Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.04.1893, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.04.1893, Blaðsíða 3
n, 14. Þjóðviljinn tjngx. 55 IV. UM SUNDURPÖETUN JARÐA í SMÁ ÁBÚÐIR. Sigurður Sigurðssou talaði um, hve sundurpórtun jarða í smá ábxiðir befði skaðlegar afleiðingar fyrir bxinaðinn, og tilfærði nokkur dæmi því til sönnunar. Hann bar fram þá uppá- stungu, að samið væri lagafrumvarp þessu viðvíkjandi, sem lagt yrði fyrir næsta þing. Hann kvaðst álita nauðsynlegt, að bannað væri með lógum, að hafa minni jarðaparta til ábúðar, en 10 hundruð, nema um sórstakar jarðir væri að ræða. Séra Þórður Ólafsson lét þá skoðim sina í ljósi, að smábýli væri eitt af þvi helzta, sem stæði búnaðinum fyrir þrif- um, og það mætti jafnvel segja, að það væri undir þeim komið, hvort hann stæði eða félli. Hann talaði um upptök og af- leiðingar smábýlanna, og hvernig þau yrðu helzt afnumin. Hann áleit, að lög um það efni rayndu gera litið gagn, nema hin rétta liugmynd um það væri áður búin að ryðja sér til rfirns hjá lands- mónnum, — en það væra beztu bænd- urnir í hverri sveit, sem helzt gætu kippt þessu i lag. Eptir að meiri hluti fundarmanna hafði látið í Ijósi, að hann væri málinn hlynntur, kaus fundurinn 3 menn, til að hreifa þvi við þingmenn þessa kjördæm- is, og óska að þeir leggi það fyrirnæsta þing. Kosningu hlutu: Sigurður Sigurðsson . . með 17 atkv. Matthias Ölafsson ... -— 15 — Séra Þórður Ólafsson . — 7 — V. UM BÚNAÐARNÁM. Sigurður Sigurðsson kom fram með þá tillögu, að fundurinn skoraoi á hreppsnefndirnar í vesturhluta sýslunnar, að þær reyndu að hlutast til um, að einn eða fleiri menn xir liverjum hreppi lærðu búfræði. Hann áleit heppilegra, að búnaðarfélðgin gætu haft búfræðinga úr sinum eigin sveitum, því að þeir myndu þá fremur staðnæm- ast sem bændur, og þannig verða til uppbyggingar. Mattlnas Olafsson lét í Ijósi þá skoð- un sína, að þessu væri ekki hægt að koma við á nokkurn hátt. Hann hélt, að náttúran myndi verða náminu ríkari, svo að hinir ungu menn hér, sem flestir vilja stunda —- og' stunda — sjó, myndu ekki vilja gerast stóðugir landmenn, þótt þeir lærðu búfræði, og því ekki verða að tilætluðum notum sem búfræðingar. Hann áleit lika, að það hefði fremur góð áhrif að ýmsu leyti, að fá menn úr óðrum landsfjórðungum til að vinna hér hjá bxxnaðarfélögunum. Á likri skoðun var Jónas Asmunds- son. Kristinn Guðlögsson, lét þá skoðun sína í ljósi, að biifræðingarnir — og all- ir yfir líöfuð — ættu helzt að geta bætt búnaðinn sem bændur. Hann áleit mest- ,ar líkur til og reynzlun'a benda á —- að þeir myndu fremur stunda búskap i sinum eigin sýslum, meðal ættingja sinna og kunningja, heldur en þar sem þeir væru mönnum og landsháttum lítið eða ekkert kunnugir; en þeir myndu helzt láta sig einu gilda, hvar þeir væru, á meðan þeir væru búlausir, en yrðu að leita sér atvinnu •— ungir og óreyndir, og þvi minnstur slægur i þeim. Hann áleit, að þar sem hugir manna væru mjög lausir við landbúnaðinn, myndi ekki van- þórf, að reyna að beina þeim að honum, og það myndi ekki á annan hátt líklegra, en með því, að hvetja menn til búfræð- isnáms. Yið atkvæðagreiðslu kom það frarn, að meiri liluti fundarmanna var tillög- unni meðmæltur. VI. UM YINNUTÍMA. Kristinn Guðlögsson lagði þá spumingu fyrir fundinn, hvort hann áliti nokkuð athuga- vert við þann vinnutíma, sem vanalegur er hér á Vesturlandí, og hvert væri á- lit hans i því efni. Um þetta urðu nokkrar umræður. Til máls tóku: Matthias Ólafsson, Sig. Sig- urðsson, Kristinn Guðlögsson, séra Þórð- úr Ólafsson, Jónas Asmundsson, séra Ríkarður Torfason o. fl. Flestir voru á því, að vinnutíminn væri mjög athugavert málefni, og í allt Öðru horti, en hann ætti að vera. Eink- um