Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 20.11.1907, Page 2
210
Þ„’CÐViI.J.>N
Neðanmáls’hefir síra J. H. látið prenta
fróðlegar skýringar-greinar,að því er 9nert-
ir menn þá, sem í bréfunum er getið um.
Fremst í bókinni er andlitsmynd Töm-
asar heitins Sxmundssonar gerð eptir mynd
Bissen’s á minnisvarðanum á leiði Tom-
asar, í kirkjugarðinum á Breiðabólsstað í
Fljótshlið.
Kvenuaskólinn í Reykjavík. — 1874—
1906. — Rvík 1907. — 46 bls. 8vo.
í riti þessu er skýrt frá stofnun kvenna-
ekólans í Reykjavík haustið 1874, og starfi
hans til haustsins 1906, er frú Tliora Mel-
sted hætti forstöðu skólans, eptir 32 ára
etarf.
Eins og kunnugt er, var kvennaskól-
inn í Reykjavík fyrsti kvennaskólinn hór
á landi, og var frú Thora Melsted, og
maður hennar, PáU Mélsted, sagnfræðing- i
ur, fyrstu hvatamenn þess þarfa fyrir-
tækis.
Vakti Páll Melsted máls á nauðsyn
kvennaskóla í blöðunum, eptir samráði
við konu sína, og síðar kvaddi frú Thora
Melsted ýmsar heldri konur í Reykjavík
til fundar, sem haldinn var á heimili
hennar 12. marz 1871. — Var síðan efnt
til 9amskota, bæði hér á landi, og erlend-
is, og loks tók kvennaskólinn til starfa
þjóðhátíðarárið.
Hefir frú Thora Melsted síðan veitt skól-
annm forstöðu, með stökum dugnaði og
notið almenningshylli, og virðingar náms-
meyja, — og annara, sem starfi hennar
kynntust — unz hún hætti forstöðunni
haustið 1906, komin hátt á 83. árið.
I ritinu eru tvær myndir af frú TItoru
Melsted, önnur tekin 1870, en hin 1907.
Ritsímaskeyti
til „Þjóðv.u
Kaupmannahöfn 14. nóv. ’07.
Morð og sjálfsmorð í Khöfn.
Sofus Basmussen, leiðtogi stjórnleys-
ingja, og ritstjóri stjórnleysingjablaðsins
„Skorpionen*4, skaut i gær lögregluþjón,
er átti að sækja hann, til að afplána hegn-
ingu, og skaut siðan sjálfan sig til bana.
Þing Rússa.
Rússneska þingið var sett í dag í Pét-
ursborg, með mikilli viðhöfn. — Á þingi
eru nú 195 bægrimenn, 128 miðlunar-
uuarraenn, 41 af kadet-flokknum, 28
vinstrimenn, 15 Pólverjar, og 6 Mahom-
medstrúarmenn.
(Að þing Rússa er nú mjög fjölskipað
hægrimönnum, stafar af því, að Nicolaj
keisari breytti kosningalögum, og kjör-
dæmaskipun, upp á sitt eindæmi, og er
mjög hætt við, að þettatiltæki rússiiesku
stjórnarinnar ýti mjög undir byltinga-
m»nn á Rússlandi, og leiði til ílls eins).
Þýzku keisarahjónin
eru í kynnisför í Lundúnutr.
Ólöghír vinsala.
Fyrir ólöglega vínsölu var brytinn á gufu-
skipinu „PervieM 28. okt. síðastl. sektaður um
250 kr. á Eskifiiði.
Verksmiðjuhús Akureyri. ■“*_ _______
A Akureyri hefir á síðastl. sumri verið reist
stórt verksraiðjufélagshás, Jogl hafa þar þegar
verið settar upp ýmsar vélar, en þó ekki gert
ráð fyrir, að klæðagjörð byrji þar, fyr en líður
að jólum.
Húsið er úr steinsteypu.
Prestkosning.
Cand. theol. Haraldur Þórarinnson hefir verið
kosinn prestur að Hofteigi i Jökuldal.
