Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 20.02.1896, Síða 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 20.02.1896, Síða 1
Verð árgangsins (minnst 40 arka) 3 kr.; i Ameríku 1 doll. Borgist fyrir júní- múnaðarlok. DJOÐVIIJINN UNGI. -— ■ —~— |y- FlMMTI ÁEGANftCE. =|.- - - --í—RITSTJÓRI: SKÚLI THORODDSEN. ==|sosg-—t-- Uppsögn skrifleg ógild nema komin sé til útgef- anda fyrir 30. dag júni- mánaðar. M 1(5. ÍSAFIRÐI, 20. FEBR. 1J-*Í)(5. SRIT liinss ísl. kvennfélags. I lögum hins ísl. kvennfélags, sem stofnað var fyrir rúmum tveim árum, er svo ráð fyrir gjört, að félagið gefi út dálítið ársrit, og er nú fyrsta ársrit fé- lagsins nýlega komið á prent, svo að á- stæða þykir til, að fara um það fáum orðum. Rit þetta er alls 3 arkir að stærð, og byrjar á ritgjörð um „kröfur og réttindi kvermaÚ sem þýdd er úr ensku, með því að hún er frumsamin af enskri hefð- ar-konu, frú Isahéllu Somerset, sem um mörg ár hefir verið ein af helztu for- mælendum kvennfrelsismálsins á Eng- landi. — Eins og gefur að skilja, þar sem ritgjörð þessi er sniðin eptir ensk- um háttum, og stýluð til að hrekja þær mótbárur, sem þar í landi hafa helzt kom- ið frarn gegn jafnréttis-kröfum kvenna, þá eru í ritgjörð þessari sum þau atriði, sem síður eiga við liér á landi, og sum- ar þær röksemdaleiðslur, sem isl. alþýðu kunna að þykja óþarfar eða óljósar, og hefðum vér því fellt oss betur við, að arsritið hefði byrjað á frumsaminni ísl. ntgjörð, þar senl skýrðar hefðu verið hinar helztu jafnréttis-kröfur, sem kvonn- félagið hefir sett á merki sitt, og það þvi fremur sem hugmyndir ýrnsra ísl. kvenna um það efni rnunu enn all-óljós- ar, eins og við er að búast, þar sem enn er svo skammt um liðið, siðan konur hér á landi fóru nokkuð verulega að hugsa um bót á kjöruin sínum. En þetta getur nú að visu verið á- litamál, og kemur þá seinna; og auðvit- að hefir það einnig inikla þýðingu, að kynna mönnum skoðanir helztu formæl- enda kvennfrelsismálsins i öðrum löndum, enda eru og i grein frú Somerset ýmsar skarpar og ágsetar röksemdaloiðslur, som ekki eiga síður við hér á landi, on í öðrum löndum. Næst er í ársritinu fjörug, lipur og einarðleg grein um háskólamálið eptir ungfrú Ölajta Jóliannsdóttur, og er það • eigi ílla til fallið, þar sem háskólamálið var einrnitt það málið, sem fyrst gaf til- efni til þess, að kvennfélagið var stofn- að, og hefir félagið nú þegar lagt 1763 kr. i sérstakan sjóð, sem ætlaður er til þess, að verða styrktarsjóður handa efni- legum ísl. stúlkum, er nám kynnu að stunda við hinn fyrirhugaða háskóla. Um áhrifin af Hafnarvist ísl. náms- manna kemst höf. meðal annars þannig að orði: „Yið Hafnarháskóla læra þeir ekkert um Island eða þarfir þess. Og margir hverjir læra þar þá lífsspeki, að trúa á ekkort, og elska ekkert, nema sjálfan sig, að álíta, að enginn sannleikur sé til í sjálfu sér, ekkert þess vert, að leggja neitt í sölurnar fyrir það, að föðurlands- ástin sé orðin úrelt, og ósamboðin íiiann- iið og menntun nútímans. Þetta hefir verið verst á seinni árum, eptir því sem þessar skoðanir liafa breiðzt út um Danmörku með bókmenntunum, bæði innlendum og útlendum, og því or ver, að þessar skoðanir eru oss íslend- inguin miklu hættulegri, en Dönum . . . . . . gjöra þær oss beint að vondum mönnum, sem ekkert virða, nerna eigin hagsmuni, og þeir koma sjaldan heirn við hagsmuni föðurlandsins, i öllu falli ekki hjá þeirn, sem eiga þá undir stjórn- inni og hennar vildármönnum“. Við því er að búast, að sumum þyki þetta harðorð kenning, enda látuin vér ósagt. — • þó að hún hafi við talsverð rök að styðjast —, að áhrif Hafnarvistarinn- ar séu í þessu efni yfirleitt verri, en á,- hrif Reykjavíkurvistarinnar, eins og nú stendur, því að ekki verður þvi neitað, að margir tslendingar liafa verið frjáls- lyndir á Hafnar-árum sínum, og haft þá brennandi áhuga á máluin ættjarðar sinn- ar, on spillzt svo, og orðið að sjálfselsk- andi amllegum krypplingum, þegar em- bætta vonin lifnaði í hjörtunum, oða embættið var fengið. Aðal-orsökin liggur í hinu vandræða- lega stjórnar-ástandi lands vors, liggur í þvi, að vegurinn til valda og metorða, það er vegur hræsninnar, samvizkuleys- isins og óþjóðrækninnar; og af þvi að allir þurfa að lifa, þá er freistingin svo mikil, að ganga þenna breiða veginn, og þeim mun meiri hér, en í Danmörku, sem lífvænlegu lifsstöðurnar, fyrir utan embættis-stigann, eru hér færri, en þar. Síðast i ársritinu er all-snotur þýdd skáldsaga „Draumsjóniru eptir norsku skáldkonuna Hélenu Lassen. Yfir höfuð má segja, að ársrit þetta sé vel úr garði gert að efninu til, og kvennfélaginu til sórna. ----oOO§gOOc---- Holger Draéhmann: Kitzwalde. — Bókaverzlun Schubothés í Kaupmanna- höfn hefir tekið sér fyrir hendur, að gefa út safn („Miniatur Bibliotek11) af skáld- sögum ýmsra merkra dáinna og nú lif- andi höfunda, en þó svo, að ekki verða teknar upp í safnið aðrar skáldsögur nú lifandi höfunda, en þær, sem eigi hafa áður verið prentaðar; verður útgáfa þessi hin vandaðasta að öllum ytri frágangi, og skreytt inynduin eptir ýmsa fræga málara, svo að safn þetta mun verða hið eigulegasta, og þykir því líklegt, að jmis- ir hér á landi, er danskar bækur lesa, muni vilja eignast það. Sem byrjun safns þessa er ný útkom- in skáldsaga eptir danska skáldið Holger Drachmann, sein Kitzwalde nefnist, fjör- ugt og skemmtilega rituð riddara-saga, en nokkuð „realistisk14, þar sem verið er að lýsa ásta-bralli aðal-persónanna, frxí Adalberte von Kitzwalde, sem i fjarveru manns hennar á í ástar-ævintýrum við frænda sinn, liinn unga og hugumdjarfa Frants von Kitzwalde, sem að lokum er skotinn af manni Iiennar, þegar hann einn morguninn er að yfirgefa frúna, farandi vana leiðina, út um svefnherbergis-glugga hennar. — Þá er og ekki síður fjörug frásagan um samdrátt þeirra ÚYillibalds riddara, föður Frants von Kitzwalde, og Merite, stúlkunnar í drengja fötunum, með öllum þeim riddara-ævintýrum, sem þar eru samfléttuð við. — Og að lokum

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.