Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 24.12.1895, Síða 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 24.12.1895, Síða 1
Verð árgangsins (minnst I 40 arka) 3kr.; í Ameriku I 1 doll. Borgist fyrir júní- mánaðarlok. ÞJÖÐVILJINH DN6I. -—--FlMMTX ÁBGANOUR. =1-----::-^^- --f—-gaog 1= BITSTJÓRI: SKÚLI THORODDSEN. =|s**U--i- Uppsögn skrifleg ógild nema komin sé til útgef- anda fyrir 30. dag júni- mánaðar. M lo, ÍSAFIBÐI, 24. DES. Fréttir útlendar. Frá útlöndum er að frétta gott og hagstætt veðráttufar í haust, en fátt stór- tiðinda. í Danmörku liefir enn ekkert orðið úr ráðherraskiptunum, sem spáð var í síðustu frétturn, en þó ætla það flestir, að ráðaneytið Reeds Thott muni ekki hjara veturinn allan. — Af þing- störfum fátt að segja, með því að mestur hluti þingtímans, sem liðinn var, liafði gengið til nefnda kosninga, og annars undirbúnings þingmálanna. — Chr. Kralbe hefir borið fram nýmæli um breyting grundvallarlaganna i þá átt, að óheimilt skuli að gefa út bráðabirgðafjárlög, og að 30 manna nefnd, er kosin sé af báð- um deildum þingsins, skuli skera úr, ef ágreiningur verður milli þjóðþingsins og landsþingsins um fjárlögin; en ekki fær þetta frumvarp hans mikinn byr á þingi, og stendur hann að kalla einn siíis liðs. Nýlega er Karl prinz, næst elzti son- ur Friðriks konungs-efnis, trúlofaður Maud prinsessu, dóttur prinzins af Wales, og eru þau Karl því systkinabörn. í Noregi eru nýlega orðin ráð- herraskipti, og heitir sá Hagerup, sein veitir hinu nýja ráðaneyti forstöðu, og er ráðaneyti þetta skipað hægri- og vinstri-mönnum jöfnum höndum; en fáir spá því langri æfi. — Hjá FröliUixm eru einnig orðin ráðherraskipti, sem opt vill verða; 28. okt. gekk rneiri liluti atkvæða á þingi ráðaneytinu á móti, og sagði þá Ribot, Og þeir félagar lians, stjórn sinni lokið; en sá heitir Bourgeois, er hinu nýja ráða- neyti stýrir, og eru hinir nýju ráðherr- ar allir úr vinsrri manna flokki, og hafa sett sér það mark, að fá ríki ög kirkju að skilið, tekjuskatt hækkaðan á rikis- inönnum, af numin lög þau gegn „anar- kistum“, er samþykkt vorn eptir morð Carnot’s forseta í fyrra, o. s. frv. Bretar voru að búa her á hend- ur Prempeh konungi i Aslianti i Afríku vestan verðri; áttu Bretar í höggi við þann þjóðflokk 1873—’74, og var þá Wolseleg liersliöfðingi foringi þess liðs- afla, er sendur var þangað suður; en nú þykir Bretum þjóðflokkur þessi ekki hafa verið sér svo auðsveipinn, sem skyldi, og þykir konungur þeirra hafa óvirt sendiherra sinn, svo að áformað er, að gefa þeim nú betri ráðningu, en síð- ast, og gera landið Bretum háð, líkt og Frakkar liafa farið með Madagaskar nú ný skeð, enda er Ashanti sagt gott land, og er það eitt ærinn sök til þess, að Bretar reyni að klófesta það. í Austurrílci hafa í haust orðið ráðherraskipti, og heitir sá Badeni, frjáls- lyndur maður ogmikils metinn, sem gjörzt hefir formaður hins nýja ráðaneytis. Spímvei-jum gengur mjög bág- lega, að sefa uppreistina á Ciiba, og hafa nú ný skeð sent 30—40 þús, hermanna til liðs við Martinez Campos hershöfðingja; en eyjarskeggjar fá drjúgum hjálp frá ýmsum auðmönnutn í Ameriku, og marg- ir ganga ótilkvaddir í lið með þeiin; get- ur þvi þóf þetta enn staðið lengi, og óvíst, hvernig því lyktar. Vöi'uvei’ð i útlöndum er sagt, svipað því, sem verið liefir, nema mat- vara hefir hækkað nokkuð í verði. -----OC'C'ggooo-- Ekki liefir stjórninni enn þóknazt, að svara neinu ávarpi þvi, er neðri deild alþingis samþykkti i sumar, né lieldur þingsályktunartillögu þeirra „ný-miðlar- anna“, og biður slikt „þólmanlegra hent- ugleikau, ef því á annað borð verður nokkur gaumur gefinn. Fyrirlestur um stjórnarskipunarmálið hafði dr. Valtyr Guðmundsson, þingmað- ur Vestmanneyinga, haldið 6. nóv. sið- astl. i félaginu „Juridisk Samfundu í Khöfn, og sýndi hann þar fram á, að grundvallarlög Dana væru ekM gildandi á Islandi, svo að sérstakleg málefni Is- lands væru rikisráðinu danska allsendis óviðkomandi; en þeirri skoðun andmælti deildarstjóri A. Dyhdal, sem þar var við- staddur, svo að auðsætt sýnist, að danska stjórnin ætli sér enn að sitja fast við ganda keipinn, að því er þetta atriði snertir; en þetta var einmitt það aðal- atriðið í yfirlýsingu þeirra „ný-miðlar- anna“, sem Magnús landshöfðingi Stephen- sen þóttist helzt geta mælt með, og „ný-miðlararniru voru gleiðastir yfir; en nú er trúlegt, þótt Magnús efni orð sin, að það komi að litlu liði, meðan Nelle- manns-ráðaneytið situr að völdum. Dr. Valtýr hafði og sýnt fram á, hve óviðunandi hið núverandi stjórnar-ástand vort væri, þar sem stjórnin í Khöfn væri landsmálum ókunnug, og lilyti því i flestum greinum að fara eptir tillögum landshöfðingja, sem opt væru landi og þj^ „miður hollaru Vér erum dr. V. G. mjög þakklátir fyrir þenna fyrirlestur hans, því að vér teljuin það miklu skipta, að inálum vor- um sé sem tíðast hreift erlendis, meðan vér eigum aðal-úrslit mála vorra þangað að sækja; og sérstaklega þarf aptur og aptur að sýna fram á, að íslendingar geta ekki þolað þetta ábyrgðarlausa lands- höfðingja einveldi, sem hér er nú í stjórn- ar-framkvæmdinni, með öllum þeiin rógi, undirmálura og fláttskap, sein af þvi getur leitt. GrixfLiskipaferðir* til landsins verða mi með fjörugasta móti á koin- anda ári, þar sem í förum verða 3 skip sameinaða gufuskipafélagsins, leiguskip landstjórnarinnar „Vestau, gufuskiii Á. Ásgeirsspnar, O. Wathne’s, fjárkaupaskip o. fl. —- Ætlar sameinaða gufuskipafélag- ið að láta fara alls 13 ferðir til landsins; af skipum þess fer „Thyrau þrívegis kringum land, á leið frá Khöfn, nefnil. í maí, júli og sept., og sömu leið aptur til útlanda í júni, ág. og sept.; aulc þess fer og „Botniau á noklira staði kringum landið, á leið frá Khöfn, í júní, og „Laurau þrívegis til Vestfjarðanna, í maí, júní og okt.; en sleppt hefir félagið nokkrum viðkomustöðum, sem staðið hafa á fyrri 1 ferða-áætlunum þess, og koma skip þess

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.