Verftlaun úr sjðði Christjans IX.
hafa hlotið: Helgi bóndi Þórarinsson á Þykkva-
bæ í Landbroti og dbrm. Jón krnason l Þor-
lákshöfn.
Sauðijárrœktarbú
hafa í haust verið stofnuð: á Tindi í Stranda-
sýslu, og að Hreiðarstöðum í Fljótsdal.
Búnaðarféiag íslands veitir báðum búunum
nokkurn styrk, og^enn'fremur fær hið fyrnefnda
100 kr. úr sýslusjóði Strandasýslu, og hið síðar-
nefnda 500 kr. úr sýslusjóðum Múlasýslna.
„Æringi“
er nafnið á gamanblaði, með skrýtlum og
fyndnum tilsvörum, sem á að fylgja blaðinu
„Huginn“, og kemur út um áramótin næstu.
Akureyrarbúar
jafna í haust niður 8500 kr., auk þess sem
þarf til vanalegra bæjarþarfa, og stafar það af
konungskomunni siðastl. sumar.
Óveitt prestakall.
Staður í Steingrímsfirði er auglýstur til um-
sóknar, og umsóknarfrestur til 16. jan. 1908. —
Brauðið er metið 1313 kr. 61 e. — Eptirlaun
prestsekkjunnar greiðist væntanlega úr landsjóði.
Slys.
1. nóv. viidi það slys til i Bolungarvíkurverzl-
unarstað, að maður festist með annan fótinn í
mótorvél, og muldist fóturinn, svo að hann var
tekinn af honum.
Maður þessi hét Halldór Jónsson, Jóhannes-
sonar, í Skálavík vtri.
IVlannalát.
8. okt. þ. á. andaðist í sjúkrahúsinu á
Akureyri Skapti Jóhannsson, gagnfræðing-
ur í Litlagerði í Þingeyjarsýslu, og var
banameinið krabbamein í maganuin. —
Hann var kvæntur Bergljótu Sigurðardótt-
ur, fósturdóttur Outt. alþm. Yigfussonar,
og lifir hún hann, ásamt 7 börnum þeirra
hjóna. — —
I s. m. andaðist kxni Stefánsson á Hræ-
rekslæk í Hróarstungu í Norður-Múlasýslu,
gamall maður, og fyrrum merkur bóndi.
24. sept. þ. á. andaðist í Kaupmanna-
höfn, eptir margra ára legu, Jón kaup-
maður Magnússon, verzlunareigandi á Eski-
firði. — Hann var sonur Magnúsar pre9ts
Jönssonar á Grenjaðarstað, en kvæntur
Guðrúnu, systur Asgeirs G. Asgeirssonar
etatsráðs. — Þau eiga tvo syni á lifi, sem
báðir eru upp komnir.
f Aðfaranóttina 16. nóv. þ. á. and-
aðist í Reykjavik ekkjufrú Maren Ragn-
heiður Friðrilca Lárusdóttir, ekkja Jóhann-
esat Guðmundssonar, sýslumanns í Mýra-
sýslu (f 1869). Hún var nær áttræð, og
var einka-barn Lárnsar sýslumanns Thor-
arensen’s i Enni, Stefánssonar amtm. Þór-
arinsronar, og konu hans, Elínar Jakobs-
dóttur Havsteen.
Eptir lát manrs sins, flutti Maren
sálnga til Reykjavíkur, til þe99 að geta
XXI., 53.
mannað börn sín sem bezt, og náðu þessi
börn þeirra hjóna fullorðins-aldri: Jóliann-
es, sýslumaður og bæjarfógeti á Seyðis-
firði, Ellert, vélastjóri í Ólafsdal, síra Lár-
us, aðstoðarprestur á Sauðanesi (•)■ 1888),
Anna, gipt dr. Valtý Guðmundssyni (t
1903), Sigríður, gipt Kjartani prófasti
Hel'/asyni í Hruna, og Katrín, ógipt, sem
dvalið hefir hjá tnóðnr sinni.
