Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 22.01.1903, Síða 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 22.01.1903, Síða 3
Þjóðviljinn 15 XVII, 4. og því Ktið um aflalrögðin, einkuin við Út-Djúp- ið. — Síðan á Þorláksmessu, kefir haldizt norð- angarður og fa'nnkoma, og varla séz.t út úr dyr- um, og frostið 5—15 gr, á C. Fullyrt er, að enski Ward hafi i hyggju að kaupa smáfisk hér við Djúp i vor, eins og að undan förnu, en ekki hefir hann látið neittuppi um verðið. — A hinn bóginn ætlar Arni kaupm. Sveinsson nú einnig að kaupa tvær lileðslur af þessum svo kallaða Wardsfiski, og befir hann þegar boðið 34 kr. i sk#, en tjáist þó munu borga 1 kr. hærra, en Ward, ef Ward geri yfir- boð“. — Mannalát. Að Sveinseyri í Dýrafirði andaðist 3. des. siðastl. ekkjan Porbjörg Ólafsdóttir, 80 ára að aldri, fædd 16. ág. 1822. — Árið 1845 giptist hún síra Jóni Hákon- arsyni, presti að Söndum í Dýrafirði, og bjuggu þau hjónin lengstum að Sveins- eyri, og eignuðust alls 9 börn, og eru 7 þeirra enn á lifi, og eru þau þessi: Sig- urður Jónsson, skipherra í Haukadal, Hákon Jónsson, bóndi í Haukadal, Olafur Jónsson, bóndi á Sveinseyri, Sturla F. Jonsson, skipherra á Isafirði, Þórdís Jóns- dóttir, gipt Eggert bónda Andréssyni á Skálará, Ástríður Jónsdóttir, gipt Magnúsi Jochumssyni, fyrrum kaupmanni á Isa- firði, og Etinbory Jónsdóttir i Haukadal. I s. m. andaðist á Akureyri Sigurgeir Sigurðsson, fýrrum bóndi á Öngulstöðum í Eyjafiiði, vænn maður og vel látinn.— 31. s. m. andaðist í verzlunarstaðnum Sauðárkrók, i hárri elli, ekkjan Johanna HaUsdóttir, ekkja Jóns prófasts Hallssonar i Grlaumbæ. — Á ísafirði andaðist og 29. des. síðastl. ekkjan Sigriður Jónsdóttir, 86 ára að aldri, sem um mörg ár hefir dvalið í húsum fósturdóttur sinnar, ekkjunnar Katrinar Ólafsdóttur á Isafirði, og verður helztu' æfiatriða hennar getið síðar í blaði þessu. Þá er og látinn fyrir skömmu hrepp- stjóri Jón Jónsson, bóndi á Narfeyri í Snæfellsnessýslu, gildur bóndi og greind- ur, bróðir Hallgrims Jónssonar dbr.manns á Staðarfelli, og verður hans síðar getið nákvæmar. Skuldbmdmga-undirróður. Svo segir „Norðurland" 13. des.: „Tilraunir er farið að gera til þess, að fá kjósendur hér í Eyjafjarðarsýslu, til að skuldbinda sig, til að kjósa sýslumann ísfirðinga, Hannes Hafstein, á þing næst. Undirtektir eru áreiðanlega mjög daufar, enn sem komið er. Kjósendur hafa ekki enn látið sér skiljazt það, að þeim sé skylt að sækja á annað landshorn þingmannsefni, sem er sýslu- maður yfir tveimur kjördæmum, og treystir sér í hvorugu þeirra, til að ná kosningu. Svo bætir það ekki úr skák, að nokkuð kyn- lega virðist vera að því unnið, að fá menn til að skuldbinda sig. Svo er frá skýrt, að þeim, sem sérstaklega er áhugamál, að halda sýslu- manni Kl. Jónssyni, sem þingmanni kjördæmis- ins, sé sagt, að ekki geti komið til nokkurra mála annað, en að hætta við Stefán Stefánsson, og kjósa sýslumennina báða. En aptur á móti er þvi, að sögn, haldið að hinum, sem ráðnir eru í að endurkjósa Stefán, að sjálfsagt sé, að kjósa bóndann með' Isfirðinga-yfirvaldinu. Erétzt hefir, að skuldhindinga-smalamaður hafi farið um atlan Svarfaðardal, þar sem kjós- endur eru hátt upp í 100, og fengið þar 6 menn, til að skrifa undir .. .. “ Bæjai'fulltrúakosiiingar fóru frarn á ísafirði 5. janúar síðastl., og hlutu þessir kosningu: Magnús Ólafsson verzlunarstjóri 91 atkv. Arni kaupm. Sveinsson ... 89 — B. H. Kristjánsson skipherra . 