Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.04.1907, Page 2
74
Þjóðviljinn.
Thorefélagið hélt aðalfund sinn í dag.
Ágóðinn vex. Stjórninni var veitt leyfi
til að haekka höfuðstólinn upp ieinarail-
jón og bæta við sig, ef þörf gerðist, ein-
um meðstjórnanda, er væri Islendingur.
Gunnar Sæmundsson.
Dauðion er opt velkominn gömlum
mönnum. sem hafa lokið æfistarfi sinu og
eru orðnir saddir lífdaga. Þeirra er sakn-
að, en sorgin er ekki beizk. En dauð-
inn er enginn aufúsugestur ungum mönn-
um á blómaaldri, sem eiga mest staif sitt
óunnið og ungar vonir í hverju spori.
Og vinum þeirra og vaudamönnum verð-
ur röknnðurinn sár.
Marga tekur það. sárt, að öunnar Sæ-
mundsson varð að deyja svona ungur.
Því að hann var mannsefni og bezti dreng-
ur. Hann var friður í andliti, ennið hátt
og vel lagað, augnn blá og snör, hárið
ijósjarpt og yfirliturinn bjartur. Hann
var fremur smár vexti, en hvatlegur á
fæti og vel á sig korainn. Hann var
glímumaður góður og tamdi sér ýmsan
fimleik, meðau hann var heill heilsu. Hann
var svo harður og skaptrau9tur, að hann
brá sér ekki við sár eða bana.
Hann var og atgerfismaður að öðru
leyti. Þó var hann ekki námsmaður meira
en í góðu meðallag'. En söngmaður var
hann góður og söngelskur. Hann lagði
mjög mikinn hug á þá list og hneigðist
mjög að söngskáldskap. Hafði hann gert
nokkur lög og er eitt þeirra prentað.
Sungu skólapiltar það við útför Björns
heitins Jenssonar. En hin fegurstu, óortu
lögin fóru með honum i gröfina. Grunn-
ar heitinn var frjálslyndur og góður land-
varnarmaður.
Að ýmsu var líkt á komið með þeim
Jóhanni Gunnari Sigurðssyni. Báðir blá-
fátækir, báðir efnismenn og góðir dreng-
ir, báðir skáld, annar á söng, hinn á Ijóð.
Og báðir tóku um sama leyti sjúkdóm
þann, sem dró þá til dauð?. En það var
tæring.
Mér er mikil eptirsjá í báðum.
Gunnar heitinn lét eptir eina af von-
um sinuro, kornungan son, en nú hefir
saroa mein orðið honum að bana. Og
vonir hins unga manns eru nú aldauða.
Hann var fæddur 1878, úlskrifaðist
úr skóla 1904 og var nú síðast við Dám
í preslaskólanum. HanD var kvæntur El-
ízabetu Tómasdóttur prests á Yöllum í
Svarfaðardal. Hann lézt 3. apríl 1907,
en barnið 22. s. m.
Bjarni Jónsson
frá Vogi.
...........•
lánamálið.
„Hver vill banna fjalli frá.
iljóti rás til sjávar hvetja?
Veg það fann, sem manngi má
móti neinar skorður setja“.
Slíka fásinnu hafa þeir ætlað sér, sem
hafa reynt að stöðva þann straum hugs-
ana og kennda. sem ber hinn íslenzka
fána, í sigurför, landshornanna milli. En
raun gefur vitni um að straumurinn svell-
ur því rneir, sem þeir reyna meir að
stífla hann.
Ekki þarf annað en að sjá hinn nýja
fána vorn. Það er öllum auðsætt, að hann
er sigurfáni.
„Hver vill skilja flóð við flóð,
farveg einn ef hitta taman, :
j og skilja ;vilja blóð við blóð,
sem blæðir tveimur æðum samaD?“
Þess freista þeir menn, sem reyna að |
vekja úlfúð og deilur um fánann. En \
það er þeim um megn, sem bolur fer.
Hér renna allar viljans lindir saman í
eina straumþunga móðu.
Þess mun nú skammt að bíða, að eng- j
ÍDn þori að snúast i móti sifjurfána Is-
lendinga.
Auk hinna mörgu fundargjörða, sem
j áður hafa verið birtar, koma hér fjórar
| nýjar:
Á almennum sveitarfundi í Sveinsstaða-
[ hreppi 6. þ. m. var borið upp og rætt um bréf
j frá „Ungmennafélagi Akureyrar“ dags. 26. jan.
þ. á., um fánamálið, og var, eptir nokkrar um-
ræður, samþykkt með öllum atkvæðum, að
styðja tillögu Studentafélagsins í fánamálinu.
Miðhúsum 8. april 1907.
Halldór Pálsson,
foddviti).
Til
Stúdentafélagsins. Reykjavík.
Ár 1907, þann 16. d. marzm. var almenn- ■
ur bændafundur haldinn i þinghúsi Haga-
neshrepps, a£ fjölda bænda úr HoItsogHaga-
neshreppum. Fundarstjóri var kosinn: Þor-
steinn sýslunefndarmaður í Vík og skrifari:
Guðm. Davíðsson á Hi aunum.
