Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 16.04.1898, Qupperneq 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 16.04.1898, Qupperneq 2
114 ÞjÓÐVIT.JLVN' tjngi. felldra synjana frá stjórnarinnar hálfu, og ráð- herra íslands situr eptir sem áður í ríkisráðinu. Þessi stjórnarvi'nja helzt meðan danska stjórnin vill halda henni, og til að afnema hana þarf hún enga stjórnarskrárbreyting, heldur vilja- breyting hjá sjálfri sér. — Bogi gæti alveg eins sagt, að greiðasti vegurinn til að útkljá stjórn- arskrármálið, væri að samþykkja hina endur- skoðuðu stjórnarskrá fyrri þinga þing eptir þing, þótt hann viti full-vel, að slíkt leiddi til einkis árangurs um óákveðinn tíma. Vér höfum nú leitast við að sýna fram á, hve þessi uppgjafarkenning Boga hefir við lítil rök að styðjast; um önnur atriði í ritlingi þess- um, sem ekki standa beinlínis i sambandi við þetta uppgjafar-frumhlaup hans, hirðum vér ekki. Vér óskum þess að endingu, að næst þegar liann er sendur út af örkinni, til að rita um stjórn- armál íslands, þá riti hann af hotri skilningi og meiri sannleiksást. •— Vigur 2,’/a ’98. . Sigurður Stefúgisson. Til hans Marísar. A fylgisnepli við „Hauk“ kefir Marís nokkur Marísson, sem kallar sig Gils- fjörð(!), látið pronta greinarstúf eptir sig, or hann kveður ritaðan í umboði ýmsra Bolvíkinga; á grein þessi að vera svar gegn grein minni urn „Landlegurnar í Bolungarvíkw í 14.—15. tölubl. „Þjóðv. unga“. Enginn, sem þekkir í hvaða á- standi manntetur þetta all-optast er, mun furða sig á þvi, þótt ekki sé eitt orð af viti mælt í greinarstúf þessum, að því einu undanteknu, sem hann jetur eptir „Bol- víkingi", er ritaði i 23. tölubl. „Þjóðv.u um þetta mál. Á liinu furðar marga meira, að nokkur Bolvíkingur skuli hafa lotið svo lágt, að gefa Marís þessum um- boð sitt til ritsmiða, en eptir því, sem heyrst hefir, munu þeir ekki vera margir, ef þeir eru nokkrir; að minnsta kosti kvað öllum merkari mönnum þar í Yík- inni þykja sér misboðið með þessari um- boðs-yfirlýsing, en þó kvað þeim sárna það mest, að Marís þessi, sem eptir því, sem næst verður komizt, er sveitlægur suður í Dalasýslu, og á þar liklega helzt höfði sínu að að halla, skuli telja sig Bolvíking, hvort sem það er nú af þvi, að þeir telja slíkt, ef satt væri, blett á byggðarlagi sínu. En það þori jeg að fullyrða, að væri margir líkar Marisar þessa á Bolungarvikur-Mölum, þá hefðu dæmin, sem jeg nefndi í grein minni, ekki heyrt til undantekningunum heldur reglunnar. Þetta læt jeg vera nóg i lengd og bráð fyrir Marís garminn. Isfircfingur. OOO^CO?----- Aflahrögö. Þilskipin syðra afla prýðis vel síðan þau fóru út, koma inn með 6—9000 eptir viku og hálfsmánaðarútivist mest vænan og feitan þorsk. Útlit með afla á opnum skipum við Faxa- flóa var þegar „Yesta“ fór úr Reykjavík, með langbezta móti. í Grindavík var ágætur afli, mokfiski í Höfnum, góður neta-afli i Gai'ðsjó og einnig farið að fiskast á liandfæri og lóðir. Austanfjalls sömuleiðis góður afli. Á Austfjörðum því nær aflalaust í mestall- an vetur. Skipstrand. Frönsk fiskiskúta strandaði 6. f. m. í Meðallandi. Skipverjar 25 að tölu hjörg- uðust. Botnverpingar hafa enn gjört töluverð spell á veiðarfærum i Faxaflóa, sópað burtu þorska- netum frá 5 eða fleiri skipum á Vatnsleysu- strönd. Samgönguhanni amtsins við þá kvað vera lítill gaumur gefinn; þeim fært vín af landsmönnum, og frá þeim fluttur fiskur, hvað sem yfirvöldin segja. Svo úthúða má sko þeir hinir sömu stjórn og þingi fyrir aðgerðaleysi, enda þótt af þeirra hálfu allt sé gjört, sem hægt er að gjöraj til að hefta þenna ófögnuð. Iíéraðsdómur er uppkveðinn í sakamáli síra Bjarna Þórarinssonar, er hann dæmdur í 8 inánaða einfalt fangelsi og til að endurgjalda póstsjóði (landsjóði) 321 krónu, sem og til að greiða allan máskostnað. Húshruni. Aðfaranótt 12. f. m. kom eldur upp í steinhúsinu á Héðinshöfða i Þingeyjar- sýslu, þar sem Bened. sýslumaður Sveinsson áður hjó, hrann það allt að veggjunum frá töld- um. Húshúnaði varð bjargað að mestu, en matvæli brunnu