Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 17.02.1906, Side 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 17.02.1906, Side 1
Verð árganqsins (minnst 60 arkir) 3 kr. 50 aur.; j rlendis 4 kr. 50 aur., og Ameríku doll.: 1.50. Borgist fyrir júnimán- aðarlok. ÞJOÐVILJINN. —.1=- Tottugasti Argakgur. =| =— -:,v^|= RITST.T ÓRl: SKÚLI T H 0 ItCDDSEN. =| - - | Vppsögn skrifieq, óqild j nema komin sé til útgej- \anda fyrir 30. dag júní- mánaðar, og kaupandi samhliða uppsögninni borgi skuld sína fyrir blaðið. M 8. BkSSASTÖÐUM, 17. FEBR. 19 0 6 Bráðnau^synleg stjórnarskrárbreyting. Eptir alþm. Signrð Sbefánsson. Eins og knnnugt er, hótaði Albertí alþingi 1902 því,að samþykkja ekki stjórn- arskrárfrumvarp það, ei hann lagði fyrir þingið, nema því að eins, að þingið sam- þykkti það öldungis óbreytt. Því miður lét þmgið blekkjast af þessari hrokalegu hótun hins danska ráð- herra, og samþykkti frumvarp þetta ó- breytt, enda þótti þeim, er mestu réðu á þvi þingi, sem bætt væri úr flestum göll- um stjórnarskrár vorrar, með heimflutn- ingi ráðherrans. — En það var vissulega brýn þörf á fleiri breytingum á stjórnarskránni en þá voru samþykktar, má meðal þeirra einkum nefna afnám konungskosninganna, þinghald á hverju ári og stytting kjör- tímans. Frá því hin síðnri stjórnarbótabarátta var hafin af Islendingum, hafði fækkun, eða algert afnám konungkjörinna þing- manna jafnan verið á dagskrá þingsins, og á báðum hinum endurskoðuðu stjórn- arskrám, er þingið samþykkti tilfullnað- ar 1886 og 1894, voru konungskosning- arnar afnumdar. Islendingum var því, þá þegar fullljóst, að þessi ákvæði áttu alls ekki að standa lengnr í stjórnar lögum vorum. Eptir að alþingi yfirgaf endurskoðun- arstefnuna var ekki hreift við þessu á- kvæði, ekki af því, að allur þorri þings °g þjóðar teldi það ekki nauðsynlegt, heldur at þvt að þau atriði voru að eins tekin upp i stjórnarskrárbreytinguna, er víst þótti, að danska stjórnin gengi að. Af þessu er augljóst, að Islendingar hafa fyrir iöngu viljað losast við kon- ongskosningarnar, og hefðu þeir mátt ráða, myndu þær að öllum líkindum aldrei liafa staðið í stjórnarskrá vorri. — Þessar kosningar eru fylgja frá ein- veldistímunum, er dönsku stjórninni þótti alþingi Isleridinga ekki trúandi fyrir af- greiðslu þingmálanna, nema hún skipaði næstum */4 allra þingsætannu þeim mönn- um, er hún treysti bezt til fylgisemi við sig. Til þessarar þingmennsku, gat danska stjórnin aldrei notað til lengdar, aðra en þá menn. er fylgdu henni, gegnum þykt og þunnt, og þessvegna varð þessi sveit liennar harðsnuinn mótstöðuflokkur þjóð- arinnar, í sjálfstjornarbaráttu heunar. Það or engin ástæða til að ætla, að heimastjórn vor færi eptir öðru í vali sinu á þessum þitmmönnum, en danska stjórnin fór áðnr, það er svo eðlilegt, að hún noti þenrian rétt, ti! að trygi.qa sér f.istnn flokk á þinginu. er hún m treysta á liverju sem gengur. egi Meðan þessi kosninga ákva'ði standa i stjórnarskrá vorri, hefur þvi stjórn vor 6 manna sveit á þingi, er telja má víst, að jafnan standi hennar megin, í öllum stærri ágreiningsmálum milli þings og sijórnar. Stjórniri hefur með þessu sexfaldann kosningarrétt á við hvern annan kjós- anda í iandinu. Ef vér á annað borð treystum oss sjálfir, til að ráða þjóðmálum vorum, þá er það hin herfilegasta mótsögn að láta I stjórnina hafa þennan rétt. Hann er tvíeggjað sverð í höndum stjórnarinnar, og þessum brandi getur hún brugðið þjóðinni til ómetanlegs tjóns. Þetta verður enn ijósara, þegar þess er gætt, hversu fámennt aiþingi er. Stjórn in þarf ekki nema 14 til 15 þjóðkjörna þingmenn af 34, auk hinna 6 konung- kjörriu, til þess að geta ráðið lögum og lofum á alþingi. Með einum 15 þjóðfulltrúum, auk kon- ungkjörna liðsins, getur ráðgjafinn talið sig hafa meiri hluta þingsins með