Var þá tekið fyrir:
2. Fánamálið: Bréf frá „Ungmennafélaginu11 á
Akureyri, um fána íslands, upplesið. Eptir
nokkrar umræður var samþykkt þessi tillaga,
með flest öllum atkvæðum — einir tveir gáfu
atkvæði, hvorki með tillögunni, nó móti
henni —:
Fundurinn samþykkir, að svo framarlega,
sem nokkur islenzkur fáni fái lagaheimild til
notkunar hér á landi, þá verði það sá fáni,
sem „Studentafélagið11 i Reykjavík hefir gjört
að uppástungu sinni.
Fundargjörð lesin og samþykkt.
Þ. Þorsteinsson (Tundarstjóriý.
Gwðm. Davíðs8on (skrifarU
Réttan útdrátt úr fundarbókinni staðfestir
Hraunum 8. apríl 1907.
Guðm. Davíðsson.
Keldum 4. apríl 1907.
Við undirskrifuð, hreppsnefndin í Fellshr.,
héldum fund að Felli, 15. marz, eptir beiðni
„Ungmennafélags Akureyrar11, og mættu allir
bændur, til að ræða um fánamálið, og varð f'und-
urinn eindrægur með að fá sérskilinn fána.
Fellirsig beztviðStudentaféIags-fánann,af þeim,
er voru til sýnis á fundinum, og samþykktu
hann í einu hljóði.
Hreppsnefndin í Fellshr.
Til
Stúdentafélagsins. R.vík.
Mánudaginn 8. apríl 1907 var* almennur
sveitarfundur baldinn fyrir Miðdalahrepp og
kom þar ásamt með öðru fleira til umræðu:
XXI., 19.
4. Fánamálið. Samþykkt var með 12 atkvæðum
gegn 8, að landið hefði sérstakt ílagg, en að
löggjafarvald landsins ráði forminu á fánanum.
Róttan útdrátt staðfestir
Kvennabrekku 10. aprll 1907.
Jóhannes L. L. Jólumnesson
oddviti og fundarstjóri.
Til
Stúdentafélagsins í Reyajavík.
Ungmennafél. Akureyrar fær hvarvetna
það svar, að menn aðhyllist tillögu stud-
entafélagsins. Það er því auðsætt, að sá
fáni hefir alþjóðar hylli. Eg tel víst, að
hann blakti á hverri stöng um land allt
hinn 17. júni, afmælisdag Jóns Sigurðs-
sonar.
Miðdala fundarins verður síðar gotið
að nokkru, því að hann er aflmælir stjórn-
sinnans þar.
^tórkostlegt slgs.
Yfir 20 manns farast.
Areiðanlegt er, því miður, talið, að fiski-
skipið „Georg“ hafi farizt með allri skips-
höfn, í skírdagsrokinu 28. f. m., fýrir
sunnan land.
„Georg“ var eign Þorsteins kaupmanns
Þorsteinssonar í Bakkabúð, í Reykjavík,
og var að allra dómi eitt hið sterkasta
og vandaðasta skip við Eaxaflóa.
Með skipinu hafa farizt 21 hinna nýt-
ustu drengja. Þeir voru þessir:
1. Stefán Daníelsson skipstjóri, úr Rvík,
36 ára.
2. Sigmundur Sigmundsson úr Rvík,stýri-
maður, 25 ára.
Þessir voru hásetar:
3. Bjarni Asmundsson frá Brekkulæk (í
Húnav.s.), 22 ára.
4. Bjarni Sigurgeirsson frá Fögrubrekku,
18 ára.
5. Einar Guðmundsson frá Brú í Stokks-
eyrarhr., 26 ára.
6. Gestur Sv. Sveinsson úr Rvík, 27 ára.
7. Höskuldur Jóakimsson frá Selfossi, 25
ára.
8. Guðjón bróðir hanp, frá Selfossi, 20
ára.
9. Guðm. Danielsson 38 ára, og
10. Jón, bræður skipstjóra, 30 ára.
11. Jón Guðmundsson úr Rvík, 28 ára.
12. Þorsteinn Pétursson úr Rvik, 33 ára.
13. Magnús Ingvarsson úr Rvik, 34 ára.
14. Vilhjálmur Guðmundsson af Seltjarn-
arnesi, 39 ára.
15. Þórarinn Guðmundsson úr Rvik, 58
ára.
16. Guðmundur Steinsson úr Rvik, 29 ára.
17. Ólafur Jónsson úr Rvík, 43 ára.
18. Þorvarður Danielsson úr Rvík, 46 ára.
19. Magnús Magnússon, Miðfirði, 32 ára.
20. GuðDÍGuðmundsson frá JaðriíÞykkva-
bæ, 24 ára.
21. Jakob Þorsteinsson úr Rvik, 24 ára.