum. Satt er það, að hörð og snörp var deilan, og á báðar hliðar má ske gengið feti framar, en skyldi, enda veldur sjald- an einn, þegar tveir deila. En allt þetta heyrir nú liðna tíman- um til, og á að vera skrifað í gleymsk- unnar bók; með öðrum orðum, það á ekki, og má ekki, í minnsta máta skerða fram- ar góða samvinnu milli málspartanna, hvorki í stjórnarskrármálinu né öðrum málum. Þetta vitum vér og, að vera mimi lifandi ósk málsmetandi manna lir báð- 1893. um kinum fyrri fiokkum, og þess vegna ætlum vér, að óhætt sé að segja, að þetta ný byrjaða sex ára kjörtímabil muni byrja með allgóðum samvinnu-skil- yrðum á þingi. Frá litlöndurn var tiðindafátt, er síðast fréttist; mest var talað um kol- eruna, sem frá Rússlandi hefir flutzt til Hamborgar og nokkurra annara bæja á Norður-Þýzkalandi; í Hamborg var hún mjög mannskæð. Harrison, forseti Bandamanna, birti í öndverðum septembermánuði bréf til flokksmanna sirma, og kveðst fús á, að taka á móti kosningu við forseta val það, sem fram á að fara í nóv. þ. á.; lýkur liann miklu lofsorði á tollalógin nýju, Mao Kinleys lögin, og telur þau hafa aukið verzlun Bandamanna um 24°/0; tollalög þessi leggja mjög háan toll á innfluttan varning, og telja „demokratar“ þau eingöngu auðmönnúm i hag; ætla „demokrataru af sinni hálfu að styrkja Cleveland til forsetatignar; hann var for- seti næstur á undan Harrison. I New-York, Tennessee og nokkrum öðrum fylkjum Bandaríkjanna, hafa verk- menn hætt vinnu þúsundum saman, og krefjast þeir betri launakjara; hafa þeir sums staðar valdið óeyrðum, kastað eld- kveykju efnum, stöðvað og rænt járn- brautalestir o. s. frv.; liefir stjórn Banda- marma víða orðið að láta herlið skakka leikinn. í Tennessee hófust óeyrðirnar af því, að sakamenn voru hafðir til vinnu i námunum; þessu kunnu aðrir verkmenn illa, að eiga að vinna saman við alls konar óþjóðalýð, og drápu því nokkra af sakamönnunum, en létu hina hlaupa hvort á land, sem þeir vildu, og komst þá allt í uppnám. —•-----■-----•----fl---•----- Z0T Prentun á þessu 1. nr. II. árg. „ÞJÓÐVILJANS UNGA“ hefir dregizt nokkuð sakir lasleika mins. Prentarinn.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.