áieit fundurinn mjög nauðsynlegt, að vinnutími væri ákveðinn, að svo miklu leyti sem mögulegt væri, og lielzt ekki lengri en 10—12 tímar i sólarhring. Vegna timaleysis, var umræðum um þetta ekki lokið. Fundi slitið. Matthías Ólafsson, Kristinn Guðlögsson, íundarstjóri. skrifari. U M B E Ð I N F R Æ Ð S L A. —o— Af þvi að hr. Finnur Jónsson á Kjörs- eyri biður mig í 9. nr. „Þjóðv. unga“ þ. á. svo vel gjöra, að fræða menn um ým- islegt viðvikjandi vegalagningu, þá get eg eigi neitað gömlum kunningja um það, þó að eg ætlaði ekki að rita um það málefni framar. En eg verð fyrst að reyna að leiðrétta nokkrar villur hans, og það því heldur, sem hann veit eigi sjálfur, live liraparlega villt hann fer. Hvorugur okkar er bær að dæma um, hvað hrakið er, eða óhrakið, af orðum okk- ar, um veg og vegagjórð á Laxárdals- heiði; þeim dómi ræður afstaða, lands- lag og jarðvegur, ef ráðvislega ér skoð- áð, og þetta breytist ekkert af stór- mennskufullu orðaglamri manna, eh dóm- inn upp kveða skynberandi tilkvaddir skoðunarmenn, og má hvorugur okkar vera i þeírri dómnefnd, þvi það gæti spillt heppilegum úrslitum málsins, sem mjög er áríðandi, að það fái. Nú getur enginn vitað fyrir vist, hvað ölirakið verður af orðum okkar, þó að Finnur segi, að það viti allir o. s. frv. — Er þetta ekki heimskulega sjálfbyrgingslegt? Að eg hafi rangfært stórkostlega það, sem eg hefi tekið xxr bréfum, prentuðum bókum og blöðum, lýsi eg bein vitaverð ósannindi; hvað bréfin snertir, þá getur Finnxxr aldrei borið af sér, að hafa spxmn- ið rangfærslu mína á þeim úr sinum eig- in iðrum, því þau eru hvergi nema hjá mér, að einu undanskildu. En eg bið þá menn, sem leggja nokkum trúnað á þessi Finns orð, að fletta upp í Andvara ritgjórð, eða þó öllu heldur skýrslxx, um vegabætur, frá vegfræðingi Niels Hovde- nak, og bera saman, og taka vel eptir, hvort eg hefi nokkuð skekkt meiningu þess málsgreinar kafla, sem eg reyndi að setja aptur í skarð það, er Finnur beit xir setningu hans, í ritgjörð sinni i „ísafoldu. Hver, sem vill rengja það, að eg hafi liaft nákvæm kynni af Laxárdalsheiði um 50 ár, getur fengið hjá mér sundur- liðaða skýrslu um það; en eg get þá eigi komizt hjá þvi, að þau teljist fleirL Finnur vill láta minna sig á, hvar hann hafi sagt, að vegi ætti að leggja sem lægst, einungis til að forðast illviðri. Af því að euginn, mér vitanlega, hefir borið honum að hafa sagt það, þarf eg ekki að „fræða menn um þaðu; orðið „einungis“ er stórkostleg rangfærsla, því rnargir héldu, að skeð gæti, að annar til- gangur væri með i því, að geta samþykkt, að leggja veginu upp með Viðirlæk og vestur hjá Laxárvatni, sem mun vera sxi lægsta laut, er til er í gegnum Ijallgarð þann, sem liggur sunnan frá Baulu norð- ur fyrir Drangajökul, sem væri máske verri og smánarlegri, en að forðast ill- viðri, sem er heldur gott en illt. Lika biður hann mig að fræða menn um það, hverjir skynberandi menn forð- ist að leggja vegi, þar sem lægra ber á. Sýslumaðuriim i Strandasýslu, sem er mágur Finns, reið suður á Iíoltavörðu- heiði, áður en vegabótin þar var byrjuð, til þess, með kunnugum manni, að ákveða, hvar vegurinn skyldi liggja, og hefir þá verið forðazt að leggja hann, eins og áð- ur var, þar sem lægst ber á, og því færður upp þangað, sem hærra ber á; en þar sem hann áður lá, hæðst á heiðinni, þar skyldi hann enn vera, og er þetta i ómetanlegt hagræði fyrir vegfarendur. Mörg dæmi jiessu lík mætti nefna. — Af Holtavörðuheiðarveginxxm má mikið læra, sem að vegabótum lýtxxr, eins og á Laxárdalsheiði má margt sjá, sem forðast þarf við vegabætur. — Vegurinn yfir Kjörseyrartungu færist ekkert vestur á, þótt Finnur segi sliakkt til um, í hvaða

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.