öll. Húsið var vátryggt fyrir 10 þús. kr. Yetrarfar og heyleysi. Snjóþyngsli hafa verið óvanalega mikil á Suðurlandi miðpart þessa vetrar og þar til í ofanverðuin f. m. að hlánaði. Heyleysið, þessi gamli talandi vottur um fyrirhyggjulausan ás.etning hænda og skey t- ingarleysi með hústofn sinn, var þegar orðið svo mikið, að í sumum sveitum var tekið að skerá pening, og útlit, fyrir holfelli ef hatinn hefði dregist nokkuð lengur. Landhúnaðurinn vor ísiendinga, — hann er ekki á marga fiska. — Lög staðl'est. Frá síðasta alþingi eru eptir- fylgjandi lög staðfest: LÖg um að sýslunefnd- inni í Árnessýslu veitist heimild til að verja aílt að 12000 kr. úr sýslusjóði til flutnings- brauta. Lög um útbúnað og ársútgjöld spítala handa holdsveikum mönnum. Lög um aðgrein- ing lioldsveikra frá öðrum mönnum, og flutning þeirra á opinberan spítala. Lög um bólusetn- ingar. Lög um horfelli á skepnum. Lög um sérstakt brúargjald. Lögum synjuð staðfestingar. 4. febrúar hefir enn verið synjað konungsstaðfestingar: lögum um stofnun lagaskóla Og lögum um kjöi'gengi kvenna; eru þá fern lög frá síðasta þingi þegar komin í gröfina, en 8 lög eru enn óafgreidd af stjórninni. VII, 29. Ritlingur Boga Tli. Mclsteds, sem getið liefir verið um hér í blaðinu, hefir fengið maklegan dóm, bæði hjá „ísafold11 og „Þjóðólfi“, það kveð- ur svo rammt að, að „Þjóðólfi11 dámar ekki grænkan, og vill hann þó auðsjáanlega leggja líknarlófana að þessu politiska afstyrmi Hafn- arstúdentanna. A'ilhjálmiir Jónsson, bróðir Klemenz sýslu- manns, ritar nú hverja ádeilúgreinina á fætur annari í „Þjóðólfi", gegn ritstjórum „ísafoldar11 og „Þjóðviijans11; er af þeim ritsmíðum það .skjótast að segja, að þær væri hetur óritaðar en ritaðar, eins og yfir höfuð öli þessi persónu- lega áreitni í politík vorri. Strandhátar þeir, er hið sameinaða gufuskipa- félag ætlar að hafa hér í föruni umhverfis land- ið í sumar og framvegis, heita „Skálholt11 og „Hólar“. Þeir eru keyptir frá Noregi og eru nýlegir (smíðaðir 1893), „Skálholt" á að fara vestur um land, er skipstjóri á honum Aasberg, er verið hefir 1. stýrimaður á „Lauru“. „Hól- ar'' eiga að fara austur um land, er skipstjóri á þeim bát Jakobsen, sem verið hefir 1. stýri- maður á „Tbyru“. Bátarnir eru yfir 300 ton að stærð. Þeir komu til Reykjavíkur 10. apríl, og byrja ferðir sínar þaðan um miðjan mánuðinn. Mannalát. ' 27. febrúar andaðist óðalshóndi Þorhjörn Ólafsson á Steinum í Stafholtstungum, sjötug- ur að aldri, hinn mesti merkisbóndi og tjáður vel. Einkasonur hans er Gunnar kaupmaður í Reykjavík. , . 28. f. m. lézt í Rcykjavík W. G. Spence Paterson, brezkur konsúll, á 41. aldursári. Pat- erson var skozkur að ætt og uppruna, hafði hann dvalið hók á landi í 20 ár. Hann var lipur gáfumaður, talaði og ritaði íslenzku sem innlendur væri, hið mesta Ijúfmenni, og yfir höfuð valinkunnur sæmdarmaður. Nýlega er og látinn hér vestra Árni J. Thoroddsen frá Látrum í Rauðasandshreppi, nær áttræður að aldri. Ilann var bræðrungur Jóns sýslumanns Thoroddsens, bjó hann longi á Látrum góðu búi, en andaðist hjá syni sínum í Kvígindisdal. ísafirði 16. apríl '98. Tíðarfar. Það sem af er þessum mánuði hefir verið stillt tið, en optast fremur köld; dagana 5.—'6. þ. m. var mesta frost sem komið hefir á vetrinum 12—13 gr. á R. Maður varð úti aðfaranótt 1. þ. m. Guðm. Bjarnason að nafni, vinnumaður frá Uppsölum í Seýðisfirði. Hafði maður þessi seint um kvöld- ið farið að heiman til næsta bæjar, Eyri í Seyð- isfirði, ásamt manni þaðan. En er þeir voru komnir rétt undir tunið á Eyri, varð honum skjótlega illt, svo liann lcomst ekki lengra, fór förunautur hans þá heim á bæinn til að fá mannhjálp að koma honum heim. En er til var komið, fannst hann ekki þá um nóttina, og ekki fyrri en lýsti um morguninn eptir, og þá með litlu lífi, og andaðist hann innan lítillar stundar. Fiskleysið er hið sama í öllu Inn-Djúpinu; reynt i Vigur fyrir fisk á laugardaginn íyrir páska og ekki fiskvart. Inn-Djúpsmenn streyma

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.