Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 12.12.1898, Síða 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 12.12.1898, Síða 2
54 Þjóðvhjiní* ungi. YIII, 14.—lp einstæðar, og að engu leyti sýnishorn þjóðarviljans. Það er og aðgætandi, að slíkt stjórn- arástand, sem nú er á landi hér, er afar- frjóvur jarcfvegur fyrir fleðusltap, lirœsni <>g y'mis Jconar varmennsltu. Það eru svo margir, sem vilja hafa þá sér hliðholla, er mestu ráða í svipinn, því að á þann hátt getur svo margt hrotið af, er þeir ella færu á mis við. Slíkt þekkist í hverju landi, og þróast að því skapi betur, sem ástandið er rotnara. Það var því ekki annað, en hver maður gat sagt sjálfum sér, að ýmsir myndu snúast gegn stjórnarumbótunum, sem í boði voru í fyrra, úr því lands- höfðingi snerist gegn þeim. — Hefði hann fylgt þeim, þá hefðu þeir gert slikt hið sama. En af sjálfstœðum mönnnrn munu þeir fáir, er ekki sjá það, að það er þjóð vorri skihnm og sltaði, þetta landshöfð- ingja-einveldi, sem rikt hefir, og rikja hlýtur, í flestum greinum, meðan stjórn- arfyrirkomulaginu eigi fæst breytt. Það er beinlínis þjóðarhneisa, að búa undir landshöfðingjavaldinu í þess nú- verandi formi, þessu valdi, sem rneðal annars — eins og Jón Olafsson tók rétti- lega fram í „Grönguhrólfiu forðum — „getur áhyrgðarlaust rægt frá embætti, hvaða embœttismann landsins, sem er, hvað dæmin sanna“. Takið því höndum sainan allir góðir Islendingar, og látum það vera fyrsta atriðið, að kippa ábyrgðarleysinu burtu úr þeim einvaldssessi, er það, vegna ó- kunnugleika útlends ráðherra, nú situr í. Norðmenn börðust fyrir því í tugi ára, að fá ráðherra sína, til þess að mæta á þingi, og fyrst með þeim tíma, er þeirri kröfu fókkst framgengt, hefst þing- ræði þeirra. Hjá oss verður það eins að vera fyrsta krafan, að ráðherrarm mæti sjálfur á þingi, og beri ábyrgð gagnvart þvi á allri stjórnarathöfninni. Hin atriðin í stjórnbótakröfum vorum eru þess eðlis, að fremur má bíða, að um þau sé deilt. En þessi aðal-krafan, að fá ábyrgðar- leysinu og landshöfðingjaeinveldinu burtu rutt, þolir eigi bið. -----oOO^OOo---- Smágreinar uni landbúnaðinn, eptir alþm. Srn. Stefánsson. 2. VerzJunin og Landbúnaðurinn. Þetta ár, se. j. er liðið, siðan innfiutn- ings' nið á lifandi f< til Englands tók að hafa áhrií é. sauðaverzlun landbænda, hefir verið kveinað og kvartaó uin það, hve verzlunin væri óhagstæð, og mark- aðsleysi fýrir lifandi fé. Innfiutnings<.uanið kom vissalega ó- þægílega á svona iL. áðina En að land- búnaðurinn sé á heljarþrömio < <i sökum þess, er næstum ótrúlegt, og þatí því held- ur, sem nú í haust hefir mátf teljast þol- anlegur markaður fyrir sauðakjöt víðast hvar á landinu. Só þess enn fremur gætt, hvernig verzlunin hefir verið fyrir landbændur nú um allmörg undanfarin ár, þá hefir hún í raun og veru verið allt annað, en óhagstæð. Síðan verzlunarviðskipti vor hófust við Englendinga, liafa landbændur ár frá ári fengið bæði hesta og sauðfó all-optast ágætlega vel borgað. Síðast liðin 10—15 ár hafa mörg mátt teijast veltiár í verzl- un fyrir landbúnaðinn. Aður en hestaverzlunin hófst, mátti heita, að hestaeign fram yfir brúkunar- þörf bænda, væri gagnlaus að mestu, og enda skaðleg fyrir landbúnaðinn, þar sem hinn mikli stóðhrossa fjöldi setti slægjur bænda í örtröð, auk þess sem stóðhrossa eignin var mörgum bændunum til hinn- ar mestu minnkunar, er þessar skepnur, sem all-optast voru að eins settar á „guð og gaddinnu hrundu niður úr hor og harðrétti á klakanum. En nú í mörg ár hefir hestaeignin verið ein hin stærsta peningalind lands- manna i mörgum hóruðum, og er þó synd að segja, að enn só miklu til henn- ar kostað, þótt miklu betur sé, en aður. Hrossaverzlunina má þvi sjálfsagt telja stórhapp fyrir landbúnaðinn, er bæði beinlínis og óbeinlínis hefði mátt verða honum til stórmikilla framfara. Þá hefir ekki verið gjört lítið úr þvi hagræði, sem landbúnaðurinn hefði af sauðfjár sölunni til Englands. En hvar sjást svo ávextír þessara miklu