88 — Næstir þeim hlutu þessir atkvæði: Sigurður Kristjánsson úrsmiður (83 atkv)., stúdent Sig. Jónsson (83 atkv.) og Albert Jónsson járnsmiður (75 atkv.). — Ymsir hlutu og 1—2 atkv. Bindindisliðið í kaupstaðnum hafði að þessu sinni viljað koma sínum mönnum að í bæjarstjórnina, og er það að vísu mjög eðlileg ósk, frá þess sjónarmiði, þar sem bæjarstjórnin hefir úrskurðarvaldið, að því er til vínveitingaleyfa kemur. Fulltrúaefni bindindisliðsins voru: M. ÓL, Sig. Kristj. og Sig Jónsson. En þó að framsóknarmenn þeir, sem ekki eru i bindindisliðinu, fylgdu margir bindindismönnum að málum, gat þó ekki hjá því farið, að þetta gerði tvístring, ekki sízt þar sem einn þeirra manna, er bindindismenn hóldu fram (Sig. Jónsson stúdent) hefir jafnan verið mjög eindreg- inn á bandi Ásgeirs- og sýslumannsliðs- ins, og því síður en ekki ákjósanlegur í bæjarstjórn, að bindindismálum slepptum. JÞegar nú hór við bættist einnig, að Ásgeirs- og sýslumannsliðið sá sér eigi annan kost færan, til þess að afla Arna kaupm. Sveinssyni fylgis, en að styðja, jafnhliða honum, út úr neyð tvo menn (Albert Jónsson og B. H. Kristjánsson), sem báðir hafa fylgt framsóknarmönnum við kosningar, þá var þess engin von, að betur færi, en fór. Hefðu bindindismenn látið sór nægja 12 „Það er mál, sem betur verður að hugsa“, mælti Holmes. „En svo er lika annað atriði, sem strax er í augum opið, og það er það, að Vilhjálmi hefir verið sent brófið, þvi að hefði sá, er brófið ritaði, farið með það sjálfur, þá hefði hann getað sagt Vilhjáimi munn- lega, hvað hann vildi honum. En hver hefir þá farið með brófið? Eða hefir það verið sent, sem póstbróf?“ „Kptir þessu hefi eg grennslazt“, svaraði lögreglu- embættismaðuriun. Viihjálmur fókk bróf i gær með kveldpóstinum, en reif umslagið strax sundur“. „Ágætt“, mælti Holmes, og klappaði á öxlina á embættisbróður sinum „Þér hafið talað við póstþjóninn, og er mór það sönn ánægja, að starfa með slikum mönn- um“. „En hór er nú húskytran hans Vilhjálms“, bætti hann svo við, „og skal eg nú brátt sýna yður, ofursti minn, hvar morðið var framið“. Við gengum nú fram hjá litlu, laglegu húsi, og gengum svo, eptir trjágöngum, upp að gamla herragarð- inum, sem reistur hafði verið.á rikisstjórnarárum Önnu drottningar. Holmes, og embættisbróðir hans, fylgdu okkur nú þangað, er morðið hafði verið framið. Fyrir utan eldhúsdyrnar var lögregluþjónn á verði. „Opnaðu dyrnar“, mælti Holmes við hann. „Sko! Þarna í stiganum stóð Cunningham yngri, og var sjón- .arvottur að því, er mennirnir áttust við, einmitt hórna, sem vór stöndum núna. En gamli Cunningham stóð þarna við gluggann — 9 hann upp af stólnum, og mælti: „Jeg held annars, að mór væri bað ekkert óljúft, að fást ögn við málið, til að vita, hvort sumt af því, sem mér dettur i hug, á við nokkuð að styðjast. Jeg ætla þvi, ofursti góður, að yfirgefa yður, og Watson, vin minn, rótt sem snöggvast, og kem svo apt- ur eptir hálfan kl.tíma“. En nú leið ekki að eins hálf-tími, heldur kl.timi að auki, áður en lögregluembættismaðurinn kom aptur, og þá var Holmes ekki með honum. „Hr. Holmes er á gangi hórna fyrir utan“, mælti lögregluembættismaðurinn, „og væri honum kært, að þið kæmuð báðir með mér, og að vér fylgdumst svo þangað allir, fjórir". „Hvort? Til Cunningham?“ „Já“. „Hvers vegna?“ Lögregluembættismaðurinn yppi öxlum, og mælti: „Jeg skal láta það ósagt, en yður að segja, þá er jeg farinn að hallast að þeirri skoðun, að hr. Holmes sé enn ekki búinn að ná sér eptir veikindin, því að hann hefir hegðað sór hálf-kynlega, og virðist vera í töluverðri geðs- hræringu“. „Ekki held eg, að þér þurfið að óttast það“, svaraði eg, „þvi að mér hefir jafnan fundizt, að full meining væri i háttalagi hans“. „Má vera, að öðrum sýnist svo“, nöldraði lögreglu- embættismaðurinn i barm sér. „En hann er mjög áfram um, að fara sem fyrst, svo að bezt væri, að þið kæmuð strax með mér, ef þið eruð tilbúnir“. Vór gengum nú til fundar við Holmes, sem var á

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.