Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 15.06.1899, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 15.06.1899, Blaðsíða 2
146 Þjóðviljinn U.Vðl. VIII, 37. að ganga sér til hressingar á þilfarinu á vissum timum, o. s. frv. Mál þetta er því komið á bezta rek- spöl, og má öllum vera það gleði-efni, að tekizt hefur að lokum að greiða úr öllum fals- og svika-vefnum, svo að sann- leikurinn er leiddur í li'ós. Aðal-falsararnir, Sandherr og Henry, eru nú báðir dauðir, en hinir, sem mest hafa verið við klaekina riðnir, munu flest- ir hafa forðað sér úr landi. -— Skáldið Emile Zola, sem með grein sinni: J’accuse“ („Jeg ákæri“) kom fyrst- ur verulegri hreifingu á mál þetta, en fór úr landi, er fangelsis- og sekta-dóm- urinn var kveðinn upp yfir honum í Ver- sölum í fyrra, sneri nú aptur heim til Parísar 4. júní, og þykir nú líklegt, að stjórnin láti eigi fullnægja hegningar- dóminum yfir honum, úr þvi sem kom- ið er. Bálítið uppþot varð í París 4. júní, daginn eptir dómsuppsögnina. — Loubet forseti, frú hans, og höfðingjarýmsir,höfðu ekið til Auteuil, til að horfa þar á veðreið- ar, og æptu þá ýmsir úr múgnum að for- seta: „panama“, „niður meðLoubet“ o.s.fr., og einn ætlaði að berja hann með göngu- priki sínu. — Lögregluliðið reyndi auð- vitað þegar að tvistra hópnum, og hlutu þá lögreglumenn nokkrir meiðsli nokkur, og fjöldi manna voru teknir fastir. Sagt er, að uppþot þetta hafi verið af völdum þjóðvinafélagsins og félagsins „kongsliðarnir ungu“, sem gramir eru forsetanum, síðan þeir Deroidede og Habert voru teknir fastir, sbr. 26. nr. blaðs þessa; en mál þeirra lyktaði með sýknudómi um mánaðamótin síðustu. — — f Látinn er 3. júní sönglagasmið- ur Johan Strauss, fæddur 1825. — Hann dó í Vínarborg. Krinsruni hnöttinn á lijúlliesti heitir ný út- komin ferðasaga eptir Englending nokkurn, Foster Fraser að nafni, er reið á hjólhesti 19 þús. enskar milur, gegnum Evrópu, Armeníu, Persaland, Indland, Kína, Japan og Norður- Amerík*. — Ferðin stóð yfir í 774 daga. Af skipinu „Belgica11, sem er á rannsóknar- ferð í suðurheim8kautahéruðunum, eru ný skeð komnar þær fregnir, að fundizt bafi ýms áður óþekkt lönd í Weddel-hafinu, gjósandi eldfjöll O. fl. — Auðan sjó kvað og skipverjar hafa séð langt suður eptir. — Skipið snýr ekki heimleið- is, fyr en að vetri. Hraðskeyt byssa. í frakkneska blaðinu „Revue d’ Artillerie1* er skýrt frá byssu einni, er frakkneskur maður, Humhert að nafni, hafi ný skeð fundið upp, og má með henni skjóta allt að 20 skot á mínútunni. — Enginn hvell- ur heyrist, þegar skotið ríður af, og okki sést heldur neinn blossi eða reykur. Skotfimi sína hefur maður einn, M. Kook að nafni, ný skeð verið að sýna í ýmsum borgum á Bretlandi. — Lætur hann binda fyrir augu sér, og hæfir þó jafnan sett mark, enda þótt markið hreifist fram og aptur. Frá þingmálafundum. Alþingismenn (xullbringu og Kjósar- sýslu_héldu þingmálafund í Haíharfirði 9. júni, og var stjbrnarskrármálið, sem vænta mátti, aóal-málið á dagskrá. A fundinum mætti alþingismaður Ben. Sveinsson, er gerði allt, sem í hans valdi stóð, til þess að aptra því, að stjórnbóta- stefnan yrði þar ofan á, og studdi búfr. Björn Bjarnarson í Reykjakoti þá við- leitni hans af veikum mætti, en síra Þorkell Bjarnason á Reynivöllum var helztur til andmæla, og sýndi glöggt og rækilega, hve óforsjált og vanhugsað það væri, ef þjóðin hafnaði þeim mikilsverðu stjórnarumbótum, er í boði væru. Að loknurn umræðum var með öllum þorra atkvæða samþykkt svo felld fund- arályktun: „Eundurinn skorar á þingmennina að stuðla að þvi, að þingið í sumar afgreiði stjórnar- skrármálið á þann liátt, að þegið verði, ef í boði er frá stjórninni, tilhoð um sérstakan ráðherra, er skilji og tali islenzka tungu, mæti á alþingi, og beri ábyrgð á allri stjórn- arathöfninni". Kl.tíma ræða hr. Ben. Sveinssonar, er krydduð var hinum alkunnu öfgum hans og vitleysum, um landsréttinda-uppgjöf(!), svika- og véla-politík(!) o. fl. o. fl., bar því engan árangur, og kvað hann hafa riðið þaðan af fundinum í hálf-gerðu fússi, og heldur en ekki niðurlútur. Fundur þessi er því nýr og gleðileg- ur vottur þess, að þjóðin muni ekki flek- ast láta af stóryrðum í stjórnarskrármál- inu, og ætti því að vera hr. Ben. Sveins- syni, „Þjóðólfi“, og þeirra nótuin, bending um það, að nota fremur vitið, en strák- skapinn. Fyrsta bók Móse. (Genesis). I nyrri þyáinyu eptir frumtextanum. Gefin