Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 24.10.1903, Page 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 24.10.1903, Page 1
Verð árgangsins (minnst \ 52 arkir) 3 kr. 50 aur.;; erlendis 4 kr. 50 aur., og : í Ameríku doll.: 1.50. Borgist fyrir júnímán- í aðarlok. ÞJOÐVILJINN. -!----- •_|= SeYTJÁNDI ÁBGAK6UE. --—— BITSTJÓEI: SKÚLI THORODDSEN. =|B06g—+~ 1 Uppsögn skrifleg, ógild nema komin sé til útgef- ’ anda fyrir 30. dag júní- mánaoar, og kaupandi i samhliða uppsögninni \ horgi skuld sína fyrir \ hlaðið. M 44. Bessastöðum, ‘24. okt. 19 0 3. íslandsbanki. Sinnaslápti íhaldsliða. —— Margir voru farnir að kvíða þvi í sumar. að ekkert yrði úr stofnun hluta- félagsbankans, þegar hvert skipið kom frá útlöndum eptir annað, án þess for- göngumenn bankafyrirtækisins kæmu, til þess að setja bankann á stofn. Fyrir septemberlok átti bankinn að vera stofnsettur, því að ella var leyfi þeirra Arntzen’s og Warburg’s úr gildi fallið. En tíminn leið óðum, og menn voru farnir að kvíða því, að óvinum fyrirtæk- isins — innlendum og fitlendum — myndi hafa tekizt að hnekkja því til fulls. og þá áttu landsmenn að biia við landsbankaeinveldið, hver veit hve lengi. Vinir hlutabankastofnunarinnar hér á landi, sem ótrauðir höfðu fyrir henni barizt, þrátt fyrir látlausan rógburð, og enda landráðagetsakir, voru, sem sagt, orðnir all-kvíðafullir, og mótstöðumenn- irnir að þvi skapi hreiknir. En svo rætist betur iir öllu, en á horfðist. svo að bankinn tekur nú mjög bráðlega til starfa. Ráðherra vor hefur, sem rétt var, séð það, að frumvarp alþingis, um aukningu landsbankans, var að eins neyðartiltæki, og hefir þvi talið sig breyta samkvæmt vilja alþingis, og þörfum þjóðarinnar, er hann eigi fór svo strangt í sakirnar, að heimta, að hlutaféiagsbankinn væri tek- inn til starfa í Reykjavík, er frestur leyfishafa var út runninn, og fyrir þetta á hann miklar þakkir skyldar. Og nú þegar hlutafélagsbankinn er sama, sem kominn, og hræðslan við landsbankaeinveldið farin ögn að dofna, þá heyrist varla ein rödd — nema má ske úr hóp starfsmanna bankans —, er eigi fagni komu nýja bankans, og segi hann velkominn. Jafn vel nánustu máltól víkversku í- halds-„klíkunnar“, svo sem blöðin „Þjóð- ólfur“ og rVestriu, er áður hafa sjaldnast getað valið hlutafélagsbankastofnuninni — eða formælendum hennar og forgöngu- mönnum — nógu ill nöfnin, hafa nú al- gerlega dregið niður seglin, og kveða við allt annan tóninn, en áður. Hlutafélagsbankinn er nú í þeirra augum, orðin sannarleg nauðsynjastofn- un fyrir landið, sem þeir eigi þykjast efa, að hljóti að verða „öflug lyptistöng, til að hrinda áfram atvinnuvegunum og menningunni meðal landsmanna“. Þetta er vitnisburðurinn, sem þeir fé- ! lagar nú gefa stofnun þessari, er þeir áður hafa hamazt svo mjög á móti, og viljað telja þjóðinni trú um, að væri landráðastofnun, er ættiað ofurselja land- ið i útlendar okurklær o. s. frv. Öllu fljótar, en þetta, skiptist sjaldan veður i lopti. Á' hinn bóginn má þó lesa það milli línanna í málgögnum þessum, hve gremj- an er rik inni fyrir. þótt eigi þori þau nú að láta hana uppi. Meðal annars lýsir gremjan, og geð- snepillinn, yfir óförunum sér t. d. i því, að þau skrökva því nú upp, að þeir Arntzen og Warbnrg séu „út úr spil- inu‘‘. Þessum ösannindum er auðsjáanlega að eins fleygt frarn í þvi skyni, að mál- gögn þessi gera sér i hugarlund, að al- menningur reki síður augun í snúning þeirra í máli þessu, ef þau geti í svipinn talið mönnum trú um, að það séu nýir menn, sem nú hafi tekið þetta fyrirtæki að sér. Reyndar munu nú fáir skilja, að fyrir- tækið væri