sér, þótt allir hinir þjóðfulltrúarnir séu honum andvigir. Það hefur mikið verið talað um þing- ræði það, sem hér væri komið á fótmeð heimastjórninni. Það er von, að mikið sé af því gum- að; þær eru svo staðgóðar tryggingarnar þær arna fyrir því, eða hitt þó heldur. Meðan konungskosningarnar haldast, getur harðdræg og óþjóðlynd stjórn setið | árum saman yfir hlut þjóðarinnar, hvað sem meiri hluta fulitrúanna segir. . Og þet.ta er því hægra fyrir i tjórnina, • sem þjóðfélagið er minna og því auð- veldara fyrir hana að beita áhrifum sin- um, bæði á kjósendur og fulltrúa, meðan ; pólitískum þroska vorum er ekki lengra komið, en enn þá er, þá má meira en lítið vera bogið við þá stjórn, sem ekki getur aflað sér 14- 15 atkvæða á þingi auk hinua konungkjörnu. Hættan, sem af þessu stafar fyrir þing- ræði vort, er engu minni fyri • það þótt stórnin sé innlend, heldur miklu meiri Hún var ekki útlend apturhaldsstjórn in i Danmörku, sem þing og þjóð voru að glíma við i 30 ár, og sat ár eptir ár, í trússi við meiri hluta þjóðfulltrúanna. Auðvit.að geta engin stjórnarlög girt fyrir ofriki og yfirgang af stjórnarinnar hálfu, en hitt er engu að síður hinn mesti hégómi, að vera að tala um lögiryggt j þingræði i landi. þar sem stjórnarlögin | pjálf leggja, stjórinnni hárbeitt vopn í hend- j ur, gegn þingi og þjóð. En það gjöra stjórnarlög vor, moðan stjórnin gttur skipað næstrnn einn sjöita part allra þingu anna. Þá eru hinur breytingarnar, þing á hverju ari, og styttiug alþingiskjörtimans. Almennur áhugi á landsrnálum er því miður of litill hjá þjóð vorri. 8á er marg- ur kjósandinn, sem litlu lætur sig skipta hverju fram vindur í stjórn og löggjöf landsins, endahamlar strjálbyggðin mennt- unarskorturinn, fátæktin og þar af leið- andi sifeld barátta fyrir daglegum þörf- um, alt of mörgum frá því að skipta sér nokkra vitund af þjóðmálum. Þetta þarf að breytast. Allt sem miðar til þess að vekja áhuga þjóðarinn- ar á velferðarmálum sínum og glæða hjá henni þá ábyrgð, er hún ber á þvi, að stjórn hennar og löggjöf fari vel úr hendi, er nauðsyn að efla og styðja á allar lundir. Hvortveggi þessi brejding miðar að þessu. Alþingi og alþingiskosningarnar, eru ágæt-ur pólitískur skóli fyrir þjóðina. Þetta skildu forfeður vorir, og víluðu þvi ekki fyrir sér að keyja alþingi ár- lega, enda má telja víst, að frá alþingi hafi á þjóðveldistimanum, runnið andlegir straumar, íslenzku þjóðerni og þjóðmeQn- ingu til stórmikillar blessunar. Það er alkunnugt, að þau árin, sem alþingi er háð, er þjóðmálum vorum vcitt töluvert meiri athygli af kjósendum, en endranær. Störf þingsins vekja áhuga þjóðarinnar og hún fylgir málum sínum aldrei með öðrum eins áhuga og athygli, eins og meðan fulltrúar hennar ríkja á rökstólum um þau á alþingi. Þingárin með þingmálafundunum, þingfréttunum og öðrum þessháttar nýj- ungum, eru þvi þau árin, sem vissulega ber mest á pólitisku lifi hjá þjóð vorri. En þegar svo nokkuð líður frá þinglok- um dettur vissulega allt í dúnalogn, sama deyfðar og áhugaleysis mókið færist apt- ur yfir kjósendurna, á hinurn langa tima milli þiughaldanna gleymist margt það er bæði snortir framkomu þingmannanna og meðferð og úrslit þingmálanna, og kjósendur fylgjast þannig miklu vermeð Þetta myndi breytast. mjög til bat.n- aðar með árlegu þinghaldi, með því gæf- ist landsmönnum miklu betra færi á að fylgjastmeð öllum helztu þjóðmálum, fram- koma þingmannayrði betur athuguð og veg- in á vog almennings álitsins, erfjörgaðist ! af hinum tíðu þinghöldum. (Niðurlag). I trtlöntíl. Frá útlöndum hufa Marconi-loptskeyli flutt þessi tíðindi; Frakkland. Framkvæmd laganna um skilriað rikis og kirkju hefir vakið megna rnótspyrnu i Faris, og viðar áFrakklandi, sérstaklega fyrirmælin um útbúnað kirkn-

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.