út af hinu íslenzka biblíufélagi. Þetta er sýnishorn af biblíuþýðingu þeirri, sem cand. theol. Haráldur Níélsson hefur verið að starfa að, síðan biblíufé- lagið réð hann til þess starfa haustið 1897, og hefur nefnd manna, er biblíufélagið kaus: biskup Hallgrmmr Sveinsson, lector Þórhállur Bjarnarson og yfirkennari Stein- grímur Thorsteinsen, yfirumsjá alla með verkinu. Hvernig þýðingin hafi tekizt, borið saman við hebreska frumtextann, er auð- vitað fárra meðfæri að dæma, en óhætt mun að fullyrða, að starfi þessi sé í hönd- um hæfustu manna, sem hægt var að fá, og felst þar í trygging fyrir því, að verk- ið verði vel og samvizkusamlega af hendi leyst. Hvað málið á sýnishorni þessu snertir, leynir það sér ekki, að það er yfir höfuð mun vandaðra, viðfelldnara og liprara, en málið á núgildandi biblíuþýðingu vorri, sem prentuð var í Lundúnum 1866. Sumar breytingar nefndarinnar virðast þó óþarfar, svo sem að lofa Móses gamla ekki að halda sínu gamla nafni, þar sem hann er nú skírður upp og kallaður Móse (Mósi). Annars hefði það sjálfsagt verið rétt- ara af bibliufélaginu, og mælzt betur fyrir, að láta byrja að lagfæra þýðinguna á nýja testamentinu, sem hefur margar gullfagrar kenningar að geyma, en láta það gamla eiga sig, sem fæstir munu lesa sér til andlegrar uppbyggingar, og varla er í hiisum hæft, vegDa ýmsra siðleysisfrásagna o. fl. Slysfarir. Bátur fórst í vor úr Ólafsvík í Snæfellsnessýslu, og drukknuðu 5 menn: for- maðurinn, Þorsteinn Kristjánsson að nafni, kvænt- ur barnamaður í Ólafsvík, bróðir hans Þorleif- ur, sömuleiðis kvæntur, Guðleifur Ernsmusson, gamall formaður i Ólafsvík, Kristján nokkur Magnússon sunnan af Kjalarnesi, og Benóní nokkur, úr Staðarsveit í Snæfellsnessýslu. 4. júní síðastl. vildi það slys til á einu af botnvörpuveiðagufuskipum fiskifélagsins „Isa- fold", að skipstjóri og stýrimaður flæktust í atkerisfesti skipsins, á innsiglingu til Akra- ness, og hrukku báðir útbyrðis. Drukknaði stýrimaðurinn, en skipstjóri náðist, og þó all- meiddur. Botnvcrpinginn einn tók „Heimdaliur11 ný skeð að iandhelgisveiðum milli Vestmanneyja og Ingólfshöfða, rak liann undan sér til Eski- fjarðar, og var hann þar sektaður um 1000 kr., en afli og veiðarfæri gjört upptækt. Enskt herskip, „Galatea11 að nafni, flotafor- ingi Cross, kom til Reykjavíkur 26. mai, og dvaldi rúma viku hér við land. — Sagt er, að skipið hafl rekið sig á ýmsa enska botnverp- inga að landhelgisveiðum, og getur því flutt sólarsöguna heim af þeim piltum. Annað enskt herskip nokkru minna kvað væntanlegt hingað, til þess að líta eptir, að enskum botnvörpumönnum sé í engu misboðið. Aðstoðarprcstur. Sira Jón Þorsteinsson, er vikið var frá prestskap í vetur, af því að hann hljóp frá brauði sínu, er af biskupi skipaður aðstoðarprestur síra Arnljóts Olafssonar á Sauða- nesi. Prcstskosning. Síra Hafstcinn Pétursson, prestur Tjaldbúðarsafnaðar i Winnipeg, kvað hafa verið kjörinn prestur í Goðdalaprestakalli, en jafnframt segir sagan, að hann muni nú hættur við að flytja sig, og sitja kyrr i Winnipeg. Hallærislánbeiðslur. 4 hreppar í Gull- bringusýslu sóttu í vor um hallærislán til sýslunefndar, vegna aflaleysisins við Faxaflóa; mun það hvorttveggja, að ástandið er orðið all- bágt þar syðra, enda fólkið næsta framkvæmda- og úrræða-lítið, að því er kunnugir segja. Stórstúkuþing var haldið í Reykjavík 6.—7. júni, og mættu þar um 80 fulltrúar frá Good- templarastúkum víðsvegar um land. Guðs- þjónustugjörð f’ór fram í dómkirkjunni, áður en fundurinn hófst, og sté sonur biskups, síra Friðrik Hallgrimsson, í stólinn. Drukknun. 3- júnímánaðar drukknaði maður í Þorskafjarðará í Kollabúðardal í Barðastrand- arsýslu, Gunnlaugur að nafni, faðir Árna bónda á Kollabúðum. Sjálfsmorð. Maður nokkur frá Fossnesi í Árnessýslu, Eiríkur Jómsson að nafni, hvarf fyrir skömmu frá heimili sínu, og ætla menn, að hann hafi fyrirfarið sér í Þjórsá, enda hafði hann lengi verið vanheill á geði. Mannalát. Seint 1 maímánuði síðastl. andaðist merkisbóndinn Þórður Jönsson á Breiðabólsstað á Fellsströnd í Dalasýslu, rúmlega sjötugur. — Hann lætur eptir sig ekkju, Jöfríði að nafni, og tvö uppkomin börn: Kristján, bónda á Breiðabólsstað, og Hálldóru. Ný skeð er og látinn Kristján bóndi Kristjánsson á Höskuldsstöðum í Dala- sýslu, sonur merkisbóndans Kristjáns Tómassonar á Þorbergsstöðum í Laxár-

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.