Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.12.1904, Síða 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.12.1904, Síða 1
Verð árganqsing (minnst \ 62 arkir) 3 kr. 80 aur.; \ erlendis 4 kr. 50 aur., og í Ameríku <loll.: 1.50. Borgist fyrir júnímán- aáarlok. ÞJOÐVILJINN. -—. ÁTJÁNDI ÍR8AN8UE. =1 - - — =- Vppsögn skrifkg, ógild nema komin sé til útgef- anda fyrir 30. dag júní- mánaðar, og kaupandi samhliða uppsögninni borgi skuld sína fyrir blaðið. M 52. Bessastöðum, 29. des. 19 0 4. Ifna og ildavélar s e 1 u r pristjdn Jorgrímsson. Danska nýlendu-sýningin. Þ*að er nú vonandi, að svo sé komið, að ekkert verði úr dönsku nýlendu-sýn- ingunni, að því er Island snertir, og eiga íslenzkir námsmenn í Kaupmannahöfn miklar þakkir skilið fyrir það, hve rögg- samlega þeir snerust gegn tiltæki þessu, sem úefað hefði orðið íslenzku þjóðinni til vansæmdar. Auk greina þeirra, er ísl. stúdentar í Kaupmannahöfn hafa birt í ýmsum hér- lendum blöðum, hafa þeir og skorað á háskólakennarana, dr. Finn Jónsson og dr. Valty GuSmundsson, að segja sig úr dönsku sýningarnefndinni, og er vonandi, að þeim farist eigi ver, en ráðherranum, sem 17. des. síðastl. hefir tilkynnt aðal- forgöngukonu sýningarinnar, frú Emmu Gad, að hann segi sig úr nefndinni, og krafizt þess, að þessi úrsögn bans verði birt í dönskum blöðum. — Þetta er bet- ur seint séð, en ekki, af ráðherranum, og verður væntanlega til þess, að hann gæt- ir sín betur næst, ef einhverjum kynni að detta í hug, að vilja flagga með nafni hans i líku skyni. Enn fremur hefir og aðstoðar-nefnd- in í Reykjavík ritað aðal-sýningarnefnd- inni í KaupmanDahöfn um ýmisleg at- riði, er vakið hafa óánægju, og tjáir það undir svari hennar komið, hvaða afskipti hún geti haft af sýningunni. Veslings sýningarnefndin í Kaup- mannahöfn, er talið hefir fyrirtækinu á- gætlega borgið, er hún hafði fengið ráð- herrann, og háskólakennarana, í net sin, sér nú um seinan, að þeir drættirnir voru þó eigi svo mikils virði, sem í fyrstu sýndist. t Páll amtmaður Briein. Eíds og stuttlega var get.ið í síðasta nr. blaðs vors, andaðist Páll Briem, fyrr- um amtmaður, 17. des. síðastl. Páll Briem var fæddur 19. okt. 1866, og var því að eins frekra 48 ára, er hann andaðist. — Foreldrar hans voru: Eggert Briem, síðast sýslumaður í Skagafjarðar- sýslu, og kona hans Ingibjörg Eiríksdóttir, Sverrissonar, og voru þau tvíburar PáU amtmaður, og frú Elín, sem nú er gipt Stefáni verzlunarstjóra Jónssyni á Sauð- árkrók. — Páll kom i Reykjavíkur lærða skóla 1873, og settist i annan bekk, og lauk stúdentsprófi, með fyrstu einkunn, 1878, sigldi siðan til háskólans, og tók lögfræðispróf vorið 1883, með annari eink- unn, en gekk undir próf aptur ári síðar, og hlaut þá fyrstu einkunD. — Árið 1886 veitti alþingi honum nokkurn fjárstyrk, til þess að afla sér fróðleiks í ísl. lögum, og kynnti hann sér þá einkum ísl. rétt- arsögu, og varð því all-fróður í þeirri grein, svo sem timaritið „Lögfræðingur“, er hann síðar gaf út nokkur ár, bervott um. Haustið 1886 fékk hann veitingu fyr- ir Dalasýslu, en sleppti því embætti vorið eptir, og var yfirdómsmálfærslumaður í Roykjavik, unz honum var veitt Rangár- vallasýsla 1890. — Reisti hann þar bú að Árbæ í Holtum, og gegndi embætti þessu, unz honum var veitt amtmanns- embættið í Norður- og austur-amtinu haustið 1894, og gegndi hann þvi til sept- emberloka síðastl., er embættið var lagt niður, og flutti þá til Reykjavíkur í síð- astl. okt., og varð einn af bankastjórum íslandsbanka, sem kunnugt er. Páll Briem sat á alþingi, sem þing- maður Snæfellinga, á þrem þingum, 1887, ’89 og ’91. — Hann var þá ungur og á- hugamikill, og lét því talsvert á sér bera á tveim fyrri þingunum, og þó einkum á þÍDginu 1889, er hann, ásamt hr. Jóni ólafssyni, gerðist forgöngumaður „miðl- unarinnar“; on er þjóðin reis öndverð gegn þeirri stefnu, svo að „miðlunin11 var kveðin niður á alþingi 1891, dró Páll sig i hlé frá þingstörfum, og leitaði eigi þingkosningar að nýju, fyr en hann bauð sig fram við kosningarnar í Húnavatns- sýslu 1902 og 1903, sem kunnugt er, og náði loks þingkosningu á Akureyri 10. sept. síðastl En þó að „miðlunin frá ’89u hlyti all harðan dóm í bardaga-hitanum um þær mundir, og aflaði Páli sáluga þá fremur stjórnar-, en þjóðar-hylli, í svip, og greiddi honum, eins og gengur, veg- inn til æðri valda, þá er enginn vafi á því, að fyrir honum vakti það eitt, að beina stjórnarskrármálinu í sáttvænlegra horf, en alls ekki hitt, að sundra kröpt- um þjóðarinnar, þó að sá yrði að vísu árangurinn, þar sem enginn kraptur var í gömlu endurskoðunar-baréttunni upp frá þvi, unz „tillögu-þingiðu 1896 hvarf frá henni algjörlega. Eptir að Páll Briem hætti þingmennsku, tók hann að vísu fremur lítinn þátt í al- mennum málum, en ritaði þó á seinni árum ýmsar greinar, er lutu að alþýðu- menntun, landbúnaði o. fl. — Hann var og öflugur hvatamaður þess, að búnaðar- félagi Suðuramtsins var breytt í Land- búnaðarfélagið, oins og hann líka studdi að stofnun Ræktunarfélags Norðurlands, og hafði, sem amtmaður, talsverð afskipti af fjárkláðamálinu o. fl. Hann var maður ör i lund, kappgjarn nokkuð, og framgjarn, og gætti því eigi jafnan stillingar, sem skyldi, ef hann komst i hita, og fékk eigi sínu fram komið, eða þótti ráð sin metin minna, en hann vildi. Enda þótt P. Br. teldi sig utan flokka í politík síðustu árin, var hugur hans þó eindreginn í flokki núverandi stjórnar- andstæðinga, og þar sem sá flokkur er, sem stendur, all-fámennur, þá er fráfall hans all-tilfinnanlegt fyrir þann flokkinn sérstaklega, sem og fyrir landið i heild sinni; og það því fremur, sem ýmsir væntu mikils af honum, er hann kæmi á þing, sakir alkunns áhuga hans á ýmsum lands- málum, þekkingar og atgjörfis, enda mörg- um betur settur, til að geta haft gagnleg áhrif, sakir embættistignar — er enn veg- ur mikið á landi voru —, frændafla, o. fl. Það eru því óefað margar vonir til grafar gengnar við fráfall hans. P. Br. var fremur heilsutæpur seinni hluta æfinnar, og þar sem hann var geð- rikur, og tilfinninganæmur, þá er eigi ó- sennilegt, að árásir þær, er hann sætti síðustu árin, af hálfu „heimastjórnar“- forkólfanna — er hvorki spöruðu fé, nó« önnur meðul, til að varna honum þing-" mennsku, þar sem þeir töldu hann mundu verða valdafíkn þeirra hættulegan keppi- naut — kunni að hafa haft óheppileg á- hrif á heilsufar hans. Páll sálugi var tvíkvæntur. — Með fyrri konu sinni, Kristínu Guðmundsdótt- ur frá Auðnum, eignaðist hann einn son, er Kristinn heitir. — í síðara skiptið kvæntist hann Alfheiði Helgadóttur, lectors Hálfdánarsonar, árið 1896, og lifir hún hann, ásamt 6 börnum þeirra hjóna. Hann var hinn ástríkasti eiginmaður, og faðir, og má því geta nærri, að sökn- uður ástvinanna sé þungbær, ekki sízt þar 8ein tengdamóðir hans, frú Þórhildur Tómasdóttir, hefir á rúmu ári átt tveim sonum, og einni dóttur, á bak að sjá. Reetor B. M. Olsen og „íþaka“. Háttvirti herra ritstjóri! Viljið þér gjöra svo vel, að taka grein þessa í blað yðar? í 28. tölublaði ,.Þjóðólfs“ þ. á., stendur grein með fyrirsögninni: „íþöku“-afmæli. Ávarp til rectors“. í grein þessari er þess getið, að 2 menn úr stjórnarnefnd „íþöku“ hafi afhent þáverandi rektor latínuskólans, B. M. Olsen, þakkarávarp, á 25 ára afmæli félagsins. Ávarpið or lof eitt um Olsen og afskipti hans af „lþöku“, og telur ritstjórinn það piltum til sæmdar, svo sem hans var von og vísa. Þetta finnum vér ástæðu til að leiðrétta. Sannleikurinn er sá, að Olsen var afhent ávarp þetta að félagsmönnum fornspurð-

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.