Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 28.02.1909, Page 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 28.02.1909, Page 1
Verð árgangsins (minnst 60 arltir) 3 kr. 50 aur.; erlendi8 4 kr. 50 aur., og í Ameríku doll.: 1.50. Bergist fyrir júnimán- aðarlok. ÞJOÐVILJINN. —.—.-■ -■ 1= Tuttdöasti oö þriðji áböangub. =|_..=— Upp8ögn skrifleg ðgild nema komið sé til útgeý- anda fyrir 30. dag jún- mánaðar, og kanpandi samhliða uppsögninni borgi skuld sína fyrir blaðið. M 8.-9. E.EYKJAVÍK, 28. PEBR. 1909. iambandsmálið á þinginu. —o — I Fyrsta umræða um sambandsmálið fór fram í neðri deild 19. febr. þ. á. Rúmsins vegna í blaðinu getum vér hér að eins fært lesendum vorum ágrip ræðu af ráðherra, og af ræðu ritstjóra „Þjóðv.“, 6r fyrstir tóku til máls, og eru ágripin birt hér, eins og þau eru birt í rísafold“. Ha -nnes Haístein ráðgjafi: Það þarf ekki að skýra frá því, hvernig frv. er til orðið. Texti þess er sami eins og í frumvarpsuppkasti því, sem sambands- laganefndin eða réttara sagt 19/20 hluíar hennar urðu ásáttir um, eptir að hinir dönsku nefndarmenn höfðu með msnnúð og velvild slakað til í öllum meginatrið- um í óskum og kröfum íslendinga, eptir því sem ítrast var unt, ef konungs9am- bandið skyldi haldast. MuDurinn er að eins sá, að nú er upp- kastið orðið stjórnarfrumvarp, sem kon- UDgurinn lætur leggja fyrir alþingi og rik- isþingið samtímis, og má'ið er nú endan- lega komið úr höndum sambandslaga- nefndarinnar og liennar manna til þing- anna og þeirra nefnda, sem þingin vænt- an lega setja til þess að íhuga það. Aðalbreytiug frv. frá þvi sem nú er, er í stuttu máli þessi: I stað þess að stjórnarskipun landsins sú sem nú er i gildi, er byggð á ráðstöf- un (delegation) af hálfu hins danska rík. isvalds á löggjöf og stjórn tiltekinna sér- mála í óaðskiljanlegum ríkishluta, verður stjórnarskipunin, ef þessi sambandslög verða samþykkt, eptirleiðis byggð á ráð- stöfun Islands sjálfs, er það gerir sem sér- stakt ríki, um alla hagi sína, þar á meðal einnig um meðferð þeirra mála, sem í þessu sambandslagafrumvarpi eru talin sameiginleg og að meira eða minnaleyti falin umsjá sambandslandsins fyrir íslands hönd. Það vald, sem dönsk stjórnarvöld fá til meðferðar í þeim málum, er léð þeim af Islandi. Þetta kemur og skýrt fram í frumvarpi því til nýrrar stjórnar- skrár fyrir Island sem ríki, sem fylgir sambandslagafrumvarpinu frá stjórnarinn- ar hendi. Eg álít tilgangslaust fyrir mig að fjöl- yrða um þetta mál að svo stöddu. En áður en það fer til nefndar þeirrar, sem væntanlega fær það til meðferðar, vil eg nefna nokkur atriði, sem hafa orðið fyrir misskilningi í umræðunum um málið á undan þÍDgkosningunum i haust, og skýra frá því, hvem skilning höfundar frum- varpsins leggja í þau. 1. Fyrst eru orðin „er eigi verður af hendi látiðu, í 1. gr. frv., þau hafa verið skilin svo, sem í þeim felist einhver óbein viðurkenning á rétti Dana yfir landinu. Þessi orð eru runnÍD frá Islendingum í nefndinni — öllum —, en ekki set,t þar eptir ósk dönsku nefndarmaDDanna. Þau eru tekin eptir sambandslögum Svía og Norðmanna 1814, og tilgangurinn með þeim var að slá því föstu, að ísland væri ríki, en ekki eign eða hjálenda, sem Dan- mörk pða Dana konungur sem slikur gæti ráðstafað. Þetta var sett og samþykkt j áður en við fengum framgengt eða viss- um, hvort við mundum geta feDgið fram- gengt ýmsum öðrum ákvæðum, sem einn- ig slá þessu föstu, og merkir að eins frek- ] ari áherzlu á orðunum „frjálst og sjált [ stætt landu, sem á undan þeim eru. 2. Orðin „veldi Dana konungs“ og „det snmlede Danske Rige“ í daDska text- anum áttu að vera nýnefni um hið nýja samband milli Danmerkur og íslands. Til- gangurinn var, að finna annað heiti en hingað til hefir verið notað um Danmörk og íslands, annað en „den danske Stat“, sem IslaDd eptir stöðulögunum á að vera hluti af. Þetta er heiti á liinu nýja ríkja- sambandi, en táknar ekki og hefir aldrei átt að tákna neins konar inDlimun íslands í hið danska ríki, heldur þvort á móti Ef til vill hefði orðið „Monarki“ farið j betur, en surriir voru á móti þvi af þvi, i að í því heiti gæti verið sérstök söguleg merking. 