islanzkara, þótt svo væri, eða landráðin minni(!) En eitthvað urðu veslingamir fyrir sig að bera, það hafa þeir fundið. Og þótt ósannindin þeirra komist vit- anlega upp ögn siðar, þá má þá væntan- lega bjarga sér með öðrum nýjum(!) Slíka pilta flökrar eigi af öllu. En hvað sem þessum skyndilegu sinnaskiptum andstæðinga hlutafélags- bankastofnunarinnar líður, þá er það vist, að almenningur má fagna komu nýja bankans einlæglega. Það er örðugt að reka allar atvinnu- greinar í því landi, þar sem eins er á- statt, eins og hér hefir verið, að pening- arnir, afl þeirra hluta, sem gjöra skal, hafa verið nær ófáanlegir. Það fer ekki hjá því, að með" |komu nýja bankans færist nýtt fjör og líf í þjóð vora, nýjar atvinnugreinar opnast, og gömlu atvinnuvegirnir verða reknir með meiri krapti, en áður. Hyggnum og duglegum mönnum verða nú færir fleiri vegir, en verið hefir. Verzlunarstéttin tekur óðum að brjót- ast undan hinujútlenda fargi, sem á henni hefir legið, og verzlunin breytist í hyggi- legra horf, en verið hefir. Framfarimar hér á landi fara að ganga miklu fljótar, þegar viðskiptalífið er eigi lengur. sem blóðlaus líkami. Allar hnútumar, sem vér framsóknar- flokksmenn höfum fyr og síðar fengið, af þvi að vér létum oss annt um, að landið fengi öfluga peningastofnun, er nægt gæti þörfum þjóðarinnar, og kom- ið henni úr kreppunni, getum vér því tekið oss ofur létt, og ekki sízt þar sem andstæðingar málsins eru nú þegar fam- ir að gera opinberlega þá játninguna, að þeir hafi leitt þjóðina algjörlega afvegaí máli þessu að undanförnu. Það sanna bezt greinar þeirra nú, um gagnsemi hlutafélagsbankastofnunarinnar, þessar greinar, sem era svo dæmalaust skemmtilegar, þegar litið er til þess, sem á undan er gengið. útlöna. Til viðbótar útlendu fréttunum i sið- asta nr. „Þjóðv.“, skal þessa getið: Danmörk. Þess hefir áður verið get- ið i blaði voru, að gestkomandi maður réð á næturþeli á einn af þjónunurn í veitÍDgahúsinu „Hotel Kongen af Dan- markw i Kaupmannahöfn, og veitti hon- um banatilræði, en var horfinn, er að var komið, og vissu roenn eigi, hver maður- inn var, en með þvi að hann hafði i ó- gáti skilið eptir handkoffort, er hann hafði haft meðferðis, þá gátu lögreglu- þjónar þó að lokum grafið það upp, hver munina ætti, er í handkoffortinu voru. Kom það þá í ljós, að morðinginn var maður, er ný sloppinn var úr betrunar- húsinu, Mozart Lindberg að nafni, og er hann sagður eitthvað geggjaður á geðs- mununum. f 9. sept. siðastl. andaðist í Kaup- mannahöfn prófessor Hans Chr. Jensent 67 ára að aldri, einn i röð hinna þjóð- kunnari málara í Damnörku. — Svíþjóð. Sýning var haldin i borg- inni Helsingborg síðastl. sumar, og sóttu hana um 278 þús., og er mælt, að 180 þús. af sýningargestunum hafi verið frá Danmörku. f 13. sept. síðastl. andaðist tónskáld- ið August Meissner, 70 ára að aldri, og þótti Svíum mikil eptirsjá að honum. — Finniand. Einatt herðir \Bobrikoff, landstjóri Rússa, hnútana fastar og fastar að Finnum. Öll dagblöð eru nú háð ströngustu ritskoðun, og hafa ýms blöð orðið að hætta að koma út, af því að rit- skoðunarmönnum hafa mislíkað einhver ummæli þeirra. — Nú er og í ráði að rássnesk mynt verði innleidd á Finnlandi, gagnstætt lögum landsmanna. Þá er og í ráði, að Bobrikoff muni þröngva finnskum stúdentum, til að inna af hendi hervarnarskyldu einhvers staðar á Rússlandi, þótt lög Finna geri engum að skyldu, að bera vopn utan takmarka landsins. Hins þarf og eigi að geta, að það er orðinn nær daglegur vani, að embættis- menn séu reknir frá embættum, eða heldri

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.