Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 09.03.1904, Side 2
36
J-'* > O TJ * ,
XYIII., 10.
veggirnir eptir, og nenaur skaðinn frek-
uin 2 rnilj. króna.
•HL'-l'-L'-ll1.',. •
„8c«tland“ strandað.
„Scotland11, gufuskip Thore-félagsins, er lagði
af stað frá Kaupmannahöfn 7. fehr. síðastl., og
væntanlegt var til Reykjavíkur 19. s. m., strand-
aði 15. fehr. við Sandey á Færeyjum, rúmar þrjár
vikur sjávar frá Þórshöfn.
Skipið var komið rétt inn undir innsigling-
una til Þórshafnar að kvöldi 14. fehr., en þorði
þá eigi að halda til hafnar, sakir kafaldshríðar
og náttmyrkurs, og lét því herast fyrir þar á
milli eyjanna um nóttina: en kl. 5. að morgni
hins 15. fehr., rakst það á sker, og kom gat á
það, svo að þegar kom sjór inn i skipið, er stóð
12—14 feta hátt i vélarúminu.
Fyrsti stýrimaður, Kierck að nafni, reyndi þá
að koma taug á land, og fór við 4. mann á hát,
en hátnum hvolfdi í hrimgarðinum, og drukkn-
aði stýrimaðurinn. en hásetunnm skolaði lifandi
á land, með hrotunum af hátnum.
Loks tókst að festa taug milK skipsreiðans
og lands, og á henni voru skipverjar og farþeg-
ar, alls 43 að tölu, halaðir í land, einn og einn
í senn, sitjandi í hjarghring, er lék á hjóli eptir
tauginni, og tók það 2 kl.stundir, að koma öll-
um i land.
Þar sem strandið varð, var brött hlíð á landi,
700—800 fet á hæð, og urðu menn að fara þar
upp, til að leita mannahyggða, og var þá dimm-
viðris kafaldshríð, en veður frostlítið, og kom-
ust skipverjar, og farþegar, heilir á hófi til
hyggða í Skálavik á Sandey, og nutu þar heztu
aðhlynningar og gestrisni.
Nokkrum dögum síðar fóru skiphrotsmenn
svo þaðan til ÞórBhafnar.
Úr Norður-lsal'jarðarsýslu
er „Þjóðv.“ skrifað 21. fehr. siðastl.: „Héðan
er að frétta harðindatíð, hæði til lands og sjáv-
ar, sífelldir stormar, þó að reyndar sé snjó-lítið.
— Mjög lítið er um fisk i Bolungarvik, og ekk- |
ert í verstöðunum innan Arnarness, svo að horf- l
ur eru hér bágar hjá almenningi11.
Jarðfrceðingur Helgi Pétursson
hefir í blaðinu „lngóifur", 28. fehr. síðastl.,
skorað á menn um land allt, að láta sig vita, „ef
þeir hafi rekið sig á skeijar, eða aðrar sjódýra-
leifar, hærra, en svo sem 200 fet yfir sjávarmál“.
— Sömuleiðis skorar hann á „greinda og góða
menn“, er búa í grennd við Skógafjall undir Vaðla-
fjöllum í Þorskafirði, að láta sig vita, „hvort
þeir hafi séð skeljar þar uppi i fjöllunum11, og
vill helzt fá sýnishorn af skeljunum, þar sem
hann telur slíka skelja-fundi geta haft all-mikla
þýðingu, til þess að kveða á um aldur landsins.
Sjöinannalc 1 agið „Báran“
er ögn að færa út kvíarnar, og hefir í vetur
komið upp tveim félagsdeildum, annari áEyrar-
hakka, en hinni á Stokkseyri.
Oveitt prestaköll,
sem nýlega eru auglýst til umsóknar eru: Hof-
teigur í Jökuldal (Hofteigs- og Brúarsóknir;,
metið 969 kr. 11 a.; umsóknarfrestur til 20 apríl.
Sandar í Dýrafirði (Sanda- og Hraunsókniiý,
metið 1140 kr. 22. a. — Á prestakallinu hvíla
eptirstöðvar tveggja lána, er tekin voru árið 1891
og 1892, og upprunalega voru 1500 kr., og 200
kr., og áttu að afhorgast á 20 árum; eptirstöðv-
ar í vor 690 kr. — Umsóknarfrestur til 10. apríl.
Brauðin veitast hæði frá næstk. fardögtim.
Dánargjafir Bj. Jóhannssonur.
Við skipti á dánarhúi Bjarna skipstjóra Jóhanns-
sonar í Stykkishólmi voru út lagðar úr húinu
þessar dánargjafir, saml væmt arfleiðsluskrá
Bjarna sáluga: Til ekknasjóðsins „Ægir“ 2'/2
þús. króná, til Elliðaeyjarvitans 1 þús., og til
Stykkishólms verzlunarstaðar rúm 10,400 kr.
