Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 12.12.1898, Side 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 12.12.1898, Side 3
Þjóðviljlvn r.voi. 55 Vni, 14.—15. það verður affarasælla fyrir landbóndann, að lifa sem mest á hinni hollu og góðu fæðu, sem sauðabúið gefur af sér, en að skipta henni fyrir opt miður vandaða og miður holla útlenda matvöru, eins mjög °g gjört hefir verið, siðan sauðfjár-salan til Bretlands hófst. Þessi verzlun hefir verið misbrúkuð, og þess vegna sór kosta hennar, fram yfir gömlu slátrunarverzlun- ina við kaupmenn, engan stað. Þegar bændum áður þótti lágt kjötverðið hjá kaupmönnum, þá lögðu þeir meira af sláturfé sínu til búsins, og tóku minna hjá kaupmönnum. Þá var það ekki eins algengur siður, eins og nú er í kaupfé- fólögunum, að taka allar nauðsynjar sín- ar „upp á krit“ að vorinu og sumrinu, og verða svo nauðugir viljugir að láta kindurnar til Bretlands að haustinu, hvort sem útlitið er gott eða vont með að fá nokkurt verð fyrir þær. Það var að hreinum, þótt stundum þætti hörðum, kostum að ganga hjá kaupmönnum; bændur lifðu ekki í neinum glæsilegum vonum eða verzlunardraumum um dugn- að og ágæti útlendra umboðsmanna, er nú þykir mest gróðavon, að setja alla sína von og traust á í verzlunarefnum. 3. Löggjöfin og landbúnaðurinn. Það heyrist ekbi all-sjaldan, að al- þingi gjöri lítið, til að efla landbúnaðinn, því só sýnna nm að mylgra landsjóðnum í bitlinga og launahækkanir til embætt- ismanna, enda só ekki við góðu að búast, þar sem bændur sóu svo fáliðaðir á þingi gagnvart embættismannaflokknum. Að þvi leyti, sein þessar og þvi líkar kvárt- anir koma frá bændum, mega þeir vissu- lega sjálfum sér um kenna, livernig þingið er skipað; þeir geta alveg ráðið þvi i all-flestum kjördæmum, hverjir á þing fásta, og þeir snoppunga því sjálfa sig með aðfinnslum um skipun þingsins. Það er sjálfsögð skylda þingsins, að hlynna að landbúnaðinum á allar lundir að svo miklu leyti, sem í þess valdi stendur; en það má líka gjöra vanhugs- aðar og ósanngjarnar kröfur til þingsins i þessu efni, og vissulega. er það líka skylda landbændanna, að vera þinginu samtaka í öllu því, er á einhvern hátt miðar þessum atvinnuvegi þeirra til efl- ingar. Þingið getur með fjárframlögum stutt landbúnaðinn á ýmsan hátt, svo sem með því, að leggja fram fé til menntunar bændaefnuin í landinu, með styrkveit- ingum til landbúnaðarlegra framkvæmda, sem einstökum mönnum er um megn, og fjárveitingum til fólagsskapar og sam- taka til búnaðarlegra framfara Það get- br og samið lög, sem að ýmsu leyti miða landbúnaðinum til eflingar. — Þetta getur þingið gjört, og þetta hefir þingið líka gjört. En þingið getur ekki gjört bændurna að íramtakssömum, sparsömum og fyrir- liyggjusÍHTmm búmönnum; það getur ekki gjört að þvi, hvort þjóðin færir sér ráð- stafanir þess vel eða illa í nyt. Slikt er einstaklinganna sjálfra. Hin síðari ár hefir þingið veitt tölu- vert beinlínis til eflingar landbúnaðinum. Á núgildandi fjárlögum standa þessar upphæðir: Til búnaðarskólanna á ári . . . kr. 10,000,00 — búnaðarfélaga - — ... — 18,000,00 — búnaðarfélagsSuðuramtsinsáári— 2000,00 — útgáfu búnaðarrits á ári . . — 240,00 — búnaðarfélags landsins, verði það stofnað..............., . . . — 4000,00 Laun handa tveim dýralæknum á ári —• 2400,00 Þóknun til aukadýralæknis ---------- 300.00 Ferðastyrkur tiltveggja mannaáiand- búnaðarsýninguna i Björgvin 1898— 1000.00 kr. 37940,00 Auk þessara árlegu fjárveitinga til landbúnaðarins, stendur sveitarfélögum til boða 30,000 króna lán úr landssjóði til jarðabóta, með mjög vægum vaxtá- og afborgunarkjörum. Þetta er auðvitað ekki til að láta sér vaxa í augum, er um annan aðal-atvinnu- veg landsmanna er að ræða, en það er heldur ekki rótt, að álasa þinginu fyrir nápínuskap við landbúnaðinn. Yæri öllu þessu fó vel varið, þegar til bnikunarinnar kemur, þá gæti það ef- laust komið landbúnaðinum að all-mikl- um notum Fyrir nokkrum árum komst þingið að þeirri niðurstöðu, að gagnvænlegra væri fyrir landbúnaðinn, að hafa færri búnað- arskóla í