Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 24.01.1904, Qupperneq 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 24.01.1904, Qupperneq 2
10 JI _V .s . XVIi!.. 3. geta fengið af sér að gefa út annað eins afskræmi, og ekki lýsir það mikilli ást á máiinu, sem allir vita að er oaðgreinan- lega samvaxið þ]óðerninn, að fara með það eins og mi gera sumir, annars vel menntaðir og gáfaðir menn, sem við rit- störf fást. — Samt mun einhver hafa hnýtt i Jón, að hann ekki „kynni ís- lenzkui* — i sama blaði þar sem orðið „plana stendur í'jórum sinnum. Þorvaldi Thoroddsen, Pétri biskupi, og fleirum, hefir lika verið brugðið um málið, ein- mitt af þeim, sem ekki sjá „bjálkann í sinu eigin auga“. Yfir höfuð er ekki mikið gefandi fyrir rit- og skáld-dómana hérna. Burt með „stigamennskuna“. Nýlega lásum vér í ensku blaði svo látandi ummæli: „Stjarna „Toryu-flokksins bliknar óð- um, svo að þess getur eigi verið langt að biða, er frjálslyndi flokkurinn hættir að gagna landi sinu, sem stjornar-and- stæðingar, en tekur að gagna landi sínu, sem valdaflokkurlí. Yér birtum þessa klausu, sem lítið sýnishorn þess, að i menningar löndum heimsins kunna menn eigi siður að meta starfsemi stjórnar-andstæðinganna, en hinna, sem að völdum sitja í þann eða þann svipinn. Menn viðurkenna, að starfsemi þess flokksins er þjóðinni engu siður nauðsyn- leg, og að hann starfar, engu siður en valda flokkurinn, að þvi, sem hann, fra sínu sjónarmiði, telur þjóðinni gagnlog- ast. Á voru landi reyna stjórnarblöðin á hinn bóginn, sí og æ, að koma þeirri skoðun inn hjá almenningi, að þeir, sem eigi segja já og amen við öllu því, er stjórnin gjörir, eða finna að gjörðum hennar að einhverju leyti, séu persónu- legir fjandmenn hennar, er starfi ávallt af illum hvötum, svo sem persónulegri óvild, eigingirni, valdafýsn, eða blátt áfram af mannvonzku, og séu í raun og veru illviljaðir þjóð sinni, allra mestu varmenni, og muni vera við margt mis- jafnt riðnir. I stað þess að sýna þjóðinni fram á, hvað þeir sjálfir ætli sér að afreka, og reyna að færa rök að því, að gjörðir þeirra og fyrirætlanir séu þannig vaxnar, að þjóðinni sé það hollast, að þeir haldi um stjórnarvölinn, þá er tíðast haft það lagið, að dylgja um það á ýmsar lundir, að mótstöðumennimir hafi illar og óhrein- ar hvatir, og séu verstu varmenni, sem þjóðin verði að varast, o. s. frv. All-optast eru róggreinarnar birtar undir einhverju dularnafninu, því að höf- undarnir finna það vel sjálfir, hve ó- .þokkaleg iðja þessi er, og vilja þvi eigi, að nafn sitt sé við hana bendlað, þótt þeir vilji fegnir njóta góðs af uppsker- unni. Það er þessi blaðamennska, sem amt- maður Páll Briem hefir í „Norðurlandinu“ PJOBVIL réttilega nefnt „politíska stiga-mennskuu, og varað þjóðina mjög alvarlega við.- Það er og auðsætt, að meðan ýmsir meðal þjóðar vorrar tjá sig, sem stand- andi á svo lágu menntunarstigi, að þeir láta nafnlausar róggreinar, og illkvittnis- getsakir, hafa áhrif á atkvæði sittí lands- málum, þá verður eigi skortur á óþokk- um, er reyna að nota sér það, Sýndi almenningur á hinn bóginn al- menna fyrirlitningu á slíkri blaða- mennsku, og léti hana engin áhrif hafa á atkvæði sitt í landsmálum, þá félli burt freistingin, og óþokkarnir yrðu þá að hætta þessari iðju sinni, þegar ekkert hefðist upp úr henni annað, en það, að hún yrði sem hrísla á þeirra eigin hrygg. ♦ " i ........................19 Ur Norður-ísafjarðarsýslu er skrifað 2. jan. 1904: „Tíðin til landsins hefir verið ágætíallt haust, og í vetur, en til sjóarins afieit, enda heyri eg sagt, að í ísafjarðarkaupstað hafi menn venju fremur orðið að snúa sér til fátækrasjóðs- ins, og svipað er víðar, þótt í smærri stýl sé, og er þetta slæmt ástand, eptir undanfarna ár- gæzku, enda þótt lán í verzlunum séu nú miklu minni, og takmarkaðri, en áður“. I.