„Dánumaður1* sektaðnr.
Á fundi sýslunefndarinnar í Snæfellsness- og
Hnappadalssýslu, er haldinn var 23. og 24. dag
marzmánaðar f. á., fór sýslumaður Lárus H.
Bjarnason svo felldum orðum um síra Helga
Arnason í Ólafsvík, og hókaði /þau í gjörðabók
sýslunefndai-innar: „Að hann hefði reynzt sér
allt annað, en góður oddviti; hann hafi .sýnt af
sér óhlýðni, vankunnáttu, trassaskap, er hakað
hefði hreppnum tilfinnanlegan skaða, og jafnvel
farið með ósannindi11, og sýslufundargjörðir þess-
ar, með þannig löguðum ummælum, lét Lárus
H. Bjamason siðan prenta, enda þótt sýslufund-
argjörðir aldrei hefðu áður verið prentaðar í hans
embættistíð.
Út af þesBum ærumeiðandi ummælum höfð-
aði síra Helgi Arnason mál gegn Lárusi sýslu-
manni, eptir skipun biskupsins yfir Islandi, og
að fenginni gjafsókn, og var sýslumaður Halldór
Bjarnason á Patreksfirði skipaður setudómari í
því máli, og kvað hann, 21. janúar síðastl., upp
svo felldan dóm í máli þessu:
„Því dæmist rétt að vera:
Hin framan greindu meiðandi og móðgandi
ummæli um stefnandann, Helga prest Arnason,
eiga að vera dauð og ómerk.
Stefndi, sýslumaður Lárus H. Bjarnason, á
að greiöa 80 kr. sekt til landssjóðs, eða sæta
24 daga einföldu fangelsi, verði sektin eigi
greidd innan ákveðins tíma; svo á hann og að
greiða allan kostnað málsins að skaðlausu,
eins og málið eigi hefði verið gjafsóknarmál.
Dómi þessum her að fullnægja innan 15
daga frá lögbirtingu hans undir aðför að lög-
um“.
Sildveiðafélagið „Draupnir“.
Félag er ný stofnað í Reykjavík, er ætlar að
stunda síldveiðar með reknetum, og hefir það
þegar keypt sér skip til veiðanna, en ætlar að
fá æfðan mann frá Noregi til að standa fyrir
þeim.
Stofnendur félagsins eru skipstjórarnir Krist-
inn Magnússon, Geir Sigurdsson, Matthías Þórðar-
son, Jochum Þórðarson, og Þorst. Þorsteinsson í
Lindargötu, og er svo fyrir hugað, að hr. Jochum
Þórðarson hafi skipstjórnina á hendi.
j§ k ó 1 a r ö ð
við miðsvetrarpróf í Reykjamkur lœrða sköla 1904.
(Stjarna [*] á eptir nöfnum stöku pilta, þýð-
ir, að þeir piltar hafi, sakir veikinda, ekki lokið
prófi, og séu því settir neðstir. — Tala i svigum
á eptir nafninu, sýnir i krónutali námsstyrk þann,
er sá piltur hefír hlotið, og þó að eins fyrri hluta
styrksins, þar sem síðari hlutanum er ekki út
hlutað, fyr en í maí).
VI. bekkur.
1. Jón Kristjánsson Rvík.
2. Guðhrandur Björnsson, Miklabæ (50) umsjón-
armaður í bekknum.
3. Ólafur Þorsteinsson, Eyrarbakka (50).
4. Björn PálsBon, Rvík. (100).
5. Gunnlaugur Þorsteinsson, Vik í Mýrdal.
6. Oddur Hermannsson, Rvik. (75).
7. Bogi Benediktsson, Rvík (75).
8. Pétur Thoroddsen, Rvik.
9. Magnús Júlíusson, Klömbrum í Húnavatns-
sýslu.
10. Jóhann Gunnar Sigurðssou, Svarfhóli í Mikla-
holtshreppi (75).
11. Jón Kristjánsson, Víðidalstungu* (50).
12. Gunnar Sæmundsson, Skagafirði* (75), um-
sjónarmaður skólans.
V. bekkur.
1. Óiafur Lárusson, frá Selárdal.
2. Þórarinn Kristjánsson, Rvik.
3. Þorsteinn Briem, Álfgeirsvöllum i Skagafirði.
4. Ólafur Jóhannesson, Rvik. (50).
5. Brynjólfur Magnússon, Ljárskógum í Dala-
sýslu (75) umsjónarmaður í bekknum.
6. Ingvar Sigurðsson, Rvik (50).
7. Ólafur Óskar Lárusson, Rvík (25).