landinu, en nú eru, en styrkja þá þess riflegar. Bæði þá og síðan hafa verið færð töluverð rök fyrir þessari stefnu í búnaðarskólamálinu. En þegar þetta mál var að tilhlutun þingsins borið undir bændur, þótti ekki i mal takandi, að fækka búnaðarskólun- um, Hreppapolitíkin, hóraðarýgurinn, og liagsmunagát einstakra manna, tókust i hendur, til að koma i veg fyrir þessa breytingu. Endilega að iiafa búnaðarskóla fyrir hvern fjórðung, og búta svo niður þann styrk, er gæti komið tveimur búnaðar- skólum að góðu haldi, svo til þeirra mætti gjöra þær kröfur, sem gjöra má til góðra búnaðarskóla, milli þessara fjórðungs- skóla, sem hvorki eru heilt nó hálft. Island er að visu, með þessu, að lík- induin hið mesta búnaðarskólaland í heimi í orði kveðnu, og á nú þegar sjálfsagt flesta búfræðinga, í samanburði við fólks- fjölda. En sá er gallinn á gjöf Njarðar, að bændur sjálfir telja allan fjöldann af þess- um búfræðingasæg fáfróðan, og lítt kunn- andi í því, sem reglugjörðir búnaðar- skólanna mæla fyrir, að kenna skuli á skólura þessum, og það sé líka svo sem segin saga, að þeir fari flestir á höfuðið, er þeir byrji búskap. Þetta er og all-eðlilegt. Hvernig eiga aumingja mennirnir að verða vel að sér í búfræðinni, þegar þeir fá lítið meir en helming þessa tveggja ára námstíma til búfræðisnámsins, en vinna hinn tímann, sem óbreyttir hús- karlar, að þeim störfum, sem læra má á hverju alminnilegu bændaheimili. Fó því, sem varið er til slikra skóla, er ekki vel varið. En hverjum er að kenna? Bændunum sjálfuin, sem heldur vilja hafa óþarflega marga búnaðarskóla, ílla úr garði gerða, en fáa, en þó nógu marga, vel iir garði gerða af landsjóði. Þá hefir þingið fengið orð i eyra fyrir rýmkvun vistarbandsins; telja sumir það næstum banatilræði við landbúnaðinn. Nýju lausamannalögunum er kennt um, hve erfitt sé orðið að fá vinnuhjú í árs- vistir. Yistarbandið er óeðlilegt ófrelsisband á einstaklings og atvinnufrelsinu, og ætti í raun og veru að vera alveg úr lögum numið, svo hverjum fulltíða karli og konu væri heimilt að vera laus, alveg ókeypis. Standi og falli landbúnaðurinn að miklu leyti með þessari hepting á at- vinnufrelsi mikils hluta þjóðarinnar, þá er hann að því leyti hvorki á traustum né eðlilegum grundvelli byggður. — En hér er farið með öfgar einar, og hafi vistarhandið verið ein sterkasta afltaumn O i landbúnaðinum islenzka, þá hafa engir aðrir en bændurnir sjálfir veikt þessa taug um langan tíma. — Lausamennskulögin frá J863hafaver- ið fótum troðin af landsmönnum. Fjöldi manna hefir verið laus i laumi; bændurn- ir hafa hylmað yfir lagabrot þessara manna, og þannig hjálpað þeim, til að fara i kringum lögin. Yæri vel, ef þetta væri ekki enn nokkuð tíðkað, gagnvart nýju lausamannalögunum, þótt minni á- stæður sóu til. Sé nú rýmkvun vistarbandsins skað- vænleg fyrir landbúnaðinn, þá hafa bænd- urnir sjálfir riðið í broddi fylkingar gegn sínum eigin atvinnuvegi, með þetta skað- ræði, með þvi að brjóta gömlu latisa- mennskulögin eins stórkostlega, eins og gjört hefir verið. En hér er um ekkert skaðræði að ræða. Má vera, að þessi rýmkvun á frelsi vinnulýðsins eigi nokkurn þátt í þvi nú í bráðina, að örðugra er að fá fólk i ársvistir. En hér keinur fleira til greina, og ekki livað minnst hin mikla skólafýkn í þjóðinni. Það getur illa samrýmzt vinnu- hjúastöðunni, að ganga á búnaðarskóla, kvennaskóla, alþýðuskóla, gagnfræðaskóla, hússtjórnarskóla, og hamingjan veit, hve marga skóla, þar sem sumir læra það bezt, að verða svo sár-fínir, að þeir geta ekki tekið á neinu algengu verki. Geti bændur fengið nægan vinnukrapt þann tíma ársins, er þeir. einkutn þurfa, vor og sumartímann, þá er landbrmaðin- um engin hætta búin, þótt árshjúunum fækki að miklum mun. Það er vissulega eins holt fyrir land- bændur, að haga íólkshaldi sínu eptir því, hve miklar annir þeir hafa, og h afa því fleira fólk annatima ársins, en að vetrin- um. Hjúin eru bændunum til lítillar uppbyggingar, þegar lítið eða ekkert er til að gjöra fyrir þau.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.