Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 25.11.1904, Blaðsíða 2
186
T3 j óe t (r. j: s v
XVIII., 47.
— Hann er 39 ára að aldri, en konu-
laus, síðan .Louíse, kona hans, stökk burt
með Griron kennara, fyrir nokkrum árum.
— Svo er að heyra, sem Louíse prins-
essa vilji nú gjarnan sættast aptur við
manu sinn, og hefir kvennþjóðin i Sax-
landi sent konungi allra-þegnsarnlegastar
bænaskrár þess efnis, að taka hana í sátt;
en konungur tekur þvárt fyrir, að slíkt
geti komið til nokkurra inála.
Þýzkur ríkisþingsmaður frá Magde-
burg, Albert Schmidt að nafni, flokkamað-
ur „socialista“ kastaði sér 16. okt. niður
fyrir framan járnbrautarlest, som kom
brunandi, og gekk eimlestin yfir hann,
og boið hann þegar bana. Talið er,
að hann hafi gert þetta í vitfirringu.
16. okt. fannst gamall kvennmaður í
Berlín, Elíse Wascher að nafni, mvrt í
rúmi sínu, í náttklæðum einum, rist á
kviðinn, með svipuðum hætti, er „Jakob
kviðskeri14 lék fyrir nokkrum árum. —
Eigi var rnönnum full-ljóst, hver morð-
ið hefði framið, þvi helzt lék grunur á
vitskertum bakara, Miilethaler að nafni,
er sloppið haf'ði þá ný skeð af vitfirringa-
spítala, og þekkt hafði kvennmann þenna
áður. — — —
Spanski skaginn. I Portugal urðu ráð-
herraskipti í síðasti. októbermánuði, og
heitir sá Luciano Castro, er nú stýrir þar
ráðaneyti.
f 17. okt. andaðist á Spáni prinsessan
María de las Mercades, 24 ára að aldri,
systir Alfonso konungs.
29. okt. stóð þjóðfundur í samfieyttar
36 kl.stundir á þingi Spánverja, og var
í meira lagi hávaðamikill. — Þingmenn
börðust þar með gönguprikum sínum, en
blekbyttur, og annað, sem lauslegt var,
flaug í loptinu, enda var umræðuefnið
það, að stjórnin hafði hafið rannsókn
gegn ýmsum þingmönnum, og mæltist
það tiltæki hennar all-víða mjög ílla.
Pjöldi blaða á Spáni krefst þess, að
Mauro-ráðaneytið sleppi völdum, eptir
þessi læti, sem á gengu á þinginu, en
Mauro sat þó enn fastur i sessi, er síðast
fréttist. — — —
ítalía. Þar fóru fram þingkosningar
í öndverðum nóv., og gengu þær mjög
stjórninni í vil.
Vesuvíus heldur enn áfram að gjósa,
og var all-mikið öskufall í borginni Nea-
pel 3. nóv. síðasti. — — —
Austurríki. All-miklar róstur urðu
mý skeð i borginni Innsbriick í Tyrol, er
italskur lagaskóli átti að taka þar til
starfa. — Þýzkum stúdentum þótti þjóð-
erni sinu misboðið með skólastofnun þess-
nri, og lenti í bardaga milli þeirra og
ítalskra stúdenta. — Stúdentar beittu
skammbyssum, og urðu ýmsir sárir, og
tveir hafa þegar iátizt úr sárum. Her-
lið varð að lokum að skakka leikinn, og
voru um 130 stúdentar teknir fastir.
Tvö verzlunarfélög urðu gjaldþrota í
síðastl. okt., og námu skuldir þeirra sam-
tals 4,300,000 krónum (austurískum). —
Balkanskaginn. Eitthvað er soldán að
myndast við að fuiinægja umbótakröfum
Pússa og Austurríkismanna, að þvi er
Makedoniu snertir, svo að þar er nú allt
nokkurn veginn friðsamlegt, sem stend-
ur, og hersveitir* soldáns að hverfa burt
þaðan.
Fjárhagur soldáns virðist þó enn, sem
fyr, i meira iagi bágborinn, og bera her-
menn sig ílla yfir því, að þeir fái ekki
mála sinn greiddan, og því var það, að
ein tyrkneska hersveirin, er var á heim-
leið úr Makedoníu ný skeð, tók það ráðs,
að hneppa fyrirliða sína í varðiiald, og
neita að sleppa þeim úr haldi, fyr en
málaféð væri greitt að fullu, og er mælt,
að soldán liafi þá boðið stórvezir sinum,
að reyna á einhvern hátt að ná í pen-
inga, til að fullnægja kröfum hemiann-
anna. — — —
Bússland. Fregnir úr Rússlandi eru
,mjög óijósar um þessar mundir, sem opt-
ar, þar sem stjórnin reynir að láta ekki
aðrar fregnir berast þaðan, en henni lika.
— Vist er þó, að mjög er þar víða róstu-
samt, einkum í héraðinu Kíew, þar sem
iýðurinn hefir víða ráðizt á hiis gyðinga,
og ýmsra stóreignamanna, og eytt, og
rænt, eptir föngum, og opt lent í bar-
daga við lögregluiiðið, og ýmsir hlotið
áverka.
A Póllandi virðist og viða all-mikil
ókyrrð, og 28. okt. lenti í bardaga milli
hermanna og landslýðsins í grennd við
Vola, og urðu margir sárir.
Fjöldi ungra manna flýr og land um
þessar mundir, til þess að verða ekki
reknir til slátrunar, austur á blóðvöilinn
í Asíu, og er það ekki láandi.
Aðfaranóttina 31. okt. kviknaði í húsi
í Pétursborg, þar sem verið var að halda
brúðkaup, og brunnu þar 11 menn inni.