3. Orðin í 3. gr. 2. lið: „er snertir íslánd sérstaklega“ þýða það sama eins og þar stæði: „er snerta málefni íslands, sem ekki er ftírið með sem sameiginleg mál eptir lögum þessum“; UDdantekning- in nær þannig til allra ríkissamninga, sem á einhvern hátt koma við mál, sem ís- land sjálft framkvæmir hið æðsta vald yfir. 4. Orðið „samþykki“ í sama lið þýðir, að íslenzk stjómarvöld hafi fullt synjun- arvald að því er ísland snertir gagnvart öllum ákvæðum í ríkjasamningum, er koma við þessi nýnefndu mál. Það er að eins fyrir máltizku sakir, að orðið „Medvirk- ning“ er notað í danska textanum í þessu sambandi í staðinn fyrir „Samtykke“, en þýðir sama. Þetta ákvæði takmarkar svo mjög „delegationina“ á meðferð utanrik- ismálanna, að engan veginn er hægt að segja, að þau séu algerlega sameiginleg. 5. Þar sem stendur í 4. lið 3. grein- ar, að aukning á strandvörnum af íslands hálfu skuli vera „eptir samkomulagi við Danmörk“, þá á það að eins við hið nán- ara fyrirkomulag á eptirlitinu. Meðan Danir eptir sambandslögum hafa strand- vörzluna á hendi, bera ábyrgð á henni gagnvart öðrum löndum, er nauðsynlegt að samræmi sé í þeim vörnum, er þeir halda uppi fyrir vora hönd og þeiin, sem vér gerum út sjálfir. Þetta og ekki ann- að merkja orðin. 6. Orðið „jafnrétti“ í 5. gr. þýðir sama og „sami réttur að öðru jöfnu“, rins og tekið er fram í athugesemdum nefndar- innar við frv. það rnerkir að þjóðernið út af fyrir sig skuli ekki valda misrétti, en að báðir verði að öðru leyti jafnt að fullDægja öllum skilyrðum landslaganna fyrir þvi, að verða réttindanDa aðnjót.andi. 7. Akvæðið í 9. gr. um uppsögn sarn- eiginlegra mála, sem mér fyrir mitt leyti virðast vera full-ljós, merkja, að konung- ur kveður á um sambandsslit í hinum sameiginlegu málum, sem þar eiunefod, allt samkvæmt hÍDni framkomnu tillögu um það, eða, ef bæði alþingi og ríkisþing- ið gera tillögur um þetta efni, þá sam- kvæmt þeirri tillögunni, sem lengra fer. Eptir samkomulagi milli Neergaards forsætisráðherra og mín býst eg við, að þjóðþÍDgið hafi sett nefnd í þetta mál, og sé hér sett nefnd í dag, geta nefndirnar upp frá þessu með ritsimaskeytum borið sig saman um það, sem vafasamt kann að þykja, og leitað samkomulags, ef svo ber undir. Eg ætla því ekki að tala um rnálið frekara að sinni; eg vona fastlega, að það verði af öllum hlutaðeigendum tekið til rólegrar og stillilegrar yfirvegunar, og allt sem að þvi lýtur athugað rneð gætni og glöggu auga, án ofurkapps og hleypi- dóma; vona eg að hóttv. meir hluti muDÍ, að það er ekki að eins á bans valdi, held- ur og á hans ábyrgð, hvort landið á að verða aðnjótandi þeirrar stórkostlegu rétt- arbótar, sem hér er kostur á, eða fara á mis við hana um langan aldur eða að öllu leyti. Skúli Thoroddsen kvað ó- þarft að tala langt um þetta mál, svo margrætt sem orðið væri. Þótti lands- stjórnin eigi hafa sýnt sig jafn óhlutdræga sem vera átti, er hún hefði að eins látið símrita til Islands ólit meiri liluta milli- landanefndarinnar og eins látið sér nægja að birta það eitt í LögbirtingablaðÍDU, í stað þess að þjóðin hefði átt heimting á að fá samtímis að heyra álit minni hluta nefndarinnar. Islenzku nefndarmenn meiri hlutans hefðu látið mjög drýgindalega yfir því, þegar Sk. Th. bar fram breytingartillög- ur sínar í nefndinni, að þær mundu eiga litlum byr að fagna á íslandi, og meðal aDDars hefði einn þeira kveðið svo að orði við dönsku nefndarmenDÍna: Seks trœkfler bedre en én; þ. e. að sex dragi meira að sér en einn. Sk. Th. kvað það gleðja sig, að raunin hefði orðið önnur við kosDÍngarnar.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.