hagræða fyrir landbúnaðinn? Hefir hagur landbænda almennt batn- að þessi góðu verzlunarár? hafa þeir rutt af sér skuldum, lagt upp fó, eða aukið bústofn sinn? — Beinast lægi við að játa öllum þess- um spurningum, beinast lægi við, að ætla, að landbúnaðinum hefði aukizt svo bolmagn þessi ár, að hann ekki væri í voða staddur, þótt verzlunin væri eitt- hvað óhagstæðari eitt eða tvö ár í bili. Þetta liggur beinast við, nema því að eins, að ómögulegt sé að hafa ofan í sig af landbúnaði á Islandi, nema rétt i veltiárum að árferði og verzlun, og bændur hljóti því, þegar út af því ber, að lifa við sult og seyru. Hljóðið í landbændunum núna virðist óneitanlega fremur benda á þetta síðast nefnda, og þaðan af verra. — Jafn skjótt og sauðfénu ekki verður rutt eins gengdarlaust til Englands og að undanförnu, er látið svo, sem land- búnaðurinn sé i voða staddur, og flest sund honum til bjargar lokuð. Astandið er sjálfsagt miklu verra, en við mætti biiast eptir þetta verzlunar- góðæri. Bændur eru almenut stórskuldugir, ekki einungis við kaupmennina, heldur er nú allur þorri islenzkra bænda, sökum kaupfólagsskaparins, sein mest hefir ver- ið gumað af, bundinn á skuldaklafa hjá einum eða tveimur auðkýfingum í út- löndum, sem því hafa ráð íslenzku kaup- félaganna í hendi sér. Auk þessa er og annar nýr lánardrottinn kominn til sög- unnar, landsbankinn. Þrátt fyrir pen- ingastrauminn frá Bretlandi hafa bændur hópum saman leitað til hans, og fengið lán gegn veði i jörðum sínum, til að borga með gamlar og nýjar verzlunar- skuldir. Svo eru sömu vanskilin byrjuð við hann, eins og kaupmennina, hvorki staðið í skilum með vexti nó afborganir, jarðirnar veðsettar, án þess að peninganna sjái nokkurn stað, sem ekki er heldur von, þar sem þeir eru uppetnir, áður en lánið er tekið. Þegar á allt er litið, getur það verið nokkurt álitamál, hvort hin mikla sauða- sala til Bretlands hafi verið landbúnað- inum .til mikillar uppbyggingar. Að minnsta kosti sjást ekki liinir góðu á- vextir liennar langt tilsýndar. Auðvitað þarf slíkt ekki að vera af því, að þessi verzlun só í sjálfu sér ó- holl landsmönnum; það getur líka kom- ið til af því, hvernig menn hagnýta sér hana. — Yerzluninni verður ekki með réttu um það kennt, þótt bændur eyði því meira i útlendan varning, bæði þarfan og óþarfan, sem þeir hafa meiri kaupeyri handa á milli, og auki því ekkert frem- ur efni sin í góðu verzlunar árunum, en hinum lakari. Það er kunnugra, en frá þurfi að segja, að síðan sauðfjársalan til Bretlands hófst, hafa landbændur gengið svo nærri bústofni sínum, að þeir hafa lagt miklu minna, en áður, af kjöti feit- meti og skæðaskinni til búa sinna. I stað hinnar hollu og góða fæðu, er sauðkind- in veitir liúsbændunum, liafa bændur nú hin síðari ár mest megnis lifað á útlendu lóttmeti, og gengið á útlendu skæðaskinni, banvænu fyrir búpening þeirra. Því fer fjarri, að þessi breytti lifnaðarháttur hafi orðið bændum nokkru ódýrri, held- ur þvert á móti. Mikill hluti hins selda fjár hefir gengið til að kaupa fyrir þessar útlendu vörur, sem, þegar litið er á nær- ingargildi þeirra, bæði verða dýrari og ódrýgri i bú að leggja, en sauðkindin. Auk þess hafa munaðarvörúkaup lands- manna vaxið stórum. Hagræði það, sem landbúnaðurinn hefði getað liaft af verzlun þessari, hefir því orðið minna, en skyldi. Kaupfólags- skapurinn, með hinni góðu verzlun fyrir sauðina, og hinum ódýru kaupum, er kölluð liafa verið á útlenda varningnum, í samanburði við kaupstaðarprísana, hefir freistað bænda til aukinnar eyðslu og brúkunar á útlendum vörum. Efnahag- urinn hefir ekki batnað hótið minnsta, og þegar ekki gengur allt upp á hið bezta, ekki fást 12—14 krónur fyrir hverja veturgamla kind, og 16—20 krón- ur fyrir hvern sauð, og þaðan af meira, þá er allt í voða, enda þótt 16 til 18 aurar fáist næstum í hverju kauptúni landsins fyrir hvert pund af almennilegu sauðakjöti. — Það er sjálfsagt enginn efi á því, að

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.