Kólera gerir vart við sig hér og hvar
í löndum Rússa í Asíu, og er mælt, að
í borginni Tebris hafi dáið daglega 3—4
hundruð, og flýr fólk þvi þaðan í hóp-
um. — — —
Baudaríkin. Forsetakosningin fór fram
8. nóv., og voru sóttar af miklu kappi,
svo að mælt er, að yfir 14 milj. kjósenda
hafi greitt atkvæði, og hlaut Roosvelt,
forsetaefni „republikana“ yfirgnæfandi at-
kvæðafjölda, svo að talið er, að 325 kjör-
menn séu honum fylgjandi, en að Parker,
forsetaefni „demokrata“, séu að eins 151
kjörmaður fyigjandi.
Þegar úrslit þessi urðu kunn, sendi
Parker dómari þegar hraðskeiti til Roose-
velt’s forseta, og kvaðst samfagna hon-
um. — — —
Afríka. 22. okt. gekk voðalegt of-
veður yfir héraðið Ain Serfa í Algier,
er olli stórtjóni, og fórst þar fjöldi manna.
Egyptar eru að búa út leiðangur, um
2 þús. hermenn frá Sudan, sem eiga að
berja á mannætum í héraðinu Níamnian
í Mið-Afríku; en þar sem mannæturnar
kvað hafa um 'íh þfis. vopnaðra manna,
og hafa fengið byssur hjá belgiskum kaup-
mönnum, í skiptum fyrir fílabein, þá er
trúlegt, að þeir geti orðið nokkuð skeinu-
hættir, enda verður þeim góð björg úr
því, ef einhverjir falla, og þurfa þá ekki
ketskorti að kvíða. —
Thibet. Ekki hefir keisarinn í Kína
enn staðfest samning þann, er Younghus-
band gerði við Thibetinga, og er mælt,
að hann þori það ekki, þar sem sendi-
herrar Rússa Frakka og Þjóðverja mæli
eindregið á móti, telji Thibet vera óað-
skiljanlegan hluta Kínaveldis, er eigi tjái
að veita Bretum stik yfirráð yfir, sem
sámningurinn fer fram á.
Thíbetingar hafa og þegar lýst þvi
yfir, að þeir treystist engan veginn til
þess, að greiða fé það, er samningui'inn
til tók, svo fljótt, sem áskilið er, og ætla
þvi Bretar að hafa herlið í Chumbí-daln-
urn fyrst um sinn. — — —
Jarðskjálfti varð mikill á eyjunni Form-
osa í Kyrrahafi 6. nóv. siðastl.—Hrundi
þar fjöldi húsa, eða skemmdist, og 70—
80 rnenn biðu bana, en nokkrir meidd-
ust. —
J ólagjafir ráöhemins.
Danska dbi'.krossa hefir ráðherrann ný skeð
útvegað hr. Guðm. Magnússyni, læknaskólakonn-
ara, og inágisínum —Lárusi vot'um, dánirmaruii.
Var þess víst sízt vanþörfin, að reyna að dubba
ögn upp á „dánumanninnli, og það mun ráðherr-
ann hafa fundið.
En hvort. það er maklog meðferð á hr. Guðm.
Magnússyni, eða þykir mikil virðing fyrir hann
— ef virðing væri að krossa-glingri —, að vera
þannig óbeinl/nis settur á bekk með „dánu-
inanni11, telja líklega alL-margir vafasamtj
Alveg ósjálii'átt
minnumst vér gömlu ísiirzku bögunnar, er ort
var fyrir nokkrum árum, um óþokka, [e'' þá
dvaldi þar vestrá, og sagan sagði, að hýddur
hefði verið:
„Danska orðu’, ef eignast sá
Isafjai öar-hjassinn
eflaust hengja ætti þá
allra-helzt á r........“
Já, fylgdi nú dbr. krossunum sú náttúran,
að geta læknað gömul mein, á brjósti eða baki,
þá væru þeir þó óneitanlega til nokkurs nýtir.
En því er nú líklega ver, að það mun býsna
hæpið, að þeir jafnist á við „volta“-krossinn,
hvað þá heldur, að þeir græði baksárin betur.
Bókfregn.
Fjóla, úrvalssafn íslenzkra kvœða.
Útgefandi Hannes Þorsteinsson. Rvík 1904.
224 bls. 8A
I safni þessu eru nokkur ljóðmæli
eptir skáldin Bjarna Thorarensen, Svein-
björn Egilsson, Bölu-Hjálmar, Sigurð Breið-
fjörð, Jónas Hallgrímsson, Jón Thoroddsen,
Qrím Thomsen, Björn Hálldórsson, Jón
Þorleifsson, Magnús Qrímsson, Helga Háif-
dánarson, Ben. Qröndal, Pái Ólafsson, Gisla
Brynplfsson, Steingrím Thorsteinsson, Matt-
hías Jochumsson og Kristján Jónsson.
IJtgefandi hefir að eins tekið í safn
þetta ljóðmæli skálda þeirra, sem fædd
eru á árunum 1786—1842, en ráðgerir,
að gefa ef til viil síðar út sams konar
úrval af ljóðum hinna yngrí skálda vorra.
Það er mikið vandaverk, þegar um
útgáfu slíkra úrvalssafna ræðir, að velja
heppilega, og er hætt við, að all-skiptar
verði skoðanir manna um það, hvernig
útgefandinn hafi leyst það verk af hendi.
Mörgum fellur það óefað ílla, að út-
gefandinn sleppir algjörlega Birni Qunn-
lögssyni, höfundi „Njólu“, sem geymir
svo margar gull-fagrar hugmyndir, enda