8. Baldur Sveinsson, Húsavík (50) umsjónarmaö-
ur úti við.
9. Páll Eggert Ólason, Breiðahólstað í Fljóts-
hlíð* (50).
IV. bekkur.
1. Guðjón Baldvinsson, Böggvistöðum í Svarf-
aðardal (100).
2. Árni Árnason, Skildinganesi (100).
3. Sigurður Lýðsson, Arnarfirði (75) umsjónarm.
í bekknum.
4. Sigurður Nordal, Rvík (75).
5. Magnús Gíslason, Búðum í Fáskrúðsfirði (25).
6. Björn Guðmundsson, Böðvarshólum í Húna-
vatnssýslu (50).
7. Jóhannes Jóhannesson, Rvík (25).
8. Björn Jósepsson, Vatnsleysu í Skagafirði (25).
9. Hafsteinn Pétursson, Sauðárkrók. (50).
10. Páil Sigurðsson, Vatnagarði í Garði (50).
11. Pétur Jónsson Rvík.
12. Sigurður Einarsson, Vatnsenda í Flóa (25).
13. Guðbrandur Jónsson Rvík.
14. Konráð Konráðsson, Rvík* (50).
15. Stefán Scheving Thorsteinsson, ísafirði.*
16. Magnús Stephensen, Rvík.*
III. bekkur.
1. Alexander Jóhannesson, Rvlk (50).
2. Ólafur Péturson, Hrólfsskála á Seltjarnarnesi,
3. Magnús Jónsson, Ríp í Skagafirði.
4. Asgeir Gunnlaugsson, Akranesi (50).
5. Árni B. P. Helgason, Ólafsvík.
6. Sveinn Valdimar Sveinsson, Rvík ö25!.
7. Jón Jónasson, Víghólstöðum í Dalasýslu (50).
8. Pétur Halldórsson, Rvík.
9. Einar Indriðason, Rvík.
10. Haraldur Jónasson, Rvík (25)
11. Sigfús Blöndal, Rvík*:
12. Steindór Bjöx-nsson, Gröf í Mosfellssveit (25)*,
umsjónarm. í bekknum.
II. bekkitr.
1. Ásmundur Guðmundsson, Reykholti í Borgar-
firði, umsjtmarm. i békknum.
2. Tryggvi Þórhallsson, Rvík.
3. Hjörtur Hjartarson, Rvík.
4. Jens Sigurðsson, Flatey.
5. Jónas Stephensen, Rvík.
6. Árni Gíslason, Vestmanneyjum.
7. Halldór Þorsteinsson, Þinghóli Mjóafirði.*
8. Einar Páll Jónsson (bónda á Háreksstöðum
í Norður-Múlasýslu Benjamínssonar); ný-
sveinn.*
I. bekkur.
1. Halldór Kristjánsson, Rvík, hr. nr. 1 í VI. b.
og nx'. 2 í V. h.
2. Kristján Ólafur Björnsson (kaupm. Guð-
mundssonar), ísafirði.
3. Símon Johnsen Þórðarson (tómthúsmanns
Guðmundssonar), Rvík.
4. Kjartan Guðmundsson (bónda Jónssonar frá
Hlíð undir Eyjafjöllum), Rvík, umsjónarm. í
bekknum.
5. Björnstjerne Bjöi'nsson (gullsmiðs Árnasonar)
ísafirði.
6. Haraldur Viggo Björnsson (-j- adjunks Jens-
sonar), Rvík.
7. Halldór Kristinsson (prests Danielssonar),
Útskálum.
8. Gísli Jónsson (ritstjóra Ólafssonar), Rvík.
9. Jón Halldórsson (hankagjaldkera Jónssonar),
Rvík, hr. nr. 8 i III. b.
10. Bjarni Snæhjörnsson (tómthúsmanns Jakobs-
sonar), Rvík.
11. Vigfús Ingvar Sigurðsson (hónda Jónssonar),
frá Kolsholti í Villingaholts hreppi.
12. Jón Þorvaldsson (verzlunarm. Sívertsens i
Skarðstöð), Rvík.
13. Marteinn Andrós Theodor Bartels (sonur H.
J. Bartels verzlunarm.), Rvík.*
I þessum bekk eru allir nýsveinar.
IWCannalÉL't. ‘26. febr. síðastl. and-
aðist í Reykjavík Maríe Ihomsen, ógiptur
kvennmaður, fædd 4. nóv. 1833, dóttir
T. H. Thomsen’s sál. verzlunarstjóra í
Reykjavík, og önnur hinna svo nefndu
Thomsens-systra, er búið hafa mjög lengi
í Reykjavík, tvær sér. — Hin systirin,