Frú Maran sáluga var gæðakona og
margt vel gefið.
— - . .. —
Bessastaðir 20. nóv. 1907.
Tíðarfarið stormasamt, og ýmist rigningar eða
kafaldsjel.
Skíðafélag, er r.efnist „Afram“, er nýlega
stofnað í Reykjavik.
Hálsbólga hefir að undanförnu verið að stinga
sér niður i Reykjavik.
„Laura lagði af stað til útlanda 10. þ. m..
og með henni raargir farþegjar.
j Mislingar eru nú í rénun í Reykjavík, en
| „Lögrétt,aM telur þó líklegt, að þeir muni eigi
, um garð gengnir, fyr en um jól. Margir, sem
mislingana hafa haft, eru veikir af ýmsum fylgi-
kvillum (lungnabólgu, bólgu í augum og eyr-
um o. fl.j
Auk zinks, og gulls er áður hefir fundizt, við
boranirnar í Vatnsmýrinni í Reykjavík, sbr. 50.
og 51.—52. nr. „Þjóðv11., lie.fi- að nýju fundizt
gull oq sil/ur á Vld1 j.,—íJðO/a fe^a dýpi. Sýnis-
hornin hefir Asgeir Torfason, efnafræðingur,
rannsakað, sera og alþm. Bjöm Kristjánsson, er
hefir góð tæki til þeirra hluta, og gullsmiður
Erl. Magnússon.
Borinn var um síðustm helgi kominn 152 fet
niður, og mun óráðið, hvort borað verður dýpra,
I eða byrjað að grafa námugöng ofan að málmun-
um, til þess að ganga úr skugga um, hve mikið
er um að vera.
„Hólar“ komu úr síðustu strandferð til lleykja-
víkur 9. þ. m., en „SkálholtM 11. þ. m.. og var
fjöldi farþegja með strandbátnum, sem vant er
að vera.
Sá strákskapur var framinn í Reykajvik að-
faranóttina 16. þ. m., að skorið var á fánah'nur
hjá ýmsum, er fslenzkan fána eiga, auðsjáanlega
í því skyni, að hann yrði eigi dreginn á stöng
16. þ. m. á hundrað ára afmæli Jónasar Hall-
grímssonar.
Sem betur fór, tókst þó að gera við fána-
línurnar aptur, svo að islenzki fáninn blakti á
stöngum, er líkneski Jónasar var afbjúpað.
í „Fjallk.11 15. þ. m. er skýrt frá því. að af
127 kindum, sem bólusottar voru í haust, gegn
bráða fári, hjá 6 fjáreigendum í Garðahverfi, og
í Hafnarfirði, hafa 72 kindur drepizt, eða sýkzt
svo hættulega, að þær vöru skornar, með því
að bóluefnið reynist allt of sterkt.
Dýral.eknir Maqn. Einarsson kvað því hafa
sont bólusetjurum aðvörun, og ráðið til, að láta
þræðina i hankanum standa sem lengst út úr
hörundinu, og þá svo neðarlega í lærið, sem
unnt er.
ý 28. f. m. andaðist í Reykjavík ungfrú Katrin
Gisladóttir, fósturdóttir Arna leturgrafara Gísla-
sonar, sonardóttir hans, um tvítugt.
3. þ. m. andaðist í Reykjavík ungfrú Jónína
Kristín Samúelsdóttir, snikkara Jónssonar, 17 ára
að aldri.
8. s. m. andaðist enn frentur f Reykjavík ung-
frú Elinborg Pálsdóttir Mdalín. — Hún var við
nára á verzlunarskólanum.
Stúlkur þessar munu allar hafa látizt úr af-
leiðingum mislingaveikinnar.
IrgGl og ioríepiano
frá heimsins vönduðustu verksmiðjum,
nineríkönsk, þýzk og sænsk, útvegar
Jón Hróbjurtsson verzlunarstj. á ísafirði.
Verðlistar íneð myndum til sýnis.