íukIs ylirréttiirdém ur var upp kveðinn 11. janúar síðastl. í máli rétt- vísinnar gegn Jóni kaupmanni Hdgasyni í Reykja- vík, fyrrum verzlunarmanni á ísafirði, sem sak- aður var um, að hafa falsað skjal, undirritað af Bjarnhéðni nokkrum Þarsteinssyni 24. janúar f. á., 4 þann hátt, að hæta inn í það klausu þess efnis, að Bjarnhéðinn ætti að horga honum 6 þús. krónur fyrir brigðmæli um þilskipakaup ífélagi við Jón Helgason, og urðu dómsúrslitin i lands- yfirréttinum þau, að Jón var dæmdur i 12 mán- aða hetrunarhússvinnu, aukmálskostnaðargreiðslu í hæjarþingsrétti Reykjavíkur 11. ágúst síð- astl. hafði Jón á hinn hóginn verið sýknaður, og að eins dæmdur til málskostnaðargreiðslu, þar sem eigi þóttu, gegn skýlausri neitun hans, vera fram komnar fullnægjandi sannanir, að því er skjalafalsið snertir. Bökmenntafélags tímaritið. Nefnd, er skipuð var á síðasta hókmenntafé- lagsfundi í Reykjavik (Guðrn. Vinnhogaxon heim- spekingur, Guðm. Bjömsson béraðslæknir og Þor. steinn skáld Erlingsson) leggur til, að Skh-ni og timariti félagsins sé slegið saman við næstk. áramót, og heiti þá: „Skirnir, txmarit hins ísl. bókmenntafélags11, og komi í heptum (4 sinnum á ári), alls 20—24 arkir árlega. Sérstakur ritstjóri, er stjóm félagsins velur, annast um útgáfu tímaritsins að öllu leyti, og leggur nefndin til, að félagið gpeiði honum 1000 kr. árlega, sem ritstjóralaun. Talið er víst að þessi tillaga nefndarinnar verði samþykkt á næstk. félagsfundi, enda væri þess full þörf að Islendingar ættu kost á góðu og fjölbreytilegu tímariti, í likingu við góð tíma- rit erlendis. _________ Röng þýðing. Niðurlagsorðin í grein prófessors G. Brandesar í „Politíken“ 14. nóv. síðastl.: „en Mand er sat i Spidsen for Öens Styre, í hvis Sind der hor den varmeste Kærlighed til Danmark og de Danske“.* Þýðir hlaðið „Stefnir“ 9. des. síðastl. með svo felldum orðum: „heldur er einnig þeim manni fengin æðsta stjórn eyjarinnar, sem einnig ann Danmöiku og dönsku þjóðinni“. Menn sjá af þessu, að annað hvorter „Stefn- is“-ritstjórinn eigi sera bezt að sér í dönskunni, eða ho»uin hefir þótt betur á því fara, vegna íesanda sinna, ,,heimastjórnarmannanna“(!), að *) Sbr. þýðinguna í 51. nr. 17. árg. „Þjóðy.“ ■ vikja orðum Brandesar við, og láta, senx hann j hefði sagt allt annað, en hann sagði. Sannleiksástin hjá máltóli þessu sýnir sig j jafnt í srnáu, sem stóru. Skóla-óstandiö. túr bréfl). .... „Það þarf einhverra góðra ráða, :ið þvi er lærða skólanri snertir. — Þetta er bttaleyt ástand, og sjálfsagt stafar það nokkuð af ólagi rectors, en jeg er viss um, að bæjarlífið í Beykjavík, og þetta algjörða eptirlitsleysi með piltum, siðan heimavistirnar voru afnumdar, á einnig mikinn þátt i því. Afnám keimavistanna yar hið'versta glapræði, þvi að með því var piltum utan af landinu fyrirmunað, að eiga nokkurt heimili, er þeir, öllum ókunnugir, koma til Reykjavíkuru. Hr. Stead, hinn alkunni ritstjóri tímaritsins „Review of Reviews“, byrjaði nú um áramótin að gefa út nýtt blað, og á stefna þess að vera í því fólgin að benda á hina góðu hlið hvers hlut- ar, því að jafn vel Lundúna-þcikan alræmda hali einnig sína kosti. „Sterkasti maðurinn í heiminum er sá, sem aleinn stendur", segir norska skáldið He.nrik Ibsen. Til sjóðstofnunar í minningu um Max. Miiller, er var prófessor í Oxford, og frægur er af rit- um sinum um trúarhrögð og forntungur ýmsra Austurálfu-þjóða, hafa Bretar skotið saman 2400 sterlingspundum, og á sjóðurinn að stuðla að því, að efla þekkingu manna á tungu, bókmennt- um og trúarbrögðum Asiu-þjóðanna í fornöld, einkum Indverja. í rökkrunum. —<n>>— Sjórekna mannsbeinið. Stúlka nokkur var einhverju sinni á gangi með sjó fram, og fann þá manns- bein sjórekið, og hafði hún það heim með sér. Nóttina eptir dreymdi hana, að mað- ur kom til hennar, er kvað vísu þessa: „Svona fer um sálað hold sumra meðal þjóða; leggðu beinið mitt í mold mætust hringatróðau. Stúlkan mundi vísuna, er hún vakn- aði, og sá því um, að beininu var kom- ið i gröf, er næst var jarðað, enda er þess eigi getið, að hinn látni vitjaði hennar optar. — — i’ormœlingin, Einu sinni voru hjón, er kom all-illa saman, og morgun einn, er bóndinn ætl- aði að róa tii fiskjar, hafði þeim, sem optar, orðið eitthvað sundurorða, ogkall- aði því konan á eptir honum, er hann gekk að heiman: „Farðu til helvítis!“ Bóndinn reri um daginn, sem ætlað var, en með því að veður breybtist skjót- lega, hvolfdi bátnum, og drukknaði bónd- inn. Næstu nótt, eptir atburð þenna, dreymdi konuna, að bóndi hennar kom til hennar, og kvað visu þessa: „Kroppurinn liggur kaldur í hlé, kann ei lengur svamla; en hvar heldurðu’ að sálin só, seima-nornin gamla?u

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.